Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1910, Page 5
Pistlar
eftir
Jón Jónsson Gauta.
II.
Það er opt komizt svo að orði um kaupfjelagsskapinn
hjer á landi: að hann sje enn á bernskuskeiði. En bak
við þessi ummæli liggur þá einnig venjulega sú skoðun,
og kemur opt fram, beinlínis eða óbeinlínis, að hann
&tti að vera vaxinn upp úr því, eða þá gera það sem
tyrst.
Auðvitað meina menn sjaldnast alveg það sama, þegar
þannig eða líkt þessu er til orða tekið; en hvað sem um
það má segja er afaráríðandi að skýra málefnið og svara
þessum spurningum:
Hvað á kaupfjelagsskapurinn að gera hjer á Iandi? og
Hvaða erindi á hann inn í okkar viðskiptalíf?
Það sannar má ske bezt að hjer er ekki um fullþrosk-
aða hugmynd eða verknað að ræða, að kaupfjelagsmenn
sjálfa greinir eigi svo lítið á um þetta, að minnsta kosti
undir niðri. Pað er ekki hægt að segja að það komi
opinberlega mikið fram í ræðum eða ritum hjer á landi.
Það voru ekki allfáir, — ef til vill meiri hluti manna, —
sem hugsuðu sjer ekki hærra með kaupfjelögin í fyrstu
1