Fréttablaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 14. maí 2009 21
Efnahags- og framfarastofnun-
in (OECD) greinir enn merki um
djúpan efnahagssamdrátt í mæl-
ingum á hagvísum aðildarríkjanna
(e. Composite Leading Indicators) í
mars. Þó bendi margt til að draga
sér úr niðursveiflunni í Frakk-
landi, Ítalíu, í Bretlandi og Kína.
OECD segir í nýjustu mælingu
sinni að ekki megi vænta snarps
viðsnúnings í bráð enda merkin
dauf.
Hvorki er slíku að skipta um
önnur aðildarríki OECD né þau
sem standa utan við stofnunina.
Þar eru hagvísar enn neikvæðir.
Mæling OECD á helstu hagvís-
um er ætlað að gefa upplýsingar
um stefnubreytingar í hagsveifl-
um til skemmri tíma og veita inn-
sæi hvort hagkerfi séu að vaxa eða
dragast saman.
Mælingar helstu hagvísa á meðal
OECD-ríkjanna sýna 0,1 prósents
samdrátt í mars og er það 9,5 pró-
sentum lægra en fyrir ári. - jab
BRESKA ÞINGHÚSIÐ Vísbendingar eru um
að hægja sé á niðursveiflunni í Bretlandi,
samkvæmt nýjustu mælingu OECD á
hagvísum.
Enn samdráttur innan OECD
Fáir auglýsendur nota herferðar-
mælingar, til að mæla áhrif
vef auglýsinga, samkvæmt könnun
Soffíu Kristínar Þórðardóttur, ráðgjafa
og verkefnastjóra hjá TM Software.
„Það er óábyrgt og kærulaust að
kaupa þessar vefauglýsingar og
fylgjast svo ekki með því hvort
fjárfestingin er að skila sér,“ segir
hún.
Soffía kannaði auglýsingar á stóru
vefmiðlunum fyrir einu ári, og endur-
tók könnunina í mánuðinum. Um tólf
prósent voru með herferðarmælingar
til að fylgjast með hverju smellir á
auglýsingar skiluðu, hvort sem var
í sölu eða skráningum. Í ár voru
einungis um sex prósent auglýsinga
með slíkar mælingar.
„Auglýsendur eru greinilega ekki
að vakna til vitundar um möguleikana
sem eru í boði,“ segir Soffía. Hún
telur að auglýsendur treysti frekar
á tölur frá auglýsinga miðlunum,
en að greina þær sjálfir. „Það er
erfitt að sjá hvort auglýsingar skili
tilætluðum árangri ef mælingar eru
ófullnægjandi,“ segir hún.
Ýmis tól eru í boði til að fylgjast
með vefumferð og greina hana. Sum
þeirra, líkt og Google Analytics sem er
í mikilli sókn, eru ókeypis og ættu því
ekki að vera hindrun í vegi greiningar.
Soffía segir að margir hins vegar mikli
fyrir sér fyrirhöfnina við slík tól. „Það
er treyst á að auglýsingastofur og
veffyrirtækin veiti þessa ráðgjöf og
mættu fleiri veita þessa þjónustu, líkt
og TM Software gerir.“ - ss
Virði hvers smells
„Nú er einu púsli af mörgum
lokið,“ segir Gylfi Sigfússon, for-
stjóri Eimskips.
Félagið hefur gert samning um
sölu á 65 prósenta hlut í finnska
skipafélaginu Containerships.
Kaupandi er Container Finance,
sem verið hefur minnihlutaeig-
andi finnska félagsins. Salan er
gerð með fyrirvara um samþykki
stjórnar félagsins og að takist að
létta af veðum.
Gangi salan í gegn munu skuld-
ir Eimskips lækka um ellefu millj-
arða króna en Eimskip tapar 3,9
milljörðum króna á henni.
Salan á Containerships er liður í
fjárhagslegri endurskipulagningu
Eimskips, sem unnið hefur verið
að frá í fyrravor og stefnt er á að
ljúki fyrir júnílok. Þar á meðal er
sala á eignum sem ekki tengjast
kjarnastarfsemi, svo sem frysti-
vörugeymslum Versacold. Gylfi
sagðist í gær sannfærður um að
það takist.
Eimskip keypti hlutinn í Cont-
ainerships í október árið 2006 og
hefur rekið félagið sem sjálfstæða
einingu innan samstæðu Eimskips
síðan þá. Tíu skip sigla undir fána
félagsins á Eystrasalti. Aðstæður
þar hafa hins vegar reynst drag-
bítur á rekstri Eimskips, líkt og
kom fram á síðasta uppgjörsfundi
félagsins.
Þrátt fyrir söluna er stefnt að
því að félögin starfi áfram saman.
Eimskip verður áfram umboðsaðili
Containerships í Danmörku og
Containerships verður umboðsaðili
Eimskips í Finnlandi.
- jab
Eimskip losar sig við vandræðafélag
GYLFI SIGFÚSSON Forstjóri Eimskips
segir einu púsli lokið í endurskipulagn-
ingu fyrirtækisins.
„Það eru góðar líkur á að nýtt
veltumet verði slegið á skulda-
bréfamarkaði í vikunni,“ segir
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar.
Heildarvelta með skuldabréf
nam rúmum 24,6 milljörðum króna
í Kauphöllinni í gær og var þetta
veltumesti dagur ársins. Til sam-
anburðar nam heildarvelta allrar
síðustu viku, þeirrar bestu á árinu,
58,3 milljörðum króna.
Þórður segir veltuna í gær
framhald af þeirri þróun sem sést
hafi upp á síðkastið að viðbættu
útboði Seðlabankans á ríkisbréfum,
sem fram fór í gær. „Við teljum að
skuldabréfamarkaðurinn nái sér á
strik á þessu ári,“ segir hann. - jab
Veltumesti dag-
ur ársins í gær
SKÓGARNES – orlofssvæði Rafiðnaðarsambands Íslands
P &
Ó
/
po.is
Auglýsingasími