Morgunblaðið - 06.10.2008, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.10.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2008 21 MINNINGAR ✝ Símon IngvarKonráðsson málari fæddist í Reykjavík hinn 17. júní 1919. Hann lést á líknardeild Landakotsspítala 29. september síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Konráð Ingi- mundarson mót- oristi, f. 1886 í Vestmannaeyjum, d. 1957 og Guðrún Sigríður Ein- arsdóttir, verkakona og hús- móðir, f. 1886 á Húsavík eystri, Borgarfjarðarhr., d. 1967. Börn þeirra hjóna, sem öll eru nú látin, voru Jón Einar, Nikólína, Con- cordia, Sigríður María, Símon Ingvar, Sigurveig Stella, Ágúst Ingimundur og Elínberg Svein- björn (Lalli). Eftirlifandi eiginkona Símonar er Doris Jelle Konráðsson hús- móðir, f. 12.10. 1928, gengu þau í hjónaband 17.6. 1949. Börn þeirra hjóna eru: 1) Paul Erik f. 1948, d. sambýliskona hans er Ingunn Nielsen, börn Einars eru Símon Karl, Sigríður Rós og Elías Snær. 7) Birgir, f. 1960, börn hans eru Anna Gígja, Ingvar Dór, Aron Gauti, Rögnvaldur Nökkvi og Saga Kristín. 8) Díana, f. 1963, eiginmaður hennar er Smári B. Ólafsson; dóttir Díönu er Karen Andrea, synir Díönu og Smára eru Reynir Óli og Ívar. 9) Helen, f. 1972, og eru synir hennar Berg- ur Ari og Kjartan. Langafabörn Símonar eru tuttugu talsins. Símon vann sem mjólkursendill í Reykjavík á unglingsárum fram á fullorðinsár og fram að námi vann hann m.a. sem kaupamaður í sveit. Hann nam málaraiðn hjá Fritz Bertelsen árin 1945-46 og hjá Þorbirni Þórðarsyni 1946-49 og lauk prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík 1949 og sveinsprófi sama ár. Símon vann við húsa- málun í Reykjavík fram til ársins 1969 en þá fluttist fjölskyldan til Svíþjóðar og bjó þar til ársins 1974. Þegar heim kom fór Símon fljótlega að vinna á Líkkistu- vinnustofu Eyvindar Árnasonar þar sem hann vann til ársins 1991. Símon var virkur félagsmaður í Málarafélagi Reykjavíkur og var í stjórn félagsins í nokkur ár. Símon verður jarðsunginn í dag frá Fella- og Hólakirkju og hefst athöfnin kl. 13. 2005, Doris átti hann fyrir hjónaband en Símon ættleiddi hann og gekk honum algerlega í föð- urstað, synir Páls eru; Trausti og Júl- íus Símon og er eft- irlifandi sambýlis- kona Páls Guðrún Ragna Krüger og synir þeirra eru Val- geir og Bergþór. 2) Olga Karen Jelle, f. 1950, synir hennar eru Jón Símon, Pét- ur Marinó og Heimir. 3) Bryndís f. 1953, gift Ragnari S. Ólafssyni; sonur Bryndísar er Óðinn. 4) Sig- ríður Guðrún (Sirrý) f. 1954, d. 1999, eftirlifandi eiginmaður hennar er Þorbjörn Guðmunds- son; börn Sigríðar eru Katrín Björk, Bryndís Ísfold og Árni Rúnar. 5) Rögnvaldur Ragnar, f. 1956 og er kona hans Kirsten Godsk; dóttir Rögnvaldar er Momo Rakel, synir hans og Kirs- ten eru Kristján, Jónas, Daníel og Ísak. 6) Einar Andrés, f. 1959, Ég kynntist fjölskyldunni í Rjúpufelli fyrir 15 árum, var strax tekinn í hópinn og það tókst góð vin- átta með okkur Símoni og hélst alla tíð þrátt fyrir að aðstæður breytt- ust. Það var gott að eiga Símon að vini og hann var góður tengdafaðir. Hann var hreinskiptinn og skemmti- legur heim að sækja, ferskur og stutt í kátínuna, lundin létt, hafði gaman af að spjalla og rökræða. Hann var vel lesinn