Morgunblaðið - 03.11.2008, Page 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2008
MÁLSTOFUR
Opinber innkaup - Inn í nýja tíma
08.30–09.00 Mæting og skráning ráðstefnugesta
09.00–09.15 Setning ráðstefnunnar
Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa
09.15–10.15 Réttarúrræði og viðurlög vegna brota á
lögum um opinber innkaup, gildandi réttur
og fyrirsjáanlegar breytingar
Skúli Magnússon, ritari EFTA dómstólsins
10.15–10.30 Kaffihlé
10.30–11.10 “Learn from best in class procurement
organizations among the Danish municipalities”
Jesper Vesten Drescher, Capacent í Danmörku
Hvað er að gerast í innkaupamálum
sveitarfélaganna?
11.10–11.30 Reykjavíkurborg
Helgi Bogason, Innkaupa- og rekstrarskrifstofu
Reykjavíkurborgar
11.30–11.50 Hafnarfjarðarbær
Guðmundur Ragnar, innkaupastjóri
Hafnarfjarðarbæjar
11.50–12.00 Umræður
12.00–13.00 Hádegisverður
Hvað er að gerast í innkaupamálum
ríkisins?
13.00–14.00 „Í umboði almennings – Staða
ríkisstofnana gagnvart hinum
frjálsa markaði.” Siðfræðivangaveltur
Stefáns Einars Stefánssonar hjá
Eþikos
14.00–14.10 Stutt kaffihlé
14.10–14.50 Vöruskortur/verðbreytingar
Fulltrúar kaupenda og seljenda hafa
framsögu – Andrés Magnússon,
framkvæmdastjóri SVÞ,
Jóhanna Eirný Hilmarsdóttir,
forstöðumaður viðskiptaþróunarsviðs
Ríkiskaupa
14.55–15.35 Kaup á sérfræðiþjónustu
Guðmundur Hannesson, forstöðumaður
ráðgjafarsviðs Ríkiskaupa
15.35–16.00 Örútboð – hvað þýðir það og hvernig
ber ég mig að?
Guðmundur I. Guðmundsson,
yfirlögfræðingur Ríkiskaupa
Ráðstefnustjórn
Þórhallur Arason, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneyti
Skráning fer fram á
www.rikiskaup.is
2008
Grand Hótel Reykjavík 4. nóvember
Ráðstefnugjald er 10.000 kr.
Innkauparáðstefna
Ríkiskaupa
DAGSKRÁ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík • Sími 530 1400 • www.rikiskaup.is
Í sunnudagsblaðinu var fjallað um
Björn Eysteinsson, sem flutti með
fólk sitt að Réttarhóli. Réttarhóll
stendur í Forsæludalskvíslum, ekki
Forsæludal. Þetta leiðréttist hér
með.
LEIÐRÉTT
Í Forsæludalskvíslum
BJÖRN Bjarnason dóms- og kirkju-
málaráðherra og Thad W. Allen, yf-
irmaður bandarísku strandgæsl-
unnar, undirrituðu sl. miðvikudag
yfirlýsingu um samstarf Landhelg-
isgæslu Íslands og strandgæslunn-
ar. Samkvæmt yfirlýsingunni munu
strandgæslan og Landhelgisgæslan
styrkja samstarf sitt á ýmsum svið-
um, svo sem við leit og björgun,
stjórn á siglingum, mengunareftir-
lit á hafinu og almenna öryggis-
gæslu þar.
Samstarf
um gæslu
á hafinu
Innsiglað Björn Bjarnason og
Thad W. Allen takast í hendur.
Selfoss | Félagsmiðstöðin Zelsíuz á
Selfossi stóð fyrir umræðufundi um
efnahagsástandið í landinu sl.
fimmtudag. Ragnheiður Hergeirs-
dóttir, bæjarstjóri Árborgar, mætti
og ræddi við unglinga á aldrinum
13-15 ára um stöðu efnahagslífsins
og áhrifin á sveitarfélögin og heim-
ilin í landinu.
