Fréttablaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 14. maí 2009 11 KANNABISRÆKT Plönturnar voru á mismunandi stigum ræktunar. Myndin tengist málunum ekki beint. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LÖGREGLUMÁL Lögregla fann sam- tals um 400 kannabisplöntur á tveimur stöðum í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði í fyrradag. Fjórir karlmenn voru handteknir. Eftir hádegi fundust um 230 plöntur á ýmsum stigum ræktun- ar á fyrri staðnum. Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir og fannst nokkurt magn af marijú- ana á heimilum þeirra. Um kvöldmatarleytið fundust síðan um 170 plöntur á öðrum stað. Tver menn, annar á þrítugs- aldri og hinn á fertugsaldri, voru handteknir í tengslum við rann- sókn málsins. - sh Fjórir menn handteknir: 400 kannabis- plöntur fundust DÓMSMÁL Tvítugur maður hefur verið dæmdur til að greiða dyra- verði 177 þúsund krónur í bætur, með vöxtum, fyrir að hafa bitið hann í bringuna í átökum þeirra á milli í júlí í fyrra. Maðurinn neitaði því að hafa bitið dyravörðinn en hann var hins vegar með greinilegt bitfar á brjóstinu og þótti það nægilegt til sakfellingar. Dómurinn tók hins vegar tillit til þess að atvikið varð í ryskingum sem ekki þótti ljóst hvernig hefðu hafist. Það, auk þeirra staðreynda að maður- inn er ungur og ekki refsibrot á sakaskrá, leiddi til þess að refs- ingu mannsins var frestað. - sh Dæmdur til sektargreiðslu: Beit dyravörð í brjóstkassann LÖGREGLUMÁL Catalina Mikue Ncogo, sem grunuð er um man- sal og aðild að fíkniefnasmygli til landsins, er laus úr gæsluvarð- haldi. Hún hefur hins vegar verið úrskurðuð í farbann til 10. júní. Catalina er grunuð um að tengjast tveimur belgískum konum og belgískum karlmanni sem öll hafa verið handtekin við komuna til landsins með fíkniefni innvortis. Þá er Catalina talin tengjast smygltilraun til Íslands, en kærasti hennar var handtek- inn með kókaín í Amsterdam. Hún er jafnframt grunuð um að hafa flutt konur til landsins til að láta þær stunda hér vændi. Í farbanni grunuð um smygl: Catalina laus úr gæsluvarðhaldi ATVINNUMÁL „Ég get alveg viðurkennt að það er kergja í okkur vegna þessa máls. Við sendum tölvupóst út í tómið og fáum engin svör,“ segir Valdimar Grétar Ólafsson, sér- fræðingur hjá Vinnumálastofnun. Enn hafa engar atvinnuumsóknir Íslendinga verið sendar til Kanada, en félagsmálaráðherra Íslands og atvinnumálaráðherra Manitoba- fylkis í Kanada undirrituðu í byrjun mars samkomulag sem ætlað er að skapa tíma- bundna atvinnumöguleika fyrir Íslendinga í Kanada. Valdimar segir ástæðuna vera hægagang í skriffinnskunni vestanhafs. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumála- stofnunar, sagði í Fréttablaðinu á laugar- dag að tíu umsóknir Íslendinga hefðu þegar verið sendar til Kanada. Að sögn Valdimars var það á misskilningi byggt. „Við höfum tekið við umsóknum, flokkað þær eftir starfsgreinum og erum reiðubúin að senda þær í einum pakka, sem ætti að hraða afgreiðslu atvinnuleyfa þar vestra. Kanada- mennirnir vildu gefa okkur ákveðna dag- setningu til að senda umsóknirnar út, en við höfum enn ekki náð sambandi við þá til að fá þessa dagsetningu. Það gengur illa að fá svör, meðal annars vegna þess að ákveðn- ir aðilar úti eru í sumarleyfi, og því skrif- ast þetta algjörlega á Kanada. Skiljanlega vilja umsækjendur fá einhver svör um tíma- setningar og annað, en við getum ekki gefið þeim nein svör.“ Að sögn Valdimars er Vinnumálastofnun í sambandi við ræðismann Íslands í Manitoba. Vonir standi til að umsóknirnar, tuttugu talsins, verði sendar út sem fyrst. - kg Enn engar atvinnuumsóknir Íslendinga sendar vegna hægagangs aðila í Kanada: Segist senda tölvupósta út í tómið ÁHUGI Mörg hundruð manns sóttu kynningarfund um atvinnumöguleika í Kanada um miðjan mars. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA íslensk hönnun og handverk Strandgötu 43 | Hafnarfirði Sími 565 5454 | www.fridaskart.is Nýttu þér persónulega þjónustu og faglega ráðgjöf í sparisjóðnum Anna, Dagrún, Gréta, Hjördís, Jónína og Ýlfa taka vel á móti þér. Þær eru hluti af öflugri 230 starfsmanna liðsheild sem kappkostar að veita þér persónulega þjónustu og faglega ráðgjöf. D Y N A M O R E Y K JA V ÍK Fyrrverandi starfsmenn SPRON boðnir velkomnir til starfa hjá Byr sparisjóði Anna Ásta Khan Hjartardóttir, nýr ráðgjafi í Byr Borgartúni Jónína Pálsdóttir, nýr gjaldkeri í Byr Hraunbæ Gréta Kjartansdóttir, nýr ráðgjafi í Byr Borgartúni Dagrún Deirdre Georgsdóttir, nýr gjaldkeri í Byr Garðabæ Hjördís Þorsteinsdóttir, nýr ráðgjafi í Byr Kópavogi Ýlfa Proppé Einarsdóttir, nýr þjónustustjóri í Byr Hraunbæ Fáðu persónulega þjónustu Lausnir með fjárhagslegri heilsu Fjármálanámskeið á mannamáli Stöðumatið mitt og Heimilisbókhald Fjármálapróf Heilsupróf og ráðgjöf Lenging lána Greiðslujöfnun húsnæðislána Fyrirframgreiðsla Lífsvals Frysting erlendra lána Niðurgreiðsla lána D Y N A M O R E Y K JA V ÍK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.