Fréttablaðið - 22.04.2009, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 22.04.2009, Qupperneq 58
 22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR HANDBOLTI Ársþing HSÍ fer fram í dag. Nýr formaður verður kjör- inn þar sem Guðmundur Ágúst Ingvarsson hefur ákveðið að stíga til hliðar eftir áralanga setu í stóli formanns. Nýi formaðurinn er í raun sjálf- kjörinn enda einn í framboði. Sá heitir Knútur Hauksson og er for- stjóri Heklu. Hann er einnig mikill Framari og á tvær dætur sem spila með meistaraflokki félagsins. Knútur er mikill handbolta- áhugamaður, hefur lengi gegnt trúnaðarstörfum fyrir Fram og var um tíma formaður handknatt- leiksdeildarinnar. Hann sat einnig í stjórn HSÍ í upphafi aldarinnar og þekkir því til umhverfisins. „Ég er fyrst og fremst að bjóða mig fram þar sem það var mikið leitað til mín um að taka starfið að mér,“ sagði Knútur spurður um ástæðuna fyrir framboði sínu en hvað telur hann sig hafa fram að færa í embættið? „Ég hef mikla þekkingu á starfi handknattleiksdeilda og hef líka unnið hjá HSÍ. Hef reynslu í þess- um málum. Svo hef ég mikinn áhuga á handbolta ásamt því að hafa mikla stjórnunarreynslu.“ Það verða líklega einhverjar breytingar með nýjum formanni en hvar ætlar Knútur að láta til sín taka? „Það munu koma nýjar áherslur með mér. Það koma alltaf nýjar áherslur með nýjum mönnum. Ég held að handboltinn eigi mikið inni enn þá. Það er búin að vera ákveð- in þreyta í starfinu finnst mér og það þarf að laga. Ég held að það þurfi til dæmis að nást ákveðin sátt á milli hreyf- ingarinnar og fjölmiðla. Ég þarf samt að vera í starfinu í smá tíma áður en ég gef það sterkt út hvar ég muni helst láta til mín taka,“ sagði Knútur. Gríðarleg óánægja er innan hreyfingarinnar með frammistöðu RÚV sem á sýningarréttinn á íslensku deildunum en sýnir ákaf- lega takmarkað af leikjum. Hvar stendur Knútur í því máli og hvað vill hann gera í framhaldinu? „Ég kom að því þegar þessir sjónvarpssamningar voru gerð- ir í upphafi aldarinnar. Þá reyndi ég að koma á samstarfi milli sjón- varpsstöðvanna með sýningar. Það náðist ekki sátt um það. Það þarf að skoða þetta mál vel því það er ljóst að það þarf að sýna meira frá handbolta. Ef það næst ekki í gegnum RÚV þarf að skoða aðrar leiðir. Þetta er eitt af stóru málunum,“ sagði Knútur en það verður verkefni nýrrar stjórnar að skoða þessi mál. Knútur vill ekki sjá breytingar á deildarfyrirkomulaginu. „Ég held að það væri ekki gott að breyta aftur núna. Við verðum að fá meiri reynslu á þetta kerfi,“ sagði Knútur, sem vill sjá betur gert í útbreiðslumálunum. „Þar hefur ekki verið staðið nógu vel að málum.“ Knútur er harður Framari eins og áður segir og hefur lengi verið með líflegustu stuðningsmönn- um félagsins. Lætur í sér heyra úr stúkunni og dómararnir hafa ósjaldan fengið að heyra það frá honum. „Ég sé mig ekki fyrir mér sitja í heiðursstúkunni á landsleik og horfa rólegur. Ég lifi mig gjör- samlega inn í leikinn enda er hann frábær,“ sagði Knútur og hló við. Hann fylgdist með leik hjá stelp- unum sínum í gærkvöldi, í síðasta sinn sem óbreyttur áhorfandi. Hann segir líklegt að hann muni róast með nýjum titli. „Einu sinni bannaði dóttir mín mér að koma á leik nema ég myndi þegja. Ég gat það ekki og sat því heima næstu þrjá leiki. Þá kom hún aftur og sagði að stelpurnar vildu endilega fara að fá mig aftur á leikina. Auðvitað þarf að taka tillit til embættisins og ég reikna með því að láta af