Morgunblaðið - 05.11.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.11.2008, Blaðsíða 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008 ✝ Rangar upplýs-ingar slæddust inn í formála minn- ingargreina á útfar- ardegi Margrétar og við birtum því formálann aftur. Margrét Guðna- dóttir fæddist í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð 9. janúar 1930. Hún lést á blóðlækningadeild Landspítalans 24. október síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Guðni Markússon, trésmiður, bóndi og prédikari, frá Kirkjulækjarkoti f. 23.7. 1893, d. 4.3. 1973, og Ingigerður Guðjónsdótti, húsmóðir frá Brekkum í Hvolhreppi, f. 1.5. 1897, d. 19.2. 1984. Systkini henn- ar eru: Guðni, f. 30.7. 1918, d. 17.7. 2006, Magnús, f. 25.9. 1919, d. 23.12. 1999, Markús Grétar, f. 9.2. 1921, d. 3.4. 2001, Guðrún, f. 14.5. 1922, Guðbjörg Jónína, f. 30.4. 1924, búsett í Flórída, Oddný Sigríður, f. 12.4. 1926, Þuríður, f. 19.4. 1936, d. 13.7. 1999 og Guðný, f. 12.4. 1937. Margrét giftist 23. júlí 1953 Gísla Jónssyni, f. í Reykjavík 6.6. 1929, d. 22.2. 1999. Foreldrar hans voru Jón Guðnason, tré- smiður og síðar bifreiðasmiður, f. á Kolviðarhóli 2.1. 1896, d. 28.7. 1974 og Elín Gísladóttir, f. í Holti í Kjalarneshreppi 30.11. 1900, d. 24.8. 1966. Börn Mar- grétar og Gísla eru: 1) Elín grunnskóla- kennari f. 19.2. 1956, gift Gunnari Linnet tölv- unarfræðingi, f. 1955, og eru börn þeirra: a) Eyrún, f. 1979, sambýlis- maður Jósef Þeyr Sigmundsson. Börn þeirra eru Ásdís og Birkir, f. 2005. b) Margrét, f. 1982, sambýlismaður Jón Kjartan Björnsson. c) Ingvar, nemi f. 1987, d) Fríða Rakel, f. 1990, e) Agnes, f. 1992 og f) Hans Adolf, f. 1996. 2) Guðni innanhús- arkitekt og ritstjóri, f. 16.10. 1957, kvæntur Kristjönu Þórdísi Ásgeirsdóttur tónmenntakenn- ara, f. 1957. Börn þeirra eru: a) Gísli, f. 1979, b) Kristján, f. 1981, sambýliskona Aðalheiður Millý Steindórsdóttir. Dóttir þeirra er Emelía Ósk, f. 2005. c) Jakob, f. 1986, d) Smári, f. 1988, e) Jón, f. 1996, og f) Vignir f. 2001. 3) Ing- unn, f. 26.6. 1967, gift Halldóri J. Ágústssyni rafeindavirkja, f. 14.3. 1968. Börn þeirra eru: a) Hafdís, f. 1988, b) Helena, f. 1994 og c) Hildur Ýr, f. 2007. Útför Margrétar var gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði 31. október. Magga frænka var alltaf stór hluti af mínu lífi þar sem hún var ein af systrum mömmu og nánara samband milli systra er vandfund- ið. Það var alltaf eins og þær ættu öll börnin saman, svo náið var sam- bandið. Stundirnar í sveitinni á sumrin þegar þær voru saman- komnar með alla ungana sína í litla húsinu hjá ömmu og afa eru ógleymanlegar. Þá var oft þröng á þingi en hjartarúmið var svo mikið að það var alltaf nóg pláss og eng- inn kvartaði. Partur af þessum ágæta systra- og frænkuhóp fór í eftirminnilega ferð til Flórída í febrúar og ekki lét Magga sig vanta og gladdi það okkur mikið að hún skyldi geta komið. Gaf hún okkur sem yngri erum ekkert eftir í búðarápi eða öðru rápi þó svo að kraftarnir væru litlir og aldrei kvartaði hún. Stórt skarð er höggvið í þennan hóp við fráfall elsku Möggu og er tómarúmið mikið í hjarta mínu. Röddin hennar, hláturinn, fasið, allt heyri ég þetta og sé fyrir mér og er söknuðurinn sár. Alltaf var Magga svo fín og hugguleg og á henni sást vel hvað aldur er afstæður, svo vel bar hún