Fréttablaðið - 14.05.2009, Page 2
2 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR
Óskar, eruð þið farin að tala
eintómt hrognamál?
„Já, og borðum hrogn í hvert mál.“
Metveiði hefur verið á grásleppuvertíð-
inni hjá bátunum á Drangsnesi. Óskar
Torfason er framkvæmdastjóri Drangs.
BRETLAND, AP Breskir stjórnmála-
menn keppast þessa dagana við að
biðjast afsökunar, krefjast rann-
sókna og skrifa ávísanir til að
borga til baka til ríkissjóðs það
sem þeir tóku úr honum til að
greiða fyrir margvísleg útgjöld í
heimilisrekstri sínum.
Almenningsálitið er þeim engan
veginn hliðhollt eftir að dagblaðið
Daily Telegraph ljóstraði upp um
athæfið í byrjun vikunnar. Dæmi
voru um þingmenn sem notfærðu
sér útgjaldaheimildir sínar til að
kaupa mat og heimilistæki, jafnvel
til að láta gera sundlaug í garðin-
um heima hjá sér.
Gordon Brown forsætisráðherra
segir nú þurfa að grípa til róttækra
aðgerða til að endurheimta traust
almennings á stjórnmálamönn-
um. Gera þurfi miklar breytingar
á útgjaldaheimildum þingmanna,
þannig að þeir notfæri sér þær ein-
ungis í þágu embættisins.
„Ég vona að yfirgnæfandi meiri-
hluti þingmanna, og reyndar þeir
allir, geti sýnt fram á að þeir séu
í stjórnmálum í þágu almenn-
ings, en ekki í eigin þágu,“ sagði
Brown.
David Cameron, leiðtogi Íhalds-
flokksins, hótaði því að reka þing-
menn úr flokknum ef þeir endur-
greiddu ekki útgjöld af þessu tagi.
Breskir þingmenn hafa lengi
neitað að gefa upp sundurliðun
útgjalda sinna, en neyðast nú til
þess samkvæmt nýlegum dómsúr-
skurði. Um tvær milljónir útgjalda-
kvittana verða birtar í júlí, sam-
kvæmt þessum úrskurði, en Daily
Telegraph sagðist í síðustu viku
hafa komist yfir þær upplýsingar
og hefur verið að birta þær smátt
og smátt. - gb
Almenningur í Bretlandi er stórhneykslaður á stjórnmálamönnum sínum:
Þingmenn iðrast útgjalda
Jagland til forystu?
Thorbjörn Jagland, forseti norska Stór-
þingsins, og Wlodzimierz Cimoszewicz,
fyrrverandi forsætisráðherra Póllands,
eru þeir tveir frambjóðendur sem
kosið verður á milli þegar ráðherraráð
Evrópuráðsins velur hinn 23. júní
nýjan framkvæmdastjóra samtakanna,
sem 47 ríki eiga aðild að.
EVRÓPURÁÐIÐ
MENNTUN „Ég er alveg upprifin
eftir þessa frábæru útiveru.
Krakkarnir eru svo áhugasamir
um þetta og stemningin sem
myndast er æðisleg,“ segir Sess-
elja Traustadóttir, kennari í
Álftamýrarskóla og varaformað-
ur Landssamtaka hjólreiðamanna
og Íslenska fjallahjólaklúbbsins.
Sesselja, ásamt samkennurum
sínum, stendur þessa dagana
fyrir námskeiði í hjólafærni fyrir
nemendur í 4. og 5. bekk skólans.
Námskeiðið miðar að því að
auka öryggi hjólreiðamanna í
umferðinni.
Að sögn Sesselju taka um 75
prósent nemenda í viðkomandi
bekkjum þátt í námskeiðinu. - kg
Hjólafærni í Álftamýrarskóla:
Miðar að því að
auka öryggi
HJÓLAFÆRNI Nemendur í Álftamýrar-
skóla skemmtu sér hið besta á nám-
skeiðinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GORDON BROWN Forsætisráðherra
Bretlands reynir að endurvekja traust
almennings til þingmanna.
