Fréttablaðið - 14.05.2009, Síða 10

Fréttablaðið - 14.05.2009, Síða 10
10 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR LOFTBRÚARAFMÆLI Traute Gier frá Waco í Texas, sem segist vera barn Loftbrúarinnar, fagnar 60 ára afmæli hennar við athöfn í Berlín á þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 15% verðlækkun NICOTINELL Mintutyggjó – Lifið heil Lægra verð í Lyfju www.lyfja.is Gildir út maí 2009 15% verðlækkun LAMISIL ONCE INDLAND, AP Tugir milljóna manna gengu að kjörborði á Indlandi í gær, þegar síðasta lotan af fimm var haldin. Búist er við að úrslit- in verði kunngerð á laugardaginn kemur. Alls voru 714 milljónir manna á kjörskrá, en kosningunum var dreift á nokkrar vikur til að auð- velda framkvæmdina og tryggja öryggið betur. Skoðanakannanir benda til þess að erfitt verði að mynda stjórn að loknum kosningunum, þar sem hvorki stjórnarflokk- unum né stjórnarandstöðunni er spáð afgerandi sigri. - gb Þingkosningarnar á Indlandi: Síðustu lotu kosninga lokið ÞÆR GREIDDU ATKVÆÐI Indverskar konur sýna merki á fingri til staðfestingar því að þær hafi greitt atkvæði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP PAKISTAN, AP Hörð átök halda áfram í Swat-dalnum í Pakistan, þar sem stjórnarherinn leggur allt kapp á að vinna bug á talibönum, sem höfðu lagt dalinn undir sig. Flóttamenn frá átakasvæðinu hafa sumir hverjir gefið ófagr- ar lýsingar á framferði talibana og öfgafullum stjórnarháttum þeirra, sem greinilega hafa ekk- ert breyst frá ógnarstjórninni í Afganistan. Sextán ára stúlka frá Mingora, stærstu borginni í Swat-dalnum, segist hafa komið að ættingja sínum hálshöggnum. Þetta hafi talibanar talið hæfilega refsingu fyrir njósnir, sem þeir sögðu hann hafa stundað. „Það eina sem ég gat hugsað um er að ég saknaði þeirra daga þegar við vorum ham- ingjusöm,“ sagði stúlkan. Hún segir þær takmarkanir, sem tali- banar leggja á ferðafrelsi kvenna, hafa orðið til þess að hún þurfti að hætta í vinnu, sem hún stundaði til að hjálpa til við að framfleyta fjölskyldunni. Einhverju sinni var hún stöðv- uð úti á götu fyrir að vera aðeins með hefðbundinn höfuðklút, því talibanarnir vilja að konur gangi í búrkum sem hylja líkamann allan. Ein helstu gatnamótin í Ming- ora eru nú jafnan nefnd „blóðugu gatnamótin“, því dag eftir dag skildu talibanar þar eftir háls- höggvin lík, oft tvö eða þrjú í einu. - gb Flóttamenn frá átakasvæðunum í Pakistan lýsa framferði talibana: Ógnarstjórn í Swat-dalnum Á FLÓTTA UNDAN TALIBÖNUM Pakist- anskur hermaður kannar skilríki flótta- manns frá Swat-dalnum. NORDICPHOTOS/AFP PALESTÍNA, AP Benedikt XVI. páfi ítrekaði í gær stuðning sinn við stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna, sagðist hafa skilning á örvæntingu þeirra en hvetur þá jafnframt til að standast þá freistingu að grípa til ofbeldis og hryðjuverka. Á ferðalagi sínu um Miðaustur - lönd kom páfi í gær til Betle hem og hitti þar Mahmoud Abbas, forseta Palestínustjórnar. Í messu, sem hann hélt í Fæðingarkirkjunni í Betlehem lýsti hann sérstaklega samúð með hlutskipti íbúa á Gazasvæðinu, sem hafa búið við einangrun og máttu þola harðar árásir af hálfu ísraelska hersins í byrjun ársins. - gb Páfinn í Miðausturlöndum: Ítrekar samúð með Palestínu GEORGÍA, AP Eduard Shevard- nadze, fyrrverandi forseti Georgíu, hefur skorað á Mikheil Saakashvili, núverandi forseta, að segja af sér þar sem ástandið í landinu sé hörmulegt. Shevardnadze varaði við því að atburðir gætu farið úr böndunum. „Mikil spenna einkennir stöðuna í Georgíu þessa stundina,“ segir þessi fyrsti forseti Georgíu eftir fall Sovét ríkjanna. Hann var neyddur til að víkja af valdastóli í Rósabyltingunni svonefndu árið 2003, Hann segist hafa sagt af sér af eigin hvötum til að komast hjá blóðbaði í landinu. Vinsældir Saakashvilis hafa dvínað mjög eftir stríðið við Rússa í ágúst. - ghs Stjórnmál í Georgíu: Þrýst á forseta að segja af sér STJÓRNSÝSLA Íslendingum býðst nú að ættleiða börn frá Nepal. Dómsmálaráðherra, Ragna Árnadóttir, gaf í gær út löggildingu fyrir Íslenska ættleiðingu til að annast milligöngu þar um. Íslensk ættleiðing sér nú um milligöngu ættleiðingar frá sjö löndum: Nepal, Kína, Kólumbíu, Indlandi, Tékklandi, Makedóníu og Taílandi. Þar að auki hefur Alþjóðleg ættleiðing fengið leyfi til að annast milligöngu um ættleiðingar frá Póllandi. Samkvæmt lögum verður löggilt ættleiðingarfélag að sjá um milli- göngu ættleiðinga milli landa. - kóp Samstarf um ættleiðingar: Hægt að ætt- leiða frá Nepal UMHVERFISMÁL Verði losun gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið ekki minnkuð um 25 til 40 prósent fyrir árið 2020 er hætta á því að aukinn sjávarhiti og súrnun hafanna leiði til þess að heilu sjávarvistkerfin þurrkist út, þar með talinn um helmingur fiskistofna í þeim. Með þessu sé afkomu um 100 milljóna strandbúa jarðar ógnað. Þessa dómsdagsspá birtu alþjóðlegu náttúruverndar samtökin World Wildlife Fund á alþjóðlegri ráðstefnu um heimshöfin, sem fram fer þessa dagana í Manado í Indónesíu. Ráðstefnan, sem ber enska heitið World Ocean Conference, er liður í undirbúningi fyrir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í desember næstkomandi. Í 220 síðna skýrslu WWF er vísað í niðurstöður um 300 nýlegra rannsóknaverkefna og tuttugu sérfræðinga í loftslagsmálum. „Það verður að grípa til afgerandi ráðstafana strax, ef afstýra á tröllauknum vanda,“ segir í niðurstöðum skýrslunnar. „Hundruð þúsunda einstæðra lífvera og heilu samfélögin verða í hættu,“ segir þar. Vísindamenn hafa lengi varað við því að hlýnandi loftslag muni valda hraðari bráðnun heimskauta- og jökulíss og valda hækkandi sjávarborði, sem muni þurrka út ófá eyjasamfélög og strandvistkerfi. Aukin binding koltvísýrings í höfunum er einnig að valda súrnun þeirra, sem spillir kóralrifjum, skelfiski og öðru sjávarlífi. Mörgum spurningum varðandi samspil sjávar og loftslags er þó enn ósvarað. „Við erum að vinna að því að byggja upp betri skilning á hlutverki hafsins í loftslagskerfinu,“ hefur AP- fréttastofan eftir Mary M. Glackin, aðstoðarráðherra haf- og loftslagsmála í Bandaríkjastjórn. „Þetta er heill lífsvefur,“ segir hún, „svo að það þarf að taka tillit til alls frá smæstu örverum upp í rándýrin efst í fæðukeðjunni.“ Hún lýsir áhyggjum af því að súrnun sjávar kunni að hafa skelfilegar afleiðingar fyrir margar þessara tegunda. F isktegundir sem l ifa í kóralrifjum, fenjum og grunnsævis- þangskógum Asíu kváðu standa undir sjávarútvegi sem skapar milljónum íbúa strandhéraða á þessum slóðum alls um þrjá milljarða Bandaríkjadala í tekjur á ári. audunn@frettabladid.is- Dómsdagsspá um framtíð lífs í sjónum Heilu sjávarvistkerfin og strandsamfélög eru í hættu verði ekki gripið til ráðstaf- ana til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þetta er niðurstaða skýrslu sem kynnt var á alþjóðlegri ráðstefnu um heimshöfin og loftslagsmál í gær. STRANDBYGGÐIR Í HÆTTU Indónesískur fiskimaður á hefðbundnum bát við fiskiþorp Bajau-ættbálksins á Kapota-ey undan suð- austanverðri Sulawesi í Indónesíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.