Fréttablaðið - 06.05.2009, Side 1

Fréttablaðið - 06.05.2009, Side 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI MIÐVIKUDAGUR 6. maí 2009 — 107. tölublað — 9. árgangur VEÐRIÐ Í DAG BJARNI E. GUÐLEIFSSON Hefur gengið á 23 hæstu sýslufjöllin • ferðir Í MIÐJU BLAÐSINS Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Öll fjöll hafa eitthvað til síns ágætis. Áður var ég einskorðaður við Tröllaskagann en þetta verk-efni jók mjög á víðsýni mína,“ segir prófessorinn Bjarni Guð-leifsson um gönguferðir á sýslu-fjöllin 23. Útsýnið er honum ógleymanlegt frá ýmsum stöðum. „Fallegustu minningarnar eru frá Sauðhamarstindi á Lónsöræfum í Austur-Skaftafellssýslu og Snæ-kolli í Kerlingarfjöllum í Árnes-sýslu. Litbrigðin eruko tl Strandasýsla, Dalasýsla og Mýra-sýsla. Garparnir eru þrír sem lögðu öll fjöllin 23 að baki. Auk Bjarna eru það Rögnvaldur Gíslason, bóndi í Strandasýslu, og Sigurkarl Stefánsson líffræðingur. Fleiri slógust í för, misjafnlega oft. „Við gengum líka á nokkra jökla og í misgripum á fjöll sem ekki reynd-ust þau hæstu í sýslunum þegar tilkom En ið ungarnir flugu rétt við hausana á okkur. Ég segi síðan að fólk eigi að ganga með hjálma á Herðubreið. Í Jökulgilstindum í Suður-Múlasýslu fórum við líka yfir mjög torfarinn jökul en að öðru leyti gekk allt vel,“ svarar Bjarni.Listi yfir fjöllin og lýsing á gönguferðunum í máli og myndumer í bókinni Á fj ll Horft af hæstu tindumMargir vita hvernig tilfinning það er að komast upp á tind. En að sigra hæstu fjöll hverrar sýslu á landinu þekkja aðeins þrír menn. Einn þeirra er Bjarni E. Guðleifsson, höfundur nýju bókarinnar Á fjallatindum. Bjarni á hátindi Snæfells, hæsta fjalls Suður-Múlasýslu. Það var upphafið að ævintýrinu. MYND/BRYNJÓLFUR BJARNASON LEIÐSÖGUNÁM á háskólastigi er námsbraut hjá Endur- menntun HÍ. Námið er sextíu eininga nám á grunnstigi háskóla og er kennt á tveimur misserum. Námið hentar þeim sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi með erlenda ferða- menn. www.endurmenntun.is Frítt er á alla viðburði hátíðarinnar og eru allir velkomnir listanlandamaera.blog.is Útlitið ekki aðalmálið Megrunarlausi dagurinn er haldinn hátíðlegur um allan heim í dag. TÍMAMÓT 16 Ásdís opin fyrir öllu Ísdrottningin hræð- ist ekki flutninga frá Búlgaríu. FÓLK 30 JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Fáklæddur forsætis- ráðherra á tískumynd Í gufubaði með flugfreyjum FÓLK 30 Yale eltir Sharp Söngvarinn á í útistöðum við gamla skólann sinn. FÓLK 22 SVERRIR ÞÓR SVERRISSON Skjólstæðingur Strák- anna í vondum málum Tekinn fyrir kókaínsmygl í Brasilíu FÓLK 30 Í kvennaboltann Benedikt Guð- mundsson sem gerði karlalið KR að Íslandsmeisturum í körfubolta hefur tekið við kvennaliði félagsins. ÍÞRÓTTIR 24 BJART SUNNAN TIL Í dag verða norðaustan 3-8 m/s en stífari í kvöld. Skúrir eða slydduél norðan og austan til en bjart lengst af í dag á Suður- og Vesturlandi en þykknar upp seint í dag. Hiti 1-10 stig. VEÐUR 4 3 3 4 87 STJÓRNMÁL Stjórnarflokkarnir eru að semja sín á milli um að utan- ríkisráðherra leggi fram þings- ályktunartillögu um aðildarumsókn í Evrópusambandið, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Það er þó háð því að samkomulag náist um fyrirvara við tillöguna sem Vinstri græn geta sætt sig við. Verið er að semja um fyrirvar- ana en náist ekki samkomulag þar um þarf að leita annarra leiða. Hugmyndin að þessu fyrir- komulagi er meðal annars feng- in frá Noregi en þar sótti klof- in stjórn Verkamannaflokksins um aðild í Evrópusambandið með fyrirvörum. Vinnuhóparnir fjórir, sem hafa lagt grunninn að stjórnarsáttmál- anum, áttu að skila af sér tillög- um í gærkvöldi og fyrir hádegi í dag, samkvæmt heimildum blaðs- ins. Ólíklegt er að allar efnahags- aðgerðir verði tilgreindar í sáttmál- anum en gert er ráð fyrir að ráðist verði í róttækar efnahagsaðgerðir í maí og júní. Steingrímur J. Sigfússon sagði á blaðamannafundi í gær að vinnu við fyrirhugaðan niðurskurð yrði ekki lokið fyrr en seinna í mánuðin- um eða jafnvel í þeim næsta. Ólíklegt