Fréttablaðið - 06.05.2009, Page 28
6. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR8
Til sölu fasteignir þrotabúa
Atvinna
Tækni- og umhverfissvið
S E LT J A R N A R N E S B Æ R
A
ug
l.
Þó
rh
.
22
00
.4
54
Forstöðumaður
Framkvæmda- og þjónustumiðstöðvar á tækni- og umhverfissviði
óskast til starfa hjá Seltjarnarnesbæ
Á tækni- og umhverfissviði Seltjarnarnesbæjar
er laus til umsóknar staða forstöðumanns
Framkvæmda- og þjónustumiðstöðvar.
Undir tækni- og umhverfissvið falla m.a. eftirtalin verkefni:
Skipulags- og byggingamál, rekstur veitna, Fram-
kvæmda- og þjónustumiðstöðvar og garðyrkju-
deildar, verksamningagerð og samskipti við
hönnuði og verktaka, eftirlit með framkvæmdum,
umsjón með útboðum og úttektir á skilum fram-
kvæmda.
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri tækni- og
umhverfissviðs.
Leitað er að drífandi einstaklingi sem hefur metnað til að
taka þátt í frekari uppbyggingu sviðsins.
Starfssvið og ábyrgð
Hlutverk forstöðumanns er m.a. eftirfarandi:
• Rekstur og umsjón Framkvæmda- og
þjónustumiðstöðvar
• Samskipti og upplýsingagjöf við yfirmenn
sviða, deilda og stofnana
• Umsjón með verkferla- og verkbeiðnakerfi
Menntunar- og hæfniskröfur
• Iðnmenntun, meistararéttindi í iðngrein sem
fellur að starfssviði Framkvæmda- og þjónustu-
miðstöðvar
• Menntun í iðnfræði
• Reynsla og þekking á verkferla- og verkbeiðna-
kerfum
• Reynsla af rekstri og stjórnun
• Þekking í stefnumótunarvinnu og opinberri
stjórnsýslu er kostur
• Góð tölvu- og tungumálakunnátta
• Hæfni til þess að koma fram og tjá sig í
töluðu og rituðu máli
• Frumkvæði, metnaður og framsýni í starfi
Um er að ræða tækifæri til að takast á við tækni-
og framkvæmdamál í framsæknu bæjarfélagi þar
sem við taka krefjandi verkefni frá fyrsta degi.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Melsted, fram-
kvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs Seltjarnar-
nesbæjar, sími 8998907, olafur@seltjarnarnes.is.
Kjör eru samkvæmt viðeigandi kjarasamningi.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru konur
jafnt sem karlar hvattar til að sækja um stöðuna.
Umsókn sendist á: Bæjarskrifstofur Seltjarnarness,
Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnes, merkt: Forstöðu-
maður Framkvæmda- og þjónustumiðstöðvar fyrir 18. maí
2009, eða með netpósti á olafur@seltjarnarnes.is
fyrir sama tíma. Í umsókn skal greina frá menntun,
fyrri störfum og helstu verkefnum sem umsækjandi
hefur tekist á við á undanförnum árum og sem
hann telur að koma muni að gagni í þessu starfi.
Gætt verður fyllsta trúnaðar varðandi fyrirspurnir og persónulegar upplýsingar og
verður öllum umsóknum svarað.
Tilkynningar
Útboð
HEIMILI