Morgunblaðið - 06.10.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.10.2008, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 6. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT CARLOS Martinez, dómari hjá Heimsmetabók Guinness, var bros- mildur þegar fjölmiðlar mynduðu nýjasta háhýsið í Vínarborg í bak og fyrir gær, en spíran, sem er samsett úr legókubbum, gnæfir 29,48 metra í loft upp. Fyrra metið fyrir legóturn var 29,3 metrar og eiga íbúar Vínar nú þetta sérkennilega heimsmet, sem skráð er í heimsmetabókinni. Á stóru myndinni má sjá hverja fimm metra merkta með borðum, en á þeirri smærri hvernig turninn slagar upp í spírurnar á ráðhúsinu í Vínarborg. Áætlað er að turninn, sem verður rifinn, sé um 1,5 tonn. Reuters Heimsmet í Vínarborg Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is LÍKLEGT er, að margir Þjóðverjar hafi andað léttara eftir að Angela Merkel Þýskalandskanslari lýsti því yfir í gær að þýska ríkið myndi ábyrgjast sparifé landsmanna. Það er þó skref sem hún hafði áður litið tortryggum augum. Nemur ábyrgð- in 500 milljörðum evra, ríflega 78.000 milljörðum króna. Þýskaland er stærsta hagkerfi Evrópu og leiðandi ríki í Evrópu- samstarfinu. Yfirlýsing Merkel er því talin munu kunna að hafa mikil áhrif og eiga þátt í því að aðrar evr- ópskar ríkisstjórnir, svo sem stjórn Gordons Browns í Bretlandi, muni fylgja í kjölfarið með sambærilegum yfirlýsingum á næstu dögum. Skjálfti er í Belgum eftir vandræði bankans Fortis NV en í gærkvöldi tilkynnti Yves Leterme, forsætisráð- herra landsins, að franski bankaris- inn BNP Paribas myndi eignast meirihluta eða 75% í Fortis. Höfðu stjórnvöld í Hollandi þá þjóðnýtt hinn hollenska arm bank- ans eftir misheppnaða björgunartil- raun yfirvalda í Belgíu og Lúxem- borg. Mikill órói hefur verið á þýskum mörkuðum eftir vandræði Hypo Real Estate, næststærsta lánafyrir- tækis á sviði fasteigna í Þýskalandi. Bankinn gegnir því mjög mikil- vægu hlutverki í þýsku efnahagslífi og sagði Merkel að allt kapp væri lagt á að bjarga bankanum, svo koma mætti í fyrir að fall hans hefði víðtækari afleiðingar í hagkerfinu. Björgunarleiðangur í uppnámi Sá björgunarleiðangur er nú í uppnámi, en þröng staða bankans er öðrum þræði afleiðing þess að lokast hefur fyrir lánalínur að undanförnu. Til stóð að rétta bankanum hjálp- arhönd með 35 milljarða evra láni þýska ríkisins og fjármálastofnana, upphæð sem svarar til hátt í 5.500 milljarða króna á núverandi gengi. Samkvæmt samkomulaginu hugðist ríkið leggja til bróðurpartinn en hóp- ur fjármálastofnana um 10 milljarða evra. Minnihlutaframlagið hefur hins vegar verið dregið til baka eftir að viðræður fór út um þúfur. Vandi Hypo Real Estate er til marks um landamæraleysi lánsfjár- kreppunnar. Hypo Real Estate komst þannig í veruleg vandræði þegar skrúfaðist fyrir aðgang dótt- urbankans Depfa Bank í Dyflinni á Írlandi að lánsfé. Írska hagkerfið, eða „keltneski tígurinn“ eins og það hefur verið nefnt, hyggst þó ekki hlaupa undir bagga með bankanum. Írar eiga fullt í fangi með eigin efnahagsdýfu og eftir mesta fall í sögu þarlends hluta- bréfamarkaðar skýrði stjórnin frá því á þriðjudag að hún myndi ganga í ábyrgðir fyrir sex þarlenda banka. Bresk stjórnvöld á varðbergi Eins og fyrr segir eru taldar líkur á að bresk stjórnvöld fari að fordæmi Þjóðverja og ábyrgist sparifé. Jafnframt lýsti Alistair Darling, fjármálaráðherra landsins, því yfir í gær að stjórnin væri tilbúin að bjóða fram frekari aðstoð til breskra banka andspænis þeirri kreppu sem markaðir stæðu frammi fyrir. Til frekari tíðinda dró um helgina þegar Nicolas Sarkozy Frakklands- forseti bauð Merkel, Brown og Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, til fundar í París um stöðuna. Sammæltust leiðtogar þessara fjögurra stærstu hagkerfa Evrópu um að boða til alþjóðlegs samráðs- þings um lausn vandans. Þá komu þeir sér saman um að verja 12 millj- örðum punda, 2.400 milljörðum kr., til stuðnings smærri fyrirtækjum. Merkel ábyrgist sparifé Þjóðverja Kanslari Þýskalands bregst við bankakreppunni heimafyrir AP Brúnaþung Merkel og Peer Steinbrück fjármálaráðherra eftir yfirlýsingu um ábyrgð þýska ríkisins í gær. Þýska þinghúsið í Berlín er í bakgrunni. Í HNOTSKURN »Um 2.000 manns starfa hjáHypo Real Estate. »Meðal dótturfélaga HypoReal Estate Group er Depfa Bank á Írlandi. »Fjöldi evrópskra banka ánú í miklum vandræðum. »Búist er við að G8-ríkintaki þátt í þinginu sem boðað var til í París um helgina, ásamt Indlandi, Kína, S-Afríku, Brasilíu og Mexíkó. