Morgunblaðið - 17.06.2008, Síða 34
„Fólk jafnvel fussar og
sveiar og spyr fyrst af
öllu „til hvers er þetta?“,“
segir hún … 41
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA leggst gríðarlega vel í okk-
ur,“ segir Guðmundur Kristinn
Jónsson, forsprakki hljómsveit-
arinnar Senuþjófanna, sem leikur
ásamt Megasi í Höllinni í Vest-
mannaeyjum hinn 3. júlí næstkom-
andi. Aðspurður segir Guðmundur
að Megas hafi ekki spilað í Eyjum í
fjöldamörg ár, en þótt hann viti ekki
nákvæmlega hversu mörg árin eru
hafi hann heyrt einhvern segja að
líklega séu um 18 ár síðan Eyjamenn
hafi notið nærveru kappans.
„Við ætlum að leika ný lög í bland
við margar af perlunum sem Megas
hefur samið í gegnum tíðina. Allir
ættu þannig að hafa gaman af. Við
höfum verið að spila víða um landið
og það er mikil tilhlökkun í okkur að
spila í Eyjum. Við lofum kraftmikl-
um og góðum tónleikum,“ segir Guð-
mundur.
Eingöngu ábreiður
Samstarf Megasar og Senuþjóf-
ana hófst í kringum upptökur á plöt-
unum Frágangi og Hold er mold
sem komu út í fyrrasumar og -haust.
Báðar hlutu plöturnar mikið lof
gagnrýnenda, en um var að ræða
fyrstu plötur Megasar í sex ár og
voru þær því löngu tímabærar.
Samstarf Megasar og Senuþjóf-
anna mun síðan bera enn frekari
ávöxt nú í sumar því þriðja plata
þeirra er væntanleg upp úr miðjum
júlí. Að sögn Guðmundar hefur plat-
an þegar hlotið nafn, en hún mun
heita því skemmtilega nafni Á morg-
un. Guðmundur segir að platan verði
frábrugðin hinum plötunum tveimur
að því leyti að á henni verði ein-
göngu að finna tökulög – svokallaðar
ábreiður.
Forsala aðgöngumiða á tónleikana
fer fram í Sparisjóði Vestmannaeyja
og hefst fimmtudaginn 18. júní.
Miðaverð í forsölu er 2.000 kr. en
2.500 kr. við inngang.
Þá er einnig hægt að tryggja sér
miða með því að senda póst á net-
fangið megas@heimaey.is.
Megas heldur tónleika í Vestmannaeyjum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Megas Ætli Árni Johnsen muni taka nokkur lög með kappanum?
Ný plata meistarans, sem heitir Á
morgun, kemur út um miðjan júlí
Eins og fram kemur í mynda-
grein hér til hliðar var mikið um
dýrðir í fimm ára afmæli Reykjavik
Grapevine í Viðey á föstudaginn.
Þar kom hljómsveitin Dáðadrengir
fram í fyrsta skipti í um það bil þrjú
ár, en eins og margir eflaust muna
bar sveitin sigur úr býtum í Músíktil-
raunum árið 2003. Ekkert hefur
hins vegar heyrst frá sveitinni síðan
2005 þegar upp úr samstarfinu slitn-
aði. Þeir voru þó tilbúnir til þess að
gera vinum sínum á Grapevine þann
greiða að spila í afmælinu, og ekki
skemmdi fyrir að þeim var boðið far
með þyrlu út í eyjuna. Nú er spurn-
ing hvort Dáðadrengir hafi komið af
stað nýju „trendi“ meðal hljóm-
sveita, svipuðu og einkaþotu-
„trendi“ íslenskra auðmanna …
Dáðadrengir fluttir
með þyrlu til Viðeyjar
Út er kom-
inn kassi með
fimm geisla-
plötum sem
sagðar eru
innihalda 100
bestu lög lýð-
veldisins. Það er Sena sem gefur
safnið út, en 30 einstaklingar voru
fengnir til að velja þau 30 lög sem
þeir töldu bestu lög íslenskrar dæg-
urtónlistar, og voru 100 lög svo tek-
in úr þeim niðurstöðum. Sérstaka
athygli vekur að Bubbi Morthens á
flest lög í safninu, en hann er flytj-
andi 10 laga á plötunum, ýmist einn
eða með hljómsveit. Þá eru 12 lag-
anna flutt á ensku, eða 12%, sem
verður að teljast nokkuð merkileg
tölfræði. Það skýtur hins vegar
nokkuð skökku við að þekktustu
tónlistarmenn Íslandssögunnar,
Björk og Sigur Rós, eigi ekkert lag
í safninu. Á því er þó eðlileg skýr-
ing; þau vildu hreinlega ekki eiga
lög á plötunum.
Björk og Sigur Rós
ekki á topp 100
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
„ÞETTA eru myndir af hand-
járnum. Ísland handjárnað við Nor-
eg, Ísland handjárnað við breska
herinn, Ísland handjárnað við
Bandaríkin …“ segir Alexander
Zaklynsky um eitt verka á mynd-
listarsýningu sem verður opnuð í
dag. Umrætt verk er eftir Katrínu
Jónsdóttur og er eitt af mörgum til-
brigðum við sjálfstæðisbaráttuna
sem við minnumst 17. júní.
Alexander og Davíð Örn Hall-
dórsson eru sýningarstjórar sýn-
ingarinnar sem verður í Lost Horse
Gallery, sem Alexander rekur
ásamt Agnari Agnarssyni. Galleríið
er við Skólastræti 1, í húsi sem áður
hét Nýmörk og var upphaflega
hesthús og fjós en síðan hafa lista-
menn löngum unnið í húsinu. Þar
munu alls tólf listamenn í yngri
kantinum sýna. En hver eru tengsl
þessarar kynslóðar við þjóðhátíð-
ardaginn? „Það er mjög misjafnt,
en ég sjálfur ber hlýjar tilfinningar
til dagsins og á frá honum góðar
minningar,“ segir Davíð og bætir
við að þessi spurning hafi einmitt
vaknað í ferlinu. „Fólk er hins veg-
ar mjög mislangt komið í rann-
sóknum sínum, sum verkin hafa
beina skírskotun í 17. júní en ann-
ars eru þetta tilraunir í sem eru
mislangt á veg komnar.“ En lista-
mennirnir bera sjálfstæðinu gott
vitni. „Það sem mér finnst áberandi
er hvað öll verkin eru mismunandi.
Við erum öll sett undir sama hatt
sem ungir myndlistarmenn en
verkin eru gjörólík,“ segir Davíð.
Goddur skrifar leiðara í sýning-
arskrá og þeir Sigtryggur Berg
Karlsson og Ásmundur Ásmunds-
son verða með uppákomur og svo
verður húllumhæ fram eftir kvöldi.
Þjóðhátíð í hesthúsi
Myndlistarsýning opnuð 17. júní klukkan 17 í Lost Horse Gallery í Skólastræti
Tólf ungir myndlistarmenn, tveir gjörningar og húllumhæ fram á kvöld
Morgunblaðið/Kristinn
Týndir hestar Alexander Zaklynsky og Davíð Örn Halldórsson nutu veðurblíðunnar í miðbæ Reykjavíkur í gær.
Tómas Magnússon
Davíð Örn Halldórsson
Halldór Ragnarsson
Jóhanna Helga Þorkelsdóttir
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
Guðmundur Thoroddsen
Þrándur Þórarinsson
Bergþór Morthens
Helgi Örn Pétursson
Katrín Friðriksdóttir
Alexander Zaklynsky
Aron Bergmann
Listamennirnir