Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 22.04.2009, Blaðsíða 48
28 22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 22. apríl 2009 ➜ Tónleikar Queen tribute-bandið Killer Queen heldur tvenna tónleika á Græna hattin- um við Hafnarstræti 96 á Akureyri. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 20 en þeir seinni kl. 23. 17.00 Á Players við Bæjarlind í Kópa- vogi verður trúbadora bjórkvöld þar sem fram koma Matti papi, Pálmi Sighvats og Sigurjón Brink. 20.00 Eydís Ýr Ros- enkjær víóluleikari verður með tónleika í Salnum við Hamra- borg í Kópavogi. Á efnisskránni verða m.a. verk eftir Beet- hoven, Bach og Hind- emith. 20.00 Karlakórinn Þrestir verður með vortónleika þar sem þemað er „Ástir og örlög“, í Hafnarborg við Strandgötu í Hafnarfirði. Séstakur gestur tónleikanna er Sigrún Hjálmtýsdóttir. 20.00 Erla Jónatansdóttir verður með tónleika í hátíðarsal FÍH við Rauðagerði 27. Þar flytur hún kunn dægurlög í eigin útsetningum og annarra ásamt hljómsveit sem skipuð er Jóhanni Ásmundssyni, Daða Birgissyni, Jóhanni Hjörleifssyni, Berki Birgissyni, Ólafi Hólm og Samúel Jóni Samúelssyni. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. 21.00 Tónleikahópurinn Oki Doki stendur fyrir tónleikum á Karamba við Laugaveg. Fram koma hljómsveitirnar Miri og Ljósvaki. 21.00 Eberg heldur útgáfutónleika á Sódómu Reykjavík við Tryggvagötu. ➜ Opnanir 16.00 Sýning um kvenna- blöð og kvennatímarit verð- ur opnuð í Þjóðarbókhlöð- unni við Arngrímsgötu 3. ➜ Hönnun og tíska 21.00 Tískusýning útskriftar- nemenda í fatahönnun við Listaháskóla Íslands verður í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. ➜ Sýningar Sex listamenn hafa opnað sýningar í START ART listamannahúsi við Laugaveg 12b; Lena Boel, Dagrún Matthías- dóttir, Sigurlín M. Grétarsdóttir, Joseph Henry Ritter, Ragnheiður Ragnarsdóttir og Margrét Jónsdóttir. Opið þri.-lau. kl. 13-17. ➜ Málþing 17.00 Málþing verður í Listasafni Íslands um skiplag höfuðborgarsvæð- isins í tengslum við verk Þórðar Ben Sveinssonar á sýningunni „Nokkrir vinir“. Nánari upplýsingar á www. listasafn.is. Listasafn Íslands, Fríkirkju- vegi 7. ➜ Fyrirlestrar 12.00 Grétar Þór Eyþórsson flytur erindið: „Hvert stefnir í kosningunum 25. apríl“ á Félagsvísindatorgi Háskólans á Akureyri, stofu 201, Sólborg við Norðurslóð. ➜ Handverk Á miðvikudögum milli kl. 16 og 18 er handverks- kaffi í Bókasafni Kópa- vogs við Hamraborg 6a. Þar býðst fólki að skoða blöð og bækur tengdar handavinnu, föndri og listum og boðið er upp á tilsögn fyrir þá sem þurfa. Allir velkomnir, heitt á könnunni og aðgangur ókeypis. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Baltasar Kormákur, Vigdís Finnbogadóttir og Blái hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason leiddu hóp íslenskra listamanna sem hertóku finnsku borgina Vasa á íslenskri menningar- hátíð um helgina. „Ég er mjög hreykin af okkar fólki, okkur var svo vel tekið og það var mikið skrifað um þessa menningar hátíð í finnskum fjöl- miðlum,“ segir Vigdís Finnboga- dóttir, fyrrverandi forseti Íslands. Hún var stödd í Danmörku þegar Fréttablaðið náði tali af henni en Vigdís er verndari hátíðarinnar. Óhætt er hægt að segja að íslensk- ar listir hafi hertekið finnsku borgina Vasa um helgina en þá fór þar fram íslensk menningarhá- tíð. Leikritið Blái hnötturinn eftir Andra Snæ Magnason í leikstjórn Stefáns Sturlu Sigurjónssonar var sýnt auk þess sem Leikfélag Akureyrar sýndi Falið fylgi sem Jón Gunnar Þórðarson leikstýrir. Verkið var sýnt á íslensku en með sænskum texta. Blái