Morgunblaðið - 05.11.2008, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
50%
AFSLÁTTUR
90 x 200 cm
120 x 200 cm
150 x 200 cm
180 x 200 cm
Verð frá kr. 44.450,-
Verð frá Kr. 55.950,-
Verð frá Kr. 67.450,-
Verð frá Kr. 80.950,-
Verðdæmi með afslætti:
af öllum rúmum
út nóvember
VERÐHRUNPatti lagersala
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
HÁTT í 300 manns hafa skráð sig á námskeið sem
Norræna félagið hefur boðað til um flutning til
Norðurlandanna. Námskeiðunum, sem haldin hafa
verið u.þ.b. árlega síðan 2001, hefur nú verið fjölgað
úr tveimur í átta en eftir sem áður er fullbókað á þau
öll og eftirspurnin vel umfram framboðið.
„Aðsóknin er miklu meiri en áður og það er merki
um hve atvinnuástandið er slæmt hér. Við þurftum
að bæta við fleiri námskeiðum en nú getum við ekki
skráð fleiri,“ segir Alma Sigurðardóttir, verkefn-
isstjóri hjá Norræna félaginu. Á námskeiðunum er
farið yfir helstu atriði sem fylgja því að flytja á milli
landa, s.s. varðandi atvinnu og húsnæði auk upplýs-
inga um hvernig regluverkið virkar og hvaða rétt-
indi og skyldur eiga við.
Upphaflega stóð til að halda eitt námskeið þar sem
fjallað væri um Noreg og Svíþjóð og annað þar sem
Danmörk væri tekin fyrir, en nú hefur verið ákveðið
að halda aðskilin námskeið fyrir hvert land auk við-
bótarnámskeiðs þar sem stiklað er á stóru um öll
löndin. Öll námskeiðin eru uppbókuð og óljóst um
framhaldið. „Við vildum gjarnan geta annað eft-
irspurn en sjáum ekki fram á það í bili, en vonandi
getum við endurtekið leikinn eftir áramót.“
Fólk úr öllum áttum sækir fundina
Að sögn Ölmu virðist hópurinn sem sækir nám-
skeiðin vera mjög fjölbreyttur, allt frá 17 ára ung-
mennum til ellilífeyrisþega. Sumir stefndu út áður
en ástandið tók að versna og hafa þegar fengið vinnu
eða skráð sig í skóla, aðrir eru einfaldlega að kynna
sér möguleika sína og þreifa fyrir sér. „Þetta er bara
þversnið úr þjóðfélaginu, fólk úr öllum áttum og á
mismunandi menntunarstigi, í rauninni öll flóran.“
Alma bendir á að námskeiðin í ár hafi fengið meiri
kynningu en áður sem geti að hluta skýrt þessa met-
aðsókn. Hún leggur þó áherslu á að tilgangur nám-
skeiðanna sé aðstoð og upplýsingagjöf, þeim sé ekki
ætlað að vera áróðursnámskeið. „Okkar hlutverk er
ekki að hvetja fólk til að fara úr landi heldur að leið-
beina því hvert er best að snúa sér og gera því grein
fyrir hversu mikið, eða lítið, mál það er að flytja. Það
er misjafnt hvað hverjum og einum finnst.“
Morgunblaðið/Ómar
Kynning Alma Sigurðardóttir verkefnastjóri fór yfir helstu atriði búferlaflutninga á fyrsta námskeiðinu í gær.
Norðurlöndin vinsæl
Óvenjumargir hafa skráð sig á námskeið um flutning
til Norðurlanda vegna slæms atvinnuástands hér á landi
SNARPUR jarðskjálfti varð vestur
af Grindavík skömmu fyrir kvöldmat í
gær. Skjálftinn mældist um 4 á Richt-
er og samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Íslands fylgdu engir eft-
irskjálftar í kjölfarið.
Að sögn veðurfræðings á vakt hjá
Veðurstofunni voru upptök skjálftans
tæpa fjóra kílómetra vestur af
Grindavík, þar sem Reykjaneshrygg-
urinn gengur á land nálægt Reykja-
nesvita. Skjálftans varð víða vart á
Reykjanesi.
„Þetta er með snarpari skjálftum
sem við höfum fengið hér, en það
skýrist af því að upptökin eru svo ná-
lægt bænum. Við verðum oft vör við
kippi, en þeir eru yfirleitt miklum
mun minni en þetta,“ segir Sigurður
Ágústsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn, sem sæti á í almannavarna-
nefnd Grindavíkur. Sigurður var ný-
kominn heim úr vinnunni þegar
skjálftinn reið yfir.
Húsið hristist í hálfa mínútu
„Þetta var eins og sprenging og síð-
an hristist húsið í allt að hálfa mín-
útu,“ segir Sigurður og tekur fram að
þótt húsið hafi gengið mikið til og
hlutir færst til hafi ekkert dottið úr
hillu. Spurður hvort hann vissi til þess
að skjálftinn hefði valdið einhverjum
skemmdum sagðist Sigurður ekki
hafa fengið neinar tilkynningar þess
efnis. „Raunar virðist fólk hafa tekið
skjálftanum af mikilli yfirvegun,“ seg-
ir Sigurður. silja@mbl.is
Mældist
ríflega 4
á Richter
Snarpur jarðskjálfti
vestur af Grindavík
!"
