Fréttablaðið - 22.04.2009, Qupperneq 8
8 22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
BRUSSEL Á fundi landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðherra Evrópusam-
bandsríkjanna 27 í Lúxemborg í dag
leggur framkvæmdastjórn sam-
bandsins fram svonefnda grænbók
sem hefur að geyma tillögur henn-
ar að endurskoðun sameiginlegr-
ar fiskveiðistefnu ESB. Meðal þess
sem lekið hefur út um innihald til-
lagnanna er átak í að draga úr veiði-
getu fiskveiðiflota aðildarríkjanna
og að útgerðarmenn skuli fá meira
að segja um stjórnun fiskveiða.
Samkvæmt því sem fram kom í
vefmiðlum í gær, sem höfðu komist
yfir eintak af grænbókinni, segir í
henni að um þrjátíu prósent allra
fiskistofna í lögsögu aðildarríkj-
anna sæti svo miklu veiðiálagi að
hætta sé á að þeir hrynji.
Þar er ennfremur slegið föstu,
að þrátt fyrir víðtæka endurskoð-
un stefnunnar árið 2002 sé reyndin
sú að „ofveiði, of mikil veiðigeta,
miklar niðurgreiðslur, lítið efna-
hagslegt álagsþol og dvínandi afla-
magn“ einkenni veruleikann sem
fiskistofnar og útgerðir innan ESB
búi við.
Áttatíu og átta prósent fiski-
stofna í lögsögu ESB-ríkjanna sæta
veiðiálagi sem er ekki sjálfbært
til lengri tíma litið; með öðrum
orðum, veiðiálagið er meira en
náttúruleg endurnýjun stofnanna
stendur undir. Auk þess segir að
meirihluti þess afla sem veiddur
er af vissum stofnum, þar á meðal
Norðursjávarþorski, sé ókynþroska
undirmálsfiskur.
Framkvæmdastjórnin kemst að
þeirri niðurstöðu að útgerðarmenn
stæðu uppi með meiri ávinning
með því að draga úr veiðum uns
fiskistofnar ná sér aftur á strik –
en kerfið sé þannig uppbyggt að
skammtímahagnaður sé aðaldrif-
kraftur þess.
Í flestum strandríkjum ESB er
veiðigeta fiskiskipaflotans enn
margfalt meiri en nemur sjálfbæru
veiðiþoli fiskistofnanna. „Eingöngu
með því að koma á jafnvægi milli
veiðigetu og veiðiþols getum við
komið á sameiginlegri fiskveiði-
stefnu sem tryggir félags- og
efnahagslegan ávinning til fram-
tíðar,“ hefur fréttavefur BBC eftir
Utu Bellion, sem stýrir því sviði
alþjóðlegu umhverfisverndarsam-
takanna Pew sem sinnir málefnum
sjávar í ESB.
Að beiðni framkvæmdastjórnar
ESB hefur sjávarútvegsráðuneyti
Íslands tilnefnt Stefán Ásmunds-
son í fjölþjóðlega ráðgjafarnefnd
sem vinnur að endurskoðun sam-
eiginlegu fiskveiðistefnunnar. Hin
endurskoðaða stefna á að taka gildi
árið 2013.
audunn@frettabladid.is
Nær þriðjungi fiski-
stofna hætt við hruni
Í tillögum framkvæmdastjórnar ESB að endurskoðun sameiginlegrar fiskveiði-
stefnu sambandsins, sem kynntar verða í dag, segir að 30 prósent fiskistofna í
lögsögu aðildarríkjanna sæti alvarlegri ofveiði. Snarminnka verði veiðigetuna.
© GRAPHIC NEWS
Tillögur um að draga verulega úr veiðigetu
Minnka verður til muna veiðigetu fiskiskipaflota ESB-ríkja
til að stuðla að endurreisn fiskistofna. Þetta er meðal þess
sem kemur fram í svonefndri Grænbók framkvæmda-
stjórnar ESB um endurskoðun sameiginlegrar
fiskveiðistefnu ESB sem kynnt verður í dag.
