Fréttablaðið - 06.05.2009, Side 12

Fréttablaðið - 06.05.2009, Side 12
12 6. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is UMRÆÐAN Sighvatur Björgvinsson skrifar um niðurfærslu lána Benedikt Sigurðarson, sam-fylkingarmaður frá Akureyri, sakar undirritaðan um að hafa ráð- ist með offorsi á talsmann neyt- enda og jafnvel hótað honum með forsætisráðherra og fjármálaráð- herra. Ekkert af þessu hefi ég gert. Ég var einfaldlega að ástunda það, sem Benedikt biður um í grein sinni – heiðarleg samræðustjórn- mál. Reyna eftir bestu getu að koma í veg fyrir það, sem ég tel vera háskalegan blekkingarleik. Hvert var meginefnið í tillög- um þeim, sem talsmaður neytenda gerði til þeirra flokka, sem nú starfa að myndun ríkisstjórnar – og hverjir voru hinir alvarlegu ágallar á þeim tillögum að mínu mati: Talsmaðurinn lagði til að ríkið tæki eignarnámi allar kröfur lán- veitenda með veði í íbúðarhúsnæði. Ég benti á þá einföldu staðreynd, að eignarnámi fylgja afdráttarlausar skyldur um eignarnámsbætur. Ef farið yrði að tillögu talsmannsins myndi eignabótakrafan nema sam- anlagðri fjárhæð allra krafnanna og skattborgarar yrðu að standa skil á þeirri kröfu. Talsmaðurinn lagði svo til, að opinberri nefnd yrði falið að afskrifa kröfurnar eftir tilteknum reglum. Ég benti á að þá væri verið að afskrifa kröf- ur, sem komnar væru í eigu rík- isins og enginn stæði undir þeim afskriftakostnaði annar en skatt- borgarar. Talsmaður neytenda fullyrti í viðtali við Kastljós, að yrðu tillögur hans samþykktar myndu þær nánast ekki kosta neitt nema kostnað við störf umræddr- ar nefndar. Ég benti á að það væri þvættingur. Þessi úrræði væru leið til þess að velta öllum vanda lán- veitenda íbúðalána yfir á herðar skattborgara. Ekkert af þessu hrekur Bene- dikt. Hann einfaldlega getur það ek k i . H a n n hefur engin rök til þess. Þess í stað veitist hann með skattyrð- um að Jóhönnu Sigurðardótt- ur og Stein- grími J. Sigfús- syni fyrir að hafa ekki viljað hlíta hans leið- sögn en ver svo mestri umfjöll- un sinni í að andmæla verðtrygg- ingu fjárskuldbindinga, sem verið hefur lengi eins og bögglað roð fyrir brjósti honum. Vissulega væri ástæða til þess að ræða þau mál á grundvelli heiðarlegra sam- ræðustjórnmála. Ég nefnilega man vel þá tíma, þegar sparifé lands- manna brann upp á verðbólgubáli í lágvaxtaumhverfi í háverðbólgu; þegar nánast allur sparnaður lands- manna varð að vera lögþvingað- ur; þegar aðgangur að lánsfé var skammtaður því lán var nánast sama og gjöf; þegar skömmtunar- stjórarnir voru stjórnmálamenn á þingi, í bankaráðum og við stjórn bankanna; þegar víxileyðublöð frá öllum bankastofnunum og spari- sjóðum landsins voru í hillum við hliðina á innganginum að fundar- sal alþingis og svokallaðir „fyrir- greiðslustjórnmálamenn“ gengu um ganga með víxileyðublöðin standandi upp úr öllum vösum. Verðtrygging fjárskuldbindinga batt enda á þennan tíma. Helsti baráttumaður fyrir þeirri lausn hét Vilmundur Gylfason. Hún var leidd í lög fyrir tilstuðlan þáver- andi formanns Framsóknarflokks- ins, Ólafs Jóhannessonar, í lögum, sem við hann eru kennd. Fyrir til- stilli þeirrar breytingar var opnuð leið til sparnaðar og um leið greið- ur aðgangur jafnt fólks sem fyrir- tækja að lánum. Skömmtunarstjór- arnir hurfu eins og dögg fyrir sólu. Engin víxileyðublöð sjást lengur í nágrenni við fundarsal Alþingis – og slík blöð standa ekki lengur upp úr vösum fyrirgreiðslustjórnmála- manna. Fólk hefur einfaldlega ekki þurft á þeim að halda til þess að fá aðgang að lánum. Mér er ljóst, að margt fólk á nú við erfiðleika að etja vegna skuld- setningar. Þeim þarf að bjarga, sem hægt er – en sumum er einfaldlega ekki hægt að bjarga. Þeim, sem farið hafa offari í að reyna að lifa á sparnaði annarra verður ekki bjargað. Sú ómótmælanlega stað- reynd, að íslensk heimili gerðust í góðæri skuldsettustu heimili í víðri veröld segja mikla sögu. Sú skuld- setning var ekki nauðung. Hins vegar er mikill ábyrgðarhluti að reyna að telja fólki trú um, að hægt sé að bjarga skuldurum án þess að það kosti nokkurn neitt. Engin slík lausn er til. Kostnaðurinn við slíkar aðgerðir er mikill. Byrðarnar munu leggjast annars vegar á skattborg- ara – þ.