Fréttablaðið - 14.05.2009, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
SVEITARSTJÓRNARMÁL „Það er því
ekki nokkur einasta undankomu-
leið frá því að ræða allar möguleg-
ar lausnir, þó það sé viðkvæmt. Hér
er nefnilega um að tefla atvinnu-
öryggi fjölda manns,“ segir Hall-
dór Halldórsson, formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga
(SÍS). Hann telur fjárhagserfiðleika
sveitarfélaganna meiri en áætlanir
gerðu ráð fyrir í upphafi árs.
Skuldir sveitarfélaganna voru
um 240 milljarðar króna í árslok
2008 og höfðu þá aukist um rúm-
lega 40 milljarða á einu ári. Er þá
um langtíma- og skammtímaskuld-
ir að ræða, lífeyrisskuldbindingar
og skuldbindingar vegna einka-
framkvæmda.
Af þessum skuldum eru allt að 50
milljarðar í erlendri mynt, sem er
gott sem að sliga mörg sveitarfélög.
Hversu slæm staðan raunverulega
er er mönnum ekki að fullu ljóst að
mati SÍS. Þetta kom fram á sam-
ráðsfundi sambandsins í gær.
Gunnlaugur Júlíusson, sviðs-
stjóri hag- og upplýsingasviðs
SÍS, segir að því verði ekki neitað
að staða sveitarfélaganna sé graf-
alvarleg. „Ég held að niðurstaða
fundarins hafi verið að skipta verð-
ur um gír. Það er enginn að tala
lengur um skammtímalausnir. Það
sem sveitarfélögin standa frammi
fyrir í stuttu máli eru minnkandi
tekjur, gríðarlega háar skuldir og
aukin útgjaldaþörf. Útgjaldaþörfin
kemur ekki síst til vegna atvinnu-
leysis sem birtist í hærri bótum,
aukinni þörf á félagslegri þjón-
ustu og fjárhagsaðstoð við hina
verst settu.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri sagði að um leið og
samstarf íbúa og sveitarfélaga
væri lífsnauðsynlegt kæmi annað
og meira til.
„Við verðum að breyta hefð-
bundnum reglum í stjórnmálum
og hætta þessum innbyrðis átök-
um. Það eru ekki hefðbundnir
tímar í íslensku samfélagi og ef
við svörum ekki kallinu þá höldum
við áfram á sömu braut, þyngjum
skuldabaggann og rífum frá kom-
andi kynslóðum þá grunnþjónustu
sem þau verða og eiga að fá.“
- shá / sjá síðu 6
34%
74%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Fréttablaðið er með 117%
meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft...
FIMMTUDAGUR
14. maí 2009 — 114. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
JÓHANNA SVALA RAFNSDÓTTIR
Á ekki í vanda með að
velja föt á morgnana
• tíska
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Þessi kjóll er úr Selekzion-línunni frá Nikita. Hún er meira stíluð inn á eldri kúnnahóp en Nikita hefur verið þekkt fyrir, að minnsta kosti hér á landi,“ segir Jóhanna Svala Rafnsdóttir, sem starfar sem graf-ískur hönnuður hjá Nikita. „Fötin í þessari línu eru fínni og pæju-legri en aðrar flíkur frá Nikita. Mér finnst þessi kjóll sérstaklega skemmtilegur að því leyti að það er hægt að breyta honum svolítið, hafa hálsmálið ýmist þröngt eða vítt. Hann virkar bæði sem fíkjóll en lík
á landi. Það sem helst fæst hér eru brettaföt og götuföt, eins og víðar buxur, bolir og hettupeysur. Margir hafa saknað þess að geta ekki keypt alla línuna hér, enda fyrirtækið alíslenskt. Nú stendur til að bregðast við þessu en opna á vefverslun á næstu misserum. Þangað til geta forvitnir kíkt á heimasíðu fyrirtækisins, www.nikitaclothing.com, og skoðað það sem í boði er. Jóhanna er hl i
Taívan og svo send til Íslands sem sýnishorn. „Við göngum í fötunum sjálf, til að prófa sniðin og finna hvort flíkurnar séu ekki örugg-lega að virka sem skyldi. Það er stöðug vöruþróun í gangi.“Hún þarf því sjaldan að eiga við það hversdagslega vandamál sem flestir þekkja, að eiga ekkert til að fara í á morgnana. „Þetta eralveg ágætis bónus sk l éþé
Elskar afslappaða tísku
Jóhanna Svala Rafnsdóttir deilir ekki því vandamáli margra að vita ekkert í hvað hún á að fara á morgn-
ana. Skemmtilegur fylgifiskur vinnu hennar hjá Nikita er nefnilega að prófa splunkunýjar flíkur.
Jóhanna Svala Rafnsdóttir í sumarlegum kjól frá Nikita þar sem hún starfar sem grafískur hönnuður.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MICHELLE OBAMA þykir hafa puttann á tískupúlsinum. Hvíti kjóllinn eftir Jason Wu, sem
hún klæddist við hátíðardansleik eftir innsetningu manns síns í forsetaembættið, hefur orðið til þess að
auka mjög vinsældir kjóla með einum hlýra.
www.eirberg.is • 569 3100Stórhöfða 25
Ný sending af sundfatnaði
komin
JARÐSKJÁLFTI Enn á eftir að bæta
um eitt þúsund hús eftir Suður-
landsskjálftann sem varð í fyrra.
