Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 14
14 22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR TÚLÍPANATÍÐ Blómaræktandi í Köln í Þýskalandi hugar að túlípönum sem blómstra í regnbogans litum á akri hans, baðaðir hlýjum geislum megin- landsvorsólarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP REYKJAVÍK Borgarlögmaður átelur vinnubrögð samgönguráðuneytis- ins vegna úttektar þess á því hvort eðlilega væri staðið að innheimtu fasteignagjalda í borginni. Sam- gönguráðuneytið komst að því að borgin mætti fela sérstökum inn- heimtuaðila innheimtu fasteigna- gjalda og fela þeim að setja á gjald vegna vanskila. Í minnisblaði borgarlögmanns til borgarráðs eru vinnubrögð ráðuneytisins átalin og það sagt ekki huga að grunnreglum stjórn- sýsluréttar um rannsóknarskyldu og andmælarétt. Ráðuneytið hafi tekið ákvörðun um að taka málið upp að eigin frumkvæði og ekki kallað eftir athugasemdum Reykja- víkurborgar um málið. Þannig hafi ráðuneytið ekki getað tekið upp- lýsta ákvörðun, enda hafi það ekki haft öll gögn um málið. Rannsóknin sneri einnig að sam- komulagi borgarráðs við Moment- um ehf. og Gjaldheimtuna ehf. Það samkomulag var ekki stað- fest í borgarstjórn, en ráðuneytið kemst að því að það hafi ekki verið nauðsynlegt. Ráðuneytið gerði hins vegar athugasemdir við það að skuldara sé gert að greiða ákveðinn hundr- aðshluta af höfuðstól í innheimtu- kostnað. Borgarlögmaður bendir hins vegar á nýja reglugerð við- skiptaráðuneytisins og að gjald- skrá Momentum sé hóflegri en þar kveður á um. - kóp Borgarlögmaður átelur vinnubrögð samgönguráðuneytisins: Innheimta gjalda talin eðlileg RÁÐHÚS Samgönguráðuneytið telur samninga við innheimtufyrirtæki um innheimtu fasteignagjalda eðlilega. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI FINNLAND, AP Dmítrí Medvedev, forseti Rússlands, er nú í tveggja daga opinberri heim- sókn í Finnlandi. Hann hitti Törju Halonen, forseta Finn- lands, í gær fyrir utan forseta- höllina í Helsinki. Medvedev ætlar að nota heim- sóknina til að ræða viðskipti, orku og önnur málefni við finnska leiðtoga. Medvedev og Halonen ræddu í gær mörg mál, þar á meðal fyrirætlanir um gasleiðslu milli Rússlands og Þýskalands. Þetta er í fyrsta skipti sem Medvedev kemur til Finnlands. - ghs Medvedev í Finnlandi: Orkumál í brennidepli ... í nýjum umbúðum Sama góða CONDIS bragðið ... LÁTTU OKKUR LÉTTA ÞÉR BYRÐINA N1 Þjónustustöðvar Kerruleiga N1 býður úrval af vönduðum kerrum. Verðskrá og nánari upplýsingar er að finna á www.n1.is 3% 3% afsláttur í formi Safnkortspunkta Sími 440 1000 TÖKUM NOTUÐ VEL MEÐ FARIN HJÓL UPPÍ NÝ SKIPTIMARKAÐUR MEÐ NOTUÐ REIÐHJÓL 19.995 44.995 64.995 BARNAHJÓL VERÐ FRÁ EFNAHAGSMÁL Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að skapa skilyrði fyrir tuttugu þúsund ný störf til dæmis með því að greiða fyrir orkufrekum iðnaði svo sem álverum, gagnaverum, álþynnu- verksmiðju og kísilflöguverksmiðju. Með þeim aðgerðum ætti afkoma ríkisins að batna um sextíu millj- arða. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi Sjálfstæðisflokksins í gær. Á fundinum lýsti Bjarni Bene- diktsson, formaður flokksins, yfir mikilli furðu á því að Percy Wester- lund, sendiherra Evrópusam- bandsins (ESB) gagnvart Íslandi og Noregi, skyldi blanda sér inn í stjórnmálaumræðuna hér á landi en hann blés á hugmyndir sjálfstæðis- manna á mánudag um að Íslend- ingar tækju upp evru án þess að ganga í Evrópusambandið. Stefna flokksins í gjaldeyrismálum kveð- ur nefnilega á um að kanna mögu- leika á upptöku evru í lok efnahags- áætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Íslands og í sátt og samvinnu við Evrópusambandið. Tryggvi Þór Herbertsson, sem skipar annað sæti flokksins í Norð- austurkjördæmi, sagði að þrátt fyrir orð Westerlunds væri möguleikinn fyrir hendi, umræða á alþjóðavett- vangi væri mikil um það hvort litl- um löndum í nágrenni stórra gjald- miðlasvæða yrði gert kleift að taka upp gjaldmiðilinn á því svæði. Þau nefndu ekki dæmi um þá umræðu en sögðu tilhneiginguna vera að snúast á þessa leið. Auk Tryggva og Bjarna var Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir,vara- formaður flokksins, á fundinum og ítrekuðu þremenningarnir að ekki stæði til að hækka skatta. Vilja þau lækka greiðslubyrði heimila tíma- bundið um fimmtíu prósent, afnema stimpilgjöld og bjóða langtíma lán án verðtryggingar. jse@frettabladid.is Sjálfstæðisflokkur vill greiða fyrir orkufrekum iðnaði: Ætla að til verði 20 þúsund ný störf FRÁ FUNDINUM Í GÆR Tryggvi Þór, Bjarni og Þorgerður Katrín kynntu tillögur Sjálfstæðisflokksins í efnahagsmálum í Valhöll í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ■ Afnema stimpilgjöld ■ Virkja skattkerfið til að hvetja fjárfesta ■ Veita skattafslátt til fyrirtækja sem ráðast í nýsköpunar- og þróunar verkefni ■ Gera eigendum og starfsfólki kleift að eignast hlut í fyrirtækjunum ■ Fjármálafyrirtækjum boðið að færa húsnæðislán bankanna til Íbúðalána sjóðs ■ Heimilum boðið að minnka greiðslubyrði tímabundið um 50 prósent og bjóða þeim óverðtryggð lán ■ Skapa skilyrði fyrir 20 þúsund ný störf NOKKRAR TILLÖGUR SJÁLFSTÆÐISMANNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.