Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.05.2009, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 14.05.2009, Qupperneq 4
4 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR www.ob.is26 stöðvar um land allt. -5kr. VIÐ FYRST U NOTKUN Á ÓB-LYKL INUM OG SÍÐAN ALLTAF -2K R. TB W A \R EY K JA VÍ K \ SÍ A Sæktu um ÓB-lykilinn á www.ob.is eða í síma 515 1141. ÓB-lykilhafar geta safnað Vildarpunktum Icelandair. VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 24° 19° 23° 18° 16° 20° 18° 24° 14° 15° 23° 18° 20° 31° 12° 22° 26° 11° 14 18 18 12 14 10 12 8 14 16 10 16 20 5 5 6 8 5 6 9 16 7 7 8 16 16 17 Á MORGUN 3-10 m/s, stífastur syðst. LAUGARDAGUR Hæg breytileg átt. 14 16 12 1214 18 14 12 1214 EKKERT LÁT Á HLÝINDUM Dag eftir dag eru tveggja stafa hitatölur víðast hvar á landinu og fyrir norðan hefur hámarkshitinn verið á bilinu 16-19 stig þessa vikuna. Nú er að lægja vestanlands og hlýja loftið heldur að mjakast til vesturs. Það þýðir að búast megi við 15-20 stiga hita víða til landsins í dag og jafnvel næstu daga en svalast verður reyndar suðaustan og austan til. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur STJÓRNMÁL „Meirihluti umhverfis- og samgönguráðs harmar tilefnis- lausar ásakanir og fullyrðingar áheyrnarfull- trúa ráðsins í garð meirihlut- ans og einstaka kjörins borgar- fulltrúa,“ segir í bókun sem lögð var fram á fundi ráðs- ins á þriðjudag í tilefni bók- unar Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa um vinnubrögð vegna fyrirhugaðrar hesthúsabyggðar í Víðidal. Ólafur kvartaði undan því að fá ekki að hitta fagaðila og fræðast af þeim um þá hættu, sem gæti stafað af hesthúsabyggðinni. „Þetta graf- alvarlega mál ber vott um pólit- íska fyrirgreiðslustarfsemi og fullkomið skeytingarleysi gagn- vart almannahagsmunum og náttúruvernd,“ bókaði Ólafur. - gar Enn deilt um hesthúsabyggð: Ásakanir Ólafs harmaðar ÓLAFUR F. MAGNSSON UTANRÍKISMÁL Hverju búast má við af aðild að Evrópusamband- inu, hrun írska „efnahagsundurs- ins“ og áhrif fasteignalánakerf- is Bandaríkjanna á smáríki er meðal þess sem frummælendur fjalla um á málþingi í Hátíðasal HÍ milli kl. 13 og 16 í dag. Málþingið er níundi og jafn- framt lokafundur fundaraðar Alþjóðamálastofnunar og Rann- sóknaseturs um smáríki um fram- tíð Íslands í samfélagi þjóðanna. Meðal frummælenda eru Her- man Schwartz, prófessor í stjórn- málafræði við Virginíuháskóla, Graham Avery, heiðursfélagi St. Antony‘s College í Oxford, og Peadar Kirby, prófessor við Lim- erick-háskóla á Írlandi. - aa Málþing um alþjóðamál: Framtíð Íslands í samfélagi þjóða VÍSINDI Krabbameinsleit í brjóst- um er hagkvæm fyrir íslenskt samfélag. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar Helgu Garðars dóttur. Í rannsókninni var kostnaður við skipulagða krabbameinsskim- un í brjóstum borinn saman við fjárhagslegan ávinning af henni. Raunin er sú að hagkvæmt er að bjóða upp á reglulega skoðun eins og hér er gert á meðal kvenna á aldrinum 40 til 69 ára, þar eð krabbamein uppgötvast fyrr hjá konum sem nýta sér skoðunina og meðferð þess verður ódýrari. Þar fyrir utan er dánartíðni kvenna sem fara reglulega í skoðun 35 prósentum lægri en þeirra sem ekki fara reglulega í skoðun. Rannsóknin verður kynnt á fyrirlestri kl. 12 í dag í stofu 101 í Háskólatorgi Háskóla Íslands. - sbt Krabbameinsskimun brjósta: Þjóðhagslega hagkvæm leit LÖGREGLUMÁL Kreppan bitnar harkalega á föngum. Vinna hefur nánast lagst niður á Litla-Hrauni eftir að kreppan skall á og mögu- leikar fanga til að vinna sér inn peninga hafa dregist verulega saman. Fangarnir eru síður í stakk búnir til að framfleyta sjálfum sér. Margrét Frímannsdóttir, fang- elsisstjóri á Litla-Hrauni, segir að stöðugt sé erfiðara að fá verkefni fyrir fangana. Verkefni tengd byggingarvinnu hafi lagst niður og í númeraframleiðslunni sé nánast ekkert að gera. „Í trésmiðjunni höfum við sár- afá eða engin verkefni nema þau sem við reynum að búa okkur til sjálf. Við vorum með vörubretta- smíði. Ekkert hefur verið að gera í því í vetur. Þetta hefur reynst okkur mjög erfitt og þá um leið strákunum því að stór hluti af endurhæfingu þeirra er að hafa vinnu,“ segir Margrét. Fangar hafa getað keypt nauð- synjar fyrir þá þóknun sem þeir fengu fyrir vinnu sína og því ekki þurft að leita á náðir fjölskyld- unnar. Þeir