Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar Proppé
Félaga minn einn dreymdi um að vera uppreisnarseggur. Þar
sem hann var við nám í Verslunar-
skólanum gerði hann marga til-
raunina í þá áttina. Þrátt fyrir
ágætis tilburði verður að segj-
ast eins og er að hans verður ekki
minnst sem uppreisnarleiðtoga.
Hámarki náði hann líklega í upp-
reisn sinni gegn einum kennaran-
um. Sá átti ekki skap við félaga
minn og snupraði hann reglulega.
Þá sat kunninginn með náms-
bók opna, krepptan hnefa á bak
við hana og löngutöng upp í loft.
Stundum í heilan tíma. Ef kennar-
inn hins vegar nálgaðist féll bókin
niður og réttist úr öllum fingrum.
NOKKRAR auglýsingar þessa
dagana minna mig á þennan félaga
minn. Þar hafa einhverjir tekið
sig til og tekið orð og upplýsing-
ar úr samhengi og birta tilteknum
stjórnamálamönnum og -öflum til
háðungar. Þetta eru með öðrum
orðum neikvæðar auglýsingar, en
slíkt þekkist vel í Bandaríkjunum.
Allar eru þær nafnlausar, hvort
sem um ræðir heilsíðuauglýsing-
ar í blöðum eða vefsíður. Í raun má
flokka þann her fólks sem fer um
ýmis spjallsvæði og eys svívirð-
ingum á báðar hliðar undir dul-
nefni í sama flokk.
AÐ VEGA úr launsátri heitir þetta
og þeir sem það stunduðu voru
álitnir aumingjar og heiglar. Þeir
þorðu ekki að mæta öðrum á jafn-
réttisgrunni. Þeir óttuðust and-
stæðinginn svo að þeirra ráð var
leyndin. Öðruvísi náðu þeir ekki að
koma höggi á andstæðinginn.
EITT SINN þótti orðheppni og rök-
festa dáð hér á landi. Vel heppnað-
ar vísur héldu nafni manna á lofti
og góð tilsvör einnig. Menn stóðu
og féllu með því sem þeir sögðu,
því orðstír deyr aldrei, hveim
er sér góðan getur. Þetta vissu
forfeður vorir. Sumir voru svo orð-
hvassir að þeir eirðu trauðla hér á
landi. Jón Ólafsson ritstjóri þurfti
í þrígang að yfirgefa land vegna
ádeilu sinnar. En hann stóð við orð
sín, skammaðist sín ekki fyrir þau
og tók afleiðingum gjörða sinna.
ÉG HEITI Gestur og ég kem frá
Hæli, étið þér skít og verið þér
sælir, sagði einn forfaðir minn
eitt sinn við fulltrúa yfirvaldsins
fyrir nokkur hundruð árum. Ekki
datt honum í hug að dyljast bak við
nafnleysið þó hann þekktist ekki
í kaupstaðnum. Slíkt var einfald-
lega ekki gert, því slíkt gera auð-
vitað bara þeir sem skammast sín
fyrir skoðanir sínar eða þora ekki
að gangast við þeim.
Vegið úr
launsátri
Í dag er miðvikudagurinn 22.
apríl 112. dagur ársins.
5.31 13.26 21.23
5.07 13.11 21.18 H E I L S U R Ú M
20-30% AFSLÁTTUR
AF SVEFNSÓFUM
Einn stæðsti og glæsilegastisvefnsófa-sýningarsalur landsins
VERÐ FRÁ 37.840 kr.
20-30% AFSLÁTTUR
AF FJÖLSTILLANLEGUM
HEILSURÚMUM
(2x80x200)
Hægt er að velja um no
kkrar
gerðir af heilsudýnum
VERÐ FRÁ 199.000 kr.
Með öllum keyptum rúmum er
25% AFSLÁTTUR af öllum vörum
í mjúku deild Rekkjunnar
25%
AFSLÁTTUR!
HEILSUKODDAR
FRÁ 7.900 kr.
SÆANGURFATNAÐUR
FRÁ 5.300 kr.
Rekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16
30%
AFSLÁTTUR!Leður rúmstæði meðlaxex heilsudýnu(160x200)Verð 247.180 kr.
NÚ FRÁ 173.026 kr.35%
AFSLÁTTUR!
Þrýstijöfnunar-
svampsrúm
Queen size (153x203)
Verð 165.500 kr.
NÚ 107.575 kr.
ÞÝSTIJÖFNUNARSVAMPUR
A
R
G
H
!
0
4
0
4
0
9