Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 6
6 22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
að með samþykkt
„eftirlaunafrumvarpsins“
voru mánaðarlaun formanna
stjórnarandstöðuflokkanna
hækkuð um 50%. Þegar
vinstri stjórnin tók við
1. febrúar síðastliðinn, var Steingrímur J.
Sigfússon þegar búinn að fá 15 milljónir
króna vegna þessa. Hann talar eins og lögin
hafi verið sérstakur „ósómi“. Ekki hefur hann
þó séð ástæðu til að endurgreiða það sem
hann hefur fengið greitt vegna „ósómans“.
Vissir þú ...
Vefþjóðviljinn
STJÓRNMÁL Nítján eru á stofnfé-
lagalista áhugamannafélagsins
Við erum sammála. Félagið hefur
auglýst í dagblöðum og á netinu
þar sem fólk er hvatt til að skrifa
undir stuðningsyfirlýsingu við
aðild að Evrópusambandinu.
Meðal stofnfélaga eru Baldur
Þórhallsson stjórnmálafræðing-
ur, Benedikt Jóhannesson fram-
kvæmdastjóri Talnakönnunar,
Hilmar Veigar Pétursson, fram-
kvæmdastjóri CCP, og Þorsteinn
Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins.
Enn hefur ekki verið greitt
fyrir auglýsingar félagsins, en
Jón Steindór Valdimarsson, einn
stofnenda félagsins, segir að
unnið sé að því að afla fjár frá
einstaklingum og fyrirtækjum til
að greiða kostnað við auglýsing-
ar, fundi og vefsíðu. Farið verði
eftir sömu viðmiðum og í lögum
um stjórnmálaflokka, og fram-
lögum hærri en 300 þúsund krón-
ur hafnað.
Jón segir að æskilegast væri
að fá marga smáa styrki frá þeim
einstaklingum sem hafi skráð sig
á lista á vefsíðunni sammala.is.
Þar höfðu um það bil níu þúsund
skrifað undir yfirlýsingu um
stuðning við aðild að ESB í gær.
Jón segir auglýsingar félagsins
ekki hugsaðar sem stuðningsyfir-
lýsingu við ákveðinn stjórnmála-
flokk. Aðild að ESB sé umdeild í
öllum flokkum. Pólitískar skoð-
anir stofnfélaga félagsins jafnt
þeirra sem hafi skráð sig á vef-
síðu félagsins séu afar mismun-
andi og gangi þvert á flokka. - bj
Nítján nöfn eru á lista yfir stofnfélaga í áhugamannafélaginu Við erum sammála:
Afla fjár hjá almenningi og fyrirtækjum
ÁHERSLUR Sjö þeirra einstaklinga sem styðja málstað áhugamannafélagsins Við
erum sammála kynntu afstöðu sína á opnum fundi í Iðnó í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
UTANRÍKISMÁL Bresk stjórnvöld hafa
sett sér þá stefnu að gera það sem
í þeirra valdi stendur til að sjá til
þess að samningur um aðild Íslands
að Evrópusambandinu yrði frágeng-
inn innan árs, ef íslensk stjórnvöld
tækju ákvörðun um aðildarumsókn.
Þetta hefur Ólafur Elíasson, fulltrúi
Indefence-hóps-
ins, eftir hátt-
settum fulltrúa
breska utanríkis-
ráðuneytisins.
Ólafur segir að
þegar Indefence-
hópurinn afhenti
breskri þing-
nefnd undir-
skriftalistann
sem hann safn-
aði á heimasíðu
sinni til að mót-
mæla beitingu
breskra hryðju-
verkalaga gegn
íslenskum bönk-
um og stjórn-
völdum, hafi
þet ta komið
fram.
Á þeim fundi hafi það komið
Indefence-mönnum á óvart að
þegar þeir ítrekuðu fordæmingu
sína á þessum umdeildu aðgerðum
breskra stjórnvalda, hafi þeir full-
trúar bresku ríkisstjórnarinnar
sem fyrir svörum urðu beint talinu
að því hvað Bretar gætu gert til að
liðka fyrir inngöngu Íslands í Evr-
ópusambandið.
Andrew Dalgliesh, yfirmaður
stefnumótunarskrifstofu innan
breska utanríkisráðuneytis ins um
Evrópumál (Head of European
Strategy Group), hefði sagt að kæmi
fram aðildarumsókn frá Íslandi
myndu bresk stjórnvöld gera það
sem í þeirra valdi stæði til að sjá til
þess að lokið yrði við gerð aðildar-
samnings á innan við ári.
