Morgunblaðið - 05.11.2008, Blaðsíða 21
Daglegt líf 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008
Veldu það besta
fyrir þitt heimili!
Við óskum Gunnari Guðjónssyni málara til hamingju
með árangur sinn í keppni iðnnema í húsamálun
á þingi norrænna málarameistara sem fram fór í
Helsinki í ár.
Gunnar valdi TEKNOS Futura lakk
til að vinna verkefni sitt með
góðum árangri.
Paint with Pride
ÍSLANDS MÁLNING
Skútuvogi 13 - Sími 517 1500
LI
T
LA
P
R
E
N
T
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
ÁSÓKN í störf sem oft reynist erfitt
að manna í góðæri hefur aukist mjög
undanfarnar vikur. Störf með börn-
um, fötluðum og við aðhlynningu
aldraðra eru meðal þeirra sem oft
hefur reynst erfitt að ráða í, en nú
horfir öðruvísi við.
Hjá leikskólum borgarinnar eru nú
aðeins um 10 stöðugildi laus. „Síð-
ustu vikur höfum við fengið 195 um-
sóknir um störf á leikskólum borg-
arinnar,“ segir Ragnhildur Erla
Bjarnadóttir, sviðsstjóri leik-
skólasviðs. Hefur borgin tekið út um-
sóknareyðublöð af vef sínum, enda
verið að vinna úr umsóknum sem fyr-
ir liggja. Ragnhildur Erla segir að
góður hópur fólks hafi sótt um lausar
stöður og margir með menntun í fag-
inu. „Núna hafa líka sótt um við-
skiptafræðingar, en annars hafa
þetta m.a. verið grunn- og leikskóla-
kennarar,“ segir hún. Helst sé sóst
eftir leikskólakennurum en fengur sé
að öllu góðu starfsfólki.
Tölur um nýtingu plássa í leikskól-
unum segi vel til um hversu marga
vanti til starfa. Núna sé tæplega 98%
nýting á plássunum „og ég veit að
mjög mörg börn eru að fara inn í leik-
skólann. Því styttist í að þeir verði
fullnýttir,“ segir Ragnhildur. Ragn-
hildur segir að hjá dagforeldrum líti
út fyrir að börnum hafi eitthvað
fækkað. Það kunni að skýrast af því
að fleiri börn komist inn í leikskóla en
fyrr, vegna betri mönnunar þar. Dag-
foreldrum í borginni hafi ekki fækk-
að, en þeir eru tæplega 190 talsins.
Fólk kannar möguleika sína
Vel hefur gengið að manna stöður í
grunnskólum borgarinnar að und-
anförnu, samkvæmt upplýsingum
Reykjavíkurborgar.
Að sögn Hreiðars Sigtryggssonar,
skólastjóra í Langholtsskóla, hafa
margir spurst fyrir um stöður við
skólann nýlega, þótt þær hafi ekki
verið auglýstar. „Ég auglýsti eftir
kennara fyrir þó nokkru og það bár-
ust margar umsóknir frá kenn-
aramenntuðu fólki og einnig fólki
sem hafði verið leiðbeinendur í skól-
um,“ segir hann.
Þá hafi fólk haft samband við skól-
ann síðastliðnar vikur, sem sé í ann-
arri vinnu, en hafi áhyggjur af at-
vinnumissi og vilji kanna möguleika
sína.
Fólk með ýmsan bakgrunn hafi
verið ráðið og dæmi séu um að fólk
fáist til tímabundinna starfa þótt það
hafi menntun á allt öðru sviði en
kennslu.
Hreiðar bendir einnig á að á upp-
gangstímum hafi margir kennarar
leitað í önnur störf í samfélaginu. Nú
fari fólk að svipast um á slóðum þar
sem það þekki til og njóti atvinnu-
öryggis.
Staðan á hjúkrunarheimilum hefur
breyst mikið undanfarið. „Þetta hef-
ur ekki litið jafnvel út í langan tíma,“
segir Ingibjörg Ólafsdóttir, for-
stöðumaður á Droplaugarstöðum.
Hún segir fullmannað þar, en um
130 manns vinna á heimilinu.
Ingibjörg segir að umsóknum um
störf hafi fjölgað mikið síðustu tvær
vikurnar. Bæði Íslendingar og út-
lendingar sæki um, en umsóknum frá
Íslendingum hafi fjölgað. „Við höfum
fengið fólk með mismunandi
reynslu,“ segir hún.
Magnea Símonardóttir, sem vinn-
ur við starfsmannamál hjá Hrafnistu
í Reykjavík, segir að þar sé búið að
ráða þá sem þarf.
„En þetta er 1.000 manna vinnu-
staður og því alltaf einhver hreyfing.
En við erum með margar umsóknir
fyrirliggjandi,“ segir hún.