og fylgdist vel með því sem var að gerast í sam- félaginu, ekki síst í pólitíkinni. Hann tók óhikað afstöðu og varði málstað þeirra sem minna máttu sín. Þegar ég kom inn í fjölskylduna var hún orðin býsna stór, börnin öll á lífi og barnabörnin byrjuð að tínast inn. Það var oft fjölmennt í afmælum og jólaboðum en það var rík hefð í fjölskyldunni að koma saman þegar einhver átti afmæli og skipti ekki máli hvort áttu í hlut börnin eða full- orðnir. Símon og Doris nutu þess að hafa fjölskylduna í kringum sig og leystu vel hlutverk sitt sem höfuð hennar. Stundum þegar talið barst að fortíðinni og rætt var um lífs- hlaup Símonar og Dorisar og hvern- ig þeim hafði tekist að framfleyta stórum barnahóp á málaralaunum einum saman, var svarið: „Jú, þetta gat verið erfitt á stundum en þetta var ekkert til að kvarta yfir.“ Síðan bættu þau við: „Stundum mátti ekki tæpara standa en með samstilltu átaki og mikilli nýtni tókst þetta.“ Þau ræktuðu með sér það viðhorf að þrátt fyrir allt og að á stundum hafi lítið verið til skiptanna hafi þau haft það gott og þannig hafi það lengst af verið. Þetta viðhorf nægju- semi og jákvæðni ræktaði Símon með sér meðan ævin entist og svarið spurningunni hvernig hefur þú það var ætíð það sama, ég hef það fínt. Símon naut mikillar hamingju í hjónabandi. Þegar ég hitti Símon og Doris í fyrsta sinn, komin á efri ár, fékk ég strax á tilfinninguna að enn lifði vel í glóðinni sem tendruð var fyrir mörgum áratugum. Stundum var smátuð en það risti ekki djúpt og maður fann glöggthversu tilfinn- ingaleg tengslin voru sterk, og þau nutu gagnkvæmar umhyggju og ást- ar hvort annars. Það eru mikil forréttindi og gæfa hvers manns að fá að njóta svo langrar samvistar í ást og um- hyggju. Fyrir þessum sterku tengslum fann maður vel í heim- sóknum í burstabæinn við Þingvalla- vatn. Símon og Doris og bústaður- inn, sem var byggður í sama stíl og burstabæir fyrri tíma, voru eins og ein heild, þarna leið þeim vel og kannski áttu þau þar sínar bestu stundir á efri árum. Nú er Símon genginn til náða eftir langt og far- sælt líf. Hann gerði sér vel grein fyr- ir að hverju stefndi síðustu mánuð- ina sem hann lifði, hann var sáttur við lífið og var tilbúinn að hefja nýj- an könnunarleiðangur. Hvert sá leiðangur hefur leitt hann veit eng- inn. Um leið og ég sendi Doris mínar bestu kveðjur, vona að hún eigi eftir að eiga marga góða daga þrátt fyrir að samferðamaðurinn til margra ár- tuga hafi vikið af leið, vil ég þakka Símoni fyrir trygga vináttu og góða samferð. Þorbjörn Guðmundsson. Það var haustlegt, ég sat í bílnum fyrir utan Rjúpufell 44 og flautaði. Ég var nýbyrjaður að slá mér upp með yngismær úr Fellunum, en það var ekki hún sem kom til dyra, held- ur vörpulegur maður, sem gekk að bílnum hjá mér og spurði hvort ég vildi ekki frekar koma inn en að sitja einn úti í bíl og flauta, ákaflega feim- inn þáði ég það. Þetta voru mín fyrstu kynni af tengdaforeldrum mínum. Mér var tekið með kostum og kynjum og hefur svo verið alla tíð síðan á þeirra heimili. Þar er alltaf nóg pláss fyrir alla, enda stór fjöl- skyldan og oft mikið fjör. Símon kvæntist eftirlifandi konu sinni Dor- is fyrir rúmum 59 árum, þau komu níu börnum til manns og afkomend- ur í dag eru 60. Hann orðaði það svo fallega þegar hann sagði nú nýlega: „Ég er orðinn 89 ára og á þennan fjársjóð, er hægt að óska sér ein- hvers meira?