aldurinn. Hún lifði lífinu til fulls þrátt fyrir veikindi sín, því- líkur dugnaðarforkur var hún. Fór á kóræfingar eins lengi og hún gat og hafði krafta til, og á fundi og mannamót fram á það síðasta en hún var einstaklega félagslynd kona og naut sín hvergi betur en innan um hóp fólks. Magga var mikil listakona. Saumaði, prjónaði og málaði svo fátt eitt sé nefnt og allt með þvílíkum listamannsbrag. Elsku Magga mín, þakka þér fyrir hvað þú varst alltaf yndislega góð við mig eins og ég væri þín eigin dóttir. Elsku Elín, Guðni, Ingunn og fjölskyldur. Guð gefi ykkur styrk á erfiðum tíma. Minningin um góða konu mun alltaf lifa í hjörtum okkar. Ingigerður Sigmundsdóttir. Elsku systir mín. Með örfáum orðum ætla ég að minnast þín. Mér fínnst svo sárt að þú skulir vera farin frá okkur. Það er svo stutt síðan að við fylgdum elsku bróður okkar og mágkonu til grafar, ekki datt mér í hug að þú yrðir næst. Ég stóð alltaf fast á því að Guð myndi lækna þig en hann hafði aðra áætlun fyrir þig. Elsku Magga mín nú ert þú laus við þær þján- ingar sem fylgdu þeim sjúkdómi sem þú varst með. Þú barðist á móti veikindum þínum með ótrú- legum krafti alla daga og aldrei heyrði ég þig tala um hvað þú vær- ir veik. Það var í febrúar í fyrra sem við vorum saman úti í Flórída hjá Böggu systur. Ég fór á undan þér og eftir u.þ.b. mánuð ákvaðst þú að koma út til okkar. Hlökkuðum við til að fá þig og eiga skemmtilegar stundir saman sem við og áttum svo sannarlega fyrstu dagana. En það fór síðan á annan veg. Við sáum fljótt að það var eitthvað að. Þú varst svo þreytt og þurftir að leggja þig eftir að þú labbaðir stig- ann sem er nú ekki langur. Við töl- uðum okkur saman um að þú yrðir að fara til læknis. Þegar læknirinn lagði þig strax inn og þú varst lögst í rúmið á spítalanum sá ég þig tár- ast. Þú varst fljót að hressast þar sem við sögðumst verða komnar snemma um morguninn og yrðum hjá þér alla daga og öll kvöld sem við stóðum við. Eina sem komst að hjá þér var að komast heim til Ís- lands og eftir sex daga varstu kom- in heim. Þegar heim var komið tóku við reglulegar blóðgjafir, þar sat ég stundum með þér og dáðist að því hvernig þú tókst á við þetta. Þú gast ekki verið iðjulaus frekar en aðrar stundir, þannig að þú saumaðir út eða prjónaðir á meðan blóðgjöfín stóð yfir, þú varst ábyggilega sú eina sem varst með handavinnu. Ekki stoppaðir þú þótt þú værir orðin þetta veik heldur fórstu í alla þá iðju sem þú komst yfir, t.d. söngtíma, málaratíma, danstíma, föndurtíma og örugglega eitthvað meira, sem ég veit ekki um. Allt lék í höndum þér heima fyrir, prjónaskapur og saumar, og hélt það áfram þrátt fyrir mikil veikindi. Elsku Guðni, Elín og Ingunn, ég bið algóðan Guð að styrkja og hugga ykkur, einnig börn ykkar og barnabörn á þessari sorgarstundu. Elsku systir mín, ég á eftir að sakna þín sárt. Hafðu þökk fyrir allar okkar stundir saman. Þín systir Oddný. Elsku Magga. Ég minnist þín með söknuð í hjarta. Það var svo gott að vera í návist þinni og við áttum margar yndislegar stundir saman, ekki síst eftir að ég tók við að stjórna kórn- um sem þú söngst í. Fyrstu kynni mín af þér voru þegar Guðni kynnti mig fyrir for- eldrum sínum, það var á sunnudegi í júní og þið voruð að drekka úti. Það voru gestir í heimsókn, og ann- ar gestanna sagði „þú“ og ég end- urtók það. Þar var systir