Fréttablaðið - 06.05.2009, Síða 36
20 6. maí 2009 MIÐVIKUDAGUR
Söngvarinn Yusuf Islam, sem áður hét
Cat Stevens eða Högni Stefáns upp á
íslensku, segir að hljómsveitin Coldplay
hafi stolið lagi sínu Foreigner Suite og
notað í hið vinsæla Viva La Vida. Ekki
er langt síðan gítarleikarinn Joe Sat-
riani sakaði Coldplay um lagastuld
í tengslum við sama lag. „Það hefur
verið talað um að Coldplay hafi
stolið melódíu af Joe Satriani,“
sagði Islam. „En ef þið hlustið
þá er þetta mitt lag.“ Þrátt fyrir
þetta er óvíst hvort hann ætlar
að höfða mál gegn sveitinni. Árið
2003 samþykkti hljómsveitin The
Flaming Lips að skipta höfundar-
launum af laginu Fight Test með
Islam eftir að það var talið of líkt
lagi hans Father and Son.
folk@frettabladid.is
> ÓSMEKKLEG KATY PERRY
Söngkonan Katy Perry gerir grín
að svínaflensunni á bloggsíðu
sinni. „Þar sem svínaflensan er
mikið í tísku vildi ég vera viss um
að vera með á nótunum með
svínaflensuhringinn minn!“ skrif-
ar hún og virðist ekki átta sig á al-
varleika málsins. Katy sýnir
mynd af hring sínum og
telur þetta allt vera hið
fyndnasta mál. Hundr-
uð manna hafa látist úr
svínaflensunni.
Högni hjólar í Coldplay
Vilhjálmur og Harry Bretaprins-
ar hafa gengið til liðs við föður
sinn Karl í baráttunni gegn eyð-
ingu regnskóganna. Í níutíu
sekúndna myndbandi sem var
frumsýnt á netinu koma prins-
arnir fram ásamt tölvugerðum
froski og stjörnunum Harrison
Ford, Daniel Craig, Robin Willi-
ams, Dalai Lama, Pele og Joss
Stone.
Karl Bretaprins hefur
stutt umhverfisvernd í
fjölda ára og í þessari
nýjustu herferð, sem
hefur staðið yfir und-
anfarna mánuði, hefur
hann vakið athygli á
eyðingu regnskóga víðs vegar um heim-
inn. Með því að sýna myndbandið á net-
inu vildi hann ná til stærri hóps fólks
en áður í von um að fá sem flesta í lið
með sér.
„Markmið okkar, með ykkar hjálp,
er að stofna netsamfélag sem berst
fyrir verndun regnskóganna. Án þeirra
munum við tapa baráttunni við þær
stórhættulegu loftslagsbreytingar
sem steðja að okkur,“ segir
Karl á síðunni. „Með því að
nýta okkur styrk netsins
geta mismunandi sam-
félög sameinast um að
koma skoðunum sínum
á framfæri á einum og
sama staðnum.“
Prinsarnir vernda regnskóga
CHRIS MARTIN Meðlimir
Coldplay aftur sakaðir
um lagastund.
YUSUF ISLAM
Islam hefur
sakað Coldplay
um að hafa
stolið lagi sínu
Foreigner Suite.
DANIEL CRAIG Craig,
betur þekktur sem James
Bond, kemur fram í
myndbandinu.
VILHJÁLMUR Vilhjálmur
Bretaprins og bróðir
hans Harry vilja bjarga
regnskógunum.
Kvikmyndastjörnur eru
frægar fyrir að láta ýmis-
legt gossa í samtölum
sínum við fjölmiðla. Nú er
Nicole Kidman hins vegar
nóg boðið og sakar breskt
tímarit um skáldskap.
Óhætt er að segja að hárin hafi
risið á slúðurblaðamönnum í
Bandaríkjunum þegar þeir lásu
nýtt viðtal við Nicole Kidman í
breska blaðinu Easy Living, því
þar mátti sjá sjaldséða árás henn-
ar á fyrrum eiginmanninn Tom
Cruise. Samkvæmt Easy Living-
viðtalinu vildi Kidman meina að
hún hefði einungis verið upp á punt
fyrir ofurstjörnuna smávöxnu.
„Við fórum saman á Óskarsverð-
launin og ég hugsaði alltaf að ég
væri þarna til að styðja við bakið
á honum. Mitt starf var að finna
fallegan kjól, láta sjá mig en ekki
segja orð,“ er haft eftir Kidman í
viðtalinu.
