Morgunblaðið - 05.11.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.11.2008, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 5. N Ó V E M B E R 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 303. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er Leikhúsin í landinu >> 37 ALLT ANNAR BOND HRISTA EÐA HRÆRA? SKIPTIR EKKI MÁLI DAGLEGTLÍF Finnska leiðin var skelfilega erfið mbl.is95 ára Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is YFIRLÝSING um að hópur starfsmanna Kaupþings yrði ekki gerður persónulega ábyrgur fyrir lánum bank- ans til þeirra kom frá Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrum forstjóra Kaupþings, og var gerð í lok septembermán- aðar samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Stjórn Kaupþings samþykkti gjörninginn. Bankinn féll skömmu síðar. Lánin voru veitt til starfsmanna Kaupþings svo þeir gætu keypt hlutabréf í bankanum. Heildarlánveitingar til þeirra voru samkvæmt efnahagsreikningi Kaupþings rúmlega 50 milljarðar króna. Stærstu einstöku skuld- ararnir voru samkvæmt heimildum Morgunblaðsins Hreiðar Már og Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórn- arformaður Kaupþings. Þá vógu lán til annarra stjórn- enda mjög þungt en almennir starfsmenn bankans tóku einnig smærri upphæðir að láni til að kaupa sér hluti í Kaupþingi. Öllum lánasamningum fylgdu veðköll sem gerðu Kaupþingi kleift að kalla eftir auknum tryggingum fyrir lánunum ef hlutabréf í bankanum lækkuðu í verði. Þeim veðköllum var aldrei beitt þrátt fyrir að gengi bréfa í Kaupþingi hefði fallið mikið á síðasta rúma árinu. Þess í stað hvöttu stjórn og stjórnendur Kaupþings starfsmenn sína til að selja ekki bréfin sín til að veikja ekki tiltrú markaðarins á bankanum. | 17 Forstjóri Kaupþings takmarkaði ábyrgðir í septemberlok Felldar niður fyrir fall JERRY Jean-Baptiste og Violet Baptiste voru í besta skapi eftir að hafa greitt forsetaframbjóðandanum Barack Obama atkvæði í Flórída í gær. Samkvæmt fyrstu útgönguspám var Obama spáð sigri í Vermont. Að sama skapi var andstæðingi hans, John McCain, forsetaframbjóð- anda repúblikana, spáð sigri í Kentucky. Í Indiana var staðan hnífjöfn. Allt útlit var fyrir mestu þátttökuna í forsetakosningum í áratugi. | 18 AP Gífurleg þátttaka í kosningunum Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is HEIMILT er að ráða samtals hátt í 250 héraðslögreglumenn til starfa í lögregluumdæmum landsins sam- kvæmt nýgerðri breytingu á reglu- gerð um héraðslögreglumenn. Eftir breytinguna er lögreglustjór- anum á höfuðborgarsvæðinu heimilt að ráða allt að 80 héraðslögreglu- menn að fengnu samþykki ríkislög- reglustjóra. Fyrir breytingu mátti lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæð- inu, líkt og aðrir lögreglustjórar í öðr- um embættum landsins, aðeins ráða átta manns. Reglugerðin heimilar lögreglustjóranum á Suðurnesjum að ráða allt að 40 menn og lögreglustjór- unum á Akureyri, Akranesi og Sel- fossi að ráða allt að 16 manns. Lög- reglustjórum í öðrum umdæmum er eftir sem áður heimilt að ráða allt að átta menn. Samkvæmt skriflegu svari Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra er að því unnið að endurskoða lögreglu- lög. Bendir hann á að hann hafi kynnt niðurstöðu umsagna um málið á fundi sýslumanna í september sl. og þar hafi komið fram að umsagnaraðilar mæltu allir með því að farin yrði sú leið til að styrkja lögregluna, ef leita þyrfti út fyrir hinn fastráðna hóp, að fjölga héraðslögreglumönnum. „Við svo búið ákvað ég að breyta reglugerð um þetta efni,“ skrifar Björn. Spurð- ur hvort heimild fyrir fjölgun héraðs- lögreglumanna standi í einhverjum tengslum við ólguna sem margir greini í samfélaginu skrifar Björn: „Breyting á lögreglulögum og þessari reglugerð var ákveðin áður en banka- hrunið kom til sögunnar og er mjög langsótt ef ekki ómögulegt að sjá þar eitthvert samhengi.“ 250 manna liðsauki  Dómsmálaráðherra hefur heimilað ráðningu héraðslögreglumanna Í HNOTSKURN »Hlutverk héraðslögreglu-manna er, samkvæmt reglugerð um þá, að gegna al- mennum löggæslustörfum þegar á þarf að halda, þar á meðal að halda uppi reglu á mannfundum. »Lögreglustjóra er heimiltað kalla héraðslög- reglumenn til aðstoðarstarfa þegar vinnuálag er mest, til viðbótar þeim lögreglumönn- um sem heimild er fyrir í hverju umdæmi.  STAÐA Orku- veitu Reykjavík- ur er erfið um þessar mundir. Ekki hefur tekist að fá lán erlendis til fyrirhugaðra framkvæmda á næsta ári og eru þær nú í upp- námi. Þá hafa skuld- ir fyrirtækisins aukist á ógnar- hraða síðustu þrjá mánuði. Nemur hækkunin 40 milljörðum króna síð- ustu þrjá mánuði, eða 440 millj- ónum króna dag hvern. Skuldirnar eru nær eingöngu í erlendri mynt. Til stóð að taka 28 milljarða króna lán hjá Evrópska fjárfest- ingabankanum til að standa undir framkvæmdum á næsta ári. Bank- inn ákvað nýlega að fresta lánafyr- irgreiðslunni. Aðrir lánamögu- leikar hafa einnig lokast, t.d. hjá Norræna fjárfestingabankanum, Evrópubankanum og Þróun- arbanka Evrópu. » 4 Skuldir OR vaxa um 40 milljarða á stuttum tíma Orka Áform OR eru í uppnámi.  SÍFELLT verður algeng- ara að fólk skipti á fasteignum þegar ekki bjóð- ast lán á viðráð- anlegum kjörum eða þegar selj- endur sætta sig ekki við að lækka verð eigna sinna til að selja þær. Þessi þróun varð síðast á tíunda áratugnum. Fimmtíu kaupsamn- ingum var þinglýst á höfuðborg- arsvæðinu í síðasta mánuði þar sem eignaskipti áttu sér stað. Lausafé er líka tekið í skiptum fyrir fast- eignir, svo sem bílar og bátar. » 8 Fólk skiptir á fasteignum þegar lánin fást ekki Hús Ganga ekki kaupum og sölum.  FLEIRI hafa flust til landsins á þessu ári en spáð var. 1. október sl. var mannfjöldinn rúmlega 320.000 en ekki 313.000 eins og gert hafði verið ráð fyrir. Á fyrstu níu mánuðum ársins fluttust til landsins 4.687 manns um- fram þá, sem fóru, og er uppistaðan útlendingar en íslenskum ríkisborg- urum fækkaði um 261. » 4 Fólksfjölgun á árinu hef- ur verið meiri en spáð var

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.