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is EFTIR öfluga gagnsókn í kjölfar vals Söru Palin sem varaforsetaefn- is flokks síns í ágústlok hefur fylgi John McCains dalað í mörgum lyk- ilríkjum að undanförnu og ef fram heldur sem horfir stefnir í öruggan sigur demókratans Baracks Obama sem tekist hefur að færa sér í nyt fall bankarisanna í september. Ráðgjafar McCains eru uggandi yfir þessari sveiflu og hefur breska dagblaðið The Daily Telegraph eftir þeim að nú sé litið svo á að fram- bjóðandinn eigi ekki lengur mögu- leika á sigri með heiðvirðri kosn- ingabaráttu, heldur verði hann nú að leggja allt sitt traust á árang- urinn af ófræðingarherferð gegn persónu Obama. Eða eins og fyrrverandi ráðgjafi McCains orðar það í samtali við blaðið, þá er kominn tími til að draga fram „kjarnorkukostinn“, þann hluta vopnabúrsins sem aðeins er gripið til þegar aðrir kostir þrjóta. Forsmekkurinn að þessari aðgerðaáætlun var gefinn í ræðu Palin á fjáröflunarfundi í Colorado um helgina, þar sem reyndi að út- mála Obama sem menntamann sem væri úr tengslum við almenning. Ekki einn af okkur „Þetta er ekki maður sem sér Bandaríkin sömu augum og ég og þú sjáum Bandaríkin. Andstæðing- ur okkar sér Bandaríkin, að því er virðist, sem svo ófullkomið ríki að hann blandar geði við hryðjuverka- menn sem myndu gera árásir á fóst- urjörðina. Bandaríkjamenn verða að hafa vitneskju um þetta,“ sagði Pal- in, með vísun til kunningsskapar Obama við Bill Ayres, háskólapró- fessors sem áður var viðriðinn Weather Underground, samtök rót- tækra vinstrimanna sem gripu til hryðjuverka í mótmælum sínum, meðal annars gegn Víetnamstríðinu. Vitnaði Palin til greinar í New York Times þar sem sagði að Obama hefði gert lítið úr tengslum sínum við Ayres, þótt ekkert bendi til að þeir hafi verið nánir vinir. Vöruðu stuðningsmenn Obama við því í gær að í aðsigi kynni að vera grófur pólitískur leðjuslagur. Örvænting í liði McCains  Ráðgjafar forsetaefnisins draga fram „kjarnorkukostinn“  Palin ríður á vaðið með harkalegum árásum á Obama AP Vinsæl Palin hafði í nógu að snúast á kjörfundi í Kaliforníu um helgina. Hver er staðan? Samkvæmt kosningakorti New York Times er Obama næsta öruggur með 260 kjörmenn mið- að við núverandi fylgi í könn- unum. Að sama skapi telur blaðið McCa- in öruggan um 200 kjörmenn, 78 geti fallið báðum megin. Hvað þarf marga kjörmenn? Alls þarf 270 kjörmenn til að sigra í forsetakosningum vestanhafs en kosið verður 4. nóvember nk. S&S SUMIR láta sér nægja að grípa stöku sinnum í reyfara. Aðrir lifa fyrir heim hins ritaða máls. Bandaríkjamaðurinn Ammon Shea telst ugglaust í hópi þeirra síðarnefndu en hinn einkar bók- hneigði maður gerði sér lítið fyrir og varði ári af lífi sínu í að lesa öll 20 bindi orðabókarinnar Oxford English Dictionary, ígildi þess að lesa eina skáldsögu eftir reyf- arahöfundinn John Grisham á dag, samfleytt í ár. Alls er orðabókin um 22.000 síð- ur og eftir að hafa stautað sig í gegnum orðahafið var Shea að bresta þolinmæðin þegar hann sá fram á 400 síður af orðum sem byrj- uðu á forskeytinu „un“. Vart þarf að taka fram að hann er unnandi orðabóka, en einkasafn hans telur alls um þúsund slíkar. Hann er einstaklega vel máli farinn svo sem vænta má eftir að hafa haft glósupennann á lofti við lestur bresku orðabókarinnar, alls 59 milljón orð. Meðal orðanna sem hann getur gripið til er „deipnophobia“, orð- skrípi sem lýsir ótta við að taka þátt í matarsamkvæmum. Lúsiðinn lestrarhestur Þráhyggja? Shea við iðju sína. ÓRAUNHÆFT er að ætla að afger- andi sigur vinnist í stríðinu í Afgan- istan. Stilla ber væntingum í hóf og þess í stað setja markið á að koma ástandinu í það horf að afganskar hersveitir geti tekist á við það. Þetta er mat Mark Carleton- Smith, æðsta yfirmanns breska hersins í Afganistan. „Við munum ekki sigra í þessu stríði,“ sagði Carleton-Smith í viðtali við Sunday Times, en að sögn breska útvarpsins, BBC, endurspegla um- mælin vaxandi óþreyju í röðum emb- ættismanna og herforingja í Kabúl, höfuðborg Afganistan. Aðeins eru fjórir mánuðir liðnir frá því Carleton-Smith lýsti því yfir að tímamót hefðu orðið í baráttu breskra hersveita og að úrslita- stundin nálgaðist eftir mannfall í röðum hátt settra talibana. „Munum ekki sigra“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.