Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 40
MARKAÐURINN 22. APRÍL 2009 MIÐVIKUDAGUR6 S K O Ð U N Hér áður fyrr svaraði almenn- ingur hvatningu hins opinbera að leggja atvinnulífinu til fjármagn með kaupum á hlutabréfum gegn skattaafslætti og stuðla þannig að uppbyggingu sterks atvinnu- lífs. Lögð var áhersla á að horfa á þessa fjárfestingu sem langtíma- fjárfestingu sem skilaði ávinningi til lengri tíma litið. Þúsundir Íslendinga urðu við þessari hvatningu og hafa fjár- fest í hlutabréfum og stuðluðu þannig að uppbyggingu atvinnu- lífsins. Nú er þessi langtímafjár- festing í flestum tilvikum horfin og enn einu sinni gerðist það að glatast geymt fé. Hætt er við að nokkur tími líði þar til almenningur á Íslandi setur sparnað sinn í hlutabréf og ekki virðast bankarnir burðugir til fjármögnunar atvinnulífsins. Erlendar fjárfestingar hér á landi geta því skipt miklu fyrir endurreisn atvinnutækifæra. FLESTIR ERU SAMMÁLA UM AÐ KRÓNAN DUGI EKKI Til þess að laða að erlenda aðila til atvinnuþátttöku þurfa ákveðn- ir þættir að vera til staðar og er stöðugleiki bæði pólitískur og efnahagslegur mjög mikilvægur. Hvorugt er til staðar sem stendur en vonandi kemst á pólitískur stöð- ugleiki að loknum kosningum en efnahagslegur stöðugleiki er ekki í sjónmáli og þrátt fyrir að kosn- ingar séu eftir fáeina daga þá eru engar skýrar línur fyrirséðar. Flestir eru sammála um að ís- lenska krónan gangi ekki lengur í opnu hagkerfi heimsins en ekki eru allir sammála um það hvað skuli þá taka við. Sumir vilja bíða þar til eitthvað gerist af sjálfu sér sem er eins og að stinga hausnum í sandinn og hvorki horfa né hlusta á það sem er að gerast. Aðrir hafa hvatt til þess að leita að lausnum m.a. með því að kanna hvaða möguleikar felast í fullri aðild að ESB. Í þessum hópi eru forsvarsmenn Samtaka verslun- ar og þjónustu og Samtaka iðnað- arins. Eins og fram kemur á meðfylgj- andi mynd eru rúmlega 100.000 störf eða um 58 prósent allra starfa í verslun, þjónustu og iðn- aði, um 65.000 eða 36 prósent í op- inberri starfsemi og um 10.000 eða 6 prósent í sjávarútvegi og land- búnaði. Enn hefur ekki komið til fækk- unar starfa í opinberri starfsemi, sjávarútvegi og landbúnaði því má ljóst vera að hrunið í atvinnulíf- inu hefur verið í þjónustu og iðn- aði og getur átt eftir að þyngjast enn frekar. SKÝR SVÖR FÁST Í VIÐRÆÐUM UM EVRÓPUSAMBANDSAÐILD Velgengni atvinnulífsins og at- vinnuleysi haldast í hendur og því er mikilvægt að hlusta á ábending- ar þeirra atvinnugreina sem hafa skapað flest atvinnutækifæri á liðnum árum. Samtök verslunar og þjónustu og Samtök iðnaðarins hafa ítrekað á síðastliðnu ári hvatt stjórnmála- menn til að hefja undirbúning og viðræður við ESB um fulla aðild Íslands og upptöku evru í fram- haldi af því. Með því skapast nauð- synlegur stöðugleiki, vextir lækka og verðtrygging hverfur og hægt verður að hefja enduruppbyggingu atvinnulífsins. Með þessu er ekki verið að gera lítið úr ábendingum sjávarútvegs og landbúnaðar en þeir eins og aðrir þurfa að fá skýr svör um áhrif aðildar og þau svör fást ekki nema í formlegum viðræðum við ESB allt annað eru getgátur. Þ R Ó U N S T A R F A E F T I R A T V I N N U G R E I N U M Þjónusta án stjórnsýslu, fræðslu- og heilbirgism. Landbúnaður Fiskveiðar og fiskiðnaður Iðnaður, veitur og mannvirkjag. Stjórnsýsla, fræðslu-, heilbrigðis- og félagsjón. 