hnöttur- inn hefur fengið frábæra dóma í finnskum fjölmiðlum og sumir hafa jafnvel gengið svo langt að telja það eitt besta leikverkið sem sett hefur verið upp fyrir börn og fullorðna um árabil. Auk þess var opnuð vegleg listasýning í listasafninu Kundsi þar sem margir af fremstu lista- mönnum þjóðarinnar sýndu verk sín. Meðal þeirra má nefna Ólaf Elíasson, Olgu Bergmann, Ragnar Kjartansson og svo var Georg Guðni með heilan sal undir verk sín. Þá var listamaðurinn Vignir Jóhannesson með gjörning en hann hannaði einnig leikmyndina við Bláa hnöttinn. Þá sat kvikmynda- leikstjórinn Baltasar Kormákur fyrir svörum hjá kvikmyndaþyrst- um Finnum en um þessar mundir er verið að sýna fjórar kvikmyndir hans í Vasa. „Baltasar fór á kostum og ræddi um kvikmyndir sínar og lífið og tilveruna. Ég hefði ekki viljað missa af því,“ segir Vigdís en fullur salur beið spenntur eftir því að sjá Mýrina, sem slegið hefur rækilega í gegn. Vigdís átti vart orð yfir það hversu vel íslensku listamennirnir hefðu staðið sig. „Það er ómetanlegt að eiga svona rödd og það er mikill styrkur sem býr í listinni því hún er tímalaus en um leið bergmál af nútímanum.“ Vigdís segist hafa fundið fyrir miklum samhug meðal Finna sem gengu í gegnum svipaða hluti og Íslendingar á tíunda áratug síð- ustu aldar. „Þeir höfðu mikinn áhuga á því hvernig okkur gengi að takast á við okkar erfiðleika. Það er aðdáunarvert hvernig þeim tókst að ráða fram úr atvinnuleysi hjá sér en það gerðu þeir með því að hafa trú á sjálfum sér. Ég held að við Íslendingar getum lært mikið af þeirra hugsunarhætti, að glata aldrei trúnni og eyða ekki orkunni í reiði og særindi,“ útskýrir Vigdís. „Reiði er einhver mesti óvinur sem við getum átt og hún afvegaleiðir alla skapandi hugsun.“ freyrgigja@frettabladid.is Íslendingar hertóku Vasa FÓR Á KOSTUM Baltasar Kormákur fór á kostum í finnsku borginni Vasa þegar hann ræddi um kvikmyndagerð sína, lífið og tilveruna. Mýrin var síðan sýnd fyrir fullu húsi. VERNDARI HÁTÍÐARINNAR Frú Vigdís Finnbogadóttir er verndari íslensku menningar- hátíðarinnar í Vasa og hér er hún við opnun umfangsmikillar listsýningar í Kundsi-safninu. 2009 Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16 Leiðsögn fyrir hópa. Netfang: gerduberg@reykjavik.is s. 575 7700 Gerðubergi 3-5 ı 111 Reykjavík ı Sími 575 7700 ı www.gerduberg.is Viltu vera vinur Gerðubergs? Kíktu á www.facebook.com! Sumardaginn fyrsta 23. apríl kl. 14 Alli Nalli og tunglið Möguleikhúsið sýnir leikrit byggt á sögum Vilborgar Dagbjartsdóttur. Fyrir áhorfendur á aldrinum 1-7 ára www.moguleikhusid.is Aðgangseyrir kr. 1.500 Brúðusýning Leikbrúðulands Draumsýnir Magnús H. Gíslason í Boganum Vissir þú... að í Gerðubergi er frábær aðstaða fyrir ráðstefnur, fundi, námskeið og veislur. Salir og fundarherbergi fyrir 8-120 manns. gerduberg.is og galleryfiskur.is 25. & 26. apríl kl. 14 Ég og umhverfi mitt Sýning þátttakenda á ljósmyndanámskeiði Cinziu D’Ambrosi. Þátttakendur kynna heimildavinnu sína og ljósmyndir sem sýna persónulega túlkun á umhverfi þeirra og samfélagi ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is Hart í bak Þrettándakvöld Sædýrasafnið Creature - gestasýning Skoppa og Skrítla í söng-leik Eterinn Kardemommubærinn Þjóðleikur - leiklistarhátíð á Egilstöðum 24.–26. apríl Ég heiti Rachel Corrie Aukasýning vegna fjölda áskorana: Sunnudaginn 26. apríl, kl. 20 í samstarfi við Ímagyn Miðasala er hafin. Miðasala er í síma 568 8000 og á borgarleikhus.is A u g lý si n g as ím i – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.