á m. á þá sem notuðu góð- ærið til þess að greiða skuldir sínar eða ekki skuldsettu sig umfram greiðslugetu – og hins vegar á lán- veitendur. Og hverjir eru þeir? Þeir eru lífeyrissjóðir landsmanna, sem þegar hafa orðið fyrir miklu tjóni og kemur þá skuldayfirtakan til viðbótar og mun falla á núverandi lífeyrisþega og lífeyrisþega fram- tíðarinnar með skertum lífeyri. Og þeir eru fólkið, sem enn á sparifé sitt í bönkum og sparisjóðum lands- ins. Óhjákvæmilegt er með öllu að tjóni bankanna muni verða velt yfir á innistæðueigendur því bankarn- ir eru ekkert annað en milliliðir á milli þeirra, sem hafa lánað þeim fé og hinna, sem hafa tekið það fé að láni. Í heiðarlegum samræðustjórn- málum felst að ræða hlutina eins og þeir eru en ekki að telja fólki trú um að hægt sé að yfirtaka skuld- ir fólks án þess að það kosti nokk- urn nokkuð. Að predika slík sjónar- mið á tímum eins og við nú lifum er beinlínis háskaleg blekking. Höfundur er fyrrverandi ráðherra. Háskaleg blekking SIGHVATUR BJÖRGVINSSON UMRÆÐAN Marín Þórsdóttir skrifar um megrunar- lausa daginn Hvernig væri lífið ef allir dagar væru opinberir frídagar frá hugsunum um mat, megrun og líkamsvöxt? Væri ekki ljúft ef holdafar skipti ekki máli og eigendur mjórra og feitra líkama bæru jafn mikla virðingu fyrir sínum kropp- um? Væri lífið ekki frábært ef við gætum borðað ljúffengan mat án samviskubits? Hvers vegna erum við svona upptekin af útliti og sannfærð um að sveltur kroppur sé heil- brigðari en sá holdugri? Hugmyndir okkar um heilbrigði virðast svo brenglaðar að þeim mun vannærðari sem kroppurinn er, því fallegri og heilbrigðari teljum við hann vera. Það er ágætt að 6. maí ár hvert getum við fagnað Megrunar- lausa deginum. Þennan dag er fólk hvatt til þess að hugsa ekki um holdafar sitt né annarra. Fólk er hvatt til að hugsa vel um heilsuna og bera virð- ingu fyrir líkama sínum, sama hvaða stærðar hann er. Það frábæra við Megrunarlausa daginn er að allir geta tekið þátt, því breytingin sem þarf gerist í huga hvers og eins. Það þarf ekki að fara á fundi með kröfuspjöld eða leggja til peninga sem eru ekki til. Það eina sem þarf er að fá ekki samvisku- bit yfir því sem maður borðar. Önnur einföld leið til að fagna deginum er að hrósa náunganum fyrir eiginleika sem byggjast ekki á útliti. Við búum í samfélagi þar sem hæfileikaríkt og klárt fólk er á hverju götuhorni; finnum eitt- hvað bitastæðara en útlitið til að hrósa fyrir. Fyrir þá öflugustu er ekki vitlaust að ráðast á fataskápinn og henda út öllum flíkunum sem ætl- unin var að komast í seinna og fara með í Rauða- krossgámana. Þar öðlast fötin nýtt líf og koma best að notum. Hættum að setja lífið í bið þar til við komumst í það form sem við teljum eftirsókn- arvert. Fögnum deginum í dag í þeim líkama sem við erum í og njótum lífsins. Höfundur er mannfræðingur og forstöðumað- ur Ungmennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands. Frí frá megrun og útlitsáhyggjum MARÍN ÞÓRSDÓTTIR Brotlending Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, kallar það brotlend- ingu stjórnarflokkanna ef rétt reynist að þeir ætli að leggja spurninguna um aðildar- viðræður í dóm Alþingis. Í samtali við Vísi segir Bjarni það „með ólíkindum að ríkisstjórnin ætli að hreyfa sig í jafn mikilvægu máli án þess að vera sammála“. Þetta er réttmæt ábending hjá Bjarna, það kæmi að minnsta kosti spánskt fyrir sjónir ef ríkisstjórnin er ekki einhuga í svo mikilvægu máli. Ber ekki að fagna því? En um leið ætti þessi niðurstaða að vera Bjarna fagnaðarefni. Hann er jú formaður flokksins