Þetta brýtur óneitanlega í bága
við það „heiðurssamkomulag“
sem ríkt hefur á milli Kidman og
Cruise síðan þau skildu árið 2001
eftir ellefu ára hjónaband. Þau
hafa nefnilega ætíð talað fallega
um hvort annað þegar sambandið
ber á annað borð á góma í viðtölum.
Og þess var heldur ekki
langt að bíða þar til
fjölmiðlafulltrúi
Kidman birtist
í fjölmiðlum til að leiðrétta þenn-
an misskilning. „Viðtalið er mán-
aðargamalt og orð Kidman voru
tekin úr samhengi,“ sagði Cath-
erine Olan við vefsíðuna TheCe-
lebrityTruth.com. Olan bætti því
við að Kidman hefði aldrei farið
í viðtal við blað með þessu nafni
og því væru orð hennar hálfgerð-
ur skáldskapur. Þetta er
nokkuð skondið þar sem
Olan var í setningunni á
undan búin að viðurkenna
að umrætt viðtal væri
mánaðargamalt.
Eins og almenningur ætti
að vita er Kidman nú gift
kántrýhetjunni Keith
Urban en Tom Cruise
er að sjálfsögðu gift-
ur leikkonunni Katie
Holmes.
KIDMAN BÁLREIÐ
EKKI SATT Fjölmiðlafulltrúi Nicole
Kidman gaf frá sér misvísandi yfirlýsingu
þar sem viðtal við Nicole Kidman var
sagt mánaðargamalt en á öðrum stað
var það sagt vera skáldskapurinn einn.
NORDOCPHOTOS/GETTY
BARA UPP Á PUNT Nicole
sagði í viðtalinu að hún
hefði bara verið upp á punt í
hjónabandi sínu og Cruise.
Upplýsinga-
og samskiptatækni
Styrkir til rannsókna í 7. Rannsóknaáætlun ESB
Markmið áætlunarinnar er að bæta samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs og að skapa
ramma um framtíðarþróun upplýsinga- og samskiptatækni til að mæta þörfum þjóðfélagsins
og hagkerfisins. Upplýsinga- og samskiptatækni er kjarni þekkingarþjóðfélagsins og með
starfi og styrkjum áætlunarinnar verður rennt styrkari stoðum undir vísinda- og tæknigrunn
Evrópu og tryggt verði að hún verði í forystu á þessu sviði.
Dagskrá:
Upplýsinga- og samskiptatækni í 7. Rannsóknaáætlun ESB
Oluf Nielsen, fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB.
Reynsla af þátttöku í verkefni á vegum áætlunarinnar
Kristinn R. Þórisson, Háskólanum í Reykjavík
Aðstoð í boði fyrir væntanlega umsækjendur
Aðalheiður Jónsdóttir, alþjóðasviði Rannís
Fyrirspurnir
Fundarstjóri
Sigurður Björnsson, Rannís
Fundargestum verður boðið upp á léttan morgunverð.
Vinsamlegast sendið tilkynningu um þátttöku á netfangið rannis@rannis.is
Boðið verður upp á stutta einstaklingsfundi með Oluf Nielsen eftir hádegi.
Áhugasamir geta pantað tíma hjá Rannís í síma 515 5800, eða á rannis@rannis.is.
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
2007-2013Kynningarfundur á vegum Rannísföstudaginn 8. maí
Grand Hótel Reykjavík 9:00-11:00
2009
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16
Leiðsögn fyrir hópa. Netfang: gerduberg@reykjavik.is s. 575 7700
Gerðubergi 3-5 ı 111 Reykjavík ı Sími 575 7700 ı www.gerduberg.is
Vissir þú...
að í Gerðubergi er frábær aðstaða fyrir ráðstefnur,
fundi, námskeið og veislur. Salir og fundarherbergi
fyrir 8-120 manns. Fjölbreyttur tækjabúnaður er til staðar
Kynnið ykkur þjónustuna á gerduberg.is og galleryfiskur.is
Miðvikudaginn 6. maí kl. 20
Verið velkomin á Handverkskaffi í Gerðubergi
Bókverk - Bækur sem listaverk
Umsjón: Sigurborg Stefánsdóttir, myndlistarkona
6. og 8. maí kl. 20
Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing á miðvikudagskvöld og
síðasti félagsfundur vetrarins á föstudagskvöld
Allir velkomnir
Viltu vera vinur Gerðubergs? Kíktu á www.facebook.com!
EFRI HÆÐ: Heyrðist eins og harpan væri að gráta
NEÐRI HÆÐ: Myrkur sannleikur - Kolanámumenn í KínaSýningar: