Fréttablaðið - 22.04.2009, Síða 42
Háværar raddir voru um það í
byrjun árs að fjárfestingarbank-
inn Straumur væri að höndla með
krónur utan landsteina framhjá
gjaldeyrishöftunum með þeim
afleiðingum að gengi hennar
styrktist ekki líkt
og stefnt var að
með gjaldeyris-
r e g l u n u m .
Straumsmenn
þrættu fyrir
gjörninginn og
sögðu bankann
þvert á móti laða að erlent fjár-
magn í gegnum endurreisnar-
sjóðinn Fönix. Fjármálaeftirlitið
greip inn í rekstur Straums í
byrjun mars, starfsemin er nú
lítil sem engin og Fönix heyrir
sögunni til. Lítið hefur hins vegar
dregið úr falli krónunnar. Gengi
hennar er fimmtán prósentum
lægra en þegar Straumur var
tekinn yfir.
550 3,8 49umsóknir bárust Alcoa-Fjarðaáli um sumar-starf hjá fyrirtækinu. Ráðið verður í sextíu tímabundnar stöður, en umsóknarfrestur um
sumarstarf hjá fyrirtækinu rann út um miðja
síðustu viku.
prósenta lækkun varð á íbúðaverði milli febrúar
og marsmánaðar samkvæmt mælingu fasteigna-
skrár. Íbúðaverð hefur ekki lækkað jafnmikið
milli mánaða síðan byrjað var að reikna vísitölu
íbúðaverðs árið 1994.
þúsund milljarða króna rýrnun hefur orðið
á eignum hundrað ríkustu Rússanna, sam-
kvæmt nýbirtum lista Forbes. Eignir þeirra
hafa í heimskreppunni rýrnað um 73 pró-
sent, eða um 380 milljarða Bandaríkjadala.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Rangur
sökudólgur?
Áður en Fjármálaeftirlitið
greip inn í rekstur Straums í
byrjun mars var staða bank-
ans almennt talin sterk ef frá
voru skildir stórir gjalddagar.
Markaðurinn hefur heimildir
fyrir því að Straumsmenn velti
sumir fyrir sér hvort bankinn
hafi farið offari í að gera upp
lán. Hann hefði ef til vill átt
að reyna að sema um viðlíka
lánakjör hjá Seðlabankanum
vegna endurhverfra viðskipta
og VBS og Saga Capital gerðu.
Telja sumir að hugsanlega hefði
mátt bjarga bankan-
um frá þroti með
ráðum sem þessum.
Ef út í það er farið
hefði svo
sem margt
mátt gera
öðruvísi til
að forða
Íslandi frá
e f n a h a g s -
hruni ...
Hvað ef...?
Nærtækasta dæmið í saman-
burði við íslensku krónuna
hefur verið nýsjálenski dollar-
inn, jafnvel þótt Nýsjálendingar
séu yfir fjórar milljónir talsins.
Þar hefur verið fjárfest í kíví-
bréfum, líkt og jöklabréfum hér,
og fleiri samlíkingar má draga.
Nýja-Sjáland er eyríki og þar
er töluverð jarðskjálftavirkni,
hverir og eldfjöll. Þá herma nýj-
ustu fregnir úr dagblaðinu New
Zealand Herald að nýsjálenskur
þingmaður hafi nú verið dreg-
inn þar fyrir rétt, sakaður um
mútur og spillingarmál. Einhver
kynni að velta fyrir sér hvort
þeir ættu að líta til okkar sem
dæmis um það sem koma skal,
eða við þeirra. Vilji svo ólík-
lega til að einhver hafi fjárfest
í nýsjálenskum bönkum ætti sá
hinn sami fjárfestir ef til vill að
hugsa sinn gang.
Eyríkin ekki
ósvipuð?
Vandaður panill fyrir
loft og veggi.
Fæst einnig rakaþolinn.
Margar breiddir.
Mörg viðarútlit.
Gott úrval frágangslista.
Meister panill kemur með nót
og tappa á fjórum hliðum.
Passar í öll rými íbúðarinnar.
Komið og skoðið úrvalið í
sýningarsal okkar að Ármúla 29 Rvk.