Fréttablaðið - 14.05.2009, Page 18
18 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
„Bestu kaupin sem ég hef gert eru
klárlega bíllinn minn, hann Litli-London
eins og ég kalla hann,“ segir Eva Hrönn
Guðnadóttir, grafískur hönn-
uður, þegar hún er spurð um
bestu og verstu kaupin sem
hún hefur gert á ævinni. „Ég
keypti bílinn minn á hundrað
þúsund kall fyrir þremur
árum og hafði hugsað mér
að hann myndi kannski
endast í mesta lagi eitt ár.
Annað kom heldur betur í
ljós, því Litli-London er enn
þá skröltandi um borg og
bý og kemur mér og mínum
hvert á land sem er. Svo hef
ég auðvitað gert mörg kaup í
gegnum tíðina sem ég tel nánast fullkom-
in, eins og kaupin á fartölvunni minni og
þvottavélinni. Ég veit ekki hvar ég væri án
þessara þarfaþinga.“
Verstu kaup Evu fóru fram á suðræn-
um slóðum. „Einu sinni keypti ég mér
pitsu á Spáni og pantaði þistilhjörtu á
hana sem er artichoke á ensku. Í stað-
inn fékk ég fiskapitsu með ansjósum,
sem er anchovies á ensku, og gat
ómögulega borðað pitsuna. Ég var
öfga svekkt með þetta, eins og gefur
að skilja! Svo hef ég líka fjárfest
grimmt í fötum og skóm sem
ég hef aldrei notað. Ég virðist
ekki læra af reynslunni í þeirri
deildinni,“ segir Eva Hrönn
Guðnadóttir.
NEYTANDINN EVA HRÖNN GUÐNADÓTTIR, GRAFÍSKUR HÖNNUÐUR
Læri seint af reynslunni í fatakaupum
Fólk leitar almennt fleiri
leiða til að minnka orku-
notkun sína en áður, segir
deildarstjóri hjá Orkuveitu
Reykjavíkur. Fjölmörg holl-
ráð varðandi orkunotkun
heimila er að finna á heima-
síðu fyrirtækisins.
„Við höfum tekið eftir því að fólk
er orðið meðvitaðra um orkureikn-
inginn sinn en áður var. Oft var
þetta þannig að fólk leit á þenn-
an reikning sem sjálfsagðan hlut
og borgaði án þess að hugsa mikið
út í það, en núna leitar fólk leiða
til að halda orkueyðslu í lágmarki.
Þetta gildir jafnt um einstaklinga
sem fyrirtæki,“ segir Ingibjörg
Valdimarsdóttir, deildarstjóri í
Markaðsdeild Orkuveitu Reykja-
víkur (OR). Á heimasíðu OR er að
finna fjölda hollráða varðandi það
hvernig nýta megi orkuna betur á
heimilinu.
Að sögn Ingibjargar hefur OR
lengi boðið upp á slík hollráð í
einhverri mynd, meðal annars
á vefsíðu sinni og í útgefnum
bæklingum, en efnahagshrunið
hafi gert það að verkum að aukin
áhersla hafi verið lögð á þessi
mál. „Við viljum gera það sem
við getum til að koma til móts við
fólk með því að leiðbeina því um
hvernig megi nýta orkuna betur.
Viðbrögðin við þessum hollráðum
okkar hafa verið mjög góð. Það
eru svo margar sparnaðarleiðir
sem almenningur er kannski ekki
meðvitaður um.“
Hér á síðunni gefur að líta nokk-
ur sparnaðarráð sem OR mælir
með. Ítarlegri fróðleik um þessi
mál er að finna á heimasíðu OR, á
slóðinni or.is/hollrad . Eins mælir
starfsfólk OR með því að fólk
skoði hvaða orku heimilistækin
eru að nota á www.or.is/reiknivel-
ar. Einnig er mögulegt að fylgjast
með orkunotkun sinni á síðunni
Orkan mín, orkanmin.or.is, fyrir
viðskiptavini Orkuveitunnar.
kjartan@frettabladid.is
Leiðir til orkusparnaðar
Orkusparnaður í húshitun
Íslensk heimili nota að meðaltali
4-5 tonn á fermetra af heitu vatni á
ári. Um níutíu prósent af notkuninni
fara í að hita upp húsakynni okkar.
Til að minnka notkun á heitu vatni
og lækka orkureikninginn liggur
því beinast við að skoða hvernig
við nýtum heita vatnið sem best til
húshitunar.
■ Látið jafnvægisstilla hitakerfi
hússins þannig að hámarksrennsli
til hvers ofns sé stillt og þægilegur
innihiti skapist.
■ Hitanemi ofna má ekki vera
lokaður af með húsgögnum, of
stórum sólbekkjum eða glugga-
tjöldum.
■ Það er eðlilegt að ofnar séu kaldir
ef mikið er af ókeypis varma í
herberginu, svo sem sólarljós og
raflýsing.
■ Fylgist með hitastiginu
með innihitamæli.
■ Farið yfir þéttleika og
einangrun glugga og
hurða.
■ Lokið gluggum þegar
kalt er úti.
■ Loftræsið aðeins í stutt-
an tíma í senn þar sem
mikill varmi tapast ef gluggar eru
hafðir opnir lengi.
Þvottahúsið
Í langflestum þvottahúsum á heim-
ilum eru þvottavél og þurrkari. Þessi
tæki eru almennt mjög orkufrek
og beita má ýmsum ráðum til að
minnka orkunotkunina:
■ Þvoum ekki eða þurrkum hálf-
tómar vélar.
