Morgunblaðið - 11.07.2008, Qupperneq 19
blautum harðfiski eða hvað. Síðan för-
um við yfir helstu varúðarráðstafanir
yrðum við fyrir því að arka fram á ís-
björn.
Þegar göngugarparnir draga seinna
um kvöldið fram beikonpakka í stöfl-
um ákveð ég að spyrja einskis en láta
eins og það hljóti að vera fullkomlega
eðlilegt að steikja beikon í miðnæt-
ursól.
Næsta morgun sigla einmitt soðin
egg og kalt beikon á borðið. „Smyrjið
ykkur nesti fyrir daginn, elskurnar!“
Við höldum af stað með beikonsam-
lokur í annarri hönd og banana í hinni.
Hvort sem það er nestinu að þakka,
náttúrufegurðinni eða blíðunni, örkum
við léttilega yfir ár, í gegnum snjó-
skafla, upp og niður tvö fjöll, samtals
26 kílómetra yfir daginn. Matforeldrar
mínir eru augljóslega komin á Horn-
strandir til að taka almennilega á.
Kínverska og ullarnærföt
Eftir því sem sælkeramaturinn
verður meiri og kílómetrarnir fleiri í
ferðinni sækir það á mig hvað það sé
eiginlega sem sé breytt. Annaðhvort
er þessi ferð í grunninn allt öðruvísi
en það sem ég áður þekkti – eða þá að
ég bý í dag í sælkerasamfélagi sem
ég ekki bjó í áður. Kristallast velmeg-
un landans ef til vill í breyttum
gönguferðum og beikoni á fjöllum?
Furuhnetum og fetaosti við ysta haf?
Þótt einungis séu 15 ár síðan ég
reimaði fyrst á mig gönguskóna
þekkti ég þá hvorki pestó né gras-
kersfræ. Kóríander hefði eins getað
verið kínverska. Nokkrum árum síð-
ar er ég stödd við norður-úthaf, þar
sem byggð lagðist af fyrir hálfri öld –
að úða í mig þessu og meira til.
Áður hitaði ég vatn á göngum, húk-
andi yfir prímus og hellti því yfir rán-
dýrt frostþurrkað kjöt, girti ullar-
nærbuxurnar enn betur og fannst ég
og Haraldur Örn eiga sitt hvað sam-
eiginlegt. Því meira meinlæti, þess
betri ferð.
Nú hefur dæmið snúist við. Því
meiri munaður, því ánægjulegri ferð.
Og það þarf ekki endilega að ganga
með allt á bakinu. Trússferðir og
skálagistingar verða æ algengari.
Hvort tveggja hefur sinn sjarma.
Ég staðhæfi þó að héðan í frá mun ég
ekki hreyfa mig spönn frá rassi án
beikonsamlokunnar góðu.
sigridurv@mbl.is
Ljósmyndir/Gréta S. Guðjónsdóttir
ferðalög
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 2008 19
ÚTSALAN
HEFST Í DAG
30-50%
AFSLÁTTUR
Íslendingar í út-löndum geta veriðalveg sér-
þjóðflokkur. Ár hvert
hittast hundruð Íslend-
inga á ensku strönd
Kanaríeyja og hefur
hópurinn myndað vina-
tengsl sem haldast allt
árið um kring, hvort
sem er á Íslandi eða á
Kanarí.
Bergleif Gannt Joen-
sen, kokkur og Kanarí-
fari, segir sama fólk
koma ár eftir ár á sama
tíma, febrúar til mars,
og skemmta sér konunglega. „Fólk-
ið þekkir hvert annað orðið mjög vel
því það kemur svo til ár hvert á
ensku ströndina á Kanarí. Það búa
allir á sömu hótelum þarna úti og
fólk hittist mikið á Klörubar til að
borða, en þar er pláss fyrir hundruð
gesta í mat,“ segir Bergleif.
Íslendingarnir kunna greinilega
að skemmta sér vel saman og passa
að láta sér ekki leiðast í sólinni. „Á
svæðinu er risastór verslunarmið-
stöð sem heitir Jumbo Centre og
flestallir Íslendingarnir búa í kring-
um hana. Þar er mikið af veitinga-
húsum, verslunum og hægt að
kaupa allt af öllu. Við gerum mikið
saman, förum til dæmis í skoð-
unarferðir, siglum á skútum, förum í
fjallaferðir með Klöru
og spilum minigolf á
hverjum sunnudegi.