sem með málþófi kom í veg fyrir stjórnarskrárbreytingar rétt fyrir þinglok, á þeim forsendum að ekki mætti hreyfa við jafn mikilvægu máli nema með víðtækri sátt á þinginu. Frestað fram á sunnudag Það er vinsæll samkvæmisleikur að spá og spekúlera í hugsanlegt nafn á væntanlegri ríkisstjórn. Sumir spáðu því að stjórnarsáttmáli VG og Sam- fylkingarinnar yrði kynntur 1. maí til að festa nafnið 1. maístjórnin, eða einfaldlega Maístjórnin, í sessi, en af því varð ekki. Jóhanna Sigurð- ardóttir hefur sagst vongóð um að stjórnarsáttmálinn verði tilbúinn um næstu helgi. Er eitthvað sérstakt að gerast þá sem hægt er að kenna stjórnina við? Jú, á laugardag er Evrópudagurinn haldinn hátíðlegur. Veit Steingrím- ur af því? bergsteinn@frettabladid.is sex saman í p akka ÍS L E N S K A S IA .I S M S A 4 58 61 0 4/ 09 B irtingarmyndir efnahagshrunsins eru margvíslegar og nýjar hliðar hrunsins sýna sig nánast dag hvern. Atvinnuleysi hefur aukist viku frá viku og mun vera komið yfir níu prósent. Hin augljósa afleiðing atvinnu- leysis er fjárhagsleg en jafnljóst er að félagslegar afleiðingar eru einnig þungbærar. Tilvera sem áður virtist trygg er nú ótrygg. Skuldbindingar sem stofnað var til miðað við að forsendur um innkomu myndu ekki breytast verða óyfirstíganlegar og bara möguleikinn á að fjárhags- legar stoðir heimilisins geti brostið veldur miklu óöryggi. Ríkisstjórnin setti í febrúar síðastliðnum á fót vinnuhóp sem meta átti áhrif efnahagsástandsins á stöðu kynjanna. Þessi vinnuhópur sendi frá sér áfangaskýrslu ásamt tillögum að úrlausnarefnum fyrir nokkrum vikum. Í skýrslunni er meðal annars fjallað um aukið heimilisofbeldi sem fylgifisk kreppu. Greint er frá því að þrátt fyrir að komum í Kvennaathvarfið hafi ekki fjölgað eftir að kreppan skall á þá hafi sú breyting orðið að komum erlendra kvenna hafi fækkað veru- lega og einnig að nú sé algengara en áður að konur fari heim úr Kvennaathvarfinu í óbreyttar aðstæður, þ.e að þær snúi til baka í ofbeldissamböndin. Í slæmu efnahagsástandi aukast líkur á að konur sem sæta heim- ilisofbeldi einangrist. Við atvinnuleysi rofna félagsleg tengsl sem myndast gegnum vinnu og þannig fækkar möguleikum kvenna á að greina frá ofbeldinu og biðja um hjálp. Augljóst er að þetta á ekki síst við um erlendar konur sem hafa minna félagslegt net en þær sem eiga hér frændgarð og tengslanet sem byggst hefur upp frá barnæsku. Þannig verður erlend kona enn bundnari manni sínum, bæði félagslega og fjárhagslega og á því erfiðara með að slíta sambúð en áður. Í viðtali við Fréttablaðið hér framar í blaðinu segir Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, formaður vinnuhópsins, að Jafnréttisvaktin hafi lagt til að lögð verði fram forvarna- og viðbragðsáætlun gegn hættu á heimilisofbeldi. Þá verði stuðningur við fórnarlömb aukinn til dæmis gegnum Kvennaathvarfið og Stígamót. Ljóst er að auk þeirra verkefna sem við blasa, svo sem að koma til móts við þann ört stækkandi hóp fólks sem ekki ræður við að borga af eignum sínum, þá eru fjölmörg önnur verkefni sem bíða úrlausnar. Þau verkefni snúa að minna áþreifanlegum en þó afar afdrifaríkum afleiðingum efnahagshrunsins. Eitt af þeim er að tryggja að þau samtök sem stutt hafa við fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis, þar á meðal heimilisofbeldis, hafi fjárhagslegt bolmagn til að mæta auknum og breyttum verkefnum. Skipan Jafnréttisvaktarinnar var meðal fyrstu verka ríkisstjórn- arinnar sem nú situr við að endurnýja stjórnarsáttmála sinn. Sú hætta er alltaf fyrir hendi að nefndir séu skipaðar en minna verði um að tillögur þeirra birtist í verkum. Jafnréttisvaktin getur gegnt veigamiklu hlutverki á næstu misserum en aðeins ef vinna hennar verður nýtt í áþreifanlegum verkum. Jafnréttisvaktin getur orðið vegvísir. Duldar afleiðing- ar efnahagshruns STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.