leiðbeiningahlutverki mínu til dómara. Það verður samt ekki auðvelt verk. Því get ég lofað,“ sagði Knútur Hauksson, tilvonandi formaður HSÍ. henry@frettabladid.is Mun láta af leiðbeininga- hlutverki mínu til dómara Knútur Hauksson mun taka við sem formaður HSÍ í dag. Hann er einn í fram- boði. Knútur er mikill handboltaáhugamaður og segir það verða erfitt að breyta hegðun sinni í stúkunni þar sem hann er oftar en ekki afar líflegur. HANDBOLTI OG BÍLAR Knútur Hauksson er forstjóri Heklu og verður orðinn formaður HSÍ áður en dagurinn er allur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI Ársþing HSÍ fer fram í dag. Ekki er búist við miklu átaka- þingi og fá stór mál á dagskrá. Rót- tækasta tillagan kemur frá Vík- ingi, sem vill fjölga í fimmtán liða efstu deild og hafa úrslitakeppni átta liða. Það er engin nýlunda að lið sem falla úr efstu deild freisti þess að fjölga í deildinni en Víkingar segja þetta ekki vera neitt væl yfir falli. „Því fer víðsfjarri. Ég get alveg viðurkennt að við erum ekkert sér- staklega bjartsýnir á að ná þessu í gegn. Við viljum aftur á móti sjá lausnir til framtíðar enda ganga mótareglur HSÍ ekki upp til fram- búðar,“ sagði Davíð Hjaltested hjá Víkingi. Haukar koma einnig fram með tillögu þess efnis að reglum er varða rétt til þingsetu verði breytt. Haukar vilja sjá að þau félög sem séu með mesta starfið fái flesta þingfulltrúa. - hbg Víkingar vilja fjölga í efstu deild karla í handboltanum: Ekki bjartsýnir á að ná þessu í gegn VILJA FJÖLGUN Falllið Víkings vill fjölga verulega í efstu deild karla á næsta tímabili. skipta um dekk hjá Max1 Umfelgun og ný dekk á góðu verði Umfelgun og jafnvægisstilling á 4 fólksbíladekkjum á 12–16 tommu stálfelgum 6.458 kr. Kauptu sumardekkin hjá Max1 á góðu verði. Spyrðu okkur hvað við getum gert meira fyrir þig. Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel og ódýrt – skoðaðu: www.max1.is Reykjavík, sími 515 7190: Bíldshöfða 5a, Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6, Knarrarvogi 2. Akureyri, sími 462 2700: Tryggvabraut 5. Skoðaðu www.max1.is Sparaðu, láttu Ný sumardekk Dekkjaskipti Opið virka daga kl. 8:00 til 17:00 www.velaland.is VESTURLANDSVEGUR VAGNHÖFÐI VÉLALAND HÚSGAGNA- HÖLLIN TANGARHÖFÐI BÍlDSHÖFÐI H Ö FÐ A B A K K I REYKJAVÍK Vélaland - VAGNHÖFÐA 21 Sími 577-4500 Vélaland sérhæfir sig í tímareimum. Komdu í Vélaland og fáðu ráðgjöf um skiptingu á tímareim. Vélaland skiptir fljótt og vel um tímareimina fyrir þig, á föstu verði. Fáðu ráðgjöf um tímareimaskipti Er tímareimin komin á tíma? Fast verð hjá Vélalandi Skoðaðu fast verð hjá Vélalandi. Hringdu núna í síma 577-4500 og pantaðu tíma. Verðdæmi um tímareimaskipti: Nissan Patrol 2,8 dísil Árgerð 1992-2000 Heildarverð, varahlutur og vinna: 49.088 kr. Toyota Land Cruiser 90 3,0TD Árgerð 1997-2002 Heildarverð, varahlutur og vinna: 36.925 kr. Toyota Corolla 1,6 bensín Árgerð 1997-2001 Heildarverð, varahlutur og vinna: 35.987 kr. VW Golf 1,6AEE bensín Árgerð 1997-2006 Heildarverð, varahlutur og vinna: 46.774 kr. Ford Focus 1,6 bensín Árgerð 1998-2005 Heildarverð, varahlutur og vinna: 38.948 kr. Sjáðu hvar við erum. Hringdu núna í síma 577-4500 og pantaðu tíma. Óska eftir Porsche 911 helst blæjubíl og 4x4 en allt kemur til greina Þeir sem eiga slíkan eðalgrip og vilja selja fyrir gott verð hafi samband í gegnum tölvupóst likarporsche@gmail.com Skipholti 50b • 105 Reykjavík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.