Morgunblaðið - 05.11.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 05.11.2008, Blaðsíða 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008 Skipulagsauglýsing Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkt að auglýsa nýtt deiliskipulag í landi Húsafells. Um er að ræða upptöku á deiliskipulag fyrir svæðið Stuttárbotnar þar sem gert er ráð fyrir einni 44 ha. lóða að stærð með 162 byggingarreitum, einni lóð fyrir íbúðarhús, lóð fyrir verslun og þjónustu, lóð fyrir athafnasvæði, lóð skilgreinda sem iðnaðarsvæði og er ætluð fyrir sorpmóttöku og flugbrautar- stæði. Með gildistöku þessa deiliskipulags fellur eldar skipulag úr gildi. Tillagan verður til sýnis frá og með 5. nóvember til 10. desember. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn frestur til að skila inn skriflegum athugasemdum til 10. desember. Athugasemdum skal skila til verkefnastjóra skipulagsmála í ráðhús Borgarbyggðar að Borgarbraut 14 Borgarnesi. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir. Framkvæmdasvið Borgarbyggðar. RJÚPNAVEIÐILEYFI í landi Skóg- ræktar ríkisins í Haukadal seldust upp á nokkrum dögum. Um var að ræða 72 leyfi eða fjögur leyfi á hverjum leyfðum veiðidegi rjúpna í þessum mánuði. Hvert dagsleyfi kostaði 4.000 krónur. Fyrirtækið Skógráð ehf. á Egils- stöðum hóf sölu rjúpnaveiðileyfa á vefnum rjupa.is 24. október sl. en veiðitímabilið hófst 1. nóvember. Auk Haukadals var í boði veiði í landi Bakkasels í Fnjóskadal og Haf- ursár-Gilsárdals á Hallormsstað. Síðar bættist við Stóra-Sandfell í Skriðdal. Enn eru laus veiðileyfi á síðasttöldu svæðunum. Christoff Wöll, starfsmaður Skógráðs ehf., sagði mjög æskilegt að fá fleiri veiðilendur á Suðurlandi og Vesturlandi nálægt höfuðborg- arsvæðinu. Hann kvaðst vona að fleiri landeigendur á þessu svæði efndu til samstarfs við Skógráð ehf. og nýttu rjúpnaveiðihlunnindi á jörðum sínum. Sölukerfið rjupa.is var hannað af Skógráði ehf. og Austurneti ehf. í samvinnu við Skógrækt ríkisins. Á vefnum eru upplýsingar um stærð og mörk veiðisvæðanna og er m.a. hægt að hlaða upplýsingunum niður í GPS-tæki. Fjöldi leyfa á hverju svæði er takmarkaður. Þorbergur Hjalti Jónsson, skóg- arvörður hjá Suðurlandsdeild Skóg- ræktar ríkisins, vissi ekki hvernig veiðar gengju í landi Haukadals fyrstu helgina. Hann sagði að veiði- svæðið í Haukadal væri takmarkað við heiðarbrúnina og heiðina þar inn af. Áfram væri bannað að veiða í sjálfum skóginum. Rjúpnaveiðarnar ættu því ekki að valda hættu fyrir göngufólk sem á leið um skóginn. gudni@mbl.is Rjúpnaveiðileyfi boð- in til sölu á netinu Morgunblaðið/Sverrir Karri Nú geta veiðimenn keypt veiðileyfi á skógræktarjörðum. Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is ÖLGERÐIN hefur fengið vilyrði frá Nýja Kaupþingi um fjármögnun á áframhaldandi framkvæmdum við nýjar höfuðstöðvar fyrirtækisins á Grjóthálsi, sem byrjað var á fyrr á árinu. Um nærri þriggja milljarða króna fjárfestingu er að ræða. Ís- lenskir aðalverktakar (ÍAV) reisa húsið og að meðtöldum undirverk- tökum starfa við verkið að jafnaði 50 til 60 manns. Andri Þór Guðmundsson, for- stjóri Ölgerðarinnar, segir það mik- ið ánægjuefni að tekist hafi að fá áframhaldandi fjármögnun. Allt verði nú sett á fullt og búist er við að áætlun standist nokkurn veginn um að öll starfsemi fyrirtækisins verði komin undir eitt þak í mars eða apríl á næsta ári. Búist er við að vöruhúsið komist í notkun að hluta í febrúar. Í dag fer starfsemi Ölgerðarinnar fram á átta stöðum í borginni, í flestum tilvikum í leiguhúsnæði. 12.500 fermetrar „Með því að flytja í eitt húsnæði náum við mikilli arðsemi af verkefn- inu. Við erum með lager á fimm stöðum í Reykjavík og framleiðslu á tveimur stöðum ásamt þjónustu- deild. Hagræðingin er því gríðarleg að geta dreift vörum okkar frá ein- um stað,“ segir Andri Þór en nýja byggingin er alls 12.500 fermetrar að flatarmáli. Að stærstum hluta er það vöruhús en einnig skrifstofu- bygging upp á 3.000 fermetra. Eldri hús við Grjótháls, sem áfram verða notuð, eru alls um 7.500 fermetrar að stærð. „Með þessu erum við komin með hagkvæmustu eininguna í sölu og dreifingu á matvöru hér á landi. Þetta er ein leið í áttina að því að lækka vöruverð og standa okkur betur í samkeppninni. Það vinnur að vísu á móti okkur að fá 6% vaxta- hækkun en við skulum vona að það sé tímabundið,“ segir Andri. Uppsteypu við bygginguna er að ljúka og að sögn Höskulds Tryggva- sonar, verkefnisstjóra ÍAV, verður fljótlega farið í að reisa þakbita og klæða húsið að utan. Býst Hösk- uldur við að starfsmönnum muni fjölga á næstu vikum og mánuðum en sem fyrr segir hafa að jafnaði verið 50 til 60 manns á svæðinu. Morgunblaðið/Golli Nýbygging Framkvæmdir ÍAV við nýjar höfuðstöðvar Ölgerðarinnar eru í fullum gangi á Grjóthálsi. Fjármögnun tryggð  Framkvæmdir halda áfram við nýjar höfuðstöðvar Ölgerð- arinnar á Grjóthálsi  Fjárfesting upp á tæpa þrjá milljarða Höfuðstöðvar Tölvumynd af norðurhlið byggingar Ölgerðarinnar. MATTHÍAS Halldórsson hefur verið settur landlæknir frá 1. nóvember sl. til 1. febrúar 2009. Kristján Odds- son verður aðstoðarlandlæknir sama tímabil. Þessi skipan verður höfð á uns embætti landlæknis verður auglýst laust til umsóknar. Matthías hefur verið aðstoðarlandlæknir sl. 18 ár en tekur nú við embætti landlæknis tímabundið. Hann hefur áður gegnt starfi landlæknis um eins árs skeið í fjarveru Sigurðar Guðmundssonar. Sigurður lét af starfi sem landlæknir eftir tíu ár í embætti 1. nóv- ember sl. Hann er nú forseti nýstofnaðs heilbrigðisvís- indasviðs í HÍ. Nýr landlæknir tímabundið Matthías Halldórsson settur landlæknir Matthías Halldórsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.