Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 22
 22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR Heilbrigðisvísindi Styrkir til rannsókna í 7. Rannsóknaáætlun ESB Markmið áætlunarinnar er styrkja rannsóknaverkefni er stuðla að bættri heilsu íbúa Evrópu og efla samkeppnishæfni heilbrigðisgeirans og fyrirtækja tengdum honum. Dagskrá: Heilbrigðisvísindaáætlun 7. Rannsóknaáætlunar ESB Indriði Benediktsson, fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB Reynsla af þátttöku í samstarfsverkefnum innan heilsu- og lífvísindaáætlana ESB Prófessor Ingileif Jónsdóttir, Landspítala háskólasjúkrahúsi, Háskóla Íslands og Íslenskri erfðagreiningu. Aðstoð í boði fyrir umsækjendur Elísabet M Andrésdóttir, alþjóðasviði Rannís Fundarstjóri Katrín Valgeirsdóttir, Rannís Vinsamlegast sendið tilkynningu um þátttöku á netfangið rannis@rannis.is Boðið verður upp á stutta einstaklingsfundi með Indriða Benediktssyni eftir hádegi. Áhugasamir geta pantað tíma hjá Rannís í síma 515 5800, eða á rannis@rannis.is. Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is 2007-2013Kynningarfundur á vegum Rannísföstudaginn 24. apríl Grand Hótel Reykjavík 9:00-11:00 UMRÆÐAN Sighvatur Björgvins- son skrifar um Evr- ópumál Nú er ögurstund á Íslandi. Í 14 ár – eða allt frá kosningunum 1995 – hafa Íslendingar þráttað um kost og löst þess að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Umræð- an hefur ávallt fallið í sama farið. Skipst hefur verið á gagnkvæm- um fullyrðingum um hver niður- staðan yrði. Aldrei hefur mátt láta á reyna. Aldrei mátt ganga úr skugga um hvað rétt sé. Bara gapað upp í vindinn. Ef öll umræða á Íslandi hefði verið á þessa bókina lærð hefði Ísland aldrei gerst aðili að neinu fjölþjóðlegu samstarfi. Aldrei tekið þátt í EFTA. Aldrei notið góðs af EES. Íslenska þjóðin væri enn að þræta. Enn að skiptast á gagnkvæmum fullyrðingum. Enn að gapa upp í vindinn. Aldrei neinn getað tekið af skarið. Sífellt fleirum verður nú ljóst, að áframhaldandi þráseta og þver- girðingsháttur mun óhjákvæmi- lega kosta þjóðina annað áfall, sem hún mun ekki rísa undir. Þrætubókarlistin mun reynast Íslendingum dýrkeyptari en svo að þjóðin fái við ráðið. Nú er ekki hægt lengur að drepa málunum á dreif. Við getum ekki gert okkur að athlægi erlendis með heimóttar- skap eins og þeim að ætla að fá alþjóðastofnanir til þess að ganga erinda okkar í mörkun peninga- stefnu, um að taka upp norska krónu, eyri vaðmáls eða kúgildi sem gjaldmiðil. Nógu margir gera nú grín að íslensku þjóðinni svo það bætist ekki ofaná að láta líka hlægja að heimóttarskapnum. Við verðum að fá að vita kost og löst, ekki með því að halda áfram að skiptast á gagnkvæmum og inni- haldslitlum fullyrðingum heldur með því að fá lagt á borðið hvaða niðurstöðum við getum náð. Af hverju má það ekki? Við hvað eru menn hræddir? Eftir fjór- tán ár gapandi upp í vind- inn? Ríkisstjórn Steingríms Her- mannssonar vann í lok níunda ára- tugarins eftirminnilegan sigur á óðaverðbólgunni með þjóðarsáttar- samningunum. Alþýðuflokkurinn sat í þeirri ríkisstjórn. Sá árangur var þeirrar stærðar, að það þurfti sterk rök fyrir því að halda ekki því samstarfi áfram eftir kosning- arnar 1991. Þau sterku rök voru, að án þess að skipta um ríkis- stjórn var aðild Íslands að EES í sjálfheldu og væri það enn. Ef Alþýðuflokkurinn hefði ekki látið því samstarfi lokið hefði Ísland aldrei hafið samningaviðræður um aðild að Evrópska efnahags- svæðinu. Landsmenn væru þá enn að rífast um hvort leita ætti slíkra samninga eins og þeir hafa þrætt um það nú í 14 ár hvort ætti að spyrjast fyrir um kjör Íslands hjá Evrópusambandinu. Þegar Samfylkingin var stofn- uð kynnti hún sig sem valkost við Sjálfstæðisflokkinn. Loks væri kominn flokkur, sem gæti náð þeirri stærð að geta axlað stjórnar forystu í samkeppni við Sjálfstæðis flokkinn. Annað hvort Samfylkingin eða Sjálfstæðis- flokkurinn – um það stæði valið. Hvaða rök voru þá fyrir því að ganga til stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðisflokkinn árið 2007? Sömu rök og réðu valinu eftir kosningarnar 1991 – að einung- is þannig gæti Samfylkingin náð sérstöku baráttumáli sínu í höfn? Evrópumálunum. Það héldum við margir. Við héldum að sátt hefði náðst milli forystumanna um að leiða það mál til lykta á kjörtíma- bilinu. Eða voru það meginrökin að koma bara í veg fyrir að aðrir aðrir flokkar en Samfylkingin veldust til stjórnarsetu? Tím- inn virðist nú hafa svarað þeirri spurningu. Hvað annað stendur eftir? Það svar er mér ekki að skapi. Svo er um fleiri af mínum