Morgunblaðið - 05.11.2008, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008
JB: ,,Vodka Martini“. Þjónn:,,Hristan, ekki hrærðan?“.JB: ,,Sýnist þér það skipta
mig máli?“. Þetta samtal er feng-
ið úr síðustu James Bond-
myndinni, Casino Royale, og er
táknrænt fyrir þau hamskipti sem
urðu á sögupersónunni og vöru-
merkinu James Bond í hittifyrra,
eftir áralanga stöðnun. Nýjasta
Bond-myndin verður brátt frum-
sýnd hér á landi og ber hinn ill-
þýðanlega titil Quantum of Sol-
ace. Daniel Craig, hinn nýi Bond,
snýr aftur, harðari en stál. Nýi
Bond er nánast í engu líkur þeim
Bond sem túlkaður var í fyrstu 20
myndunum. Gamla Bond var nán-
ast hent í ruslið og nýr og ferskur
settur í smókinginn.
Nýi Bond er helmassaður og-köttaður, svo gripið sé til
vaxtarræktarmáls, en lítur jafn-
framt út fyrir að geta sturtað í
sig hálfpotti af Guinness á fimm
sekúndum og ort ljóð til sinnar
heittelskuðu að því loknu. Craig
er laus við tilgerð, talar ekki eins
og enskur lávarður eða áströlsk
karlfyrirsæta að reyna að tala
eins og enskur lávarður. Hann er
heldur ekki með króníska hægða-
tregðu eins og Timothy Dalton.
Connery var auðvitað eitur-svalur
Bond og erfitt að ná sömu hæðum
og hann. Af öllum þeim sem túlk-
uðu Bond eftir Connery er Craig
sá eini sem nær álíka svala.
Það var búið að rústa Bond
gjörsamlega áður en Craig tók
við kyndlinum og ég hélt að hann
ætti sér ekki viðreisnar von. Ekki
svo að skilja að það sé Brosnan að
kenna heldur skelfilegum hand-
ritum og oft á tíðum slöku leik-
aravali. Myndin á undan Casino
Royale, Die Another Day, er svo
léleg að orð fá því vart lýst.
Nú hefur Bond svarað kallitímans, er orðinn metrósex-
úal og meiri tilfinningavera (að
vísu varð Lazenby býsna meyr en
flestir vilja nú gleyma hans þætti
í Bond-sögunni). Bond hinn nýi er
harðari en nokkru sinni en þó
hlýr inn við beinið. Hann er al-
vöru metrómaður, það er dálítill
Þorgrímur Þráinsson í honum.
Hann leyfir m.a.s. konunni að
stjórna því í hvaða smóking hann
fer í spilavítið og pantar sér
hanastél að eigin uppskrift, sæm-
andi vinkonunum í Sex and the
City.
Nýi Bond hugsar líka vel umlíkamann (eins og Þor-
grímur Þráinsson) og hefur Craig
vissulega fengið mikla athygli út
á helmassaðan skrokkinn. Hinn
nýi Bond rís úr sæ eins og grísk-
ur guð í franskri sundskýlu. Hing-
að til hafa Bond-gellur haft það
hlutverk að ganga á land í efnis-
litlum bikiníum en á tímum kynja-
jafnréttis þykir ekki annað hægt
en leyfa konunum í bíósalnum
líka að njóta. Í Casino Royale er
boðið upp á karlútgáfuna af atrið-
inu úr fyrstu Bond-myndinni, Dr.
No, þegar Honey Ryder rís upp
úr sænum í allri sinni dýrð. Annar
eins löðrandi kynþokki hafði vart
sést áður á hvíta tjaldinu og ég
hef heyrt að kvenkyns aðdáend-
um Bond hafi fjölgað þó nokkuð
eftir að Craig lék þetta eftir.
Hinum nýja Bond er skítsamahvort menn hrista eða
hræra vodka martini-blönduna,
enda skiptir það í raun ekki
nokkru máli. Gamli Bond er dauð-
ur, ef Quantum of Solace er í
sama gír og Casino Royale.
Kannski munu næstu myndir þok-
ast meira í átt að hnyttna flag-
aranum, hver veit, en ég sé ekki í
fljótu bragði að Roger Moore-
týpan snúi aftur í túlkun Craig.
Moore segir enda sjálfur svo frá
að munurinn á honum og Craig sé
sá, að hann hafi leikið elskhugann
Bond en Craig morðingjann Bond.
Enda var Moore orðinn of stirður
til að hlaupa undir lokin, í A
View to a Kill. Honum fór betur
að liggja uppi í rúmi með kampa-
vínsglas.
Elskhugi eða morðingi, gildir
einu svo lengi sem hasarinn er í
lagi. Og sýnishornin úr Quantum
of Solace lofa svo sannarlega
góðu. helgisnaer@mbl.is
Hvorki hristur né hrærður
AF LISTUM
Helgi Snær Sigurðsson
» Í Casino Royale erboðið upp á karlút-
gáfuna af atriðinu úr
fyrstu Bond-myndinni,
Dr. No, þegar Honey
Ryder rís upp úr sænum
í allri sinni dýrð.
Mjúkur og harður Bond (Daniel Craig) hughreystir ástina sína Vesper
Lynde (Eva Green) í síðustu Bond-mynd, Casino Royale.
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 6 - 8 LEYFÐ
NIGHTS IN RODANTHE kl. 6 LEYFÐ
EAGLE EYE kl. 8 B.i. 16 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
HÖRKUSPENNANDI MYND
FRÁ STEVEN SPIELBERG MEÐ
SHIA LABEOUF Í AÐALHLUTVERKI.
ÞÚ HLÝÐIR, EF ÞÚ VILT LIFA!
RICHARD GERE ÁSAMT
DIANE LANE FARA Á KOSTUM
Í ÞESSARI FALLEGU ÁSTARSÖGU.
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA
-L.I.B.TOPP5.IS
-T.S.K - 24 STUNDIR
-ÁSGEIR J. - DV
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SÝND AFTUR Í TAKMARKAÐAN TÍMA
VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 8 B.i. 16 ára
MAX PAYNE kl. 8 B.i. 16 ára
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 8 LEYFÐ
SEX DRIVE kl. 8 B.i. 12 ára
SÝND Í KRINGLUNNIÍSLENSKT TALSÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í KRINGLUNNI
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR!
SÝND Í KEFLAVÍK
BARA SÁRSAUKI!
ENGIN MISKUNN.
Nánari upplýsingar og skráning: sími 525 4444 endurmenntun.is
Schubert og Schumann
- meistarar ljóðasöngsins
með Árna Heimi Ingólfssyni, tónlistarfræðingi
Gestasöngvarar: Eyjólfur Eyjólfsson,
Hallveig Rúnarsdóttir og Bragi Bergþórsson
Fjögurra kvölda námskeið sem hefst 12. nóvember
Haldið í Salnum í Kópavogi
Bóleró og mambó og allt þar á milli
- kúbönsk tónlist á tuttugustu öld
með Tómasi R. Einarssyni, tónlistarmanni
Tveggja kvölda námskeið sem hefst 17. nóvember
Haldið á kaffihúsinu Amokka í Kópavogi