Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 22. apríl 2009 15 OPNIR KYNNINGARFUNDIR MEISTARANÁM Í V I Ð S K I P T A D E I L D H R ALÞJÓÐLEG SÝN – FRAMSÆKIÐ FÓLK – SKAPANDI UMHVERFI Viðskiptadeild HR starfar í nánu samstarfi við erlenda háskóla og hefur sterk tengsl við atvinnu- lífið. Við val á kennurum, sem flestir koma frá þekktum erlendum háskólum, er lögð áhersla á framúrskarandi fræðilega þekkingu, góða kennsluhæfileika ásamt fjölþættri reynslu úr atvinnu- lífinu. Markmiðið er að útskrifaðir nemendur verði gerendur, greinendur og gagnrýnendur. Þessu markmiði er náð með jafnvægi á milli hagnýtra og fræðilegra verkefna í náminu. • MBA, kl. 12:15 – 13:00 • MSc Í ALÞJÓÐAVIÐSKIPTUM, kl. 16:00 • MSc Í EVRÓPUFRÆÐUM Í SAMSTARFI VIÐ LAGADEILD HR, kl. 16:00 • MSc Í FJÁRMÁLUM FYRIRTÆKJA, kl. 17:00 • MSc Í FJÁRFESTINGARSTJÓRNUN, kl. 17:00 • MSc Í REIKNINGSHALDI OG ENDURSKOÐUN, kl. 17:30 • MSc Í STJÓRNUN REKSTRARBÓKHALDS, kl. 17:30 Nemendur í meistaranáminu verða á staðnum til skrafs og ráðagerða. Boðið verður upp á léttar veitingar. Staður: Háskólinn í Reykjavík, Ofanleiti 2, stofu 201 Stund: Miðvikudagurinn 22. apríl kl. 12:15 - 13:00 og 16:00 - 18:30 Viðskiptadeild HR býður til eftirfarandi kynningarfunda í dag: H Á S K Ó L I N N Í R E Y K J AV Í K R E Y K J A V I K U N I V E R S I T Y Rúmur helmingur stærstu fyrirtækja á Íslandi ætlar að ráða í ný störf á þessu ári. Þar af reikna 80% þeirra með að ráða í framtíðarstarf og 70% þeirra ætla að ráða fólk til sumarstarfa. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem Atvinnuþjónusta Háskólans í Reykjavík hefur látið gera. Algengasta fræðasviðið sem fyrirtæki leita nú að er viðskiptafræði (56%). BANDARÍKIN, AP Barack Obama Bandaríkjaforseti fór á mánudag í heimsókn í höfuðstöðvar leyniþjón- ustunnar CIA í Langley í Virginíu. Hann ávarpaði starfsfólkið og varði þá ákvörðun sína að birta minnis- blöð um yfirheyrslur á föngum. Í minnisblöðunum koma fram nákvæmar lýsingar á harkalegum yfirheyrsluaðferðum, þar á meðal svonefndri vatnsbrettaaðferð, sem Eric Holder dómsmálaráðherra hefur kallað pyntingar. Michael V. Hayden, fyrrum yfir- maður CIA, hefur gagnrýnt birt- inguna. Vel komi sér fyrir óvini Bandaríkjanna að vita hve langt fangaverðir megi ganga. Dick Cheney, fyrrverandi vara- forseti Bandaríkjanna, segir einnig birtingu minnisblaðanna mistök. Hann hvetur CIA til að birta önnur minnisblöð, þar sem fram kemur að harkalegu aðferðirnar hafi skilað ótvíræðum árangri. Obama sagði hins vegar við starfsfólk CIA að þótt starf þeirra geti orðið erfiðara með því að neita sér um að beita óvini pyntingum, þá eigi það einmitt að vera keppikefli Bandaríkjanna að framfylgja eigin hugsjónum, „ekki bara þegar það er auðvelt, jafnvel þegar við erum óttaslegin og stöndum frammi fyrir hættu, ekki aðeins þegar það er hagkvæmt fyrir okkur.“ - gb Barack Obama Bandaríkjaforseti ávarpar starfsfólk leyniþjónustu landsins, CIA: Forsetinn varði birtingu minnisblaða FORSETINN SPAUGAR Barack Obama lét ýmislegt flakka á fundi með starfsmönnum CIA. Leon Panetta, yfirmaður leyniþjónustunnar, brosir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SJÁVARÚTVEGUR Heildartekjur Loðnuvinnslunnar voru 4,4 millj- arðar í fyrra, 44 prósentum meira en árið áður. Hagnaður var 1,1 milljarður. Aðalfundur félagsins var haldinn síðastliðinn föstudag og var þá gerð grein fyrir þessu. „Hluti af þessu er veiking krón- unnar og svo höfum við reyndar verið heppin með sölu á okkar afurðum,“ segir Gísli Jónatansson framkvæmdastjóri. Hann segir þó þetta ár vera erfitt þar sem loðnu- vertíð hafi brugðist og skorið hafi verið niður í kolmunnaveiðum. Að auki segir hann áform um aftur- köllun veiðiheimilda setja starf- semina í uppnám. - jse Loðnuvinnslan: Róður herðist eftir gott ár FJÖLMIÐLAR Nýr formaður Blaða- mannafélags Íslands verður kjör- inn á aðalfundi félagsins í kvöld. Í kjöri eru Þóra Kristín Ásgeirs- dóttir, varaformaður félagsins, og Kristinn Hrafnsson. Arna Schram, sem gegnt hefur formennsku í félaginu undanfar- in fjögur ár, gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Kristinn og Þóra Kristín munu kynna áherslumál á fundinum, sem haldinn verður í húsakynn- um Blaðamannafélags Íslands. Sjálfkjörið hefur verið í embætt- ið frá árinu 2003. - sh Kosið um formann BÍ: Þóra Kristín og Kristján kljást KRISTINN HRAFNSSON ÞÓRA KRISTÍN ÁSGEIRSDÓTTIR REYKJAVÍK Ólafur F. Magnússon vill að borgin leysi til sín lóðir sem Björgólfsfeðgar eiga í Reykjavík. Hann hefur boðað til- löguflutning þess efnis á næsta borgarstjórnarfundi. Er þar horft til lóða við Laugaveg þar sem listaháskóli er fyrirhugaður og Fríkirkjuveg 11. Í tilkynningu Ólafs segir að tilkoma risavaxins Listaskóla við Laugaveg sé skipulagsslys sem verði að afstýra. Þá sé mjög ólíklegt að núverandi eigendur Fríkirkjuvegar 11 geti staðið við skuldbindingar sínar. Til að vernda menningarsöguleg verð- mæti eigi borgin að innkalla eignirnar til sín gegn litlu sem engu gjaldi. - kóp Ólafur F. Magnússon: Vill innkalla lóðir Björgólfa FRÍKIRKJUVEGUR 11 Ólafur vill að borgin innkalli húsið til sín sem og lóðir við Laugaveg þar sem listaháskóli er fyrir- hugaður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Fjórir særðust Fjórir danskir hermenn særðust þegar bíll þeirra ók yfir vegsprengju í Afgan- istan á sunnudagsmorguninn. Einn þeirra særðist alvarlega. DANMÖRK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.