“ Símon var einn af þessum mönn- um sem hægt var að ræða við um hvað sem er og maður kom aldrei að tómum kofunum hjá honum. Hann hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum, en var samt aldrei óvæg- inn. Það var gaman að skiptast á skoðunum um pólitík við hann og oft þurfti ekki mikinn neista til að koma af stað miklu báli á þeim vettvangi. En það var alltaf stutt í glensið og kitlandi hláturinn smitaði alla í kringum hann. Símon var einstaklega minnugur og rifjaði stundum upp æskuárin í Reykjavík, þegar hann var mjólk- urpóstur og hjólaði um allar trissur með mjólkina í glerflöskum til þyrstra borgarbúa. Það var líka fróðlegt að heyra sögur af stríðs- árunum, frá Bretavinnunni og mörgu öðru, sem var svo framandi. Hann hafði næmt auga fyrir nátt- urunni, það sást best í kringum bú- staðinn þeirra á Þingvöllum, sem var sannarlega sælureitur, byggður eins og gömlu torfbæirnir með flottu grasþaki og hleðslunni í kringum húsið. Þar sást líka vel hversu góður málari hann var, enda menntaður sem slíkur. Það var oft gaman að vera á Þingvöllum og börnin okkar nutu þess vel að fá að fara með afa og ömmu í sveitina. Hjá Símoni virtist tíminn standa í stað, hann hætti að vinna 72 ára og sá eftir að hafa ekki hætt fyrr, því að hann hafði það svo gott í ellinni. Doris stjanaði líka við hann, hafra- grautur á hverjum morgni, mið- dagslúrinn á sínum stað og allt ann- að í föstum skorðum. Hann var duglegur að heimsækja börnin sín og barnabörnin, keyrði um allt eins og herforingi, á meðan hann gat. Þau hjónin voru líka dugleg að heim- sækja ættmennin í Danmörku og Svíþjóð, sérstaklega eftir að Birgir sonur þeirra flutti til Gautaborgar. Þau voru líka tíðir gestir í Eyjafirð- inum, þar sem þrjú af börnum þeirra bjuggu. Við nutum þess þegar þau komu í mat til okkar, þá var oft glatt á hjalla. Það síðasta sem hann sagði við mig var einmitt í tilefni af mat- arboði, sem hann því miður komst ekki í, þá sagði hann: „Og mundu eftir að hafa kjötið mjúkt.“ Það ætla ég að reyna í framtíðinni kæri Sím- on, ég þakka samfylgdina og vona að góður Guð veiti Doris og fjölskyld- unni styrk í sorg þeirra, þín verður sárt saknað. Kveðja, Smári B. Ólafsson. Elsku afi. Mikið er erfitt og sárt að setjast niður og skrifa hinstu kveðju til þín. Þú varst svo yndisleg- ur afi. Man allar ferðirnar í hjólhýsið ykkar á Þingvöllum og svo seinna sumarbústaðinn sem þú byggðir. Ég á margar af mínum skemmtilegustu bernskuminningum með þér og ömmu að brasa eitthvað uppi í sum- arbústað. Þar var alltaf nóg að gera, hvort sem það var að hjálpa ykkur við að vinna í landinu, sinna búinu sem við krakkarnir bjuggum til við hlið safnhaugsins eða fara og veiða fisk í Þingvallavatni. Minnist frasans sem þú varst svo vanur að segja ef maður meiddi sig: „Þetta grær áður en þú giftir þig.