80.000 70.000 60.000 50.000 40.000 30.000 20.000 10.000 0 HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS Sögurnar... tölurnar... fólkið... ÚT GÁFU FÉ LAG: 365 miðlar ehf. RIT STJÓRI: Óli Kr. Ármannsson, olikr@markadurinn.is RITSTJÓRN: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, jonab@markadurinn.is AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal RIT STJÓRN OG AUGLÝSING AR: Skaftahlíð 24, 105 Reykja vík AÐ AL SÍMI: 512 5000 SÍMBRÉF: 512 5301 NETFÖNG: rit stjorn@markadurinn.is og aug lys ing ar@markadur- inn.is VEFFANG: visir.is UM BROT: 365 miðlar ehf. PRENT VINNSLA: Ísa fold arprent smiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeyp is með Fréttablaðinu Markaðurinn áskil ur sér rétt til að birta allt efni blaðs ins í staf rænu formi og í gagna bönk um án end ur gjalds. Hverjir eiga að ráða Evrópuferðinni? Reynir Kristinsson formaður Evrópunefndar Samtaka verslunar og þjónustu. O R Ð Í B E L G VIÐ EVRÓPUKORT Myndin er tekin í Rúmeníu um það bil sem landið gekk í Evrópusambandið. Greinarhöfundur segir mikilvægt að hlustað sé á ákall atvinnulífs hér á landi og skýrra svara leitað um áhrif aðildar að Evrópusambandinu. MARKAÐURINN/AP Góðar ljósmyndir segja meira en þúsund orð. Það sem meira er, þær tala öll tungumál reiprennandi. Fagleg ljósmyndun er því afar mikilvæg þeim, sem halda vilja úti árangursríkum vefsíðum. Ljósmyndir eru órjúfanlegur þáttur í uppbygg- ingu vefsíðna. Þær segja sögu um fyrirtækið sjálft, vöru þess og þjónustu, og veita texta við- eigandi stuðning. Góðar ljósmyndir eru hverri vef- síðu til bóta, en slæmar myndir vekja vísast upp neikvæð viðbrögð gesta. Mikilvægt er að hafa myndefni á hverri undir- síðu vefjarins og í réttu hlutfalli við lengd texta. Myndir þurfa að vera í góðri upplausn og af réttu sniði (jpg, png, gif), settar á réttan stað á síðunni og tengdar textanum. Mikilvægt er að merkja (e. tag) myndir og nefna þær lýsandi nöfnum. Hafa skal í huga, að litasamsetning sé hófleg, svo myndir verði ekki þungamiðja síðunnar. Slíkt er aðeins merki um rýrt efnisinnihald. Ef vefstjórar hafa ekki yfir góðu myndasafni að ráða er góð latína að kaupa aðgang að mynda- bönkum á vefnum. Forðast skal að hirða mynd- ir af öðrum vefsíðum til notkunar á fyrirtækja- vefjum, nema tekið sé þar fram að slíkt sé heim- ilt og myndirnar séu nauðsynlegar. Vefsíður eru andlit fyrirtækja og því er mikilvægt að vanda til verka. Ef spurningar vakna, bendum við lesend- um á að leita til sérfræðinga, því mestur árangur næst með fagmennsku í fyrirrúmi. V I K U L E G V E F R Á Ð Í B O Ð I A L L R A Á T T A www.8 . is Jón Traust i Snor rason f ramkvæmdast jó r i A l l ra Át ta ehf . Góðar myndir eru gulls ígildi Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Fimmtánda september í fyrra hefur verið líkt við aðra fræga dag- setningu. Nefnilega 11. september 2001 þegar hryðjuverkaárásir voru gerðar á Bandaríkin. Árásunum var meðal annars beint að miðstöð fjármála þar í