Fréttablaðið - 06.05.2009, Síða 20

Fréttablaðið - 06.05.2009, Síða 20
MARKAÐURINN 6. MAÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR4 Ú T T E K T Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ætti að lækka stýrivexti bankans um þrjú prósentustig á vaxtaákvörðunardegi sínum á morgun, samkvæmt einróma áliti skugga- bankastjórnar Markaðarins. Aukinheldur ætti að tilkynna um fyrirhugaða þriggja prósentustiga vaxtalækkun til viðbótar þegar í júníbyrjun. Skuggabankastjórnin bendir á að hér á landi séu raunstýrivextir, það er stýrivext- ir að frádreginni verðbólgu, úr öllu sam- ræmi við það sem annars staðar gerist, jafnvel þó svo að horft sé til annarra há- vaxtalanda, þar sem þeir séu á bilinu tvö til fjögur prósent. „Hver segir að heimurinn ætlist til að við séum hér með þessa brjál- æðislegu vexti?“ spyr Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík. Þá veltir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar- innar, upp þeirri spurningu hvers konar land það sé sem þurfi að styðjast við raun- stýrivexti upp á 10 til 15 prósent og gjald- eyrishöft í ofanálag og hvaða skilaboð felist í því til umheimsins, um leið og hagkerfið sé allt í mikilli niðursveiflu. „Þetta er auð- vitað algjörlega fráleitt,“ segir hann. Gangi eftir tilmæli skuggabankastjórn- arinnar um lækkun stýrivaxta verða þeir 12,5 prósent eftir vaxtaákvörðun- ina á morgun og 9,5 prósent eftir lækk- un í júníbyrjun. Skuggabankastjórnin er á einu máli um að varkárnissjónarmið sem höfð hafi verið í hávegum í ákvörðunum peningastefnunefndar til þessa eigi ekki lengur við. „Miðað við þær aðstæður sem nú eru uppi tel ég ranga þá aðferðafræði sem not- ast hefur verið við, það er að taka lítil skref og sjá svo til, án þess að gefa til kynna hvert framhaldið verði,“ segir Þórður. „Vatnaskil eru tímabær og að segja fyrir fram að hverju skuli stefnt, en að sjálf- sögðu með þeim fyrirvara að þróun efna- hagsmála verði með þeim hætti sem ráð er fyrir gert.“ Ólafur og Ingólfur Bender, for- stöðumaður Greiningar Íslandsbanka, taka báðir undir með Þórði að mikilvægt sé að boða frekari miklar vaxtalækkanir. Ingólfur kveðst einnig telja að raunstýri- vextir eftir þá lækkun sem skuggabanka- stjórnin leggur til nægi vel til að styðja við gengi krónunnar. Jafnframt telur hann aðra þætti en vaxtastigið skipta meira máli í tengslum við styrkingu eða veikingu gjald- miðilsins. „Þar skiptir uppbyggingarstarfið meira máli, hvort okkur takist að byggja upp bankana að nýju og koma fram með trúverð- uga áætlun um hvernig við ætlum á næstu árum að borga niður skuldir okkar.“ Peningastefnunefndin verður að mati Ing- ólfs að taka mið af breyttum aðstæðum í ákvörðunum sínum. Hann minnir á að tek- ist sé á við banka- og gjaldeyriskreppu um leið og staðið sé frammi fyrir verulegum samdrætti í efnahagslífinu. „Hallgrímur kvað í heljarnauðum / heil- aga glóð í freðnar þjóðir,“ vitnar Ólafur í Matthías Jochumsson. Þórður segir skugga- bankastjórnina kalla á „tímamótaákvörðun, stefnubreytingu og nýtt vinnulag peninga- stefnunefndarinnar“. Fari svo að peningastefnunefndin haldi uppteknum hætti og feti áfram slóð smærri skrefa í vaxtalækkunum líkt og margir búast við, en spáð hefur verið 1,5 prósentu- stiga lækkun á morgun, segir Ingólfur ljóst að það sé ávísun á að efnahagslægðin verði dýpri en annars þyrfti að vera. Þórður segir áframhald á sömu stefnu kalla á sífellt meiri ógöngur. „Langöfl- ugasta einstaka hagstjórnartækið til að breyta þróun mála er veruleg og hröð vaxtalækkun.“ Ólafur bendir líka á að fyrirtæki landsins geti enda hvorki bætt við sig fólki né ráð- ist í framkvæmdir með þann vaxtakostnað sem þau þurfi að bera. Þá minnir hann á að Ísland sé til umræðu alls staðar í Evrópu sem dæmi um fórnarlamb fjármálakrepp- unnar. „Í þýskum sjónvarpsþáttum er lagt út af málum hér. Hvaða skilaboð viljum við senda um hvernig við tökum á kreppunni? Með hæstu raunstýrivexti sögunnar, frá Krists burði.“ Þá segir Ólafur einnig nauðsynlegt að leggja línurnar um hver verði framtíðar- skipan peningamála í landinu og undir það taka aðrir skuggabankastjórnarmenn. Þórð- ur leggur til að skuggabankastjórnin treysti á að jákvæð tíðindi verði í efnahagsmálum í þessari og næstu viku. „Jákvæð tíðindi vikunnar verði stórfelld vaxtalækkun og næstu viku að við sækjum um aðild að Evr- ópusambandinu og þar með hilli undir hvert við viljum stefna með frambúðarskipan gjaldeyris- og peningamála.“ Atburðarás sem þessa segist Ingólfur einnig telja mjög mikilvæga til að renna stoðum undir trú- verðugleika krónunnar og í raun forsendu þess að henni verði fleytt að nýju. Breyta þarf stefnu og vinnulagi í vaxtaákvörðunum Seðlabankans Á FUNDI SKUGGABANKASTJÓRNAR Skuggabankastjórn Markaðarins telur nauðsynlegt að sem allra fyrst verði mörkuð framtíðarstefna í peningamálum þjóðarinnar, enda auki öll óvissa á vandkvæði í uppbyggingarstarf- inu og ýti undir vantraust á íslenskri efnahagsstjórn. Peningastefnunefnd verði að leggja fram trúverðuga stefnu í vaxtamálum sem ýti undir traust og styðji við uppbyggingarstarf. MARKAÐURINN/GVA Skuggabankastjórn Markaðarins leggur til þriggja prósentustiga lækkun stýrivaxta á vaxtaákvörðunardegi Seðlabankans á morgun. Þörf er á breyttu vinnulagi og nýrri stefnu hjá peningastefnunefnd þannig að auka megi tiltrú á efnahagsstjórn landsins. Óli Kristján Ármannsson settist niður með skuggabankastjórninni, sem segir enga skynsemi í að halda hér hæsta raunstýrivaxtastigi sem þekkst hafi á byggðu bóli, jafnvel allt frá Krists burði. Fund skuggabankastjórnar Markaðarins sátu að þessu sinni Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka, Ólafur Ísleifsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, og Þórður Friðjónsson, forstjóri Nasdaq OMX Iceland kauphallarinnar. S K U G G A B A N K A S T J Ó R N I N

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.