Hún segir að umsóknum um störf
hafi fjölgað í lok október. Fólkið sem
nú sæki um störf hjá Hrafnistu hafi
ýmiss konar bakgrunn. „Oft er þetta
fólk sem hefur unnið áður við umönn-
un og er að koma aftur, en hefur und-
anfarin ár unnið við verslunar- og
skrifstofustörf,“ segir hún. Töluvert
margar umsóknir berist frá fólki sem
nýlega hefur verið sagt upp annars
staðar.
Mjög margir sóttu um
Á Svæðisskrifstofu málefna fatl-
aðra á Reykjanesi hefur mikið breyst
í ráðningarmálum síðustu vikurnar.
„Okkur berast miklu fleiri umsóknir
og við sjáum fram á að það verði full-
mannað á næstunni,“ segir Sólrún
Hjaltested, starfsmannastjóri
SMFR. „Þetta hefur ekki alltaf litið
svona vel út og hér hefur oft vantað
fólk,“ bætir hún við.
Sólrún tekur sem dæmi starf full-
trúa hjá skrifstofunni sem auglýst
var nýlega. Mjög margir hafi sótt um
stöðuna og sé langt síðan slíkur fjöldi
umsókna hafi sést.
Viðskiptafræðingar
sækja um í leikskólum
Vel mannað í störf sem færri sækja um á uppgangstímum
„ÞAÐ sótti fullt af fólki um þessa stöðu,“ segir
Hjalti Steinn Sigurðarson, sem hóf störf sem leið-
beinandi á leikskólanum Regnboganum í Reykja-
vík síðastliðinn föstudag. Hann hefur áður unnið á
frístundaheimili og telur ástæðu þess að hann
fékk starfið þá að „ég kann á gítar og hef mjög
gaman af því að vinna með börnum á leik-
skólaaldri“, segir hann. Hjalti Steinn segist hafa
heyrt að enn sé fólk að sækja um starfið, þar á
meðal „sprenglært fólk sem hefur misst vinnuna“.
Hjalti Steinn er ánægður með að hafa landað
vinnunni á Regnboganum eins og atvinnuástandið
er. „Mér finnst ég mjög heppinn,“ segir hann.
„Það sótti fullt af fólki
um þessa stöðu“
Hjalti Steinn
Sigurðarson
Morgunblaðið/Golli
Umsóknir Staðan í ráðningarmálum hjá leikskólum og hjúkrunarheimilum hefur gjörbreyst undanfarið.
Stefán Friðbjarnarson yrkir bragundir yfirskriftinni: „Ó, MY
DARLING, MR. BROWN“:
Neðstu traðar púka-prettir
„prýða“ skúrkinn, Mr. Brown.
Bretar væru betur settir
bjöllusauðsins þvera án.
Þú ert stanzlaust út’ að aka,
utan vegar, Mr. Brown.
Taktu allt þitt bull til baka
breyski lyga „kapelán“.
Herra Darling aldrei aftur
átt’ að ljúga að Mr. Brown.
Þú ert falskur fúaraftur,
fylgir slíkum aldrei lán.
Lýður hress á landi ísa
lítils virðir Mr. Brown.
Megi forsjón veg hans vísa,
vel og öruggt, þráðbeint down.
Taki Bretlands frægð að falla,
fagnar lítil, rúin þjóð
svo heyra má um heimsbyggð alla
hennar nýja sigurljóð.
Jóhannes í Syðra-Langholti:
Um bankana í British Town
berast fréttir ljótar.
Garmurinn hann Gordon Brown
geiflar sig og hótar.
Þú ert falsk-
ur fúaraftur
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
VÍSINDAMENN við Glam-
organ-háskóla í Cardiff í
Wales hafa komist að þeirri
niðurstöðu að hreyfing svip-
uð hópleikjum skólabarna
geti haft jafnjákvæð áhrif á
heilsu fullorðinna og hefð-
bundin líkamsrækt, skokk
eða hjólreiðar.
Áhrif mismunandi hreyf-
ingar voru rannsökuð um
nokkurra ára bil. Niðurstað-
an er sú að sex stuttir sprettir, allt að
hálfrar mínútu langir, sem hlaupnir
eru þrisvar sinnum í viku, geti bætt
heilsuna jafn mikið og stuðlað að
jafnmiklu þyngdartapi og
skokk eða hjólreiðar í allt
að 45 mínútur nokkrum
sinnum í viku. Frá þessu er
sagt á fréttavef BBC.
Svona þjálfun þótti líka
veita góða vörn gegn
hjarta- og æðasjúkdómum,
auk þess sem það var mun
auðveldara að fá of þung
börn til þess að stunda slíka
þjálfun.
Það er svo annað mál hvort full-
orðnir treysti sér í útileiki þegar aðr-
ir sjá til.
onundur@mbl.is
Útileiki frekar en skokk
Brennó Kannski
betra en skokk.