landi. Um miðjan september síðastliðinn voru þó ekki gerðar hryðjuverkaárásir, heldur varð ljóst að fjár- festingarbankinn Lehman Brothers var farinn á hausinn. Fall Lehman hafði víðtæk áhrif á fjármálamörkuðum heimsins. Hafi verið siglt á milli ísjaka fram að þeim tíma þá lagðist við þetta algjört frost yfir fjármálamarkaði. Hér komu áhrifin fram í því að Glitnir missti fótanna í fjármögnun. Eftirleikurinn er þekktur og endaði með hruni íslenska fjármálakerfisins. Alþjóðlega lausafjárkreppan og vandræði sem hlutust af undirmáls- lánum í Bandaríkjunum eru hins vegar ekki nema hluti af þeim þátt- um sem aukið hafa á vandkvæði í fjár- mála- og efnahagsstjórn hér á landi. Ísland var þegar á leiðinni inn í krefjandi samdráttarskeið og búið var að birta ófáar greinar og skýrsl- ur um möguleika þjóðarinnar á að ná „mjúkri lendingu“ áður en hagvöxt- ur gæti tekið við sér á ný. Uppgangur hafði enda verið hér gífurlegur, með þenslu af völdum stóriðju, skatta- lækkana og gegndarlausrar úthlut- unar á byggingarsvæðum sem verk- takar af öllum stærðum og gerðum gleyptu við án þess að nokkur virt- ist hafa hugsun á því að velta fyrir sér hver væri í raun byggingarþörf- in í landinu. Er þar engu minni synd en að verða fótaskortur í áhættumati á fjármálamörkuðum og nærtækara að finna sökudólga þar fyrir vand- ræðagangi í íslensku efnahagslífi, en að horfa til sökudólga undirmáls- lánakreppunnar í Bandaríkjunum. Þarna bera margir ábyrgð, stjórn- málamenn, embættismenn sveitar- stjórna, forsvarsmenn í fjármála- fyrirtækjum og þeir sem svo í fram- kvæmdirnar réðust. Vera kann hins vegar að í öllum hamförum fjármálakerfisins frá því í fyrrahaust og áhyggjum fólks af verðmæti húsnæðis síns, hafi menn misst sjónar á því að hér er við gjaldeyriskreppu að fást ofan á öll önnur vandræði. Þó er úrlausn í peningamálum þjóðarinnar og trúverðug stefna í þeim efnum í raun forsenda þess að hægt verði að greiða úr öðrum flækjum. Hér verður ekki hafin uppbygging á ný nema að til þess fáist fjármagn og það verður dýrt, ef ekki ill- mögulegt að fá, náist ekki að vinna til baka tiltrú á efnahagsstjórn landsins á erlendri grundu. Núverandi fyrirkomulag peningamála í umhverfi gjaldeyrishafta er til bráðabirgða. Um það er ekki deilt. Spurningin sem ríður á að svara er hvað á að taka við þessu bráðabirgðaástandi. Nú dugar ekki að hafna hinum og þessum hugmyndum, um leið og menn vilja af- nema gjaldeyrishöft og lækka stýrivexti, án þess að fylgi trúverð- ugar skýringar á því hvernig það eigi að gera. Raunhæfir kostir sem við blasa eru ekki margir. Vissulega skekja landið afleiðingar heimskreppu á fjár- málamörkuðum. Staðan er þó hvergi alvarlegri en hér. Gjaldeyriskreppan eykur á allan vanda Óli Kristján Ármannsson Alþjóðlega lausa- fjárkreppan og vand- ræði sem hlutust af undirmálslánum í Bandaríkjunum eru hins vegar ekki nema hluti af þeim þáttum sem aukið hafa á vandkvæði í fjármála- og efna- hagsstjórn hér á landi. Ísland var þegar á leiðinni inn í krefjandi samdráttar- skeið og búið var að birta ófáar greinar og skýrslur um möguleika þjóðar- innar á að ná „mjúkri lendingu“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.