tengda- pabba, en við höfðum verið saman í Vínarborg árinu áður. Það hjálpaði þó nokkuð að kannast aðeins við nánustu ættingja kærastans. Eins og ég sagði var alltaf gott að koma til þín, þú varst alltaf reiðubúin að passa þegar á þurfti að halda, hvort heldur var heima hjá þér eða að koma og sitja hjá barnabörnunum þínum fimmtán. Undanfarin ár höfum við farið á blettinn þinn austur í „Kot“ og slegið tún og sett niður tré, þar tókst þú þátt í heyskapnum og rifj- aðir upp gamla takta við að raka í garða og fleira og nokkrum sinnum skemmtum við okkur saman um verslunarmannahelgi ásamt frænd- fólki þínu í móðurætt og þá var etið og sungið fram eftir nóttu. Elsku Magga mín, megi góður Guð vera hjá þér. Mig langar að deila þessari bæn með þér, sem við Vignir, næstyngsta barnabarnið þitt, förum alltaf með á kvöldin. Trúðu á tvennt í heimi tign sem æðsta ber: Guð í alheimsgeimi, Guð í sjálfum þér. (Steingr. Thorsteinsson) Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir. Með trega og söknuði kveð ég móðursystur mína Margréti Guðna- dóttur. Magga eins og hún var allt- af kölluð háði baráttu við illvígan sjúkdóm með mikilli reisn og æðru- leysi svo eftir var tekið. Allt fram á síðasta dag bar hún sig vel og aldr- ei kvartaði hún. Magga ólst upp í stórum syst- kinahópi í Fljótshlíð í Rangárvalla- sýslu og þar af voru systurnar sex. Mikill kærleikur var á milli þeirra systra sem og samgangur. Komið var saman við ýmis tækifæri og var oft mikið fjör. Ég minnist glæsilegra boða í Hafnarfirðinum á heimili þeirra Gísla þar sem þau bjuggu mest- allan sinn búskap. Heimili þeirra bar vott um myndarskap Möggu. Veisluborðið svignaði af glæsileg- um veitingum og var greinilegt að þar var hússtjórnarlærð húsmóðir á ferð. Einnig átti ég notalegar stundir hjá þeim þegar ég gisti hjá Ingunni dóttur þeirra. Það var mik- il ró og friður á heimilinu og ég minnist þess að hafa hugsað í barnslegri einlægni að ef ég yrði munaðarlaus þá myndi ég vilja fá að búa hjá Möggu og Gísla. Þegar ég lít til baka finn ég hversu mikið traust og kærleik ég bar til Möggu. Hún var mér alla tíð svo góð og þegar móðir mín féll frá fyrir tæpum tíu árum gekk hún, eins og hinar móðursystur mínar, mér nánast í móðurstað. Bæði var gott að tala við hana og einnig líkt- ist hún í útliti móður minni. Ég sendi Ingunni, Elínu og Guðna og öðrum aðstandendum Möggu mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Minningin um sterka, skemmtilega og jákvæða konu lifir. Ég kveð Möggu með vísu Skáld- Rósu. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. Vigdís Sjöfn Ólafsdóttir. Nú þegar þetta yndislega sumar er liðið og fuglarnir flognir til ann- arra landa kveður góð vinkona þetta jarðríki og fer til æðri heima. Aldrei kvartaði hún, þó vissi maður að henni leið ekki alltaf vel. Hún tók veikindum sínum með því- líku æðruleysi að maður dáðist að henni. Þvílík hetja. En svo fór að sjúkdómurinn náði yfirhöndinni, tók völdin. Magga, Gísli og við Haddi vorum búin að þekkjast yfir 50 ár og átt- um góðar og skemmtilegar stundir saman alla tíð og aldrei fallið skuggi á vináttu okkar. Það er svo margt sem kemur upp í hugann þegar ég lít til baka. Við Magga áttum mjög góðar stundir saman, gerðum margt skemmtilegt. Ég sakna þín Magga mín, en svona er lífið, stundum erfitt. Þú varst einstaklega flink í hönd- um, m.a. saumaðir þú nokkra brúð- arkjóla, fyrir utan allt annað. Þér var svo margt til lista lagt, þú varst kraftmikil og komst svo mörgu í verk, fljótvirk og vandvirk. Mér dettur stundum í hug það sem mamma þín sagði: „Ég vildi nú að hún Magga mín væri komin með baunina sína.