Morgunblaðið - 05.11.2008, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 05.11.2008, Blaðsíða 35
Menning 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008 Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is Tónleikar á Eskifirði og Höfn Í kvöld kl. 20.00 í Kirkju- og menningarmiðstöð Fjarðarbyggðar, Eskifirði Á morgun kl. 20.00 í Íþróttahúsinu á Höfn í Hornafirði Sigrún Eðvaldsdóttir leikur kafla úr fiðlukonsert Sibeliusar og Rómönsu eftir Árna Björnsson. Að auki verk eftir Grieg og Dvorák að ógleymdri fimmtu sinfóníu Beethovens. Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari Einsöngvari: Sigrún Eðvaldsdóttir Aðgangur ókeypis! Húsin opnuð hálftíma fyrir tónleika. fimmtudaginn 20. og 21. nóvember Eftirlætis barokk Tónleikar í Langholtskirkju þar sem fegurstu perlur barokktónlistarinnar hljóma. Tónlist eftir Handel, Bach, Purcell og Pacelbel. STOÐIR ERU AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS „Því að þetta er ekta leikhús, „hreint“ leikhús, ekkert nema leikhús. Gleymið öllu bíói, gleymið öllum bókmenntum. Leikhúsið er hvort eð er bæði eldra og æðra en bókstafurinn og bíóið. Ef þið vissuð það ekki – eða trúið mér ekki – kíkið sem fyrst í Kassann.“ JVJ, DV „Það er mjög sjaldgæft hérlendis að leiksýning sé eitt heildrænt listaverk en það er víst alveg óhætt að segja um þessa sýningu.“ EB, FBL e f t i r S i g u r ð P á l s s o n leikstjórn: Kristín Jóhannesdóttir Snarskemmtileg sýning einstök leikhúsupplifun fös. 14/11 lau. 15/11 lau. 22/11 fös. 28/11 Ath. snarpan sýningatíma Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is „Bráðskemmtileg sýning.“ GK, Mannamál „Þetta er dásamlegt verk, fyndið og furðulegt en sýnir okkur samt ofan í regindjúp mannlegrar reynslu, án þess að rembast nokkurn tíma.“ SA, tmm.is KARNIVAL með Kristjáni var auk- nefni Sinfóníutónleikanna í Há- skólabíói á laugardag. Girnileg fyr- irsögn, enda stóð ekki á viðbrögðum. Bíóið var smekkfullt og vissi á álíka sætanýtingu við ítrekun viðburð- arins á Akureyri næsta þriðjudag. Og hvern skyldi undra? Kristján Jó- hannsson hefur verið numero uno óperutenóra okkar erlendis í áratugi og fylgi hans meðal hérlendra söng- unnenda greinilega eftir því. Því síður olli framkoma hans von- brigðum, eftir stormandi und- irtektum áheyrenda að dæma að loknum ofursprækum Karnival- forleik Dvoráks. Innlifun Kristjáns í Sjá dagar koma eftir Sigurð Þórð- arson og Í fjarlægð Karls O. Run- ólfssonar (hvoru tveggja í útsetn- ingu Jóns Þórarinssonar) var sönn og hrein, auðvitað að viðbættum þeim norðlenzka fítonskrafti og raddfyllingu sem allir áttu von á. Að lokinni leikhústónlist Griegs við Pét- ur Gaut (Morgunstemning og Í höll Dofrakonungs), er SÍ flutti af sól- stöfuðum tærleika og kankvíst ög- uðu tröllatrunti, fór Kristján meist- aralega með aríu Canios úr „I pagliacci“ Leoncavallos, Vesti la giubba, og eftir sindrandi Int- ermezzo sveitarinnar úr sömu óperu trompaði tenórinn í Nessun dorma úr „Turandot“ Puccinis með því- líkum glæsibrag að áheyrendur risu á fætur með tölu og bravóuðu há- stöfum. Lék enginn vafi á að hér fóru at- riði sem Kristján gerir manna bezt, enda varð hann að kvitta fyrir með heilum tveim aukalögum, Hamra- borginni og ítrekun á fyrrnefndu gullaldarlagi Karls O. Runólfssonar. Slíkt má óhikað heita að hafa komið, sungið og sigrað, og hrifning tón- leikagesta var að sama skapi næsta áþreifanleg. Eftir hlé var þekktasta hljóm- kviða tónlistarsögunnar, Örlaga- sinfónía Beethovens í c-moll Op. 67. Þegar að slíku verki er komið eykst óneitanlega vandi hljómsveitarstjór- ans, vilji hann á annað borð hafa eitt- hvað „nýtt“ fram að færa, því al- kunnar viðmiðanir eru legíó. Burtséð frá einstaka nýstárlegum styrkbrigðum – að ekki sé minnzt á tvöfaldan hornastyrk (4 í stað 2, er kom flott út í sigri hrósandi fínalnum en fullsterkt þar áður) – heyrði ég hins vegar fátt af slíku. Petri Sakari gerði í heild meir út á dýnamískt drama en samstillta nákvæmni – og svo sem alveg skiljanlegt í lifandi spilamennsku, ólíkt stúdíóupptöku fyrir ítrekaða heimahlustun. Síður kunni ég þó við hálf asa- kennt yfirbragð hraðari þátta, sem lýsti sér í áberandi skorti á eðlileg- um öndunarstöðum og tímamót- uðum rúbatóum er virkaði stundum eins og þyrfti helzt að rúbba þessu af. Var það því einkennilegra sem 34 mínútna spilunartíminn var 2 mín. yfir algenga meðallengd. Grunaði mann því helzt að hraðabreytingar hafi verið skornar við nögl á æfing- um, enda alkunna að samtaka hóprúbató eru meðal tímafrekustu þjálfunaratriða. Hlustendur virtust þó flestir harðánægðir, ef marka mátti öflugar undirtektirnar á milli þátta. Kjötkveðja með tenór TÓNLIST Háskólabíó Sinfóníutónleikar bbbmn Hljómsveitarverk, sönglög og óperuaríur eftir Dvorák, Sigurð Þórðarson, Karl O. Runólfsson, Grieg, Leoncavallo og Pucc- ini. Beethoven: Sinfónía nr. 5. Kristján Jó- hannsson tenór og Sinfóníuhljómsveit Ís- lands. Stjórnandi: Petri Sakari. Laugardaginn 1. nóvember kl. 17. Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/Golli Kom, sá og sigraði Kristján á tónleikunum á laugardaginn. BÓK Sjóns, Með titrandi tár, kom nýverið út í Frakklandi, og hefur út- gefandinn þar í landi þegar tryggt sér útgáfuréttinn á annarri bók skáldsins, Augu þín sáu mig. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bjarti. Ýmsir af erlendum útgefendum Sjóns hafa þegar náð sér í eintak af Rökkurbýsnum, sem væntanleg er úr prentsmiðju í vikunni, og búast má við tilboðum í útgáfu bókarinnar erlendis. Í sumar kom út hjá Bjarti ljóðasafn eftir Sjón, í tilefni af 30 ára skáldaafmæli hans. Á þessu ári hafa bækur eftir Sjón verið gefnar út í Rúmeníu, Frakk- landi, Spáni, Tékklandi, Finnlandi, Bretlandi og Bandaríkjunum. Víðlesinn Sjón er nú lesinn víða, bæði í Evrópu og Ameríku. Sjón til Frakklands Morgunblaðið/Valdís Thor

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.