Fréttablaðið - 06.05.2009, Síða 4

Fréttablaðið - 06.05.2009, Síða 4
4 6. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR Fortaleza Recife Porto Seguro Rio De JaneiroSao Paulo B R A S I L Í A LÖGREGLUMÁL Lögregla í Brasil- íu handtók á föstudagskvöld 24 ára Íslending, Ragnar Erling Her- mannsson, sem hafði reynt að smygla tæpum sex kílóum af kóka- íni úr landinu. Ragnar gæti átt von á tuttugu ára fangelsisdómi. Ragnar var á leið upp í flugvél á Guararapes- flugvelli í Recife og hugðist fljúga ti l Malaga á Spáni um Lissa- bon þegar efnin fundust í far- angri hans. Ekki hefur fundist viðlíka magn af fíkni- efnum á flugvellinum á þessu ári. Að sögn lögreglunnar í Recife er talið að Ragnar hafi nálgast efnið, 5,7 kíló af mjög hreinu kókaíni, í íbúð í borginni Fortaleza. Þangað kom hann 10. apríl. Efnið var þá þegar falið í ferðatösku. Við yfir- heyrslur mun Ragnar hafa játað að hann hafi átt að fá tíu þúsund evrur, sem samsvarar um 1,7 milljónum króna, ef efnið kæmist til Spánar. Það er upprunnið í Kólumbíu og er metið á 460 þúsund dollara, eða um sextíu milljónir króna. Í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í gær hafði lögreglufulltrúi í Recife eftir Ragnari að hann hefði farið í smyglferðina til að greiða fíkniefna- skuld á Íslandi. Ragnar hefði sagt lögreglunni að ef hann neitaði að fara í ferðina yrði hann drepinn. Í samtali við þarlenda fjölmiðla sagði fjölmiðlafulltrúi lögreglunn- ar að þetta væri í fyrsta sinn sem Íslendingur væri handtekinn í Rec- ife. „Við vorum hissa, því Ísland er land þar sem ekki þrífst mikil spilling. Mögulega er það afleiðing efnahagskreppunnar að ungt fólk þar leiðist út í glæpi,“ sagði Giovani Santoro. Brasilíumaður, á leið í sama flug og Ragnar, var handtekinn á sama tíma með eitt kíló af kókaíni í fórum sínum. Fullyrt er að hann hafi engin tengsl við Ragnar önnur en að þeir hafi líklega fengið efnið á sama stað. Ragnar hefur verið ákærður fyrir fíkniefnabrot og á yfir höfði sér allt að tuttugu ára fangelsi. Hann situr nú í Cotel-fangelsinu nærri Recife og bíður dóms, en fangelsið mun vera alræmt fyrir slæman aðbúnað og fangaupprseisnir. Fjölskylda Ragnars hefur haft samband við íslenska utanríkis- ráðuneytið og beðið um liðsinni þess vegna málsins. stigur@frettabladid.is kjartan@frettabladid.is Bót í máli Átt þú rétt á slysabótum? Fyrsta flokks ráðgjöf um bótarétt vegna slysa - þér að kostnaðarlausu S L Y S A B Æ T U R Sími: 520 2900 landslog.is MEXÍKÓ, AP Mannlífið í Mexíkóborg er byrjað að færast hægt og rólega aftur í eðlilegt horf. Kaffihús voru opnuð á ný í gær og umferð fór af stað eftir fimm daga lokun vegna svínaflensuhættunnar, sem legið hefur eins og mara á þjóðfélag- inu. Hátíðarhöldum í tilefni af fimmta maí var engu að síður aflýst í gær, en þann dag halda Mexíkóbúar upp á sigur innlendra hermanna á franska hernum árið 1862. Á morgun hefst kennsla á ný í framhaldsskólum og háskólum, en yngri börn þurfa að bíða heima þangað til eftir næstu helgi. Felipe Calderon forseti sagði þjóðina þó þurfa að hafa allan varann á áfram vegna flensunnar, sem hefur kostað tugi manns lífið í Mexíkó. Fjármálaráðherra landsins sagð- ist í gær telja að lömun þjóðfélags- ins vegna flensunnar myndi kosta efnahagslífið að minnsta kosti 2,2 milljarða Bandaríkjadala. Í gær hafði verið staðfest að nærri 1.500 manns í tuttugu lönd- um hefðu smitast af flensunni. Rúmlega helmingur hinna smit- uðu er í Mexíkó. Mexíkóstjórn lét sækja tugi landa sinna til Kína í gær, en kín- versk stjórnvöld höfðu lokað Mex- íkóana í sóttkví þótt enginn þeirra hefði haft einkenni smits. - gb Svínaflensan ætlar að verða efnagslífinu í Mexíkó dýrkeypt: Lifnar yfir Mexíkóborg á ný SÓTTIR TIL KÍNA Mexíkóstjórn sendi flugvél til Kína að sækja þar tugi manna sem kínversk stjórnvöld höfðu sett í sóttkví, þótt einkennalausir væru. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Fjórði Brasilíufanginn í haldi vegna kókaínsmygls Íslendingur var handtekinn á leið frá Brasilíu til Spánar með sex kíló af kókaíni. Efnið er metið á 60 millj- ónir. Hann er fjórði Íslendingurinn sem tekinn er fyrir smygl í Brasilíu og getur átt von á 20 ára fangelsi. RAGNAR ERLING HERMANNSSON KÓKAÍNIÐ Efnið var falið í fölskum botni á ferðatösku. EFNAHAGSMÁL „Ég held að allir séu sammála, hvort sem þeir sitja við þetta borð, eru í Seðla- bankanum eða annars staðar, um að nafnvextir á Íslandi þurfa að lækka,“ sagði Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra á blaðamanna- fundi ríkisstjórnarinnar í gær. Næsti vaxtaákvörðunardagur er á morgun. Hann þorir þó engu að spá um hve hratt vextirnir lækki. „En ég myndi fagna því ef þeir yrðu dálítið djarfir í sínum vaxta- lækkunum,“ sagði Gylfi. Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra sagði að stýrivext- ir gætu orðið hér um tvö til þrjú prósent um áramót, gengi allt eftir. - ss Ríkisstjórn um vaxtalækkun: Myndi fagna djarfri lækkun VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 24° 17° 21° 15° 12° 16° 16° 18° 13° 11° 23° 18° 19° 31° 14° 19° 21° 12° Á MORGUN 5-15 m/s, hvassast vestan til. FÖSTUDAGUR 10-18 m/s, hægastur SA-til. 3 4 3 5 4 6 8 6 7 4 4 5 5 4 4 4 4 5 5 4 5 5 10 2 2 2 106 2 1 5 115 HVASST Á MORGUN OG HINN Með kvöldinu þykknar upp sunnan til sam- fara hægt vaxandi vindi. Um miðnætti í kvöld verður kominn strekkingur suðaustan til og á norðvestur- fjórðungi landsins. Á morgun verður víða norðaustan strekk- ingur eða allhvasst og svipaða sögu er að segja á föstudag. Síðan lægir á laugar- dag, fyrst vestan til á landinu. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur STJÓRNMÁL Hugmynd Talsmanns neytenda um að öll íbúðarveðlán verði færð niður eftir mati gerð- ardóms hefur verið send til Seðlabanka Íslands til umsagnar. Þetta kom fram á blaðamanna- fundi ríkisstjórnarinnar í gær. Seðlabankinn á að meta umsögn um fjárhagsleg og efnahagsleg áhrif þessara tillagna og mun ríkisstjórnin bíða eftir þeirri umsögn. Seðlabankinn hefur einnig fengið upplýsingar um tekjur ein- staklinga, út frá skattskýrslum 2007 og einhverjum upplýsing- um frá 2008, til að meta fjárhags- stöðu heimilanna. Áður hafði Seðlabankinn tekið saman skuldir heimilanna. Reiknað er með að Seðlabank- inn muni hafa heildstæða mynd af stöðu heimilanna, að teknu til- liti til atvinnuleysis, um miðjan þennan mánuð. - ss Tillögur Talsmanns neytenda: Seðlabankinn metur áhrif LEIKLIST Nokkur sæti eru laus á tvö námskeið sem Þjóðleikhús- ið býður atvinnulausum ókeypis dagana 12. og 13. maí næstkom- andi. Leikarar Þjóðleikhússins leiða námskeiðin, sem hafa það helst að markmiði að gleðja sálina og efla jákvætt hugarfar. Meðal þess sem er í boði á nám- skeiðunum er að leikhúsformið verður kynnt ítarlega fyrir þátt- takendum. Einnig verður sett upp vinnusmiðja þar sem áherslan er lögð á að efla kjark og jákvæðni. Meðal leiðbeinenda eru leikar- arnir Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Ólafur Egill Egilsson. - kg Starfsfólk Þjóðleikhússins: Leikarar leiða frí námskeið Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Íslendingur er handtekinn fyrir fíkniefnasmygl í Brasilíu. ■ Hlynur Smári Sigurðarson var sá fyrsti, í júní árið 2006. Hann var handtekinn, þá 23 ára, á rútustöð með tvö kíló af ætluðu kókaíni. Hann hugði þá á brott- för úr landinu. Það varð Hlyni til happs að hann var blekktur í viðskiptunum, og reyndist efnið vera barnapúður. Hann slapp því með þriggja ára fangelsi. Hlynur dvaldi um skeið í fangelsi í Porto Seguro og lýsti skelfilegum aðbúnaðinum þar í viðtali við Fréttablaðið. Hlynur er nú kominn heim til Íslands. ■ Næstur var Ingólfur Rúnar Sigurz. Hann var handtekinn, þá þrítug- ur, við komuna á Guarulhos-flug- völlinn í Sao Paulo í ágúst 2006. Hann var að koma frá Amster- dam og var með rúm tólf kíló af hassi í farteskinu. Tæpu ári síðar var hann dæmdur í sex ára og átta mánaða fangelsi. ■ Karl Magnús Grönvold var handtekinn á sama flugvelli og Ingólfur í júní 2006. Hann var þá á leið úr landi til Lissabon með tvö og hálft kíló af kókaíni. Karl var dæmdur í þriggja ára og ell- efu mánaða fangelsi, sem hann nú afplánar. Þótt töluvert sé um kannabisrækt í Brasilíu er hass þar dýr vara. Það tíðkast því að flytja þangað tiltölu- lega ódýrt hass frá Evrópu og skipta því á sléttu fyrir kókaín. ÞRÍR ÍSLENDINGAR DÆMDIR Í BRASILÍU GENGIÐ 05.05.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 206,7334 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,58 126,18 189,61 190,53 168,11 169,05 22,567 22,699 19,295 19,409 15,85 15,942 1,2671 1,2745 188,66 189,78 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.