Fréttablaðið - 06.05.2009, Síða 17
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Miðvikudagur 6. maí 2009 – 18. tölublað – 5. árgangur
VIÐSKIPTI
Eitt uppgjör – betri yfi rsýn
Nýttu kosti þess að hafa allt á einum stað.
Hafðu samband við okkur í síma 560 1600
eða tilbod@borgun.is og við gerum þér tilboð
í færsluhirðingu fyrir öll greiðslukortaviðskipti.
Græna
prentsmiðjan
Persónulegar ábyrgðir Björgólfs Guðmundssonar,
fyrrverandi formanns bankaráðs Landsbankans,
eru rúmlega átta milljörðum krónum hærri nú en
í lok júní í fyrra.
Skuldbindingar Björgólfs og félaga honum tengd-
um gagnvart Landsbankanum nema nú 58 milljörð-
um króna, samkvæmt upplýsingum sem hann sendi
fjölmiðlum í fyrradag. Samkvæmt hálfsársuppgjöri
bankans í fyrra námu lán og skuldbindingar gagn-
vart honum tæpum 49,8 milljörðum króna, um 40
milljörðum meira en í lok árs 2007.
Líkt og fram kom í Fréttablaðinu í byrjun apríl og
aftur í yfirlitinu frá í fyrradag eru skuldbindingarn-
ar að nær öllu leyti tilkomnar vegna kaupa Björgólfs
á helmingshlut Sunds í fjárfestingarfélaginu Gretti
fyrir tveimur árum. Grettir átti 33 prósenta hlut í
Eimskipi og rúm 28 prósent í Icelandic Group.
Í yfirliti yfir eignastöðu bankaráðsformannsins
fyrrverandi gekkst hann í persónulegar ábyrgðir
til að treysta veð bankans og því falli allar skuldir
Grettis á hann. Eignir hans á móti 58 milljarða króna
skuld við bankann eru metnar á um tólf milljarða.
Björgólfur sagðist áttavilltur í samtali við Frétta-
blaðið í gær og vissi ekki hverju hann muni halda
eftir. Þar á meðal sé heimilið að Vesturbrún 22 í
Reykjavík.
Húsið, sem er 229 fermetrar auk 32 fermetra
bílskúr, hefur ætíð verið skráð á eiginkonu hans,
Þóru Hallgrímsson. Fasteignamat þess nemur 58
milljónum króna. - jab
Skuldir Björgólfs jukust verulega
Vikuleg vefráð
Skilar
heimasíðan
árangri?
Finnur Oddsson
Upplýsingagjöf
og gagnsæi
6
„Velta með hlutabréf dreifist á
tiltölulega fá félög. Því þarf ekki
mikið til að breyta meðaltalinu,“
segir Magnús Harðarson, for-
stöðumaður viðskiptasviðs Nas-
daq OMX Iceland. Hann bend-
ir á að páskarnir spili inn í. Við-
skiptadagarnir hafi verið færri en
í fyrri mánuði auk þess sem dragi
úr veltu í kringum frídaga.
Heildarviðskipti með hlutabréf
í Kauphöllinni í nýliðnum mán-
uði námu tæpum 1,8 milljörðum
króna, eða um 99 milljónum króna
á dag. Til samanburðar nam velt-
an 4,4 milljörðum króna í mars.
Samdrátturinn nemur um sextíu
prósentum.
Mest voru viðskipti með hluta-
bréf Marel Food Systems og Öss-
urar. Markaðsvirði skráðra fé-
laga var 176 milljarðar króna í lok
mánaðar en það var 1,2 prósenta
hækkun á milli mánaða. Össur
var jafnframt stærsta félagið en
markaðsvirði þess nam rúmum 39
milljörðum króna í lok mánaðar.
Þá kemur fram í yfirliti Kaup-
hallarinnar að Saga Capital var
með mestu hlutdeildina, eða 39,9
prósent í mánuðinum. Næst á
eftir fylgdi Íslandsbanki með 22,1
prósents hlutdeild. - jab
Minni velta í
Kauphöllinni
MAGNÚS HARÐARSON Frídagar í kring-
um páskana valda því að viðskipti með
hlutabréf drógust saman á milli mánaða í
Kauphöllinni í apríl. MARKAÐURINN/GVA
Danir hagnast | Danske Bank,
stærsti banki Danmerkur, hagn-
aðist um 1,6 milljarða danskra
króna á fyrsta fjórðungi ársins.
Þetta jafngildir 36 milljörðum
króna. Þrátt fyrir þetta afskrif-
aði bankinn átta milljónir danskra
króna af lánasafni sínu.
Skammar bankamenn | Banda-
ríski öldungurinn Warren Buff-
ett sakaði bankamenn um græðgi
á ársfundi fjárfestingarfélagsins
Berkshire Hathaway um helgina.
Sakaði hann þá um að bera ábyrgð
á fjármálakreppunni, sem hefur
legið sem mara yfir efnahagslífi
heimsins í næstum tvö ár.
Viðkvæmir markaðir | Ben
Bernanke, seðlabankastjóri
Bandaríkjanna, sagði á fundi með
bandarískum öldungadeildarþing-
mönnum í gær líkur á að botni á
fjármálamörkuðum væri náð.
Þeir mættu hins vegar við miklu
og því mætti reikna með sveiflum
fram eftir ári.
Skoða Google-stjórann | Banda-
ríska fjármálaeftirlitið skoðar
nú aðkomu Erics Schmidt, for-
stjóra Google, að öðrum fyrir-
tækjum. Sérstaklega er í skoðun
seta hans í stjórn hátæknirisans
Apple. Hún er talin stangast á við
samkeppnislög.
Ferðaþjónustan
Lúxusferðir laða
að ferðamenn 2
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
„Við köllum á tímamótaákvörðun, stefnubreytingu
og nýtt vinnulag peningastefnunefndarinnar,“ segir
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, sem
sæti á í skuggabankastjórn Markaðarins.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnir
á morgun ákvörðun sína um stýrivexti, en skugga-
bankastjórnin mælist til að vextir verði nú lækk-
aðir um þrjú prósentustig, þannig að þeir verði á
eftir 12,5 prósent. Aukinheldur mælist skuggabanka-
stjórnin til þess að Seðlabankinn tilkynni þegar um
þá fyrirætlan sína að lækka vexti um önnur þrjú pró-
sentustig í byrjun júní þannig að þeir fari á þessu
fjögurra vikna tímabili niður í 9,5 prósent. Þannig
nálgist landið það raunstýrivaxtastig sem sé í öðrum
hávaxtaríkjum.
Fari peningastefnunefndin þá leið sem skugga-
bankastjórnin leggur til hverfur hún frá áður
yfirlýstu ferli „varfærinna“ lækkana. „Aðferðafræð-
in sem fylgt hefur verið um litlar breytingar og sjá
síðan til er einfaldlega ekki viðeigandi lengur, ef
ekki beinlínis hættuleg,“ segir Þórður.
Ingólfur Bender forstöðumaður Greiningar Ís-
landsbanka, segir aðra þætti en stýrivaxtastigið,
svo sem uppbyggingu efnahagslífsins, skipta meira
máli hvað varðar gengi krónunnar og Ólafur Ísleifs-
son, lektor við Háskólann í Reykjavík, segir löngu
tímabært að ákveða myndarlega lækkun stýrivaxta.
Hvarvetna í heiminum hafi seðlabankar beitt sér
gegn kreppunni með þeim hætti. Sjá síður 4 og 5
Tímamótaákvörðun
þarf um stýrivextina
Skuggabankastjórn Markaðarins segir smá skref í vaxta-
lækkunum kunna að vera hættuleg. Veglega lækkun þurfi.