Fréttablaðið - 06.05.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 06.05.2009, Blaðsíða 8
 6. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR sumarferdir.is Tenerife ... vikulegt fl ug í allt sumar Besta verðið bókast fyrst! Örfá sæti laus í fyrstu brottfarir: 20. maí UPPSELT 27. maí UPPSELT 03. júní 8 sæti laus 10. og 17. júní örfá sæti laus FÉLAGSMÁL Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir félagsmálaráð- herra segir að staðinn verði vörður um vinnustaði fatlaðra og Velferð- arvaktin hugi sérstaklega að þeim sem standa höllum fæti. Frétta- blaðið greindi í gær frá því að kreppan kæmi illa niður á vinnu- stöðum fatlaðra. Ásta segir að vissulega komi kreppan einhvers staðar við alla, en þessi hópur eigi alls ekki að fara verr út úr ástandinu en aðrir. „Ég get fullyrt að við stöndum vörð um þennan hóp og höfum stutt við hann. Við höfum nýverið stutt Múlalund með fjárveitingu og höfum einnig stutt fleiri stofnanir og fyrirtæki af þessum toga. Þar hef ég lagt áherslu á að ráðið sé af atvinnuleysisskrá í þau almennu störf sem skapast við þjónustu við hópana.“ Ásta minnir á að Velferðarvakt- in hafi nýverið höfðað til fyrir- tækja um að sýna samfélagslega ábyrgð og ráða þá til starfa sem séu fatlaðir. Hún segir félagsmála- ráðuneytið sjálft ætíð hafa gengið á undan með góðu fordæmi hvað þetta varðar. Þeir sem starfa á vernduðum vinnustöðum fyrir fatlaða halda óskertum bótum að sögn ráðherra. Launin eru því viðbót við bæturnar. „Það er hins vegar forgangsmál að halda utan um þessa hópa og styðja við þá. Velferðarvaktin gætir mjög vel að þessum málum.“ - kóp Félagsmálaráðherra höfðar til samfélagslegrar ábyrgðar fyrirtækja: Stutt við vinnustaði fatlaðra RÁÐHERRA Ásta segist hafa stutt við vinnustaði fyrir fatlaða og sérstök gát sé höfð á þeim hópi í kreppunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VIÐSKIPTI Ekki er ólíklegt að farið verði út í einhvers konar samein- ingar eða hagræðingu þegar búið verður að hnýta lausa enda vegna nýju viðskiptabankanna, segir Gylfi Magnússon viðskiptaráð- herra. Slíkar aðgerðir séu einnig mögulegar hjá sparisjóðunum. „Á næstu vikum verður geng- ið frá flestum lausum endum sem snúa að skiptum á milli nýju og gömlu bankanna, eignarhaldi á nýju bönkunum og öðru sem þarf að leysa,“ segir Gylfi. Ekki hefur verið rætt að samein- ing verði hluti af því ferli, en þegar því er lokið munu menn hafa mun betri forsendur til að meta kosti slíkrar sameiningar, segir Gylfi. „Ég vil ekki fullyrða hvort ein- hver slík sameining komi út úr því, það liggur hreinlega ekki fyrir.“ Sem fyrr segir er ekki ólíklegt að farið verði í sameiningu eða einhverskonar hagræðingu við- skiptabankanna, að sögn Gylfa. Þá sé einnig horft til sparisjóðanna. Til að svo megi verða þurfi að búa til lagaumhverfi sem dugir sparisjóðunum inn í framtíðina, segir Gylfi. Hann hyggst leggja fram laga- frumvarp um sparisjóðina á kom- andi sumarþingi, haldi hann emb- ætti viðskiptaráðherra að loknum stjórnarmyndunarviðræðum sem nú standa yfir. - bj Gengið frá lausum endum vegna viðskiptabanka og sparisjóða á næstunni: Sameining banka í kortunum GEORGÍA, AP Skammvinnri uppreisn í Georgíuher lauk eftir að fyrrver- andi sérsveitarforingi var handtek- inn. Hann er sakaður um að hafa skipulagt aðgerðir til að trufla her- æfingar NATO í landinu. Mikhaíl Saakashvili, forseti Georgíu, sagði að uppreisnin hefði verið einangrað tilfelli. „Ég stjórnaði sjálfur samninga- viðræðum við uppreisnarmennina og stakk upp á að þeir legðu niður vopn,“ sagði Saakashvili. Hópur hermanna í herstöð skammt frá höfuðborginni Tíblisi hóf uppreisn í beinu framhaldi af tilkynningu frá innanríkisráðu- neytinu, þar sem sagði að nokkr- ir hermenn hefðu verið handteknir kvöldið áður. Komist hefði upp um áform þeirra um að gera stjórn- arbyltingu í landinu, og hefðu þeir notið til þess stuðnings frá Rússum. Innanríkisráðuneytið dró síðan til baka fullyrðingar um að menn- irnir hefðu stefnt að stjórnarbylt- ingu. Þeir hefðu aðeins ætlað að trufla heræfingar NATO, en engu að síður notið til þess stuðnings rússneskra hermanna.Embættis- maður á skrifstofu Saakashvilis forseta sagði síðar, í viðtali við AP- fréttastofuna, að engar sannanir væru fyrir því að Rússar hefðu átt aðild að áformum georgísku hermannanna. Dmitrí Rogov, erindreki Rússa hjá NATO, sagði í gær að ásakan- ir um að Rússar hefðu átt hlut að uppreisninni væru fáránlegar. Rússnesk stjórnvöld eru engu að síður afar ósátt við heræfingar NATO í nágrannaríkinu Georgíu. Til þess að leggja áherslu á and- stöðu Rússa ákvað Sergei Lavr- ov, utanríkisráðherra Rússlands, í gær að mæta ekki á samráðsfund NATO og Rússlands, sem halda á í Brussel 19. maí. Saakashvili forseti er afar umdeildur í landinu. Undanfarn- ar þrjár vikur hafa mótmæli stað- ið yfir fyrir utan skrifstofur for- setans. Mótmælendurnir krefjast þess að forsetinn segi af sér. Heræfingar NATO í Georgíu hefjast í dag og standa til mánaða- móta. Upphaflega var hugmyndin sú að nítján ríki tækju þátt í þeim, bæði NATO-ríki og samstarfsríki NATO. Sum fyrrverandi Sovétríki hafa þó hætt við á síðustu stundu, þar á meðal Armenía, Eistland, Lettland, Kasakstan og Moldóva. gudsteinn@frettabladid.is Ætluðu að trufla heræfingar NATO Ekkert reyndist hæft í ásökunum Georgíustjórnar um að hópur hermanna hafi ætlað sér að gera stjórnarbyltingu. Uppreisnin í hernum hófst eftir að nokkrir hermenn voru handteknir. Þeir hugðust trufla fyrirhugaðar heræfingar NATO. STÖÐUG MÓTMÆLI Í TÍBLISI Fjölmennir mótmælafundir gegn Saakashvili, forseta Georgíu, í höfuðborginni Tíblisi hafa verið dag- legir viðburðir síðustu þrjár vikurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LAUSIR ENDAR Gengið verður frá lausum endum vegna viðskipta- bankanna á næstu vikum, segir Gylfi Magnússon við- skiptaráðherra.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.