#$$%
& %
Stormasamt vestanlands
LEIÐINDAVEÐUR með hvass-
viðri og úrhelli var á vesturhluta
landsins í gær og nótt. Stormurinn
tók sig upp með vesturströndinni
þegar leið á daginn og fram eftir
nóttu. Veðurstofan gerði í gær-
kvöldi ráð fyrir suðaustan- og síðar
sunnanátt með 15-23 metrum á
sekúndu, hvassast með vest-
urströndinni en öllu hægari norð-
austantil.
Í dag má vænta þess að dragi úr
vindi og úrkomu og verður sunn-
anátt með 5-15 m/s í kringum há-
degi, sem fyrr hvassast vestan-
lands. Væta sunnan- og vestan-
lands en léttskýjað norðaustantil.
Hiti 4-10 stig.
SKILANEFND Kaupþings rann-
sakar hvort hundrað milljarðar
króna hafi verið millifærðir inn á er-
lenda bankareikninga úr sjóðum
Kaupþings rétt áður en bankinn var
þjóðnýttur í síðasta mánuði. Þetta
kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í
gærkvöldi.
Í fréttinni sagði að millifærslurnar
hefðu vakið athygli starfsmanna
skilanefndarinnar vegna tímasetn-
ingarinnar og þess hve háar þær
voru. Engar skýringar hefðu legið að
baki millifærslunum.
Morgunblaðið reyndi að fá þessa
frétt staðfesta í gærkvöldi en án ár-
angurs. Fulltrúi í skilanefndinni,
sem náðist í, vildi ekki tjá sig um
málið. Ekki náðist í stjórnendur
gamla Kaupþings.
Jónas Sigurgeirsson, forstöðu-
maður upplýsingasviðs Kaupþings,
hafði ekki heyrt um málið. Það yrði
kannað og væntanlega kæmi yfirlýs-
ing frá bankanum.
Milljarðar
yfirfærðir
til útlanda?
„AUÐVITAÐ eru
erfiðir tímar í út-
gáfumálum en
það er algjörlega
nauðsynlegt fyrir
þjóðina að hafa
frjálsa fjölmiðla í
landinu, að þetta
sé ekki allt ríkis-
rekið eða í eigu
bankanna. Það er
nú það sem mér gengur til,“ segir
Hreinn Loftsson hæstaréttarlög-
maður en félag í hans eigu, Austur-
sel ehf., keypti í gær útgáfufélagið
Birtíng sem gefur m.a. út DV og ým-
is tímarit.
Austursel hefur átt hlut í Birtíngi
um nokkurt skeið og segist Hreinn
þekkja orðið vel til rekstrarins.
Spurður um eignatengsl við Baug
svarar Hreinn: „Ég er stjórnarmað-
ur í Baugi þannig að auðvitað hef ég
tengsl við Baug. En Birtíngur er
annað félag, þar eru engin eigna-
tengsl á milli svo þetta er ekki eitt af
Baugsfyrirtækjunum. una@mbl.is
Hreinn
kaupir
Birtíng
Hreinn Loftsson
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
Á VEGUM Vinnueftirlitsins og byggingarfulltrúa sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu er nú verið að kortleggja
hættuleg svæði þar sem framkvæmdum hefur verið
hætt. Reikna má með að húsgrunnar og hálfkaraðar
byggingar sem hætta getur stafað af skipti tugum á þess-
um svæðum og muni fjölga á næstunni.
„Við viljum tryggja að frá svona byggingum og svæð-
um verði gengið á öruggan hátt, þannig að börnum og
unglingum og öðrum óviðkomandi stafi ekki hætta af,“
sagði Steinar Harðarson, umdæmisstjóri hjá Vinnueft-
irlitinu, í gær. Farið var yfir þessi mál á fundi á mánudag-
inn og verður byrjað á því að kortleggja hvar verkefni
hafa verið sett á ís tímabundið eða framkvæmdaaðili
komist í þrot.
„Þar sem á annað borð eru framkvæmdir í gangi ganga
starfsmenn Vinnueftirlits eftir því að tryggilega sé geng-
ið frá girðingum og öðrum öryggisatriðum. Þegar fram-
kvæmdir hins vegar liggja niðri og ekki finnst forráða-
maður fer málið á borð byggingarfulltrúa. Ég óttast að
slíkum málum fjölgi verulega við þessar aðstæður,“ sagði
Steinar.
Gísli Norðdahl, byggingarfulltrúi í Kópavogi, segir að
víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu séu hálfköruð vinnu-
svæði og jafnvel hættulegir grunnar og byggingar. Í
september hafi byrjað að hægja á og síðan hafi starfs-
menn byggingarfulltrúans verið á tánum og fylgt því eft-
ir að tryggilega væri gengið frá öryggisatriðum á vinnu-
svæðum.
Í sumum tilvikum gæti kostnaður við girðingar og frá-
gang fallið á sveitarfélög. Til dæmis þegar ekki væri
hægt að innheimta kostnað vegna gjaldþrots fyrirtækis.
Tryggja öryggi á hættu-
legum vinnusvæðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rólegt Vinnusvæði við Skógarlind í Kópavogi er meðal
byggingastaða sem vel hefur verið fylgst með.