“ Svo náttúrlega að skella bara júgursmyrsli á sárið og þá átti allt að batna. Þú varst líka duglegur að minna mann á að lyfta fótunum ef maður dró lappirnar, það ætti sko ekki að ganga svoleiðis. Það var líka alltaf svo gott að vera heima hjá ykkur ömmu í Rjúpufellinu. Fékk svo oft að gista hjá ykkur og þá borðuðum við hafragraut saman á morgnana sem amma eldaði alltaf handa þér. Nú á síðari árum var gaman að sitja með þér í eldhúskróknum og hlusta á þig segja frá gamla tímanum, þeg- ar þú vannst sem málari, frá því þegar þú byggðir húsið ykkar á Suð- urlandsbrautinni og fleiri skemmti- legar sögur, þá hlóstu mikið og hafð- ir gaman af. Sé þig fyrir mér þar sem þú sast alltaf í eldhúskróknum að leggja kapal eða í stólnum þínum inni í stofu að horfa á fréttirnar. Elsku afi, ég get ekki lýst því með orðum hvað ég sakna þín mikið. Þakka allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Þín afastelpa, Karen Andrea. Hann afi Símon er fallinn frá. Við munum það báðir þegar við vorum litlir og vorum í pössun hjá ömmu og afa. Ef það var ekki hér í bænum þá vorum við á Þingvöllum að leika okkur í sumarbústaðnum eða úti að veiða í vatninu – bústaðnum vín- rauða með græna torfþakinu sem okkur bræðrunum þótti gaman að príla upp á og leika okkur á. Afi var ekki ýkja sáttur við það og vorum við oftast reknir niður, en við príl- uðum strax aftur upp þegar hann leit af okkur. Afi var hress karl og var hann alltaf að brasa eitthvað í sumarbú- staðnum, sem hann byggði frá grunni með aðstoð fjölskyldu sinnar. En nú erum við orðnir eldri, búið að selja bústaðinn og hann afi okkar fallinn frá, 89 ára að aldri. Hann hafði gaman af því að sitja og hlusta á útvarpið og lesa bækur. Hann var ekki mjög tæknisinnaður og lærði aldrei að nota gsm-símann en fjarstýringunni á sjónvarpinu stjórnaði hann einn. Nánast alltaf þegar maður hitti hann var hann hlæjandi eða bros- andi. Jafnvel á síðustu dögunum. Við fórum að heimsækja hann á spítal- ann og fundum hann inni í eldhúsi með starfsfólkinu og körlunum á deildinni, að fá sér smáhressingu fyrir svefninn. Hann var mjög fé- lagslyndur maður. Á efri árum hans hittum við hann ekki eins oft og við hefðum viljað. Þá helst þegar þau komu í mat, því að afi elskaði eldamennskuna hans pabba. Við kveðjum hann með söknuði og biðjum Guð að varðveita hann og veita ömmu okkar styrk. Reynir Óli og Ívar Smárasynir. Ég kynntist Símoni Konráðssyni þegar ég var 10 ára gamall og kunn- ingsskapur okkar hefur haldist óslit- inn síðan. Það er margs að minnast þegar ég hugsa til baka og rifja upp okkar góðu kynni. Símon var ein- staklega góður drengur, alltaf léttur í lund og hafði þægilegt skap. Það var engin lognmolla þar sem Símon var. Seinna bundumst við Símon ennþá sterkari böndum þegar ég giftist systur hans, en fram að þeim tíma má segja að ég hafi verið heimagangur á heimili móður hans. Við Símon gerðum margt saman, fórum t.d. saman í sumarfrí þar sem við áttum margar góðar stundir. Á þeim árum vorum við starfandi mál- arar og báðir virkir í starfi stétt- arfélags okkar. Það varð þess valdandi að oftar en ekki vorum við saman á árshátíðum og oft fórum við saman í ógleymanlegar ferðir með Málarafélaginu. Ég vil með þessum orðum kveðja góðan vin og samferðamann. Ég minnist hans með þakklæti og þakka fyrir þær stundir sem við áttum saman. Ég votta fjölskyldu hans mína dýpstu samúð. Hvíl í friði. Guðmundur Þ. Björnsson. Símon Ingvar Konráðsson Elsku amma mín! Einu sinni leið þér