Alls hefur verið tilkynnt um tjón á
um 3.600 húsum og er búið að bæta
2.665 þeirra.
Ásgeir Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Viðlagatryggingar
Íslands, segir verkefnið gríðar-
lega umfangsmikið. Um fjörutíu
til fimmtíu manns hafi verið í því
að meta hús frá skjálftanum sem
varð 29. maí í fyrra.
„Við erum ekki að biðja um
mikið, aðeins að húsið verði gert
íbúðarhæft á ný,“ segir Frið-
geir Jónsson á Selfossi. Hús hans
skemmdist mikið í Suðurlands-
skjálftanum í fyrra, en hann hefur
ekki fengið úrlausn sinna mála.
Ekki liggur enn fyrir kostnaðar-
mat á viðgerðum.
Við rannsókn kom í ljós að jarð-
vegurinn undir húsinu hefur sigið
umtalsvert, sautján sentimetra
þar sem mest er. Friðgeir segir að
fyrsta mat hafi verið viðunandi en
eftir að fleiri verkfræðingar skoð-
uðu húsið hafi það lækkað um tíu
milljónir. „Nú vilja þeir bora holur í
gólfplötuna, eina á hvern fermetra,
og dæla steypu undir húsið. Það
þýðir 170 holur,“ segir Friðgeir.
Þar sem húsið hvílir ekki á rétt-
um undirstöðum er allur burður
úr lagi genginn og sést víða hvern-
ig veggirnir hafa skekkst. Sólhýsi,
sem hvílir á palli fyrir aftan hús,
er að brotna frá húsinu og er stór
sprunga á samskeytunum. Frið-
geir segir málið hafa dregist fram
úr hófi.
„Við leggjum áherslu á að þetta
klárist með hraði. Við þurfum að
eiga við eldri mál, nýjar tilkynn-
ingar og svokölluð viðbótartjón,
en þá hafa meiri skemmdir komið
í ljós. Sú vinna mun líklega halda
áfram næstu árin en við vonumst
til að klára þessi 1.000 hús sem
út af standa á næstu mánuðum,“
segir Ásgeir. Hann reiknar með
að heildarkostnaður við verkefnið
verði um 7,6 milljarðar, „jafnist á
við eins og ein jarðgöng“. Reikna
megi með að matskostnaður sé um
tíu prósent af tjónakostnaði. - kóp
Um þúsund skjálfta-
hús eru enn óbætt
Eigendur um eitt þúsund húsa sem skemmdust í Suðurlandsskjálftanum hafa
ekki fengið bætur. Kvartað er yfir hægagangi. Vinnum eins hratt og við getum,
segir framkvæmdastjóri Viðlagatryggingar. Kostnaðurinn er á við ein jarðgöng.
Stór áfangi
Fyrsti árgangur
Listaháskóla
Íslands útskrifast
með BA-gráðu í
dansi.
TÍMAMÓT 26
Opið til 19
Nýtt kortatímabil
LEIKLIST „Ég leik Skrögg, draugana
og allt. Þarf að gera allt sjálfur,“
segir leikarinn Laddi sem í gær
skrifaði undir samning þess efnis
að fara með söguna, Jólaævintýri
eftir Charles Dickens.
Bjarni Haukur Þórsson leikhús-
stjóri segir ætlunina að sýna verk-
ið aðeins í desember. Taka svo upp
þráðinn að ári. - jbg / sjá síðu 46
Jólaævintýri ár hvert:
Laddi verður
Skröggur
Grætur
Dr. Jón
Fyrirmyndin að
eineygða kisa
Hugleiks allur.
FÓLK 38
DAVÍÐ ÞÓR JÓNSSON
Skrifar handrit að
sjónvarpsseríu
Radíusbróðir og Tvíhöfði grafa stríðsöxina
FÓLK 37
frístundir og námskeið
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009
Bréf frá Nígeríu
„Smám saman veiktist naíran
vegna óstjórnar í Nígeríu. Ríkisút-
gjöld fóru langt fram úr skatttekj-
um þrátt fyrir miklar útflutnings-
tekjur af olíu eftir 1970“, skrifar
Þorvaldur Gylfason.
Í DAG 22
FRÍSTUNDIR OG NÁMSKEIÐ
Tæknilegó, tarotspil,
hestar og svifdrekaflug
Sérblað um frístundir og námskeið
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
14
18
14
1214
20
16
16
SUMAR OG SÓL Í dag verða
suðaustan 5-13 m/s, hvassast
með ströndum suðvestan til.
Hálfskýjað eða léttskýjað víða um
land. Hiti 12-20 stig, hlýjast um
Mið-Norðurland.
VEÐUR 4
VORVERKIN Verið var að sinna vorverkunum, háþrýstiþvo skip, við Grandagarð í
Reykjavík í gær þegar ljósmyndari Fréttablaðsins átti leið hjá. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Staða sveitarfélaganna alvarlegri en talið var:
Sveitarfélög skulda
240 milljarða króna
Það
sem
sveitarfélög-
in standa
frammi fyrir
í stuttu máli
eru minnk-
andi tekjur,
gríðarlega háar skuldir og aukin
útgjaldaþörf.
GUNNLAUGUR JÚLÍUSSON
SVIÐSSTJÓRI HAG- OG UPPLÝSINGASVIÐS
SAMBANDS ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA.
Blikaliðin með
fullt hús
Breiðablik er á toppn-
um í Pepsi-deild
karla og kvenna
eftir leiki gær-
kvöldsins.
ÍÞRÓTTIR 42