Morgunblaðið - 05.11.2008, Page 32

Morgunblaðið - 05.11.2008, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008 Sudoku Frumstig 7 4 8 8 1 5 9 4 5 9 2 8 3 1 7 9 9 5 4 6 7 5 2 8 9 3 1 5 9 2 7 2 8 9 1 8 6 7 2 4 3 6 4 8 6 4 7 1 4 1 5 9 8 6 2 4 2 5 3 6 7 9 1 6 4 5 6 5 1 9 7 2 3 5 5 3 4 9 2 7 5 8 6 5 7 6 1 9 4 7 7 2 1 9 1 5 7 2 6 5 1 8 2 4 7 3 9 9 2 8 7 1 3 4 5 6 3 4 7 5 9 6 8 2 1 4 7 3 9 5 8 6 1 2 1 9 6 4 3 2 5 8 7 2 8 5 6 7 1 9 4 3 8 1 4 3 6 9 2 7 5 7 6 2 1 8 5 3 9 4 5 3 9 2 4 7 1 6 8 6 3 1 9 5 2 8 7 4 9 4 8 1 7 6 5 2 3 5 7 2 4 8 3 9 1 6 2 1 6 7 9 8 4 3 5 7 5 9 3 2 4 6 8 1 4 8 3 6 1 5 2 9 7 3 2 5 8 4 1 7 6 9 1 9 4 2 6 7 3 5 8 8 6 7 5 3 9 1 4 2 5 1 9 2 8 3 7 4 6 3 4 8 1 7 6 5 9 2 7 2 6 4 9 5 8 1 3 2 5 3 9 6 8 4 7 1 1 6 7 5 4 2 9 3 8 8 9 4 7 3 1 6 2 5 6 7 1 8 2 9 3 5 4 9 3 2 6 5 4 1 8 7 4 8 5 3 1 7 2 6 9 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þann- ig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. dagbók Í dag er miðvikudagur 5. nóvember, 310. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Kostið kapps um að kom- ast inn um þröngu dyrnar, því margir, segi ég yður, munu reyna að komast inn og ekki geta. (Lk. 13, 24.) Vargur nefnist ný bók eftir JónHall Stefánsson. Jón Hallur sýnir í þessari glæpasögu að hann er góður penni og honum tekst að halda spennu til enda sögunnar. Sagan er sögð frá sjónarhorni margra per- sóna og tekst höfundinum þannig að afvegaleiða lesandann og jafn vel fela fyrir honum raunverulegt inn- ræti persónanna. Víkverji les ekki mikið af reyfurum, en hafði gaman af því að bruna í gegnum þessa bók. x x x Barack Obama og John McCainvirðast ekki eiga margt sameig- inlegt, en eitt má þó nefna. Báðir eru uppteknir af feðrum sínum. Draumar frá föður mínum (Dreams from My Father) heitir sjálfs- ævisaga Obamas. Trú feðra minna (Faith of My Fathers) heitir sjálfs- ævisaga McCains. Uppruni þeirra er hins vegar gjörólíkur. x x x Mikið hefur verið fjallað um þaðhvað kosningabaráttan hafi verið neikvæð af beggja hálfu. Sér- staklega hefur McCain verið legið á hálsi fyrir að hamra á frekar yf- irborðslegum kynnum Obamas af William Charles Ayers, sem dæmd- ur var fyrir hryðjuverk á sjöunda áratugnum. McCain kveðst líta svo á að þessi kynni gefi raunverulega til- efni til að efast um dómgreind Oba- mas. Hann hefur hins vegar ekki lát- ið undan þrýstingi samherja sinna um að ráðast á Obama vegna þess að hann hafi verið í söfnuði prestsins Jeremiah Wright, sem í predikunum hefur ráðist harkalega að Bandaríkj- unum. McCain hefur sagt að hann hafi ákveðið að nota ekki kynþátt Obamas í kosningabaráttunni og hefur staðið við það. Stuðningsmenn Obamas eru McCain reiðir vegna Ayers. McCain hefur hins vegar sýnt að í hans huga eru til takmörk fyrir því hvaða meðul megi nota. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 mjög grannur, 8 málmþráðum, 9 tekur, 10 elska, 11 óhreinindi, 13 peningar, 15 máttar, 18 viða að sér, 21 skarð, 22 minnka, 23 ákveð, 24 ónauðsynlegt. Lóðrétt | 2 eiga sér stað, 3 auðlindin, 4 ops, 5 stór, 6 dæld, 7 ósoðinn, 12 gyðja, 14 dveljast, 15 lofa, 16 öskra, 17 sáldur, 18 fiskur, 19 þungrar byrði, 20 tóma. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 aðild, 4 sakka, 7 fæddi, 8 rófan, 9 grá, 11 roða, 13 ásum, 14 Krist, 15 hema, 17 tjón, 20 und, 22 mótun, 23 urðar, 24 arinn, 25 dýrin. Lóðrétt: 1 aðför, 2 ildið, 3 deig, 4 skrá, 5 kufls, 6 afnám, 10 reisn, 12 aka, 13 átt, 15 hemja, 16 metti, 18 jaðar, 19 nýrun, 20 unun, 21 dund. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 b5 4. Rf3 g6 5. cxb5 a6 6. Rc3 Bg7 7. e4 d6 8. a4 O-O 9. h3 axb5 10. Bxb5 Ba6 11. Bg5 Rbd7 12. O-O Bxb5 13. axb5 Rb6 14. Db3 Dc7 15. Ha6 Hab8 16. He1 h6 17. Be3 Rfd7 18. Hea1 Hb7 19. H1a3 Hfb8 20. Da2 Kh7 21. Ha7 Rc8 22. Hxb7 Dxb7 23. Ha5 Rdb6 24. Bf4 Dd7 25. Bg3 Hb7 26. Db3 Ra7 27. e5 f6 28. e6 De8 29. Da2 Rac8 30. Rd2 g5 31. Rc4 f5 32. Rxb6 Rxb6 33. f4 Dh8 34. Ha7 Db8 35. Hxb7 Dxb7 36. Da6 Dc7 37. Kh1 Bd4 38. Ra4 c4 39. Rc3 Dc5 40. Db7 Bxc3 41. bxc3 Rxd5 Staðan kom upp í Evrópukeppni tafl- félaga sem lauk fyrir skömmu í Halki- diki í Grikklandi. Þýski alþjóðlegi meist- arinn Thomas Henrich (2.485) hafði hvítt gegn íslenska kollega sínum Jóni Viktori Gunnarssyni (2.430) sem tefldi fyrir Taflfélag Bolungarvíkur. 42. Bh2! og svartur gafst upp enda í leikþröng. Hvítur á leik Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sannfæringarkraftur. Norður ♠KG5 ♥K54 ♦ÁKG107 ♣84 Vestur Austur ♠Á72 ♠64 ♥DG1032 ♥Á76 ♦-- ♦8643 ♣97632 ♣DG105 Suður ♠D10983 ♥98 ♦D952 ♣ÁK Suður spilar 4♠. Á opnu borði er auðvelt að finna fjóra slagi fyrir vörnina, en í reynd er erfitt að taka stunguna í tígli. Vestur kemur út með ♥D og fær að eiga slag- inn. Hvað svo? Verkefni vesturs er að sannfæra makker um að nota innkomuna á ♥Á til að spila tígli. Ein hugmynd er að neyða austur til að taka strax á ♥Á með því að spila litlu hjarta í öðrum slag – og þá þristinum frekar en tvistinum, til að kalla í tígli. Tæknilega er þetta ágæt vörn, en í reynd er ólíklegt að einn lítill þristur dugi til að sannfæra austur, enda makker mannlegur og vís til að falla fyrir ♣D. Vestur verður að gera betur og í því efni kemur tvennt til greina. Hann getur tekið á ♠Á áður en hann spilar ♥3, eða spilað hálaufi fyrst og svo ♥3 þegar hann kemst inn á trompásinn. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er létt yfir þér í dag og þú átt því auðvelt með að laða að þér fólk. Gættu þess að gefa ekki svo mikið frá þér að þú eigir ekkert aflögu handa sjálfum þér. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það er einkaklúbbur eða klíka fólks sem þig langar að kynnast. Farðu þér hægt meðan þetta gengur yfir og sann- leikurinn kemur í ljós. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú ættir að gefa meiri gaum að smáatriðunum. Minni háttar snurður á næstu vikum hafa margvísleg áhrif og leiða jafnvel til launahækkunar. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert einn þeirra sem hafa völdin um þessar mundir. Forðastu þó að taka endanlegar ákvarðanir eða skuldbinda þig til nokkurs. Bjartsýnin bætir allt. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Himintunglin gera aðstæður fyrir rannsóknir af hvers kyns tagi hagstæðar. Notaðu hvert tækifæri til að leyfa sköp- unargáfunni að blómstra. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Ef þú hikar við að láta fé af hendi er best að þú látir það ógert. Láttu því áhyggjurnar ekki hrannast upp. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Kannski er fátt spennandi sem bíður þín, en þetta er samt frábær dagur. Var- astu að festast í gömlum gildum sem eiga ekki lengur við og eru bara til trafala. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Gættu þess að haga svo orð- um þínum að þau hvorki særi né móðgi aðra. Hugsaðu málið vel og vandlega. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það getur reynt á þolinmæðina að þurfa að endurtaka sjálfan sig oft svo allir skilji. Góðu fréttirnar eru að þú veist það sem þú veist, svo nýttu þér það í dag. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þetta er fínn dagur þar sem heimurinn reynir að koma til móts við kröfur þínar. Hvað er langt síðan að þú lést í ljósi tilfinningar þínar gagnvart fjöl- skyldu þinni? (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Í dag er upplagt að einbeita sér að starfsferlinum. En það er nú einu sinni svo að suma hluti er okkur ekki ætlað að skilja þótt við þörfnumst þeirra. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú þarft að beita hugkvæmni þinni til þess að hlutirnir fari að ganga á nýjan leik. Eignir þínar, andlegar eða verald- legar, gætu borið ríkulegan ávöxt. Stjörnuspá Holiday MathisHrefna Sóley Kjartansdóttir, Laugarnesvegi 102, Reykjavík, fædd í Hvassa- hrauni í Gull- bringu- og Kjós- arsýslu, er sextug í dag, 5. nóvember. Hún verður að heiman. 60 ára FERTUGSAFMÆLISDEGI sínum hyggst Borg- hildur Guðmundsdóttir eyða að hluta á skólabekk, en hún er nú á 2. ári í fagurlistadeild Myndlista- skólans á Akureyri, eftir að hafa starfað um árabil sem snyrtifræðingur og förðunarmeistari. „Ætli ég komi ekki með köku í skólann,“ segir hún. „Síðan mun eftirmiðdagurinn fara í dekur og loks ætla ég að fara út að borða með manni og börnum um kvöldið, enda er markmiðið bara að hafa það huggulegt.“ Borghildur bætir við að hún sé almennt lítið fyrir að halda upp á afmæli sitt. „Fjölskylda mín er líka að stærstum hluta búsett fyrir sunnan og því læt ég veisluhöld bíða betri tíma.“ Besta vinkona og jafnaldra Borghildar, Þórunn Ólafsdóttir, á af- mæli 8. nóvember. „Það er mér alltaf ofarlega í huga að við vinkon- urnar eigum afmæli með þriggja daga millibili. Þegar við urðum tví- tugar héldum við líka í sameiningu upp á afmælið og úr varð heilmikil veisla,“ segir hún og minnist þess að skemmtistaðurinn Broadway hafi þá verið upp á sitt besta. „Annars heldur Þórunn upp á sitt af- mæli á laugardag og það er aldrei að vita nema maður komi henni á óvart með því að gera sér ferð í bæinn.“ annaei@mbl.is Borghildur Guðmundsdóttir snyrtifræðingur 40 ára Sameiginlegt tvítugsafmæli Nýirborgarar Sauðárkrókur Róbert Gabríel fæddist 30. júlí kl. 2.51. Hann vó 3.580 g og var 51 sm langur. For- eldrar hans eru Oddný Björnsdóttir og Róbert James Abbey. Akranes Einar fæddist 31. mars kl. 0.10. Hann vó 3.505 g og var 52 sm langur. Foreldrar hans eru Anna Einarsdóttir og Árni Jóhannes Bjarnason. Reykjavík Róbert Daði fæddist 23. janúar kl. 22.50. Hann vó 1.012 g og var 38 sm langur. For- eldrar hans eru Jón Karl Björnsson og Linda Björk Ragnarsdóttir. 5. nóvember 1848 Þjóðólfur, stjórnmála- og fréttablað, hóf göngu sína í Reykjavík. Það kom fyrst út hálfsmánaðarlega en síðan vikulega til ársloka 1911. Þjóðólfur er talinn fyrsta ís- lenska fréttablaðið. 5. nóvember 1952 Jussi Björling kom til landsins og hélt tvær söngskemmtanir. Þjóðviljinn sagði að hann væri „einn frægasti söngvari heimsins“ og að áheyrendur hefðu orðið snortnir af töfrum „hins sviðsvana snillings“. 5. nóvember 1992 Alþingi felldi tillögu um að efnt yrði til þjóðaratkvæða- greiðslu um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu. Daginn áður höfðu forseta þingsins verið afhentar undir- skriftir 34.378 kjósenda sem kröfðust þjóðaratkvæðis. 5. nóvember 1993 Sagt var að geimverur myndu lenda við Snæfellsjökul kl. 21.07 þennan dag, en þær létu ekki sjá sig. Fjöldi fólks beið við jökulinn, sumir komnir langt að. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist …

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.