■ Þvoum ekki við hærri hita en
nauðsynlegt er. Við það að lækka
hitann um helming minnkar
orkunotkun um um það bil sextíu
prósent.
■ Hengjum þvottinn út á snúru
þegar tækifæri gefst.
Tölvur og tæki
Á dæmigerðu íslensku heimili er
fjöldi rafmagnstækja. Góð regla
er að slökkva á þeim á
kvöldin.
■ Skjáhvílur spara ekki
rafmagn, slökkvum á
skjánum.
■ Fartölvur nota minni
orku en borðtölvur.
■ Tökum öll hleðslutæki úr
sambandi eftir notkun.
SÓKNARFÆRI TIL AÐ BÆTA ORKUNÝTINGU
Alls 500 börn hafa nú þegar skráð
sig í Skólagarða Reykjavíkur og að
sögn Auðar Jónsdóttur verkstjóra er
áhuginn og eftirspurnin mun meiri
en síðustu ár. „Það er óvenjulegt
ástand núna og stefnir í að færri fái
pláss en vilja,“ segir Auður en í fyrra
voru ekki öll pláss fullnýtt. Nú þegar
eru garðarnir í Skerjafirði uppbókaðir
en eitthvað er laust í hinum görðum
Reykjavíkurborgar sem alls eru um
600. Fyrir 3.000 krónur fá börn á
aldrinum sex til tólf ára 18 fermetra
garð, plöntur og fræ sem er eftirsótt í
kreppunni. Eldri borgarar hafa einnig
mátt sækja um pláss en skólabörn
eru í forgangi er kemur að úthlutun.
Að sögn Auðar eru þó nokkrir eldri
borgarar, sem greiða 4.000 krónur
fyrir garðinn og þurfa sjálfir að kaupa
útsæði og fræ, komnir á biðlista.
Starfsemi garðanna hefst í byrjun
júní. Nánari upplýsingar og innritun
er í netfangi skolagardar@rvk.is og
símum 693 2323 og 411 8500.
■ Biðlistar eftir skólagörðum
Skólabörn ólm í að
rækta garðinn sinn
ORKUREIKNINGUR Ingibjörg segir að margar sparnaðarleiðir í orkunotkun, sem
almenningur viti oft ekki um, séu mögulegar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
■ Sendið
umboðsmanni
neytenda
ábendingar eða
sparnaðarráð
á neytendur@
frettabladid.is
KJARTAN
GUÐMUNDSSON
neytendur@
frettabladid.is
Staðgengill umboðsmanns neytenda
fékk tölvupóst frá kátum neytanda:
„Það gladdi mig ósegjanlega þegar
ég sá að nú er loksins hægt að fá
aftur Egils Mix eins og það var
á gullaldarárum þess. Fyrir
nokkrum árum tók Ölgerðin
nefnilega það óheillaskref
að spilla uppskriftinni með
einhverjum skuggalegum
sætuefnum svo þetta ástsæla gos
var ekki nema svipur hjá sjón á
eftir. Nú þarf bara að endurheimta
gamla Egils Greipfrúttið, en ekki
eru mörg ár síðan það hlaut sömu
grimmilegu örlög og Mixið.“
Halldóra Tryggvadóttir,
vörumerkjastjóri fyrir Egils-
vörur hjá Ölgerðinni, segist
hafa orðið vör við mikla ánægju
fólks með þessa umbreytingu
á Mixinu sem kom á markað fyrir
um tveimur vikum. „Við breyttum
Mixinu árið 2006, þegar markaðurinn
kallaði á sykurskerta drykki. Alveg
síðan þá höfum við fengið margar
fyrirspurnir um hvort von væri
á gamla Mixinu aftur. Það er
því ljóst að margir geta tekið
gleði sína á ný núna. Mixið er
auðvitað séríslenskt fyrirbæri,
rammíslensk uppskrift og blanda,
og það er skemmtilegt. Bragðið er
svo hressilegt, og það var þessi
hressleiki sem fólk saknaði eftir að
við breyttum uppskriftinni.“
Fyrirspurn neytandans um
Greipið svarar Halldóra á þennan
hátt: „Greipinu var breytt á sama
tíma og Mixinu, þannig að það er
spurning hvort við förum ekki að
endurskoða það líka.“
Neytendur: Mix með upprunalegu bragði vekur lukku
Afturhvarf til einfaldari tíma
■ Með því að skrifa niður áhyggjuefni
og ákveða hvenær eigi að takast á við
það getur komið í veg fyrir svefnleysi,
segir Magnús Árni Magnússon, for-
stöðumaður Félagsvísindastofnunar.
„Svefnleysi stafar
stundum af áhyggjum.
Í raun er það líkaminn
að minna á eitthvað
sem annars gæti
gleymst. Þá borgar sig
að vera með dagbók
eða skrifblokk við rúm-
stokkinn og skrifa niður áhyggjuefnið.
Þá segir maður við sjálfan sig; „ég
ætla ekki að hafa áhyggjur af þessu
núna, heldur á morgun í hádeginu.“
Þegar búið er að tímasetja hvenær
takast á við áhyggjuefnið er í flestum
tilfellum hægt að sofna vært.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
TÍMASETJA ÁHYGGJUR
Útgjöldin
>Rútufargjald milli Selfoss og Reykjavíkur
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS.
590
620
650 720
780
850
850
950
950
1.000
1.200 1.200
1998 2000 2002 2004 2006 2008