Morgunblaðið - 05.11.2008, Síða 38

Morgunblaðið - 05.11.2008, Síða 38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008 SOPHIE Kinsella hefur sérhæft sig í samn- ingu gaman- og ástarsagna sem njóta vin- sælda víða um heim, einnig hér á landi. Bæk- ur hennar hafa yfirleitt fengið ágæta dóma þeirra gagnrýnenda sem átta sig á gildi skemmti- bókmennta. Þekktust er Kinsella fyrir bókaflokk sinn um kaupalkann óborganlega Rebeccu Bloomwood. Hér er Re- becca víðs fjarri og Kin- sella á nýjum slóðum í bók sem hefur setið ofarlega á metsölulista Eymundsson undanfarnar vikur. Í Remember Me? vaknar Lexi til meðvit- undar á sjúkrahúsi eftir bílslys. Hún telur sig vera tuttugu og fimm ára og ógifta og blanka en henni er sagt að hún sé tuttugu og átta ára gömul og gift myndarlegum millj- arðamæringi. Einmitt draumalífið sem hana hafði alltaf dreymt um. En hið fullkomna líf reynist ekki svo fullkomið. Lexi þarf að tak- ast á við líf sem hún var búin að gleyma og kynnast hinum forríka en gallaða eiginmanni sínum. Hún lendir í sérstæðum aðstæðum þar sem vinir hennar í fyrra lífi snúast gegn henni og hafa sannarlega ástæðu til. Eins og við er að búast kynnist hún karlmanni sem vekur forvitni hennar og ástin virðist á næsta leiti. Frásögnin einkennist af léttleika og áreynsluleysi sem eru helstu kostir Kinsellu sem höfundar. Hún kemur ekki á óvart en heldur sig á öruggum slóðum notalegrar gamansemi. Bókin er því ágætis skemmti- lestur fyrir þá sem leita í góða afþreyingu og vilja ástir, kímni og hæfilega blöndu af mis- skilningi og spennu. Þetta er bók sem vekur ljúfar tilfinningar og kemur lesandanum í gott skap. Og svo sannarlega veitir ekki af slíkri upplyftingu nú um stundir. Nýtt líf Remember Me? Skáldsaga eftir Sophie Kinsella. Bantam Press gefur út. 346 bls. Kilja. Kolbrún Bergþórsdóttir ERLENDAR BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. Extreme Measures - Vince Flynn 2. The Brass Verdict - Michael Connelly 3. The Lucky One - Nicholas Sparks 4. Bones - Jonathan Kellerman 5. The Story of Edgar Sawtelle - David Wroblewski 6. Rough Weather - Robert B. Par- ker 7. A Lion Among Men - Gregory Maguire 8. Testimony - Anita Shreve 9. A Most Wanted Man - John le Carré 10. Dark Summer - Iris Johansen New York Times 1. The White Tiger - Aravind Adiga 2. The Gift - Cecelia Ahern 3. The TV President - Elise Val- morbida 4. The Book Thief - Markus Zusak 5. The Almost Moon - Alice Sebold 6. Azincourt - Bernard Cornwell 7. Revelation - C.J. Sansom 8. Boy in the Striped Pyjamas - John Boyne 9. World without End - Ken Follett 10. A Thousand Splendid Suns - Khaled Hosseini Waterstone’s 1. World Without End - Ken Fol- lett 2. Remember Me - Sophie Kinsella 3. Compulsion - Jonathan Kell- erman 4. Thread of Fear - Laura Griffin 5. Timebomb - Gerald Seymour 6. Damnation Falls - Edward Wright 7. Quickie - James Patterson 8. Exit Ghost - Philip Roth 9. Amazing Grace - Danielle Steel 10. Girl With the Dragon Tattoo - Stieg Larsson Eymundsson Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is AÐ MATI flestra sem kunna að meta sushi á annað borð, og þeir eru kannski ekki margir þó þeim fari fjölgandi, er ferskleikinn sjálfsagt aðalatriðið. Það er þó svo að þessi þjóðarréttur Japana, sem borist hefur um heim allan, á rætur sínar í aðferðum manna fyrr á öldum til að geyma fisk, meðal annars með því að láta hann gerjast og rotna á tiltekinn hátt. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýlegri bók, The Story of Sushi. The Story of Sushi segir frá ungmennum sem ganga í sushi- skóla í Kaliforníu, en meðfram frásögninni af upplifun þriggja nemendanna fræðist lesandinn um uppruna matarhefðarinnar, bragðefnafræði, menningarsögu og hefðir sem tengjast sushi- matreiðslu. Eitt af því sem fær menn eflaust til að reka upp stór augu er að þessi erki-japanska hefð er upp runnin á bökkum Me- kong-fljóts, á þeim slóðum þar sem nú er Kína, Laos og Tæland. Amerísk áhrif Upphaflega var það svo að fisk- ur var látinn rotna óslægður í salti svo úr varð fiskimauk, sem enn er notað í matreiðslu þar austur frá, en það þróaðist svo í að slægja fiskinn og pakka honum svo í krús með soðnum hrís- grjónum og láta standa þannig mánuðum saman, jafnvel upp undir ár. Þessi hefð barst síðan til Japans í gegnum Kína og tók þar þeim stakkaskiptum að á sautjándu öld voru menn farnir að borða haya-zushi, skyndi- sushi. Sushi er enn í þróun og hefur þróast ört frá því menn tóku að setja upp slík veitingahús víða um heim. Bandarísk sushi-hefð er til að mynda nokkuð frábrugðin jap- anskri (matur kryddaðri og sæt- ari) og svo er komið að jap- önskum túristum finnst spennandi að fá sér bandarískt sushi. Ekki er vert að rekja hér sögu sushi, enda þróunin löng og býsna flókin allt frá því menn smurðu gerjuðu fiskmauki á brauð til þess að fiskur er étinn svo ferskur að hann fer nánast spriklandi niður í maga. Í bókinni er líka að finna ýmsan fróðleik fyrir sushi-áhugamenn. Nokkrir punktar fyrir næstu heimsókn á sushi-bar: Miso-súpu á alltaf að borða síðast í máltíð, í 99% af wasabi-mauki á veitinga- húsum er ekkert wasabi, aldrei dýfa hrísgrjónunum í sojasósuna, í Japan notar fólk yfirleitt ekki prjóna til að borða sushi (en sas- himi er aftur á móti borðað með prjónum) og svo má lengi telja. The Story of Sushi – An Unli- kely Saga of Raw Fish and Rice eftir Trevor Corson. Herper Pe- rennial gefur út. Forvitnilegar bækur: Rotnandi fiskur verður ferskur Spriklandi skyndibiti Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Sushi Ura-maki-rúllur; bandarísk uppfinning (þarinn, nori, innan við hrísgrjónin). Margt forvitnilegt kemur fram í The Story of Sushi. Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR! 650 kr. fyrir fullorðna - 550 kr. fyrir börn SÝND Í SMÁRABÍÓI ENGIN MISKUN. BARA SÁRSAUKI! FRÁ GÆJANUM SEM FÆRÐI OKKUR „SUPER SIZE ME“ KEMUR NÆSTA STÓRKOSTLEGA ÆVINTÝRI „Ótrúlega skemmtileg!“ - Mark Bell, Film Threat 11. MARS 2008 VAR ÍBÚÐARBLOKK Í LOS ANGELES INNSIGLUÐ AF YFIRVÖLDUM. ÍBÚARNIR HAFA EKKI SÉST SÍÐAN! ENGAR UPPLÝSINGAR EÐA VITNI. FYRR EN NÚNA! STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA! ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA! SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM Sími 551 9000Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum My Best Friend´s girl kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 14 ára Max Payne kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára House Bunny kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ Burn after reading kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR LEGALLY BLONDE 650k r. HÚN MUN UPPLIFA ÞAÐ SEM ENGIN PLAYBOY KANÍNA HEFUR UPPLIFAÐ ÁÐUR ... ... HÁSKÓLA! 650k r. GÁFUR ERU OFMETNAR - S.V., MBL - Þ.Þ., DV MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR! 650k r. 650k r. SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI MYND SEM ALLAR KONUR VERÐA AÐ SJÁ Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga Where in the world is ... kl. 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára Hér er draumurinn kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára The Women kl. 5:30 - 8 LEYFÐ Reykjavík Rotterdam kl. 5:40 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára Burn after reading kl. 10:15 B.i. 16 ára Quarantine kl. 8 - 10 B.i.12 ára My Best Friend´s Girl kl. 6 - 8 - 10 B.i.14 ára Skjaldbakan og Hérinn ísl. tal kl. 6 650 kr. LEYFÐ “HROTTALEG MYND EN SPENNANDI, ÓGNVEKJANDI OG ÓVÆNT” - S.V., MBL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.