Morgunblaðið - 05.11.2008, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008
Jólablað Morgunblaðsins
Stórglæsilegt sérblað tileinkað jólunum
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn
28. nóvember.
Meðal efnis er:
• Jólafötin á alla fjölskylduna.
• Hátíðarförðun litir og ráðleggingar.
• Uppáhalds jólauppskriftirnar.
• Uppskriftir að ýmsu góðgæti til að borða á
aðventu og jólum.
• Hefðbundnir jólaréttir og jólamatur.
• Smákökur.
• Kökuuppskriftir
• Eftirréttir.
• Jólakonfekt.
• Jólauppskriftir frá kokkum.
• Vín með jólamatnum.
• Laufabrauð.
• Gjafapakkningar.
• Jólagjafir.
• Kertaskreytingar.
• Jól í útlöndum.
• Jólakort.
• Jólabækur og jólatónlist.
• Jólaundirbúningur með börnunum.
• Margar skemmtilegar greinar sem tengjast
þessari hátíð ljóss og friðar.
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni
og fróðleiksmolum.
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 16,
föstudaginn 21. nóvember.
SÍÐUSTU vikur
hefur formaður VG
leitað stuðnings í út-
löndum fyrir þeirri
staðhæfingu að rangt
hafi verið af íslenskum
stjórnvöldum að leita
eftir samstarfi við Al-
þjóðagjaldeyrissjóð-
inn. Þess í stað hefðu
íslensk stjórnvöld átt að leita til
Norðmanna og annarra Norð-
urlanda um einhvers konar sérnor-
ræna lausn. Forsætisráðherra Nor-
egs hefur hins vegar ítrekað bent á
það í síðustu viku að aðkoma Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins greiði fyrir
því að Norðmenn og aðrir hafi getað
komið að málum og að einstök lönd
hafi ekki haft burði til að leiða starf
af þessum toga. Formaður VG hefur
í kjölfarið reynt að afflytja svör for-
sætisráðherrans til að draga úr þeim
áfellisdómi sem þarna er kveðinn
upp yfir málflutningi VG.
En formaður VG er ekki af baki
dottinn þótt hann hafi misst átta í
skógarferð sinni í Noregi. Í Morg-
unblaðinu á laugardagsmorgun talar
hann fyrir upptöku norskrar krónu
og kveður beiðni um slíkt verða vel
tekið af norskum stjórnvöldum. Og
ekki virðist varkárni Steingríms í
túlkun á afstöðu norskra stjórnvalda
hafa aukist við útreið-
ina um Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn. Þvert á
móti spáir formaður
VG fyrir um viðbrögð
norskra stjórnvalda af
nokkurri drýldni og
segir:„Ég leyfi mér að
fullyrða, og ég hef
býsna góð sambönd í
norskum stjórnmálum,
að ósk af þessu tagi
yrði ekki hafnað.“
Óheppni formanns
VG í milliríkja-
samskiptum ríður hins vegar ekki
við einteyming. Áður en fréttin um
forspárhæfileika formannsins var
komin á prent hafði forsætisráð-
herra Noregs aftekið upptöku Ís-
lendinga á norskri krónu á frétta-
mannafundi í Noregi. Og það sem
meira er: Þegar spurningin var bor-
in upp við forsætisráðherrann stóð
fjármálaráðherra Noregs – formað-
ur systurflokks VG – við hlið for-
sætisráðherrans og gat varla haldið
niðri í sér hlátrinum yfir þessari frá-
leitu hugmynd. Maður hlýtur því að
spyrja sig hvar hin „býsna góðu
sambönd“ Steingríms J. Sigfússonar
liggja í Noregi.
Auðvitað gæti maður bara hlegið
að þessari fumkenndu seinheppni ef
málflutningur VG væri ekki jafn frá-
leitur og þjóðhættulegur og raun
ber vitni. VG hefur hafnað umræðu
um aðild að Evrópusambandinu
fyrst og fremst með vísan til full-
veldis íslensku þjóðarinnar. Til-
raunir okkar til að verja það fullveldi
með stöðu okkar utan ESB hafa
valdið því að almenningur í landinu
er berskjaldaðri fyrir gönuhlaupum
auðjöfra og kaupahéðna en almenn-
ingur í ríkjum ESB. En í stað þess
að læra af reynslunni leggur VG nú
til fullkomið fullveldisafsal á sviði
peningamála. VG hafnar því að við
deilum fullveldi okkar í peninga-
málum með öðrum þjóðum – og njót-
um jafn mikils atkvæðavægis við
ákvörðun sameiginlegrar peninga-
málastefnu og tugmilljónaþjóðir – og
kjósa frekar að afsala stjórnarfars-
legu fullveldi í hendur annars ríkis.
Sumir hafa gagnrýnt VG und-
anfarna mánuði fyrir að vilja aft-
urhvarf til 1975. Nýjasta gönuhlaup
formannsins sýnir hins vegar að
áfangastaðurinn er árið 1262. Lang-
ar marga einlæga áhugamenn um
þjóðfrelsi og þjóðlega reisn innan
raða VG með Steingrími í þá
sneypuför?
Að benda bara
á eitthvað annað
Árni Páll Árnason
skrifar um stefnu
VG í utanrík-
ismálum
» Í stað þess að læra af
reynslunni leggur
VG nú til fullkomið full-
veldisafsal á sviði pen-
ingamála.
Árni Páll Árnason
Höfundur er alþingismaður Samfylk-
ingarinnar í Suðvesturkjördæmi.