NORDICPHOTOS/AFP
STANGVEIÐI Netaveiði á laxi í Hvítá
þrefaldaðist frá 2006 til 2008 þrátt
fyrir mikil uppkaup stangveiði-
manna á netveiðiréttindum í Ölf-
usá og Hvítá. Stangveiðimenn eru
æfir vegna þessara upplýsinga
sem komu fram á ársfundi Veiði-
málastofnunar.
Stangaveiðifélag Reykjavík-
ur hefur verið umsvifamikið í
uppkaupum á netalögnum og
hefur sett strangar reglur um að
sleppa veiddum löxum í Sogi og
Stóru-Laxá. „Því voru það miður
skemmtilegar tölur sem birtust í
skýrslum Veiðimálastofnunar, því
netaveiðimenn sem enn stunda lax-
veiði í Hvítá sáu sér leik á borði og
juku við veiði sína svo um munar.
Virðist þetta vera gert á kostnað
verndunaraðgerða og fiskræktar á
svæðinu,“ segir á vef stangaveiði-
félagsins.
Samkvæmt tölum Veiðimála-
stofnunar veiddust 987 laxar í
Hvítárnetin sumarið 2006. Það ár
hófu stangveiðimenn uppkaup net-
lagnanna. Sumarið 2007 veiddust
1.983 laxar í netin og í fyrrasumar
veiddust 3.120 laxar. „Þetta gerist
þrátt fyrir að færri net séu niðri
og stórir aðilar hættir að leggja
eftir samninga við SVFR,“ segir
á svfr.is. „Þeir sem ekki gengu til
samninga við SVFR virðast því
hafa bætt í sínar veiðar svo vægt
sé til orða tekið.“
Stangveiðimenn vilja að settur
verði kvóti á þá bændur sem enn
leggja netin. „Ljóst er að viðkom-
andi aðilar munu ekki minnka við
sínar veiðar að sjálfsdáðum, og
virðast bera litla virðingu fyrir
þeim kostnaði og fyrirhöfn sem
aðrir eru að leggja af mörkum í
þeirri baráttu að viðhalda laxa-
stofnum Árnessýslu – ekki síst
stofnum stórlaxa sem svæðið er
þekkt fyrir,“ segir á svfr.is.
Á vefnum votnogveidi.is er farið
afar harkalegum orðum um neta-
veiðimenn í vatnasvæði Ölfusár
og Hvítár. Það sé þó einnig hneisa
að leigjendur veiðiréttar standi
ekki saman og njóti ekki stuðn-
ings sveitarfélaganna á svæðinu.
„Vitleysan sem viðgengst á þess-
um slóðum leiðir hugann að því
hvort að Stangaveiðifélag Reykja-
víkur eigi ekki að hætta þessum
þreifingum alfarið og koma sér út
úr héraðinu og leyfa þessum neta-
kóngum að eyðileggja svæðið. Það
er flestum slétt sama um það hvort
eð er,“ segir á votnogveidi.is.
gar@frettabladid.is
Stangveiðimenn æfir
yfir netaveiði í Hvítá
Laxveiði í net þrefaldaðist í Ölfusá og Hvítá frá því að stangveiðimenn hófu þar
uppkaup netlagna árið 2006 og til ársins í fyrra. Stangaveiðifélag Reykjavíkur
segir veitt á kostnað fiskræktar. Félagið er hvatt til að yfirgefa hreinlega svæðið.
STJÓRNMÁL Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir var í gær kjör-
in formaður þingflokks Vinstri
grænna. Álf-
heiður Ingadótt-
ir verður áfram
varaformað-
ur þingflokks-
ins en Björn
Valur Gísla-
son tekur við af
Atla Gíslasyni
sem ritari þing-
flokksins.
Jón Bjarna-
son sem nú er
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra var áður formaður þing-
flokks Vinstri grænna.
