Fréttablaðið - 14.05.2009, Page 20
20 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 31 Velta: 83 milljónir
OMX ÍSLAND 15 OMX ÍSLAND 6
254 -1,12% 689 -0,82%
MESTA HÆKKUN MESTA LÆKKUN
BAKKAVÖR 12,00%
CENTURY ALUM. 11,87%
MAREL 1,02%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 2,90 +0,00% ... Atlantic
Airways 167,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 575,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,98 -12,00% ... Eik Banki 83,00 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 +0,00% ... Føroya Banki 119,50 +0,00% ... Icelandair Group
4,50 +0,00% ... Marel Food Systems 58,40 -1,02% ... Össur 101,50
-0,98%
Gengi hlutabréfa bandaríska bíl-
arisans General Motors (GM) féll
um tuttugu prósent í fyrradag í
kjölfar þess að sex framkvæmda-
stjórar fyrirtækisins losuðu sig
við alla eignarhluti sína í því.
Bandaríski dagblaðið Los Ang-
eles Times segir söluna vísbend-
ingu um að stjórnendum fyrir-
tækisins sé fullljóst hvert það
stefni og vilji koma eignum í
skjól á meðan hægt er.
Fallið hélt áfram í gær, fór við
upphaf viðskiptadagsins í einn
dal á hlut og hafði þá ekki verið
lægra í 76 ár, eða síðan 1933. Það
náði hæstu hæðum, 41 dal á hlut,
í október árið 2007.
GM var umsvifamesti bíla-
framleiðandi heims þar til Toyota
tók fram úr fyrirtækinu í fyrra.
Frestur stjórnenda GM til
að skila inn rekstraráætlun til
að fá björgunarfé bandarískra
stjórnvalda rennur út um mán-
aðamótin. Takist það ekki þykir
líklegt að fyrirtækið fari sömu
leið og Chrysler, sem fór í þrot
í apríllok.
Markaðsverðmæti GM nam
um miðjan dag í gær einungis
690 milljónum dala, jafnvirði
87,8 milljarða íslenskra króna,
og er það nú minnsta fyrirtæk-
ið af þeim þrjátíu sem reiknuð
eru inn í Dow Jones-hlutabréfa-
vísitöluna.
Til samanburðar var mark-
aðsverðmæti stoðtækjafyrir-
tækisins Össurar tæpir 43 millj-
arðar króna í gær.
- jab
Annar bílarisi ekur
að gjaldþrotagilinu
Orlofshús RSÍ um land allt
Rafiðnaðarsamband Íslands á og rekur 42 orlofshús
á 13 stöðum á landinu og 13 tjaldvagna. Erlendis býðst
félögum íbúð í Kaupmannahöfn og 2 hús á Spáni.
Alls 58 orlofseiningar.
Skógarnes
glæsilegt orlofssvæði RSÍ við Apavatn
Skógarnes er 25 hektara orlofssvæði sem rafiðnaðarmenn
hafa byggt markvisst upp á undanförnum árum. Þar eru
15 orlofshús, þar af 10 ný og glæsileg 100m hús og eitt
270m , tjaldsvæði með grillhúsi, 2 rúmgóðum snyrti-
húsum með sturtum og uppþvottaaðstöðu.
Félagsmönnum býðst veiði í Apavatni og bátar,
golfvöllur, 9 holur með 50m-250m par3 brautum og
9 holu púttvelli, göngu- og hlaupa-
stígar, knattspyrnuvöllur, strandblaksvöllur,
körfuboltavöllur, risastórt trampólín og
3 vel útbúnir leikvellir.
Ath. Svæðið er einungis ætlað félagsmönnum,
fjölskyldum þeirra og gestum.
Fjölskylduhátíðin verður um Jónsmessuna
19.-21. júní í Skógarnesi.
Spennugolfið verður 26. júní á Öndverðarnesvelli.
Veiði- og útilegukortin verða á 25% afslætti í sumar.
Gleðilegt RSÍ sumar!
Nánari upplýsingar á orlofsvef RSÍ á rafis.is
2
2
Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins
(ESB) hefur sektað
bandaríska örgjörva-
framleiðandann
Intel um einn millj-
arð evra, jafnvirði
rúmra 180 milljarða
íslenskra króna á
gengi gærdagsins,
fyrir að brjóta alvar-
lega gegn samkeppn-
islögum. Sektin er sú
hæsta sem sambandið
hefur lagt á eitt fyrir-
tæki til þessa.
Rannsókn á málinu
hófst árið 2001 þegar AMD, helsti keppn-
autur Intel, kvartaði til framkvæmda-
stjórnarinnar og sagði Intel beita óheiðar-
legum aðferðum til
að hefta samkeppni á
örgjörvamarkaðnum.
