Morgunblaðið - 17.06.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.06.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2008 23 Fer þessu bráðum að ljúka? Ingjaldur Hannibalsson, deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla Íslands, kannar hvað tímanum líður. Um 1.100 kandídatar voru brautskráðir á laugardag og tók athöfnin tvo og hálfan tíma. Kristinn Blog.is Egill Jóhannsson | 16. júní Eftiráspeki um hagstjórn Markmið Seðlabanka Íslands (SÍ) skv. lögum frá Alþingi er að halda verðbólgu innan við 2,5%. Stýrivextir eru tækið. Það hefur ekki virkað. Ástæðurnar eru að mínu mati: 1) Verðbólgumark- miðið var óraunhæft, 2) vanmat á áhrifum hækkunar stýrivaxta á gengi krónunnar í hagkerfi með frjálsu fjármagnsflæði, og 3) verðtrygging húsnæðislána. Nú er auðvitað auðvelt að vera vitur eftir á og auðveldara um að tala en í að komast en samt sem áð- ur tel ég að hægt hefði verið að sjá atburðarásina fyrir. Lögmálin, sem stýra sambandi vaxta, gengis, verðbólgu og atvinnuleysis, voru öll þekkt og gengu, þegar upp var staðið, öll í takt. Niðurstaðan var nákvæmlega eins og við mátti búast. Flest af því sem hér er skrifað hefur áður komið fram í ræðu og riti en hér kemur fram í hnotskurn það sem ég tel að hafi farið úrskeiðis … … Aukið lánshlutfall húsnæðislána við þessar aðstæður var síðan olían á eldinn. Meira: egill.blog.is Einar Sveinbjörnsson | 16. júní Veðurútlitið á 17. júní … Loftið sem NA-áttin mun bera með sér er frekar þurrt, og úrkoma verður óveruleg um norð- an- og norðaustanvert landið. Þar má þá gera ráð fyrir að verði að mestu skýjað og sólarlítið og fremur svalt eða 5 til 7 stiga hiti. Sunnan og vestan til er óhætt að gera ráð fyrir að það verði léttskýjað víðast hvar. … Meira: esv.blog.is Friðjón R. Friðjónsson | 16. júní Digsby er málið Það er alltaf gaman að rekast á hugbúnað sem einfaldar hlutina. Digsby er slíkur hugbúnaður. Það sem Digsby gerir er að sameina mismunandi spjallforrit í eitt og hann skannar pósthólf líka. … … Digsby er lítið forrit sem sameinar allar þjónusturnar í eina þannig að til hlið- ar á skjánum hjá mér er bara eitt forrit sem kemur í stað allra hinna og Digsby fylgist með pósthólfunum. Ljómandi. Digsby er til fyrir Windows, Makka og Linux. Einfaldara er alltaf betra … Meira: fridjon.blog.is REYKJAVÍK skart- ar sínu fegursta á þjóðhátíðardaginn, ið- ar af blómlegu mann- lífi þegar borgarbúar halda daginn hátíðleg- an í miðborginni. Eftir liðlega þriggja mánaða hreinsunarátak sem bæði borgaryfirvöld, íbúar og hags- munaaðilar hafa staðið að má nú sjá árangurinn. Eins og flestum er kunnugt var umræðan um miðborgina afar neikvæð í vor. En það er ekkert nýtt að fólki finnist að ástand miðborgarinnar gæti verið betra og í samræmi við það að Íslendingar hafa ætíð borið hag miðborgarinnar fyrir brjósti. Meistari Kjarval telur Reykjavík margt til tekna í blaðagrein frá árinu 1923, en þar segir hann m.a.: „Laugavegurinn er svo formfull og laðandi gata að hreinasta yndi er að ganga hana ef hún bara væri hreinlegri en hún er. Ef hún væri slétt og snyrtilega um hana hugsað frá Smiðjustíg alla leið inn að Rauðalæk, má segja að gatan lokki mann og seiði. Þessi örfíni halli sem laðar augað og tilfinninguna inn eft- ir eða niður eftir á víxl.“ Þetta var ritað fyrir 85 árum og standast þessi skrif ótrúlega tímans tönn ,,bara ef hún væri hreinlegri en hún er“. Rétt eins og Kjarval bera núlifandi Íslendingar hag miðborg- arinnar fyrir brjósti. Þegar borgin kom undan vetri var ljóst að aðgerða var þörf. Haldinn var miðborgarfundur þar sem borgaryfirvöld, lögregla og hagsmunaaðilar fóru yfir stöðu mála. Á þeim fundi lofaði ég fund- armönnum að reisa miðborgina við og að eigi síðar en á þjóðhátíð- ardaginn myndu sjást miklar breytingar til hins betra. Víðtækt samstarf borgaryf- irvalda og borgarbúa hefur skipt sköpum í þessu verkefni því eins og við vitum þá mótast borg af þeim sem í henni búa. Borgaryf- irvöld lögðu sitt af mörkum og hreinsunarátak var skipulagt í samvinnu við framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar. Haf- ist var handa við endurskoðun deiliskipulags við Laugaveg sem miðar að því að varðveita 19. aldar götumynd Laugavegs í samráði við hagsmunaaðila. Ég taldi brýnt að þeir aðilar sem ættu hagsmuna að gæta í miðborginni hefðu aðkomu að verkefninu og beitti mér fyrir því að stofnaður yrði sérstakur