hafa nú sáralitla pen- inga milli handanna því að dag- peningar nægja ekki fyrir einum sígarettupakka. „Margir þeirra eiga fjölskyldur, eiginkonu og börn utan veggja og þar hefur líka kreppt að. Sumar eiginkonur hafa misst vinnuna. Þetta hefur mikil áhrif á fang- ana, bæði andlega og líkamlega,“ segir Margrét. Fjölbrautaskóli Suðurlands sér um nám í fangelsunum en fjár- veitingar hafa verið skornar niður til skólans. Þá hefur áformum um að hefja byggingaframkvæmdir á Litla-Hrauni verið frestað. Starfs- menn á Litla-Hrauni hafa lækkað í launum og dregið úr aukavinnu. Mjög þröngt er í búi. Biðlisti eftir afplánun hefur lengst verulega. Fyrir fjór- um árum voru fimmtíu menn á biðlista en í dag eru þeir um 200. Dómar hafa þyngst og afplánun- artíminn er mjög langur. Þeir sem taldir eru hættulegir eru teknir strax í afplánun og sömu- leiðis þeir sem óska eftir að fá að afplána með stuttum fyrirvara. ghs@frettabladid.is Fangar peningalausir vegna verkefnaskorts Kreppan bitnar harkalega á föngum. Lítil sem engin vinna í boði á Litla-Hrauni og fangarnir eiga varla fyrir sígarettum. Eiginkonur sumra hafa misst vinnuna. Hefur bæði andleg og líkamleg áhrif á fangana, segir fangelsisstjórinn. HAFA SÁRALÍTIÐ MILLI HANDANNA Verulega hefur dregið úr atvinnu fanga á Litla- Hrauni og hafa fangarnir nú sáralitla peninga milli handanna en dagpeningarnir duga ekki einu sinni fyrir sígarettum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA BRETLAND, AP Meira en helmingur allra sem handteknir hafa verið í Bretlandi grunaðir um hryðju- verk síðan 2001 hefur verið látinn laus án ákæru. Eftir að hryðjuverkamenn gerðu árás á Bandaríkin í sept- ember árið 2001 hertu Bretar mjög bæði löggjöf og lögreglu- aðgerðir til að koma í veg fyrir hryðjuverk í Bretlandi. Síðan þá hefur 1.471 maður verið handtekinn, grunaður um tengsl við hryðjuverkastarfsemi, en 819 þeirra hafa verið látnir lausir án þess að ákæra hafi verið lögð fram. 102 þeirra hafa hlotið dóm. - gb Grunaðir um hryðjuverk: Meirihlutinn látinn laus ATVINNUMÁL Yfir 3.200 manns sóttu um 49 sumarstörf hjá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í ár. Það er ríflega þreföldun frá því í fyrra, þegar umsóknirnar voru 1.007. „Það er rosaleg vinna að fara í gegnum þessum umsóknir,“ segir Sigrún Thorlacius, aðstoð- arforstöðumaður garðsins. Það sé hálfsorglegt að þurfa að vísa svo mörgum frá. Sigrún segir að það einfaldi ferl- ið nokkuð að ákveðið hafi verið að ráða fyrst gamla sumarstarfs- menn sem hafi staðið sig vel. „Og þeir fara nú langt með að fylla stöðurnar,“ segir Sigrún. Um er að ræða störf aðstoð- ardýrahirða, tækjavarða í Fjöl- skyldugarðinum, störf í veit- inga- og miðasölu og vísinda- og fiskasöfnum auk nokkurra verk- stjórastaða. Starfshlutfallið er áttatíu til níutíu prósent. Sig- rún segir að langflestir umsækj- endur séu á menntaskóla- og háskólaaldri, sautján til 25 ára. Elsti umsækjandinn sé rúmlega fertugur. Þá verða tuttugu ungir umsækj- endur til viðbótar ráðnir hálft sumarið fyrir aukafjárveitingar frá Reykjavíkurborg til að sporna við atvinnuleysi ungmenna. - sh Ásókn í sumarvinnu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum ríflega þrefaldast milli ára: Yfir 3.200 sóttu um sumarstarf HÚSDÝRAGARÐURINN Yfir 3.200 sóttu um þau 49 störf sem voru í boði hjá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. STJÓRNMÁL Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, segist ætla að meta væntanlega þingsályktunar- tillögu, um aðild að ESB, þegar hún verður lögð fyrir Alþingi. Hann setur þann fyrirvara við hugsanlegan stuðning að hún uppfylli ákveðin samningsmark- mið, og sérstak- lega um yfirráð yfir auðlindum til lands og sjávar. „En tillagan verður lögð fram og með samþykki okkar allra,“ segir Björn Valur Gíslason, þingmaður VG í Norðausturkjördæmi. Björn Valur segist þó enn vera fullkomlega sannfærður um að Íslandi sé betur komið utan Evrópusambandsins. - kóþ Þingmaður Vinstri grænna: Setur fyrirvara við auðlindir BJÖRN VALUR GÍSLASON GENGIÐ 13.05.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 209,9582 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,75 126,35 190,6 191,52 171,48 172,44 23,023 23,157 19,418 19,532 16,116 16,21 1,3084 1,316 190,99 192,13 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.