Svo höldum við stund-
um hattakvöld og horf-
um á tískusýningar frá
verslun sem margir Ís-
lendinganna versla í.
Þetta er mjög gaman
og alltaf eitthvað að
gerast, þá má ekki
gleyma að nefna ís-
lensku kvöldin, en þá
er íslenskur matur á
boðstólnum.“
Bergleif segir hópinn
ekki þurfa neitt fyllirí
til að skemmta sér. „Þetta er svo
skemmtilegur hópur og alls ekkert
fyllirí á fólki, það er löngu liðin tíð.
Eftir langan dag hittist fólkið þó
stundum á Mannabar og fær sér
drykk. Nafnið á barnum hefur
skemmtilega sögu en maðurinn sem
á hann heitir Manuel, við köllum
hann Manna.“
Kanarífararnir slíta ekki vinátt-
unni á milli ferða til Kanarí, heldur
hittast á hverju sumri og halda helj-
arinnar mót. „Mótið er haldið hjá
mér hérna í Árnesi núna, það verður
glæsilegt happdrætti, skemmti-
atriði, dansleikir og bara hreinlega
stórhátíð,“ segir Bergleif og til-
hlökkunin leynir sér ekki.
liljath@mbl.is
Vinátta sem helst
árið um kring
Enska ströndin Vinsæl hjá íslenskum Kanaríeyjaförum.
Kanarífari Bergleif
Gannt Johanesen segir
stemninguna góða.
Mörg hundruð Íslendingar hittast reglulega
á Kanaríeyjum og halda uppi fjörinu.
Ólafur G. Einarsson og HalldórBlöndal fóru á laxveiðar í
Sandá í byrjun júlí. Það var rysjótt
veður og þeir fengu engan lax. Þeir
fengu húsaskjól í Kjarnaskógi hjá
vini sínum Arngrími Jóhannssyni
flugmanni og Halldór skrifaði í
gestabókina:
Langt yfir skammt oft leita menn,
ljóst að gagnast engum.
Norður í Sandá ókum enn,
öngvan laxinn fengum.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
þeir vinirnir ganga með bökkum
Sandár, en oftast hefur Lárus
Jónsson verið í fylgd með
þeim. Við slíkt tilefni orti
Halldór:
Sandá var gruggug af surgi
og sargi frá Ólafi durgi.
Og líkast til var
hann Lárus minn þar
en laxarnir? – þeir voru hvurgi.
Og einnig:
Ólafur fór úr ánni og strax
upp með sporðahvini
sér úr strengnum lyfti lax
líkt og í kveðjuskyni.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af Sandá
og laxveiði
Mangó-kókosfiskréttur
með kóríander
900 g hvítur fiskur (best að nota
þorsk eða lúðu)
1 stórt mangó, afhýtt og skorið í 1
sm bita (má nota niðursoðið
mangó)
2 kókosmjólkurdósir 400 ml.
3 msk. fersk, söxuð kóríanderlauf
Karríblanda:
2 rauðir chilli, helmingaðir og fræ-
hreinsaðir
hýði og safi úr 1 lime
2 stangir sítrónugras
2,5 sm fersk engiferrót í sneiðum
4 hvítlauksgeirar
1 lítill laukur
3 msk. thai fiskisósa
Upplagt er að búa til karrímauk-
ið áður en lagt er að stað, sem og að
sjóða kókosmjólkina niður.
Innihaldsefnin í karríblöndunni
eru einfaldlega sett í mixer og
maukuð. Kókosmjólkin er aftur á
móti sett á wok-pönnu, suðan látin
koma upp, hitinn lækkaður og
vökvinn látinn sjóða niður og þykkj-
ast. Það á að taka um það bil 20 mín.
Tíu mínútum áður en bera á mat-
inn fram að kvöldi göngudags er
kókosmjólkin einfaldlega hituð að
suðu og karríblandan og fiskurinn
sett út í. Eftir um það bil 4 mín. er
mangóið sett út í og það eldað í 2
mín. Rétturinn er borinn fram með
hrísgrjónum og ferskum kóríander.
Litríkt
Mikið er
lagt upp
úr smá-
atriðunum
í þessari
hönnun.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111