Fréttablaðið - 06.05.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 06.05.2009, Blaðsíða 6
6 6. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is KJARTAN GUÐMUNDSSON neytendur@ frettabladid.is SIGIN GRÁSLEPPA Nánari upplýsingar í síma 525 4444 og á endurmenntun.is VERKEFNASTJÓRNUN – LEIÐTOGAÞJÁLFUN Fræðileg og hagnýt verkefni Efling leiðtogahæfileika Alþjóðleg vottun Lotubundin kennsla – hentar með vinnu Umsóknarfrestur til 11. maí Þórhildur hafði samband og var óánægð með hækkun á bílatryggingunum sínum. „Frá og með næsta júní þarf ég að borga 89.274 krónur í stað 70.997 króna á síðasta ári. Þetta er hækkun upp á rúmlega 18.000 krónur milli ára. Ég er með staðlaða trygg- ingu hjá Verði á Mitsubishi Lancer árgerð ´93, bíl sem ég gæti ekki einu sinni selt fyrir þessa upphæð. Ég hef keyrt tjónlaust allan minn ökuferil og kann þessu mjög illa.“ Guðmundur Jóhann Jónsson, fram- kvæmdastjóri hjá Verði, varð fyrir svör- um. Hann sagðist ekki geta tjáð sig um tryggingamál einstakra aðila og auk þess hefði hann ónægar upplýsingar um þetta ákveðna tilfelli. „En þetta getur vel passað. Í byrjun ágúst síðastliðins var gerð flöt verðhækkun upp á 9,5 prósent hjá fyrir- tækinu, sem gekk yfir alla flokka í ábyrgð- artryggingum. Til viðbótar eru verðlags- breytingar, eða verðbólga, síðustu tólf mánaða í kringum tuttugu prósent.“ Guð- mundur segist gera ráð fyrir að bílatrygg- ingar hafi hækkað svipað mikið í verði hjá flestum tryggingafyrirtækjum. Neytendur: Hækkun bílatrygginga 18.000 króna hækkun milli ára NÝIR BÍLAR Á hafnarbakkanum í Reykjavík. DÓMSMÁL Þrír piltar úr Njarðvík, allir fæddir árið 1993, hafa verið ákærðir fyrir hrottafengna lík- amsárás á jafnaldra sinn og sam- nemanda við Njarðvíkurskóla. Árásin átti sér stað í nóvember síðastliðnum og vakti sérstaka athygli þar sem myndband af henni var sett á vefinn og vakti mikinn óhug. Pilturinn var kýldur ítrekað í skrokk og andlit þar til hann féll í jörðina. Þá tóku árásarmenn- irnir til við að sparka af alefli í hann liggjandi, bæði í bak hans og höfuð. Á myndbandinu sást hvar hann fékk mjög fast spark í andlitið þar sem hann lá. Pilturinn hlaut töluverða áverka af árásinni, en slapp þó við beinbrot og varanleg meiðsl. Hann krefur árásarmennina um eina milljón króna í miskabæt- ur. Árásarmönnunum var vikið tímabundið úr skóla þegar málið kom upp. Piltarnir eru ákærðir fyrir brot gegn 217. grein hegningar- laga, sem kveður á um minni- háttar líkamsárás. Júlíus Krist- inn Magnússon, lögreglufulltrúi á Suðurnesjum, segir að ákvörð- un um að ákæra ekki fyrir meiri háttar líkamsárás hafi verið tekin í samráði við embætti Ríkissak- sóknara, sem fer með ákæruvald í meiri háttar líkamsárásarmál- um en lagðist gegn slíkri ákæru í þessu máli. - sh Þrír ungir piltar úr Njarðvík hafa verið ákærðir fyrir hrottalega líkamsárás: Tóku upp árás á samnemanda sinn DÓMSMÁL Rúmlega þrítugur maður hefur verið dæmdur til að greiða unglingspilti 75 þúsund krónur í bætur fyrir að hafa sent honum tvær klámfengnar ljós- myndir af sjálfum sér. Þá er hann sektaður um 100 þúsund krónur. Maðurinn átti í samskiptum við piltinn, sem þá var þrettán ára, á spjallrás á netinu. Maðurinn ját- aði en sagðist hafa talið að pilt- urinn væri eldri, eða sextán ára, enda hafi pilturinn sagst eldri. Maðurinn er dæmdur fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag. - sh Dæmdur til að greiða sekt: Sendi unglingi dónamyndir HROTTASKAPUR Myndbandið sem sett var á vefinn af árásinni vakti mikinn óhug. ÍSRAEL, AP Ban Ki-moon, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sakar ísraelsk stjórnvöld um lygar í tengslum við árásir Ísraelshers á skóla og aðrar stofnanir á vegum Sameinuðu þjóðanna á Gasa- svæðinu í janúar. Samkvæmt rannsókn Samein- uðu þjóðanna á níu alvarlegustu árásunum leikur enginn vafi á að ísraelski herinn ber alla sök. Nefndin mælir einnig með því að Sameinuðu þjóðirnar