Fréttablaðið - 22.04.2009, Síða 38
22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR4
Kosningar
1) Ímyndaðu þér að við værum orðin að háþróuðum vits-
munaverum.
2) Ímyndaðu þér að allir tækju
ákvarðanir út frá almannahags-
munum en ekki sérhagsmun-
um.
3) Ímyndaðu þér að fólk myndi
aldrei gera neitt sem skaðaði
aðra.
4) Ímyndaðu þér þá að við
gætum samið okkar eigin
stjórnar skrá þar sem sanngirni,
réttlæti og kærleikur yrðu höfð
að leiðarljósi.
5) Ímyndaðu þér þá þingræði
þar sem þingmenn gengju ekki
erinda sérhagsmuna heldur
færu eftir því sem væri sann-
gjarnt, réttlátt og skynsamlegt
að gera í almannaþágu.
6) Ímyndaðu þér þá að auð-
menn væru tilbúnir til að færa
náttúruauðlindir landsins aftur
til þjóðarinnar.
7) Ímyndaðu þér þá að valda-
stétt landsins risi upp gegn tóm-
læti sínu gagnvart þjóðinni, léti
sér annt um almenning og gæfi
eftir vald sitt yfir fólki.
8) Ímyndaðu þér þá að hægt
væri að ganga strax til ESB
aðildarviðræðna og fá úr því
skorið hvað aðildin fæli í sér. Og
svo myndi almenningur ákveða
í kosningum, með hliðsjón af
þeim upplýsingum og almanna-
hag að leiðarljósi, hvort skyn-
samlegt sé að ganga í bandalag
með þjóðum heims.
9) Ímyndaðu þér þá að þeir
sem græddu á fölskum upp-
gangi bankakerfisins, og voru að
meira eða minna leyti ábyrgir
fyrir bankahruninu, myndu
skila ágóða sínum til þjóðfélags-
ins og gera grein fyrir og biðjast
afsökunar á hegðun sinni.
10) Ímyndaðu þér þá að ráð-
herrar, þingmenn og emb-
ættismenn landsins myndu
viðurkenna sekt sína í falli
bankakerfisins og bæðust afsök-
unar á afglöpum sínum og spill-
ingu.
11) Ímyndaðu þér þá að
almenningur gæti að fullu fyrir-
gefið þeim sem biðjast afsökun-
ar og áttað sig á sinni ábyrgð á
því að allt fór eins og það fór.
12) Ímyndaðu þér þá að öll
fyrirtæki landsins myndu fyrst
og fremst taka tillit til hags-
muna almennings og viðskipta-
vina og svo hluthafa við alla
ákvarðanatöku um arðsemi.
13) Ímyndaðu þér þá að allar
upplýsingar séu aðgengilegar
almenningi, hvort sem það er
hjá einkafyrirtækjum eða opin-
berum fyrirtækjum. Að fólk
haldi ekki neinu leyndu sem
aðrir mega ekki vita, að fólk
hætti að segja ósatt og að fólk
láti ekki eitthvað ósagt við ein-
hvern.
14) Ímyndaðu þér þá að á
Íslandi væru til hlutlausir
fréttamiðlar, þar sem frétta-
fólk væri vel menntað, upplýst,
fylgdi sinni eigin sannfæringu
og byggi við starfsöryggi. Þar
sem fróðleikur og upplýsingar
um það sem best er vitað væri
aðaláhersla fjölmiðilsins.
15) Ímyndaðu þér þá að við
myndum gera allt til að nýta
náttúruauðlindir landsins en þó
með því ófrávíkjanlega skilyrði
að ekki megi menga náttúruna
og virða verði fólk og dýr við
alla ákvarðanatöku.
16) Ímyndaðu þér þá að hægt
Ímyndaðu þér
væri að setja á flatan niðurskurð
á skuldir fólks. Að lántakendur,
lánadrottnar og almenningur
myndi hver axla sína ábyrgð.
17) Ímyndaðu þér þá að Ísland
myndi aldrei fara í stríð við aðrar
þjóðir, nema ef valdhafar níðast
á fólki þeirrar þjóðar eða til að
verja friðsama þjóð frá yfirgangi
annarrar þjóðar. Að aldrei nokk-
urn tímann megi sérhagsmunir
íslensku þjóðarinnar ráða því að
ákveðið sé að fara í stríð við aðrar
þjóðir.
17) Ímyndaðu þér svo að allar
aðrar þjóðir færu að okkar for-
dæmi.
Þið gætuð haldið því fram að
ég sé draumóramaður en ég er
ekki einn um þessa sýn. Vöxtur
vitundarinnar er frumforsenda
jákvæðs hagvaxtar. Byrjum á
okkur sjálfum og spyrjum; ef allir
í veröldinni hegðuðu sér og hugs-
uðu eins og ég, yrði ég ánægður
með ástand heimsins? Að kjósa
er hegðun og á bak við þá hegð-
un er hugsun. Kjósum nú fólk sem
hefur glæstustu framtíð okkar að
leiðar ljósi eða í það minnsta vísi
að henni. Af ávöxtunum munum
við þekkja þá.
HAFSTEINN
HAFSTEINSSON
lögfræðingur
Ímyndaðu þér þá þingræði
þar sem þingmenn gengu ekki
erinda sérhagsmuna heldur
færu eftir því sem væri sanngjarnt, réttlátt
og skynsamlegt að gera í almannaþágu.