miklu betur og þá var oft gaman að vera hjá þér og afa. Síðan fór þér að líða alltaf verr og verr og heyrðir oft illa. Þú varst mjög glöð þegar ég fékk bílpróf og ég skutlaði þér stund- um í búð og í banka. Nú veit ég að þér er að batna. Ég veit það vegna þess að þú ert núna hjá Guði og hjá Guði Kristín Margrét Sigurðardóttir ✝ Kristín MargrétSigurðardóttir fæddist á Sjáv- arbakka í Arnarnes- hreppi 23. nóv- ember 1929. Hún andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Hlíð á Ak- ureyri aðfaranótt 5. september síðastlið- ins og fór útför hennar fram frá Höfðakapellu á Ak- ureyri 12. sept- ember. getur þú passað mig líka. Ég vona elsku amma að þér muni alltaf líða vel. Faðir vor, þú sem ert á himnum. Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni. Gef oss í dag vort dag- legt brauð, og fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyr- irgefum vorum skuldu- nautum. Eigi leið þú oss í freistni, heldur frelsa oss frá illu. Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen. Þú varst alltaf góð við mig. Þinn Héðinn Jónsson. Elsku systir. Mig langar til að skrifa nokkur minningarorð um þig. Mér finnst að við höfum átt góða æsku. Við þurftum að fara snemma að heiman. Ég var ellefu ára og þú fimmtán, ég í fyrsta skipti. Við fórum inn í Eyjafjörð ég á Borgarhól og þú á Munkaþverá. Ég grét alla leiðina upp í Hvamm, þar tókum við mjólkurbíl- inn til Akureyrar og annan fram í fjörðinn. Ég fékk að sofa hjá þér um sumarið, það var svo stutt á milli bæj- anna. Það var yndislegt að fá að kúra hjá þér elsku systir. Þú varst svo góð við mig og alla sem voru í kringum þig. Þú varst snemma læs og last öll ósköpin fyrir okkur. Þar á meðal draugasögur og þá flýtti maður sér með fæturna upp í rúm. Höfum sjálf- sagt haldið að einhver myndi bíta í tærnar á manni. Ég giftist austur í Norður-Þingeyj- arsýslu en svo leigði ég hjá þér her- bergi í Spítalaveginum sumarið 1953, þar sem maðurinn minn var á síld- arskipi þetta sumar. Ég átti Kidda minn og þú Didda og Bigga auk þess sem þú varst ófrísk að Margréti. Ég vorkenndi þér svo mikið þegar þú þurftir að fara niður í kjallara til að þvo sjófötin af Styrmi en þá voru eng- ar þvottavélar nema hjá örfáu fólki og lítið um hlífðarföt eins og nú er. Það rifjast svo margt upp fyrir mér að ég gæti haldið endalaust áfram. Þær urðu ekki margar ferðirnar til Akureyrar eftir þetta. Síðast þegar ég kom til þín þá áttum við góða stund saman. Skoðuðum gamlar myndir en það var svolítið erfitt að tala við þig því að þú varst farin að heyra svo illa en varst stálminnug. Ég fékk alltaf fréttir af þér í gegnum Laufeyju systur okkar. Hún var svo góð, heimsótti þig á sjúkrahúsið. Þökk sé henni fyrir það. Ég vil að endingu þakka þér allar góðu stundirnar sem við áttum sam- an, þær voru bara of fáar. Ég kveð þig í bili elsku systir og trúi að við hittumst aftur. Hvíldu í friði. Ég sendi mínar innilegar samúðarkveðj- ur til allra ástvina. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífs- ins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleym- ist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Þín systir, Jóhanna Sigurðardóttir (Jonna).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.