krefji Ísrael um skaðabætur fyrir bæði manntjón og skemmdir sem árásirnar ollu. Daniel Carmon, aðstoðarsendi- herra Ísraels hjá Sameinuðu þjóðunum, segir skýrslu nefndarinnar einhliða og hlutdræga. - gb Árásir Ísraela í janúar: SÞ sakar Ísraels- stjórn um lygar Lestu fleiri bækur eftir að kreppan skall á þjóðinni? Já 15,3% Nei 84,7% SPURNING DAGSINS Í DAG Vinnur Ísland Eurovision? Segðu skoðun þína á Vísir.is EFNAHAGSMÁL „Langlundargerð okkar í þessu samráði og sam- starfi er eiginlega þrotið. Alþýðu- sambandið hefur í vetur barist fyrir því við þessa ríkisstjórn og hina fyrri að fá í gegn verkfæri til að endurskipuleggja fjárhag heim- ilanna. Það verður einfaldlega að klára þetta núna“, segir Gylfi Arn- björnsson, forseti ASÍ. ASÍ lagði í gær fram skjal með níu áherslupunktum um bráða- aðgerðir og stefnu til framtíðar á samráðsfundi með forsvarsmönn- um stjórnarflokkanna. Þar er lögð þung áhersla á að endurskipulagn- ing á skuldum heimilanna verði sett í forgang. „Svo einfalt dæmi sé tekið þá verður að hætta að krefja fólk um það að koma lánum í skil svo það eigi möguleika á aðstoð. Fólk er jú að óska eftir aðstoð af því að það getur ekki sett lánin sín í skil. Þessari framgöngu innheimtu- manna verður einfaldlega að linna. Það er ekkert við okkur að tala ef ekki verður gengið frá skuldamál- um heimilanna með ásættanlegum hætti,“ segir Gylfi með vísan í að sátt náist um stöðugleikasáttmála á næstunni. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra segir um afdrátt- arlausa afstöðu ASÍ vegna skulda heimilanna að farið hafi verið yfir það á fundinum hvað næstu vikur væru mikilvægar. „Við vonumst til að sjá til lands í mörgum erfiðum málum á næstunni. Þar má nefna endurskipulagningu bankakerf- isins og lokahnykkinn í flóknum samningaviðræðum. Staðan ætti að fara að skýrast sem er mikil- vægt því kjaramálin bíða svo í sumar og haust.“ Hann segir að eftir daginn sé ljóst að það hafi mistekist að kynna fólki hvaða úrræði því standi til boða vegna skulda. Úr því verði bætt. Eitt af því sem ganga verður í strax að mati ASÍ er að hraða mannaflsfrekum framkvæmd- um og að útboð á vegum ríkisins verði auglýst án tafar. Í tillögum um atvinnumál er einnig sett fram hugmynd um stofnun fjárfesting- arsjóðs í samstarfi ríkisins, líf- eyrissjóðanna og erlendra kröfu- hafa til að koma að uppbyggingu atvinnulífsins. Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir vaxtamálin standa upp úr. „Smávægileg lækk- un núna í vikulokin yrði gríðarlegt áfall fyrir okkur. Það væri vitnis- burður um að menn gera sér enga grein fyrir því hversu skaðlegt það er fyrir samfélagið ef atvinnulífið er skilið eftir í fimbulfrosti.“ Hann telur það kappsmál allra, bæði aðila vinnumarkaðarins, ríkisstjórnar og hjá hinu opinbera almennt, að stöðugleikasáttmáli verði að veru- leika. svavar@frettabladid.is Skýlaus krafa frá ASÍ á samráðsfundi Ríkisstjórnin fundaði með aðilum vinnumarkaðarins og forsvarsmönnum sveitarfélaga í gær. Markmiðið er sáttmáli um stöðugleika í íslensku samfélagi til lengri tíma. Niðurstaðan er háð árangri stjórnvalda á næstu vikum. KVIKMYNDIR Bandaríski gaman- leikarinn Dom DeLuise lést í gær, 75 ára að aldri. Hann lék í mörgum vinsælum gamanmyndum í Holly- wood á áttunda og níunda ára- tugnum. DeLuise, sem var auðkennd- ur af frjálslegu vaxtarlagi sínu, lést á sjúkra- húsi í Los Angel- es í Kalíforníu. Hann háði baráttu við krabbamein síðustu æviárin. Leikarinn fór með hlutverk í nokkrum af helstu kvikmyndum leikstjórans Mel Brooks, þar á meðal Blazing Sadd- les og Young Frankenstein. Hann lék einnig á móti Burt Reynolds í myndinni Cannonball Run. - kg Stór stjarna fallin frá: Leikarinn Dom DeLuise látinn VIÐ STJÓRNARRÁÐ- IÐ Forsvarsmenn ASÍ mættu á fund klukkan þrjú í gær. Sambandið setur endurskipulagningu á skuldum heimil- anna í forgang. DOM DELUISE KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.