Guðfríður Lilja náði í síð-
ustu kosningum kjöri sem fyrsti
þingmaður VG í Suðvesturkjör-
dæmi og Björn Valur Gíslason
sem þriðji þingmaður flokksins á
Norðausturlandi. - gar
Vinstri græn á Alþingi:
Guðfríður Lilja
valin formaður
þingflokksins
GUÐFRÍÐUR LILJA
GRÉTARSDÓTTIR
LÖGREGLUMÁL Hæstiréttur felldi
í gær úr gildi gæsluvarðhalds-
úrskurð héraðsdóms yfir manni
sem grunaður er um að hafa
nauðgað stúlku í bíl við Tryggva-
götu fyrr í mánuðinum. Stúlkan
sakar manninn og bróður hans
um að hafa nauðgað sér en hér-
aðsdómur hafði úrskurðað mann-
inn í gæsluvarðhald til 5.júní
næstkomandi.
Hæstiréttur var ekki sam-
mála úrskurði héraðsdóms og
taldi ekki tilefni til þess að halda
manninum á grundvelli rann-
sóknarhagsmuna. Báðir mennirn-
ir hafa því verið látnir lausir.
Hæstiréttur úrskurðar:
Meintur nauð-
gari laus úr
gæsluvarðhaldiBindisskyldan afnumin
Þingmenn þurfa framvegis ekki að
vera með bindi eða slifsi í ræðustól
á Alþingi. Þetta var kynnt á þingi í
gær en þar sátu nýir alþingismenn og
kynntu sér starfsemi, siði og reglur.
ALÞINGI
LAXVEIÐI Stangveiðimenn vilja frekar að lax sé veiddur á stöng en í net. Netaveiði á
laxi hefur þrefaldast frá árinu 2006 til 2008 þrátt fyrir uppkaup á netaveiðiréttindum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VINNUMARKAÐUR „Þeir eru að fara frá borði
og fara út í sátt. Ég borgaði það sem um var
rætt,“ segir Sæmundur Árelíusson, útgerðar-
maður á Óskari RE-157.
Sæmundur hefur síðustu vikur deilt við
sjö pólska sjómenn, sem hafa starfað og búið
á skipi hans í allt að þrjú ár. Þeir neituðu að
sigla fyrir hann nema þeir fengju launin sín
fyrst, fyrr færu þeir ekki af bátnum. Þeir
sögðu hann skulda þeim töluvert fé.
Sæmundur vill ekki svara því hvort hann
hafi gert upp að fullu við mennina. „Ég ætla
ekki að svara því hvernig það er og þetta mál
er ekki á þinni könnu lengur. Þeir eru allir
ánægðir.“
Í kjölfar fréttaflutnings af verkfalli sjó-
mannanna hafa nokkrir lesendur haft sam-
band við blaðið til að kvarta undan útgerð
Sæmundar. Hann hafi í gegnum árin svikið
fjölmarga um laun.
„Mér þætti gaman að tala við þá ef þú
gæfir mér það upp hverjir það eru. [...] Ég
er ekki neinn kennitöluflakkari. Ég hef ekki
svikið nokkurn mann, mér vitanlega,“ segir
Sæmundur.
Ekki náðist í enskumælandi skipverja á
Óskari í gær, en Jónas Þór Jónasson, lög-
maður þeirra, staðfestir að Sæmundur hafi
heitið því að borga tveggja vikna laun og flug
fyrir þrjá mannanna til Póllands. Einnig hafi
hann lofað að bjarga þeim um húsnæði fram á
föstudag.
Spurður um feril Sæmundar segist hann
vita til að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem
hann lendi í vandræðum með að standa í
skilum með útistandandi skuldir. - kóþ
Sæmundur Árelíusson mun hafa samið við áhöfnina á Óskari RE-157 í gær:
Sjómennirnir fái greidd tveggja vikna laun
ÁHÖFNIN Þrír mannanna fá greitt flug heim til sín, en
fjórir þeirra ætla að vera á Íslandi. MYND/VÍKURFRÉTTIR
SPURNING DAGSINS