þykir að Kolbrún Hall- dórsdóttir verði ráðherra í nýrri ríkisstjórn. Nafn Svandísar Svav- arsdóttur hefur verið nefnt í henn- ar stað og þá er líklegt að Árni Páll Árnason verði ráðherra. - kóp, ss Stjórnarmyndunarviðræður Samfylkingarinnar og Vinstri grænna: Aðildarumsókn með fyrirvara EFNAHAGSMÁL Stýrivexti á að lækka niður í 9,5 prósent á næstu fjórum vikum, að mati skugga- bankastjórnar Markaðarins. Seðlabankinn ákvarðar vexti á morgun. „Hver dagur í hávaxtaum- hverfi er fyrirtækjum og heim- ilum í landinu dýrkeyptur og biðin skilar engu,“ segir Ingólfur Bender, forstöðumaður Grein- ingar Íslandsbanka og skugga- bankastjórnarmaður. Þá segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, sem einnig á sæti í stjórninni, aðferðafræðina sem hér hafi verið fylgt til þessa ekki viðeig- andi lengur, ef ekki beinlínis hættulega. „Við köllum á tímamóta- ákvörðun, stefnubreytingu og nýtt vinnulag peningastefnu- nefndarinnar,“ segir Þórður. Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, segir löngu tímabært að ákveða myndarlega lækkun stýrivaxta. - óká / sjá Markaðinn Kalla á veglega lækkun vaxta: Hverfa þarf af hættulegri leið EFNAHAGSMÁL „Það er ekkert við okkur að tala ef ekki verð- ur gengið frá þessu,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðu- sambandsins. Sambandið gerir þá kröfu til stjórnvalda að endur- skipulagning á skuldum heimil- anna verði sett í forgang. Forsvarsmenn stjórnarflokk- anna funduðu með fulltrúum launþegasamtaka, atvinnurek- enda, bænda og sveitarfélaga í gær. Þar kynnti ASÍ áherslur sínar í níu liðum um bráðaaðgerð- ir og framtíðarlausnir. ASÍ vill að til ráðgjafastofu um fjármál heimilanna verði ráðnir fimmtíu fjármálaráðgjafar til að aðstoða fólk í greiðsluvanda. Eins að það verði tryggt að nauð- synlegar reglur um framkvæmd laga um greiðsluaðlögun skulda verði gefnar út strax. Einnig að stofnaður verði bjargráðasjóður heimilanna. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra segir fundina í gær hafa verið afar gagnlega. „Það er mikill vilji alls staðar í þjóðfélag- inu að fara þessa stöðugleikaleið. Þar eru kjaramálin undir og líka ríkisfjármálin og fleira.“ Um afdráttarlausa afstöðu ASÍ segir Steingrímur að farið hafi verið yfir það á fundinum hvað næstu vikur væru mikil- vægar. „Við vonumst til að sjá til lands í mörgum erfiðum málum á næstunni. Þar má nefna endur- skipulagningu bankakerfisins og lokahnykkinn í flóknum samn- ingaviðræðum. Staðan ætti að fara skýrast sem er mikilvægt því kjaramálin bíða svo í sumar og haust.“ Þór Sigfússon, formaður Sam- taka atvinnulífsins, segir atvinnu- lífið hrópa eftir aðgerðum og því hafi verið komið til skila. „Þar standa vaxtamálin upp úr og smávægileg lækkun núna í viku- lokin yrði gríðarlegt áfall fyrir okkur. Það væri vitnisburður um að menn gera sér enga grein fyrir því hversu skaðlegt það er fyrir samfélagið ef atvinnulífið er skilið áfram eftir í fimbulfrosti. Slíkt myndi valda óbætanlegum skaða.“ Þór segir að haftamál- in hafi verið rædd á fundinum og hvaða möguleikar séu til að aflétta þeim. „Eins lögðum við áherslu á að það yrði ekki farið í boðaðar aðgerðir í sjávarútvegs- málunum og við lýstum áhyggjum okkar yfir hinu svokallaða eigna- umsýslufélagi ríkisins.“ - shá / sjá síðu 6 ASÍ hótar að fara í hart Stjórnvöld verða að bregðast við skuldavanda heimilanna ef sátt um stöðugleika á að nást, segir forseti Alþýðusambandsins. Samtök atvinnulífsins segja að komi ekki til rífleg vaxtalækkun í vikulokin valdi það óbætanlegum skaða. Fjármálaráðherra segir erfið mál leysast á næstunni og staðan verði þá skýrari. HAUKAR VÆNGJUM ÞÖNDUM Haukar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik annað árið í röð eftir sigur á Valsmönn- um í fjórða leik liðanna um titilinn í Vodafone-höllinni í gærkvöldi. Sigur Hauka var öruggur, þeir skoruðu 33 mörk gegn 25 mörk- um Valsmanna. Fögnuðurinn var ósvikinn eins og sést á Arnari Péturssyni fyrirliða Hauka sem tók við bikarnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.