Fiskveiðifloti ESB
Fjöldi skipa: 86.152
Brúttólestir: 1.866.194
Bretland
6.554
205.800
Írland
2.038
69.719
Belgía
100
19.007
Portúgal
8.581
106.560
Malta
1.147
10.902
Ítalía
13.680
196.199
Holland
829
146.773
Danmörk
2.898
73.483
Slóvenía
182
898
Kýpur
1.171
5.392
Grikkland
17.344
88.396
Búlgaría
2.538
8.371
Rúmenía
439
1.735
Litháen
221
50.478
Lettland
832
42.038
Eistland
962
17.447
Finnland
3.233
16.417
Svíþjóð
1.491
41.895
Pólland
832
40.978
Þýskaland
1.812
68.999
Frakkland
7.926
198.671
Spánn
11.342
455.945
Heimild: Framkvæmdastjórn ESB Mynd: Getty Images
VINNUMARKAÐUR Atvinnuástandið í
fluginu fer snarbatnandi þessa dag-
ana. Icelandair hefur ráðið aftur 28
flugmenn úr þeim hópi sem sagt
var upp í fyrrahaust. Flestar flug-
freyjurnar sem urðu atvinnulaus-
ar í nóvember hafa verið ráðnar
aftur tímabundið eða fengið loforð
um vinnu í sumar.
Gengið hefur verið frá samning-
um milli Icelandair og Air Finland
um leiguflug og færast sjö flug-
menn til og fara í leiguflug fyrir
Air Finland í fjóra mánuði og skapa
þá um leið rými fyrir jafnmarga
hér heima. Sex flugmenn hefja
síðan störf hjá Icelandair um miðj-
an maí og fimmtán í byrjun júní.
Jóhannes Bjarni Guðmundsson,
formaður FÍA, segir að ráðning-
arnar fari eftir verkefnastöðunni
hverju sinni. Flugmenn vonist til að
þetta sé allt að koma og fleiri fái
vinnu á næstu vikum og mánuðum
en „við erum orðnir alvanir þessum
sveiflum,“ segir Jóhannes.
Ástríður Ingólfsdóttir, varafor-
maður Flugfreyjufélags Íslands,
segir að verulega hafi ræst úr
atvinnuástandi hjá flugfreyja. „Yfir
heildina er staðan þannig að flest-
ir sem voru í uppsögn síðasta haust
hafa fengið tímabundna ráðningu
aftur í sumar,“ segir hún.
Icelandair hafði sagt upp 133
flugfreyjum og Iceland Express
níu. Flugfélag Íslands þurfti ekki
að segja neinum upp í haust og lét
nægja að ráða ekki nýja. Félagið
mun ráða eitthvað af afleysinga-
fólki í sumar. - ghs
FLUG 28 flugmenn hafa verið endur-
ráðnir til Icelandair.
Atvinnuástandið fer snarbatnandi hjá flugmönnum og flugfreyjum í sumar:
Flugmenn og flugfreyjur endurráðin
Andans mál,
upplestur og
almenn gleði!
Menningarhátíð VG
Í kvöld, síðasta vetrardag, verður haldin
menningarhátíð Vinstri grænna kl. 21.30
í kosningamiðstöð okkar Tryggvagötu 11.
Gestir kvöldsins:
Bragi Ólafsson
Bryndís Björgvinsdóttir
Einar Már Guðmundsson
Guðrún Eva Mínervudóttir
Haukur Már Helgason
Ingibjörg Haraldsdóttir
Kristín Svava Tómasdóttir
Thor Vilhjálmsson
Þorsteinn frá Hamri
– og að sjálfsögðu frambjóðendur VG.
Kynnir kvöldsins Katrín Jakobsdóttir,
menntamálaráðherra.
Léttar veitingar.
Allir velkomnir!
– Lifið heil Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
Gildir út apríl 2009
15% afsláttur
VOLTAREN 11,6 mg/g Gel, 100 g.
15% afsláttur
NICOTINELL tyggjó, Classic og Fruit.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
4
58
28
0
4
/0
9
Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is
Hjólafestingar