Í gær fengu svo Indefence-menn
í hendur bréf sem Caroline Flint,
Evrópumálaráðherra í bresku
ríkis stjórninni, skrifaði Austin
Mitchell, formanni Íslandstengsla-
nefndar breska þingsins, hinn 19.
mars síðastliðinn. Bréfið var liður
í undirbúningi Mitchells fyrir fund-
inn með Indefence-mönnum og er
svar við fyrirspurn hans til breska
utanríkisráðuneytisins um tengsl
Íslands við Evrópusambandið, eink-
um að því er varðar sameiginlegu
fiskveiðistefnuna.
Í bréfinu ítrekar Flint þá áður
fram komnu afstöðu bresku stjórn-
arinnar, að hún myndi „fagna og
styðja sterklega“ ESB-aðildar-
umsókn Íslands.
Til að svara spurningu Mitchells
um sameiginlegu sjávarútvegs-
stefnuna sérstaklega nefnir Flint
að „aðgangur að fiskimiðum“ yrði
væntanlega stórt atriði, og vísar til
þeirra tvíhliða samninga sem í gildi
eru milli Íslands og ESB um karfa-
veiði og veiðar úr öðrum flökku- og
deilistofnum.
Hún tekur hins vegar fram, að
hún sé ekki í aðstöðu til að segja
neitt til um það fyrirfram hvað
felast myndi í aðildarviðræðum
við Ísland á sviði sjávarútvegs-
mála. Frá breskum bæjardyrum
séð sé það spurning um að „bíða og
sjá hvað Íslendingar fara fram á og
meta þá hvernig bregðast skuli við
með tilliti til breskra hagsmuna.“
audunn@frettabladid.is
Bretar sagðir vilja
liðka fyrir ESB-aðild
Bresk stjórnvöld vilja liðka fyrir því að Ísland fái aðild að Evrópusambandinu,
sæki Íslendingar um. Fulltrúar Indefence-hópsins, sem var tjáð þetta á fundi í
London, telja Breta vilja með þessu sýna yfirbót vegna beitingar hryðjuverkalaga.
FRÁ FUNDINUM Í LONDON Í miðju má sjá þá Andrew Dalgliesh, yfirmann stefnumót-
unarskrifstofu innan breska utanríkisráðuneytisins um Evrópumál, og Austin Mitchell,
formann Íslandstengslanefndar breska þingsins. MYND/INDEFENCE.IS
CAROLINE FLINT
ÓLAFUR ELÍASSON
MENNTUN „Ég vona að það séu allir
af vilja gerðir til að leysa þetta,
annars verður bara hrun í tón-
skólakennslu í Reykjavík,“ segir
Sigurður Sævarsson, formaður
Samtaka tónlistarskóla í Reykja-
vík.
Sigurður segir að skilaboð frá
borginni, um tólf prósenta niður-
skurð á framlagi til tónlistar-
skóla, frá og með 1. janúar þessa
árs, komi skólastjórunum í opna
skjöldu.
„Þetta er niðurskurður aftur í
tímann og við getum ekki hagrætt
eftir á, ekki nema með því að senda
börnin heim,“ segir hann.
Sigurður rifjar upp að hinn 14.
janúar hafi fulltrúar borgarinnar
fundað með skólastjórunum. Þá
hafi verið tilkynnt um niðurskurð-
inn, en það hafi verið sameiginleg-
ur skilningur allra skólastjóra sem
sátu fundinn að til niðurskurðar-
ins kæmi frá og með 1. september
næsta.
„Við getum ekki brugðist við
fyrr en í september, þegar nýtt
skólaár hefst,“ segir Sigurður.
Hann segist vongóður um að þetta
sé misskilningur. Jafnvel fulltrú-
um meirihlutans, sem hann hafi
heyrt í, hafi komið þetta á óvart.
„Það verður fundur um þetta á
föstudaginn og ég er að vona að
þar leysist þetta af sjálfu sér,“
segir hann.
Ekki náðist í Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur borgarstjóra. - kóþ
Formaður Samtaka tónlistarskóla í Reykjavík um niðurskurð aftur í tímann:
Varar við hruni í tónlistarkennslu
SIGURÐUR SÆVARSSON Segir viðbúið
að fjöldi nema þurfi að hverfa frá námi
og kennarar missi atvinnu sína, verði
framlag til skólanna skorið niður aftur í
tímann.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KJÖRKASSINN
Ertu búin(n) að ákveða hvað þú
ætlar að kjósa?
Já 66%
Nei 34%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Eru nafnlausar auglýsingar
skaðlegar lýðræðinu?
Segðu skoðun þína á Vísi.is