að- gerðahópur. Hópurinn fundar vikulega og er samráð haft m.a. við lögreglu, slökkvilið og ýmsa hagsmunaaðila í miðborginni. Framkvæmdastjóri miðborgarmála fylgir eftir ákvörðunum borg- arstjóra varðandi miðborgina og er tengiliður milli stofnana/ fagsviða borgarinnar og milli borgarinnar og hagsmunaaðila. Ábendingavefurinn 1, 2 og Reykjavík sýndi og sannaði að borgarbúum er annt um borgina sína og bárust fjölmargar ábend- ingar til Reykjavíkurborgar um úrbætur í hverfunum frá færustu sérfræðingum í faginu, íbúunum sjálfum. Ég heimsótti íbúa í öllum hverfum og fór yfir hin ýmsu mál sem voru í brennidepli á hverjum stað. Hreinsun og fegrun var meg- ininntak þeirra ábendinga sem bárust frá íbúum miðborgar og hafa starfsmenn borgarinnar þeg- ar brugðist við fjölmörgum þeirra ábendinga líkt og í öðrum hverfum borgarinnar. Borgarbúar mega svo eiga von á bæklingi með frekari upplýsingum um ávöxt samstarfs- ins í byrjun júlí. Hreinsunarátakið ,,Hvítur stormsveipur“ í samvinnu við íbúa- samtök miðborgarinnar var enn fremur vel sótt. Þá tóku íbúar til hendinni; máluðu, sópuðu og gerðu sitt til þess að fegra miðbæinn. Menningarlífið í höfuðborginni blómstrar sem aldrei fyrr og næg- ir þar að nefna nýafstaðna Listahátíð auk garðtónleika tón- listarsendiherranna Mezzoforte, Bjarkar og Sigur Rósar. Á þjóðhátíðardaginn verður opn- uð sýning á skipulagsverkefnum í miðborginni á Laugavegi 33 og vil ég benda borgarbúum sem annt er um miðborgina að fara á sýn- inguna, því þar gefur að líta áhugaverð verkefni sem eru í vinnslu hjá skipulags- og bygg- ingasviði Reykjavíkurborgar. Hér er aðeins tæpt á því helsta sem hefur átt þátt í því að hreins- unarátakið í miðborginni tókst jafnvel og raun ber vitni. Verk- efnið er flókið en með sameig- inlegu átaki er hægt að lyfta grettistaki, ekki aðeins í miðborg- inni heldur í öllum hverfum Reykjavíkur. Hér verður ekki staðar numið heldur haldið áfram á sömu braut og er mér efst í huga þakklæti til þeirra fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg, bæði starfsmönnum Reykjavíkurborgar, íbúum og hagsmunaaðilum. Til hamingju með hreina og fal- lega miðborg. Gleðilega þjóðhátíð. Eftir Ólaf F. Magnússon » Víðtækt samstarf borgaryfirvalda, íbúa og hagsmunaaðila í átakinu hefur skipt sköpum því eins og við vitum þá mótast borg af þeim sem í henni búa. Ólafur F. Magnússon Höfundur er borgarstjóri. Til hamingju Reykvíkingar Sigríður Laufey Einarsdóttir | 16. júní Vonandi verða ekki fyrstu viðbrögð umhverf- isráðherra að láta miða byssunni á Bangsa þótt hann sé að gæða sér á æðareggjum og fá sér smá lúr eftir langa sund- ferð. Hann hefur sinn rétt í náttúrunni; nú reynir á raunverulegan vilja til að sýna honum tilhlýðilega virðingu og vernd. Meira: logos.blog.is Ísbjörninn verði velkominn túristi Þorleifur Ágústsson | 16. júní Mannfjandinn er kasóléttur! … En hví skyldi ég vera að rifja upp hann Hödda svo löngu síðar? Jú, ég rakst á frétt og viðtal við fýr í henni Ameríku sem ku vera kvenmaður í karl- mannsbúningi – svona „forsteiktur“ skratti sem ekki er meira „tilbúinn“ en svo að hann er kasóléttur!! … og ef það er ekki nóg – þá á hann konu – svona alvörukonu sem hefur „allt á sér“! Nei, málið var miklu einfaldara með hann Hödda, hann átti nefnilega bróður sem svipað var ástatt um og við krakkarnir vissum að saman hefðu þeir búið til bumbuna á Hödda! Og það var satt – stóru strákarnir í Honda- klúbbnum sögðu okkur það!! Að vísu mætti halda því fram að með- gangan hjá Hödda hefði verið óeðlilega löng og aldrei vissum við til þess að Höddi yrði léttari – en það skipti engu máli því að við vissum að á meðan hann hefði bumbuna góðu þá væru honum all- ir vegir færir – við nefnilega heyrðum að hann hefði fallið útbyrðis af síðutog- aranum Harðbaki og að það sem hefði orðið honum til lífs hefði verið að hann flaut á bumbunni! Það fannst okkur flott! Enda var lífið svo miklu einfaldara hér áður fyrr. Meira: tolliagustar.blog.is Einar Einarsson | 16. júní Mikið er talað um að flók- ið sé að svæfa dýrið og halda því sofandi. En af hverju þarf að halda því sofandi? Er ekki nóg að svæfa það og setja það í búr, og þótt bjössi vakni í sterku búrinu, hvað með það? Hægt væri að geyma hann þar og gefa honum að éta á meðan fundið væri út úr því hvernig og hvert hann yrði fluttur. … Meira: einarein.blog.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.