“ Þetta sagði svo margt, þú gast gert svo mikið úr litlu. Í september síðastliðnum fórum við Magga í Grasagarðinn, gengum um í yndislegu veðri, fengum okkur kaffi og áttum góða stund saman og nutum tilverunnar. Magga mín ég þakka allar góðu stundirnar sem við áttum saman, ég sakna þeirra og ég sakna þín. Ég vona að þér vel núna. Ég votta börnum þínum, barnabörnum og allri fjölskyldunni mína dýpstu samúð. Minningin um góða móður, ömmu og langömmu mun lifa. Guð veri með ykkur. Þess óskar Valborg (Stella). Kveðja frá Inner Wheel umdæminu á Íslandi Á kveðjustund við lífsins leiðaskil og litið yfir gengnar ævislóðir. Og þótt að ríki hryggð og harmaspil er hlýtt og bjart við minninganna glóðir. (Þorfinnur Jónsson) Við í stjórn Inner Wheel-um- dæmis á Íslandi nr. 136 fengum þær fregnir í gær að látist hefði mæt félagskona úr klúbbnum í Hafnarfirði, Margrét Guðnadóttir. Hún var ein af stofnendum Inner Wheel Hafnarfjörður. Við vissum að Margrét gekk ekki heil til skóg- ar en alltaf er jafn sárt að sjá á bak góðum vinum. Hún sótti fundi þrátt fyrir veikindi sín og lét ekki bugast á hverju sem gekk. Hana hitti ég síðast þegar ég heimsótti klúbbinn okkar sem umdæmisstjóri hinn 8. október síðastliðinn. Margrét var glæsileg kona og mikil reisn var yfir henni. Glað- værð einkenndi allt hennar fas. Þrátt fyrir að missa eiginmann sinn fyrir aldur fram lét hún ekki bug- ast og var hress og kát og lifði líf- inu lifandi. Hún var alltaf tilbúin að láta gott af sér leiða og er búin í gegnum tíðina að vinna mikið að framgangi samtaka okkar. Margrét var umdæmisgjaldkeri Inner Wheel 1992-1993 og vann við það sem hún tók að sér af nákvæmni og trúmennsku. Erfitt er að sjá eftir mikilhæfri konu en minning hennar lifir. Fyrir hönd stjórnar umdæmis Inner Wheel á Íslandi vottum við börnum Margrétar, tengdabörnum og barnabörnum okkar innilegustu samúð og biðjum Guð að blessa ykkur öll á erfiðri stund. Svíður í sárum, sorg drúpir höfði, góður er genginn á braut. Minningar mildar mýkja og lýsa og leggja líkn við þraut. (Hörður Zóphaníasson.) Gerður S. Sigurðardóttir umdæmisstjóri. Kæra vinkona. Nú skiljast vegir. Þú ert komin á mér ókunnuga braut, en ég er enn hér á þeirri jarðnesku. Frá því að ég ásamt fjölskyldu settist að í Hafnarfirði hefur þú og þitt fólk verið mér og mínum traustir vinir. Upp í minnið koma ferðir í Hellisgerði með börn- um okkar, drekka þar og borða nesti, eða þegar við fórum í ágúst- lok að tína ber í Heiðmörk, o.m.fl. Þú varst listamaður í höndunum, marga kjóla saumaðir þú fyrir árshátíðirnar og sama hvað þú tókst þér fyrir hendur; mála, gler- list, skartgripi og svo framvegis, allt lék þér í höndum. Nú höfum við um skeið báðar búið á Herjólfsgötu 36 í Hafnarfirði. Nú ert þú farin á undan mér. Takk fyrir samferðina. Thorgerd Mortensen. Í dag er til moldar borin ástsæll félagi okkar Margrét Guðnadóttir. Hún var einn af stofnendum Inner Wheel-klúbbs Hafnarfjarðar, árið 1976. Hún sinnti klúbbstarfinu alla tíð af miklum áhuga og gegndi þar öllum helstu embættum í