félögum. Samfylkingin stendur ekki leng- ur nánast ein í afstöðu til Evrópu. Hún hefur fengið liðsinni atvinnu- lífsins og samtaka launafólks við þá stefnu að leita eftir viðræðum við Evrópusambandið. Allir þessir aðilar gera sér ljósa grein fyrir því að það er orðið lífsspursmál fyrir þjóðina að láta á það reyna strax hvaða skilmála Íslendingar geta fengið sæki þeir um aðild að Evr- ópusambandinu og að þjóðin fái svo að taka afstöðu til þeirra skil- mála í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ef Samfylkingin ekki situr við sinn keip, ef hún selur þetta baráttumál sitt fyrir kosningar fyrir völd eftir kosningar þá er aðild sú, sem ég átti að stofnun hennar, ein mestu mistök sem ég hef gert á mínum stjórnmálaferli. Svo einfalt er það. Svo skýrt. Höfundur stóð sem formaður Alþýðuflokksins að stofnun Samfylkingarinnar. Nú verða orð að standa! SIGHVATUR BJÖRGVINSSON UMRÆÐAN Jakobína Ingunn Ólafsdóttir skrifar um kosningar Tvær þjóðir búa í dag á Íslandi. Það er ann- ars vegar litla klíkusam- félagið sem hefur arðrænt þjóðina og hins vegar hinir arðrændu sem horfa fram á neyð ef ekki er gripið til rótækra ráðstaf- ana. Við vöknuðum upp við vondan draum. Kosningaloforð Sjálfstæðis- flokks um traust efnahagslíf og lof- orð Samfylkingar um jöfnuð sner- ust í andhverfu sína. Í viðskilnaði þeirra var efnahagslíf í rúst og ójöfnuður á Íslandi sá mesti í hinum vestræna heimi. Ég hitti ríkan mann í gær og spurði hvað hann ætlaði að kjósa. „Ég þarf að verja mitt“ sagði hann. Þannig hugsar sá fámenni hópur sem lifir í allsnægtum. Þetta er það sem er honum efst í huga núna. Þeir flokkar sem hafa verið við völd síðustu átján ár hafa þegið rausnar- legar gjafir frá þeim sem kallaðir hafa verið ýmsum nöfnum, útrásar- víkingar, kvótagreifar, auðmenn eða kjölfestufjárfestar. Valdhaf- arnir sem áttu að þjóna almenn- ingi gengu erinda auðvaldsins. Þeir sköpuðu lagaumhverfi sem gerðu fámennum hópi manna kleift að ræna almenning, komu upp skil- virkri vanhæfni í eftirlitsstofn- unum og spilltu dómsvaldinu með klíkuráðningum. Framkoma vald- hafanna var sýndarleikur og tryggð þeirra við almenning engin. Leyni- makk, mútuþægni og blekkingar varð hið viðtekna í stjórnarráðinu. Það er krafa Frjálslynda flokks- ins að þjóðin verði leyst undan oki spilltra stjórnmálamanna. Erfið- leikarnir sem framundan eru krefj- ast nýrrar hugsunar. Tryggja þarf eignarhald þjóðarinnar á auðlind- unum, t.d. fiskimiðum, fallvötn- um, jarðvarma, vatnsréttindum og að arðsemi vegna nýtingu auð- linda skili sér til þjóðarinn- ar. Ofríki, forræðishyggja, höft og einokun hafa drepið niður frumkvæði, nýsköp- un, frumkvöðlastarf og nýliðun í atvinnugreinum. Bætt lagaumhverfi, afnám hafta, aukin færni í eftir- litsstofnunum og sann- gjörn verðlagning, t.d. á orku til bænda og smáiðn- aðar byggir undir frjálsa atvinnusköpun í byggðum landsins og eykur atvinnu í þjónustugrein- um á höfuðborgarsvæðinu. Kjósum nýtt og óspillt fólk sem vill vinna fyrir almenning á þing. Gerum nýja stjórnarskrá sem tryggir aðhald í stjórnmálum og mannréttindi borgaranna. Gríðarlegur niðurskurður hjá hinu opinbera blasir við. Það verður að tryggja að þeir sem minna mega sín, þ.e. börn, aldraðir og öryrkjar líði ekki fyrir niðurskurðinn. Nýjar aðstæður krefjast þess að við tökum afstöðu til þess hvers konar samfé- lagi við viljum búa í og við verð- um að vera virkir þátttakendur í mótun nýs samfélags. Viðskilnað- ur fyrri ríkisstjórnar er þannig að það eru ekki til miklir fjármunir til uppbyggingar. Þess vegna verð- um við að hugsa hvernig getum við bætt mannlífið án mikils tilkostnað- ar og hvernig getum við byggt upp atvinnulífið án þess að steypa börn- um okkar í óviðráðanlegar skuldir. Hagstjórn á Íslandi þarf að miða að því að gera samfélagið sjálf- bært um flesta hluti vegna þess að allur innflutningur eykur erlend- ar skuldir þjóðarbúsins sem aftur eykur vaxtaáþján og skuldabyrði til frambúðar. Þetta vilja þeir sem lifa í vellystingum ekki skilja og þetta vilja þeir sem hafa hagnast af innflutningi ekki sjá að verði að veruleika vegna þess að hagsmun- ir þeirra eru ekki með þjóðinni eða börnum okkar. Frjálslyndi flokkur- inn er flokkur fólksins. Höfundur skipar 2. sæti Frjáls- lynda flokksins í Reykjavík suður. Tvær þjóðir í einu landi JAKOBÍNA INGUNN ÓLAFSDÓTTIR Samfylkingin stendur ekki lengur nánast ein í afstöðu til Evrópu. Hún hefur fengið liðsinni atvinnulífsins og sam- taka launafólks við þá stefnu að leita eftir viðræðum við Evrópusambandið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.