Unglingarnir sátu með bæjar-
stjóranum og spjölluðu um ástandið
í dag og hvernig þróunin yrði hugs-
anlega í næstu framtíð. Fram kom
að allir yrðu að líta í eigin barm og
athuga hvar mætti draga úr út-
gjöldum, hvað væri nauðsyn og
hvað væri óþarfi. Ragnheiður sagði
að fólk yrði að eiga fyrir því sem
það vildi kaupa. Það skipti miklu
máli þegar ástandið væri svona að
njóta þess sem við ættum og nú
væri tækifæri til að rækta betur
samskiptin við vini og fjölskyldu.
Ný tækifæri myndu skapast og
leggja þyrfti áherslu á að unga fólk-
ið í landinu ætti kost á góðri mennt-
un.
Unglingarnir voru óhræddir við
að spyrja bæjarstjórann og velta
fyrir sér ástandinu. Ragnheiður
kallaði líka eftir þeirra hugmyndum
og skoðunum á því sem í boði er á
vegum sveitarfélagsins og fékk góð-
ar ábendingar um eitt og annað sem
betur mætti fara í þjónustu við börn
og unglinga.
Segja alla verða
að líta í eigin barm
Spurt Rætt var um efnahagsástandið í félagsmiðstöðinni Zelsíus á Selfossi.
DANIR hafa brugðist drengilega
við fjárhagserfiðleikum íslenskra
námsmanna í kjölfar hruns krón-
unnar og gjaldeyrisörðugleika Ís-
lendinga.
Danskur athafnamaður sem teng-
ist Íslandi „miskunnaði sig“ yfir hóp
íslenskra nemenda við íþróttalýðhá-
skólann í Árósum, að því er segir í
frétt fréttaþjónustu Öresundsvæð-
isins í Svíþjóð. Þar kemur fram að
nærri hafi legið að sjö íslenskir
nemar við skólann neyddust til að
snúa heim því þeim var orðið nær
ómögulegt að greiða fyrir mat og
uppihald í Danmörku. Umræddur
athafnamaður reiddi fram 150 þús-
und danskar krónur (um 3,1 milljón
ÍKR) og tryggði með því áframhald-
andi nám Íslendinganna. Þetta vin-
arbragð mun hafa orðið til þess að
opnuð var Facebook-síða á vegum
íþróttalýðháskólans til að safna fé til
styrktar Íslendingum í Danmörku.
Henrik Løvschall, rektor íþrótta-
lýðháskólans sagði í samtali við Rit-
zau fréttastofuna að þeir hafi fengið
vísbendingar um að fleiri vildu
fylgja þessu góða fordæmi athafna-
mannsins og leggja lið. Eins ætlar
skólinn að efna til fjáröflunar.
Leysti fljótt úr fjárhagsvanda
Nýlega sagði Morgunblaðið frá
stúlku sem mætti miklum skilningi
skólastjóra Testrup lýðháskólans á
Jótlandi. Í framhaldi af því barst
bréf frá móður pilts sem nemur við
Den Rytmiske Højskole ásamt
tveimur öðrum íslenskum strákum.
Sonur konunnar fór til náms í
byrjun ágúst og var þá búinn að
gera áætlun um námskostnað. Hún
fór rækilega úr skorðum og gekk
hratt á innistæðuna sem átti að
duga fyrir náminu. Því var málið
rætt við skólastjórann. Ekki liðu
nema tæplega fimm klukkustundir
frá samtalinu þar til skólastjórinn
kom til íslensku piltanna og kvaðst
vera búinn að útvega hverjum og
einum þeirra 7.600 danskar krónur
(156 þúsund ÍKR) í styrk vegna
fjárhagsvandræða þeirra.
gudni@mbl.is
Drengileg
viðbrögð í
Danmörku