gegnum tíðina af stakri prýði. Margrét átti við veikindi að stríða sl. eitt og hálft ár, en hún lét það ekki stoppa sig í að mæta á alla fundi og skemmtanir. Mætti hún þar alltaf með bros á vör, þar með á síðasta fund sem var haldinn um miðjan október sl. Hennar helstu einkenni voru léttleiki, bjartsýni og góð nær- vera. Í félagsskap sem hefur vináttu og mannleg samskipti að markmiði átti Margrét vel heima. Hún skilur eftir sig stórt skarð í okkar fé- lagsskap og verður hennar sárt saknað. Inner Wheel-félagar kveðja Mar- gréti með þakklæti og virðingu og senda fjölskyldu hennar innilegar samúðarkveðjur. Elín Ragna Sigurðardóttir, forseti Inner Wheel, Hafn- arfjörður. Þegar leiðir skilur leitar hugur- inn sjálfkrafa aftur í tímann, að minningum um góðar stundir. Eftir langan tíma er margs að minnast enda liðin hartnær hálf öld síðan leiðir okkar og Margrétar Guðna- dóttur, eða Möggu á Holtinu eins og hún var kölluð á okkar heimili, lágu saman. Faðir okkar og Gísli Jónsson, maður Margrétar, voru skólafélagar bæði í menntaskóla og eins að hluta í verkfræði. Vinátta þeirra hélst ævilangt og áttu þeir samleið um margt en voru á önd- verðum meiði um annað. Samgang- ur var mikill milli heimilanna og sérstaklega munum við það frá barnæsku okkar. Margrét og Gísli byggðu sér heimili við Brekku- hvamm á Hvaleyrarholti sem þá var í uppbyggingu. Við áttum heima í hinum enda bæjarins. Frá barnæsku lifa í minningunni sunnudagsheimsóknir, afmælis- veislur, fermingarveislur, berja- ferðir í Heiðmörk og fleira af því tagi. Einnig tók Margrét að sér að gæta okkar af ýmsu tilefni bæði á heimili þeirra og okkar. Því fór ekki hjá því að við kynntumst manneskjunni Margréti nokkuð vel og mynduðum okkur skoðun á henni. Það eru undantekningar- laust góðar og kærleiksríkar minn- ingar. Margrét reyndist okkur í alla staði vel og horft um öxl vekur það spurningu hvernig það mátti vera að hún hefði svona mikinn tíma fyrir okkur, hún sem sjálf átti börn og var að byggja hús. Hún var meistari í höndunum og saum- aði alla skapaða hluti, einnig á okk- ur, eða gerði við gamalt, eða breytti gömlu þannig að nota mætti það aftur. Þetta var okkar heimili notadrjúg hjálp á tímum þegar öll kjör voru knappari en nú er. Mar- grét brást alltaf vel við þegar hún var beðin og hún var ekki aðeins vandvirk og gerði hlutina vel, hún var einnig fljót. Niðurstaðan var því oft komin fyrr en varði. Glað- lyndi einkenndi hana og hlátrinum gleymir maður ekki. Það var bjart yfir henni og henni fylgdi jákvæður uppbyggjandi blær. Þegar við uxum úr grasi og flutt- um að heiman fór ekki hjá því að við sæjum minna af Margréti, þótt alltaf bærust fréttir. Því var það gleðilegt að hitta aftur fyrir gömlu góðu Möggu á Holtinu þegar þær fluttu í sama hús á Herjólfsgötunni, móðir okkar og Margrét, þegar báðar höfðu misst mennina sína. Þær bjuggu hvor á sinni hæðinni í sama stigahúsi og höfðu félagsskap hvor af annarri. Það er söknuður á kveðjustund en gleðjast ber yfir góðu og gæfuríku lífshlaupi, sam- eiginlegum stundum og minningin um Margréti Guðnadóttur er ljós á lífsleið okkar sem ekki slokknar. Við sendum börnum hennar, Elínu, Guðna og Ingunni, og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Þórður, Daníel, Hallur og Kristín. Margrét Guðnadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.