Fréttablaðið - 14.05.2009, Síða 8
8 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop
Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending
Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár.
Miele þvottavélar eru framleiddar til að endast.
Þvottavélar - Verð frá kr. 154.995
Þurrkarar - Verð frá kr. 129.995
TILBOÐ
Sparaðu
með Miele
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur
maður hefur verið dæmdur í
fjögurra mánaða fangelsi fyrir
að hafa gengið berserksgang í
Grímsey í júní í fyrra.
Maðurinn var fundinn sekur um
að hafa hótað lögreglumönnum líf-
láti og ógnað þeim með glerflösku,
gengið um með háreysti og hótan-
ir á vörum sveiflandi ýmist hníf,
sleggju eða grjóti og loks að hafa
stofnað lífi manns í hættu með því
að sveifla hníf í átt að honum og
kasta síðan sleggju á eftir honum.
Segir í dómi að brot mannsins
hafi verið alvarleg og til þess fall-
in að valda mikilli hræðslu og
truflun. - sh
Handtekinn óður í Grímsey:
Fangelsi fyrir
berserksgang
HÆLISLEITENDUR Mansri Hichem frá
Alsír, sem hefur verið meira en
tuttugu daga í hungurverkfalli í
Reykjanesbæ, verður ekki neyddur
til að nærast eða á annan hátt brot-
ið á sjálfsákvörðunarrétti hans,
meðan hann hefur meðvitund til
að hafna aðstoðinni, segir Hera
Ósk Einarsdóttir, félagsráðgjafi
hjá Reykjanesbæ.
Hælisleitandinn hefur hins
vegar ekki skrifað undir að hann
hafni læknisaðstoð, fari svo að
hann missi meðvitund.
En hver er ábyrgð þeirra sem
annast hann, fari illa og maðurinn
svelti sig í hel? „Ef maður fremur
sjálfsmorð er hann sjálfur ábyrgur
fyrir því. Sjálfsákvörðunarréttur-
inn er meðal þeirra mannréttinda
sem við höfum,“ segir Hera Ósk.
Læknisyfirvöld hafi gert henni
ljóst að ekki sé hægt að bregðast
við fyrr en sjúklingurinn getur
ekki tekið ákvörðun sjálfur. Hún,
og aðrir sem annast manninn, fylg-
ist grannt með líðan hans.
Mansri Hichem beið í tvö ár
eftir svari um hvort hann fengi
hæli á Íslandi. Því var nýverið
hafnað. Hælisleitendur á Íslandi
mega hvorki vinna né stunda nám.
Hann sveltir sig til að knýja á um
úrlausn sinna mála. Dómsmálaráð-
herra hefur sagt að ekki sé hægt
að veita honum aðstoð öðrum frem-
ur, það gæti brotið gegn jafnræðis-
reglu. - kóþ
Hælisleitandinn frá Alsír hefur ekki hafnað læknisaðstoð, missi hann meðvitund:
Verður ekki nærður vakandi
MANSRI HICHEM Hefur verið í hungur-
verkfalli í 20 daga. MYND/VÍKURFRÉTTIR
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
HEILBRIGÐISMÁL. „Ég mun efna til
fundar með fulltrúum Lýðheilsu-
stöðvar, fulltrúum tannlækna
og tannlæknadeildar Háskóla
Íslands,“ segir Ögmundur Jón-
asson heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra spurður um við-
brögð vegna umræðu um slæma
tannheilsu barna. Ráðherra segir
nauðsynlegt að skoða allar hlið-
ar málsins, meðal annars gjald-
skrána sem endurgreiðsla til
foreldra frá Sjúkratryggingum
ríkisins miðast við. „Staðreyndin
er sú að tannheilsa er á heildina
litið góð en hluti barna er afskipt-
ur í þessum málum.“ Ögmund-
ur segir engin áform uppi um að
endurvekja skólatannlækning-
ar til að ná til þessara barna en
skoða þurfi hvernig það verður
best gert.
Heilbrigðisráðherra segir vel
hugsanlegt að beita skattahækk-
unum á sykur og aðra óhollustu
til að bæta tannheilsu þjóðarinn-
ar. Hann segir ábendingar Lýð-
heilsustöðvar um slíka leið hafa
verið hunsaða af fyrri ríkisstjórn-
um sem hafi þvert á móti lækkað
virðisauka á til dæmis gosdrykki,
þrátt fyrir sannað samhengi gos-
drykkju og tannskemmda.
Ingibjörg Sara Benediktsdótt-
ir, formaður Tannlæknafélags
Íslands, segir nauðsynlegt að
koma upp einhvers konar eftirliti
með tannheilbrigði skólabarna,
rétt eins og fylgst er með heilsu-
fari þeirra hjá skólahjúkrunar-
fræðingum og sjónin mæld. „Það
verður að hugsa málið frá grunni
og reyna að nálgast öll börn og
foreldra þeirra.“ Ingibjörg bendir
á að forsenda þess að hægt sé að
vísa öllum börnum með skemmd-
ar tennur til tannlæknis sé að end-
urgreiðsla til foreldra verði hærri
eða að tannlækningar barna verði
að fullu endurgreiddar af hinu
opinbera.
Brýnt sé að endurskoða gjald-
skrá heilbrigðisráðherra sem
miðað er við í endurgreiðslu tann-
lækninga. Hún hafi hækkað lítið
síðan 1999 sem þýðir að misræmi
milli gjaldskrárinnar og þeirra
gjalda sem tannlæknar innheimti
sé orðið verulegt.
Ingibjörg segir að efla megi for-
varnir í skólum, en forvarnir dugi
ekki á skemmdir. Hún segir full-
yrðingar um að tannheilsa barna
sé með ágætum ekki standast.
Tölur Sjúkratryggingarstofnun-
ar sem sýna færri tannviðgerðir
á hvert barn sem kemur til tann-
læknis segi bara hluta sögunnar,
stundum sé til dæmis gert við eina
tönn í barni með fjórar skemmdar
og það skili sér ekki aftur til tann-
læknis. sigridur@frettabladid.is
Íhugar sykur-
skatt í for-
varnaskyni
Heilbrigðisráðherra segir nauðsynlegt að skoða allar
hliðar í málefnum tannheilsu barna. Hann segir
skattahækkun á óhollustu mögulega forvarnaleið.
EFTIRLIT Ingibjörg Sara Benediktsdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands, að störf-
um. Hún segir gagnrýnivert að framlag til tannlækninga frá hinu opinbera hafi staðið
í stað svo árum skiptir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Algengt verð á skoðun hjá
tannlækni eru á bilinu 3.000 til
4.000 krónur, segir Ingibjörg Sara
Benediktsdóttir formaður Tann-
læknafélags Íslands. Við endur-
greiðslu vegna skoðunar á börnum
er hins vegar miðað við að skoðun
kosti 1.780 krónur. Endurgreiddar
eru 75 prósent af því eða 1.335
krónur. Ef skoðunin kostar 3.500
krónur greiða foreldrar því 2.165
eða 60 prósent heimsóknarinnar.
Hluturinn er minni eða stærri eftir
því hvort læknirinn rukkar nær
3000 krónum eða 4000 krónum.
Sama á við um tannsteinshreinsun,
þar er verð svipað og mismunurinn
svipaður.
RÍKIÐ GREIÐIR MINNIHLUTANN