Í fyrra var Intel
með áttatíu prósent
af heimsmarkaðn-
um þegar kemur að
örgjörvum en AMD
með tólf prósent.
Sektin er sú hæsta
sem ESB hefur lagt
á eitt fyrirtæki fyrir
samkeppnislagabrot
og helmingi hærri en
sektin sem lögð var á
bandaríska tölvuris-
ann Microsoft fyrir
fimm árum fyrir að misnota markaðsráð-
andi stöðu. Hún var upp á tæpan hálfan
milljarð evra. - jab
Risasekt lögð á Intel
MERKI INTEL Bandaríski örgjörvaframleiðandinn
Intel hefur fengið í bakið metsekt vegna alvarlegra
samkeppnisbrota í Evrópu.
Samningar við erlenda kröfu-
hafa gömlu bankanna; Kaupþings,
Glitnis og Landsbankans, tefjast
fram á fyrri hluta næsta mánaðar
þar sem efnahagsreikningur nýju
bankanna liggur ekki fyrir. Af
þeim sökum er ekki búið að gera
upp á milli nýju og gömlu bank-
anna. Áður var stefnt að því að
ljúka málinu eftir miðjan maí.
Þetta kemur fram í viðtali Ind-
riða Þorlákssonar, ráðuneytis-
stjóra í fjármálaráðuneytinu, við
Reuters. Indriði segir óformlegar
viðræður við kröfuhafa hafnar og
sé stefnt að því að ljúka þeim þegar
búið verði að gefa út skuldabréf í
tengslum við eignaflutninginn.
- jab
Samningar við
kröfuhafa tefjast
Tækifærin eru innan í fólki.
Þetta segir rithöfundurinn
Andri Snær Magnason.
Hann lýsir eftir framtíðar-
sýn hér á landi.
„Jafnvel bankabólan var byggð á
framtíðarsýn,“ segir rithöfundur-
inn Andri Snær Magnason. Hann
segir framsæknustu einstaklinga
landsins hafa keyrt á slíku, jafnvel
þótt það hafi keyrt um þverbak á
endanum. Hann segir framtíðar-
sýn hafa almennt skort hér á landi
lengi og fólk verði að setja heilann
í bleyti til að átta sig á möguleikun-
um. Sjálfur sjái hann tækifærin í
náttúrunni og inni í fólkinu sjálfu.
Andri Snær hélt erindi um málið
á vegum Félags viðskipta- og hag-
fræðinga í gær undir yfirskriftinni:
Er íslensk hagfræði viðundur?
Hann lýsti því hvernig Íslend-
ingar hafi keyrt á uppblásinni
framtíðarsýn allt frá þar síðustu
aldamótum þegar Einar Bene-
diktsson og fleiri framsýnir létu
teikna upp virkjanakosti landsins
langt umfram raforkuþörfina. Það
sama hafi verið uppi á teningnum
þegar stjórnvöld sögðu framtíð-
ina felast í loðskinnaframleiðslu
og fiskeldi á níunda áratug síðustu
aldar.
Andri Snær sagði að víða mætti
byggja upp góð tækifæri með
stóra drauma á lofti. Það gæti
tengst ýmsu, svo sem Konungs-
bók Eddukvæða, fisknum í sjón-
um og hvalarannsóknum á Húsa-
vík. „Við erum ginnkeypt fyrir
skyndilausnum en við megum
ekki setja allt okkar á eina stoð,“
sagði Andri Snær.
jonab@markadurinn.is
Framtíðarsýn skortir hér
„Frjóasta fólkið sem ég hef hitt
eftir þrjátíu ára dvöl erlendis er í
Hugmyndaráðuneytinu. Þar eru
frumkvöðlar sem hafa flosnað úr
námi en eru að skapa framtíðarsýn,“
sagði Kristín Vala Ragnarsdóttir,
forseti verkfræði- og náttúruvísinda-
sviðs Háskóla Íslands, á fundinum í
gær. Hún velti því upp hvort frjóan
hugsanahátt skorti innan háskóla-
samfélagsins.
Egill Helgason, sjónvarpsþátta-
maður og fundarstjórnandi, gekk
fram fyrir skjöldu háskólasamfé-
lagsins og sagði frumkvöðlana
leita þangað eftir „köntuðu“ fólki,
viðskiptaþenkjandi einstaklingum
sem horfi ekki út fyrir kassann, til að
ýta hugmyndum úr vör og skapa úr
þeim verðmæti.
FRJÓTT FÓLK Í HUGMYNDARÁÐUNEYTINU