Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 52
22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
Þorgeir Ástvaldsson út-
varpsmaður söng lag sem
hann gerði frægt í byrjun
9. áratugarins – Fjólublátt
ljós við barinn – á árshátíð
365 og ætlaði allt um koll að
keyra.
„Já, fjólublátt ljós við barinn.
Þetta voru einkunnarorð árshátíð-
arinnar, allt fjólublátt þarna inni.
Lagið var tekið upp árið 1981 og
ég söng það einu sinni opinberlega
og svo aldrei eftir það,“ segir Þor-
geir Ástvaldsson – útvarpsmaður,
sem á sokkabandsárum sínum var
kallaður Toggi í Tempó.
Árshátíð 365 var haldin á laugar-
dag og var eitt atriða upptroðsla
Þorgeirs sem söng Fjólublátt ljós
við barinn. Ætlaði allt um koll að
keyra og er mál manna að þarna
hafi hápunktur skemmtunarinnar
verið. Þorgeir gefur í sjálfu sér
ekki mikið út á það en segir að sér
hafi verið vel tekið. „Ég var búinn
að afskrifa þetta lag fyrir löngu en
einhverra hluta vegna hefur þetta
lifað. Ég hef dóttur mína fyrir því
að þetta heyrist hér og þar mörg-
um árum síðar. Og þá þetta fjólu-
bláa ljós enn blikkandi á börum þó
ég sé löngu búinn að slökkva það.“
Og atriðið var frábært. Dóttir Þor-
geirs, Eygló, og vinkonur hennar
úr listdansskólanum dönsuðu og
sungu bakraddir. „Þær tóku þetta
bara prófessjónal og gamli maður-
inn elti. Nú er það svo að hærurn-
ar eru orðnar hvítar og þær varð
að dekkja eitthvað. Þá var sett
einhver þriggja daga sukkáferð
á skeggrótina og svo setti maður
bara upp gamlan djammhatt sem
ég átti inni í skáp og þá var þetta
komið,“ segir Þorgeir sem gaf sér
nokkurn tíma í undirbúning. Seg-
ist ekki vilja standa í svona nema
vanda sig og taka það þá alla leið.
Stuðmenn spiluðu undir og þar
er einmitt Eyþór Gunnarsson.
Lagið er eftir Gunnar Þorsteins-
son við texta Þorsteins Eggerts-
sonar. „Eyþór spilaði inn á lagið
á sínum tíma og hann er þvílíkur
límheili að hann spilaði þetta kór-
rétt uppá nótu.“ Ein ástæða þess
að Þorgeir hefur ekki sungið þetta
lag opinberlega er sú að textinn
er ótrúlegt orðasafn yfir gjálífi
og vonlaust að læra það utan að.
„Svo hefur röddin dökknað. Ég
var í stuði árið 1981 og gat sungið
það hátt. Jú, það þurfti að lækka
það eitthvað en við skulum ekki
tala um hversu mikið.“
jakob@frettabladid.is
Togga í Tempó vel fagnað
við glæsilega endurkomu
TOGGI OG HEMMI
Mál manna er að hápunktur skemmt-
unarinnar hafi verið þegar Þorgeir
Ástvaldsson tók Fjólublátt ljós við
barinn. Ekki þurftu svo áhorfendur
að kvarta þegar Hemmi Gunn steig á
svið og söng Einn dans við mig.
M
YN
D
IR
/SIG
U
R
JÓ
N
Arnold Schwarzenegger hyggst
heiðra fyrrverandi mótleikkonu
sína, Jamie Lee Curtis, fyrir fram-
lag hennar til góðgerðarmála. Arn-
old og Jamie léku saman í einni
bestu hasarmynd seinni tíma,
True Lies, en í henni er að finna
eitt frægasta atriði Arnolds, þegar
hann bjargar spúsu sinni úr brenn-
andi bílflaki á þyrlu.
Verðlaunin sem Jamie hlýtur
nefnast Courage to Care og fær
hún þau afhent á sérstökum gala-
kvöldverði á Beverly Hilton-hótel-
inu hinn 9. maí. Jafnframt verður
gefinn sérstakur gaumur að sjúk-
lingum á Barnaspítala Los Angel-
es-borgar auk þess sem starfsfólk
spítalans verður heiðrað.
Arnold heiðrar Jamie Lee
HEIÐRAR VINKONU SÍNA Arnold Schwarzenegger hyggst heiðra mótleikkonu sína,
Jamie Lee Curtis, fyrir framlag hennar til góðgerðarmála. NORDICPHOTOS/GETTY
20% afs
láttur
af toppgr
æjum fyr
ir glugga
flvottinn
Ármúla 23 • Reykjavík
Sími: 510 0000
Mi›ási 7 • Egilsstö›um
Sími: 470 0000
Brekkustíg 39 • Njar›vík
Sími: 420 0000
Grundargötu 61 • Grundarfir›i
Sími: 430 0000
- hrein fagmennska!
GLUGGAfiVOTTASKINN/SKAFA
Visa Versa gluggaflvottaskinn/skafa –
20% fljótlegra a› nota flvottaskinn og
gluggaflvöru í einu áhaldi. Til í tveimur
stær›um. Au›velt a› festa á skaft til
a› framlengja. Til í tveimur stær›um.
HREINIR OG
GLERFÍNIR
GLUGGAR
GLUGGAfiVOTTASÁPA
Gluggaflvottasápan sem
fagma›urinn notar.
HIFLO fiVOTTAKÚSTUR
HiFlo flvottakústur – samanstendur af
10 m slöngu, bursta me› stillanlegum li›,
sápuskammtara og 64 umhverfisvænum
sáputöflum. Hægt er a› kaupa mismunandi
lengdir á sköftum (fylgja ekki me›).
GLUGGAfiVARA
Gluggaflvara me› flægilegu
griphandfangi. Endurbætt gúmmí
sem skilur engar rákir eftir sig.
Au›velt a› festa á skaft til a›
framlengja. Til í flremur stær›um.
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
28
06
7
Hjálpaðu
umhverfinu
með
Blaðberanum
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...