ÍSLENDINGAR
eiga nú við verulegan
efnahagsvanda að etja,
meiri vanda en þessi
kynslóð hefur áður
þekkt. Það er þó vert
að hafa í huga að und-
anfarin ár hefur lífs-
gæðum verið misskipt
hér á landi. Undanfarin
ár hefur nefnilega verið talsverð
kreppa á landsbyggðinni. Vegna
kvótaskerðingar og mikillar fækk-
unar í landbúnaði hafa orðið stór-
felldir fólksflutningar hér á landi.
Fólk hefur flutt frá landsbyggðinni
í þéttbýlið á Suðvesturlandi. Meðal
þeirra sveitafélaga sem hafa orðið
óþyrmilega fyrir landsbyggðar-
kreppu undanfarinna ára er Siglu-
fjörður. Það eru í raun ekki ýkja
mörg ár síðan Siglufjörður var einn
af hornsteinum íslensks atvinnulífs.
Árið 1938 er t.d. talið að um 20%
heildarútflutnings Íslendinga hafi
komið frá Siglufirði og Siglufjörður
var miðstöð síldveiða í Norður-
Atlantshafi í áratugi. Fjöldi útlend-
inga kom til Siglufjarðar, fyrir kom
að samtímis voru í bænum 12.000
manns. Hundruð Íslendinga komu
einnig til Siglufjarðar til að starfa í
síldinni á hverju sumri. Fjölmargir
gátu unnið fyrir námi sínu, fólk er
síðar varð landskunnir Íslendingar
og unnu þjóð sinni ómetanlegt
gagn. Ekki má svo gleyma þeim
ótalmörgu hjónaböndum sem urðu
til hér á Siglufirði.
Eins og áður hefur komið fram,
hefur landsbyggðarkreppa undan-
farinna ára komið hart niður á okk-
ur Siglfirðingum. Árið 1948 voru
íbúar Siglufjarðar rúmlega 3.000 en
í dag eru þeir 1.300.
Nýir tímar
Þrátt fyrir erfiðleika í íslensku
efnahagslífi, sem vonandi eru tíma-
bundnir, erum við Siglfirðingar
bjartsýnir. Miklu skiptir að senn
lýkur gerð jarðganga er tengja
Siglufjörð og Ólafs-
fjörð. Þessi fram-
kvæmd skiptir sköp-
um fyrir Fjallabyggð
og rýfur einangrun
Siglufjarðar nyrst á
Tröllaskaga. Þegar
Héðinsfjarðargöng
verða opnuð má segja
að sameiningu sveit-
arfélaganna Siglu-
fjarðar og Ólafs-
fjarðar í eitt sé í raun
lokið. Það er sannfær-
ing okkar, íbúa Fjalla-
byggðar, að bjartari
tímar séu framundan í okkar sam-
einaða sveitarfélagi og tækifæri til
sóknar liggi víða, ekki síst á sviði
ferðaþjónustu.
Í kjölfar víkinganna
Meðal aðgerða til að efla at-
vinnulífið í Fjallabyggð hefur verið
sett á fót verkefni er nefnist Ice-
land Midnight Sun Race – In the
Wake of the Vikings. Hér er um að
ræða alþjóðlega siglingakeppni sem
efnt verður til á Siglufirði þann 20.
júní 2009. Siglt verður frá Siglu-
firði, hringinn í kringum Grímsey
og aftur til baka til Siglufjarðar.
Nánari upplýsingar um keppnina
er hægt að nálgast á heimasíðunni
www.icesun.is. Höfuðtilgangur
þessa verkefnis er:
að gera Siglufjörð að miðstöð
skútusiglinga í Norður Atlants-
hafi
að bjóða ýmsa þjónustu í því
sambandi, s.s. að erlendir sigl-
ingamenn geti geymt skútur
sínar á Siglufirði yfir vetrartím-
ann
að á næstu árum geti sigl-
ingafólk leigt skútur á Siglufirði
að kynna Fjallabyggð fyrir er-
lendum ferðamönnum sem
spennandi áfangastað
að þróa ýmsa afþreyingu fyrir
ferðafólk í Fjallabyggð
Þess má geta að í Evrópu er
margt siglingafólk vel efnað og hef-
ur kynningu á Íslandi ekki áður
verið beint að þessum markhópi.
Þá gagnast þessi landkynning mun
fleiri sveitarfélögum en Fjalla-
byggð því skúturnar koma víða við
á ferðalagi sínu meðfram ströndum
Íslands. Sú var tíðin að höfnin á
Siglufirði var sem frumskógur yfir
að líta, þar mátti iðulega sjá möst-
ur nokkurra hundraða skipa. Við
væntum þess að innan tíðar meg-
um við sjá svipaða sjón í höfninni á
Siglufirði, siglutré fjölda fallegra
seglskútna víða að.
Undirtitill þessarar keppni er In
the Wake of the Vikings eða Í kjöl-
far víkinganna. Landnámsmenn-
irnir eða víkingarnir voru fram-
sýnir og djarfir og létu ekki
margskonar mótlæti hefta þá
draumsýn að gera Ísland að öflugu
lýðræðisríki. Það er einmitt þessi
andi forfeðranna sem við Íslend-
ingar þurfum nú að efla þegar við
eigum við okkar tímabundnu erf-
iðleika að etja.
Í kjölfar víkinganna
Guðmundur Skarp-
héðinsson skrifar
um átak til eflingar
atvinnulífs í Fjalla-
byggð
» Þrátt fyrir erfiðleika
í íslensku efnahags-
lífi, sem vonandi eru
tímabundnir, erum við
Siglfirðingar bjartsýn-
ir.
Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í Fjallabyggð.
Guðmundur
Skarphéðinsson
/0123456753 89: ; <4836=9>:?5 @A
B0CD EAA FGHG ; IIIJ4D123456753JD=