Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.05.2009, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 14.05.2009, Qupperneq 30
 14. MAÍ 2009 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● frístundir og námskeið Tæknilegonámskeið verða í boði í sumar fyrir krakka á aldrin- um sex til tólf ára. „Ég er með gamlan lager af tæknilegói sem ég fékk sendan frá Lego-fyrirtækinu á sínum tíma og hef bætt í hann eitthvað af mótorum og fleiru,“ segir Jóhann Breiðfjörð, leiðbeinandi námskeiðanna, en hann starfaði í fimm ár sem hönnuður, hugmyndasmiður og ráðgjafi hjá tæknideild danska leikfangafyrirtæk- isins Lego. Hann hefur haldið yfir 300 nýsköpunarnámskeið fyrir grunnskólanemendur undanfar- in ár og fjölda fyrirlestra um skapandi hugsun bæði innan fyrirtækja og á eigin vegum. „Þegar ég starfaði hjá Lego fór mig að gruna að krakkar væru ekki að byggja mikið sjálf úr tæknilegoinu heldur færu frekar eftir teikningum. Síðan væru hlutirnir geymdir uppi í hillu,“ segir Jóhann sem telur hönnuði oft gera of flókna hluti þannig að karkkar veigri sér við að rífa hlutina í sundur til að búa til eitthvað sjálf. „Hjá mér hafa krakkarnir frjálsar hendur með verkefni en ég kenni þeim að nota tannhjól og mótora,“ út- skýrir Jóhann en námskeiðin eru ætluð að hvetja krakkana til að gera tilraunir og byggja meira upp á eigin spýtur. Jóhann hefur hins vegar einfaldar grunnteikningar fyrir krakkana til að styðjast við en síðan er hægt að bæta við þær. Hann segir hvern sem er geta haft gaman að tæknilegoinu enda snúist þetta fremur um að gera tilraunir frekar en að vera klár á vélar eða tækni. En er þetta bara fyrir stráka? „Nei, strákar eru kannski í meirihluta en stelpurnar eru að sækja í sig veðrið,“ svarar Jóhann og telur stelpurnar alveg jafn góðar í tæknilegoi og strákana. Námskeiðin verða haldin í allt sumar í nokkrum skólum en um tólf krakkar eru saman í hóp og reynt verður að skipta hópunum niður eftir aldri. Á vefsíðu Jóhanns, www.nyskopun.com, er hægt að nálgast allar frekari upplýsingar um tímasetningar og skráningar. - sg Læra að búa til þyrlur og bíla með mótorum Jóhann Breiðfjörð kennir krökkum á aldrinum sex til tólf ára að byggja úr tæknilegoi í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hafna- og mjúkboltafélag Reykjavíkur stendur fyrir fyrsta Íslandsmótinu í hafnabolta. „Þegar ég flutti hingað til að kenna tennis var enginn hafnabolti spilað- ur. Í gegnum starf mitt sem lands- liðsþjálfari í tennis komst ég svo að því að kastgetu íslenskra ung- menna var ábótavant, en hún er ein af undirstöðuatriðunum í tennis- kennslu. Ég fór þess vegna að mæta með hafnaboltahanska á æfingar til að bæta úr því. Smám saman vatt þetta upp á sig, fólk fór að æfa íþróttina og fyrr en varði var ég kominn á kaf í hafnabolta.“ Þannig lýsir Raj Bonifacius, landsliðsþjálfari í tennis og for- maður Hafna- og mjúkboltafé- lags Reykjavíkur, aðdragand- anum að stofnun félagsins á síð- asta ári en það er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. „Þetta hefur verið reynt áður, en þá var ekk- ert félag, engin skipulögð starf- semi í kringum þetta,“ útskýrir hann og bætir við að strax í fyrra hafi þjálfarar úr röðum Evrópska hafnaboltasambandsins (Confed- eration of European Baseball) því verið fengnir til að veita ráðgjöf við stefnumótun og uppbyggingu íslenska félagsins. Uppátækið mæltist vel fyrir meðal íslenskra ungmenna þar sem fjörutíu börn voru skráð á námskeiðin, auk þess sem full- orðnir létu ekki sitt eftir liggja. „Þetta voru mest drengir, því miður, þar sem stelpur eru alveg jafn góðar í hafnabolta. Krakkarn- ir voru áhugasamir, sem er gott, og mættu margir með hanska og kylf- ur á svæðin hjá Húsdýra- og fjöl- skyldugarðinum og í Fossvoginum enda þarf ekki mikið meira til að spila íþróttina. Á síðasta ári var takmarkað við börn á aldursbil- inu níu til fjórtán ára en nú verð- ur tekið á móti krökkum frá sex til fimmtán ára.“ Raj segir að gæðastaðlinum verði haldið í ár, sem sjáist meðal annars af því að bandaríski þjálf- arinn Patrick Pace hafi verið feng- inn til að kynna og kenna börnum og fullorðnum hafnabolta, fyrst í grunnskólum frá 25. maí og svo almenningi frá 8. júní. „Þá verð- ur hann með námskeið fyrir börn í hádeginu.“ Hápunktinn telur hann án efa fyrsta Íslandsmótið í hafnabolta hinn 14. júní. „Ég er akkúrat núna að hvetja íþróttafélög á höfuðborg- arsvæðinu til að stofna lið og vera með. Þau eru velkomin að mæta á ókeypis kvöldæfingar hjá Pace þar sem við erum að undirbúa menn fyrir mótið. Þarna eiga þeir mögu- leika á að verða fyrstu Íslands- meistararnir í hafnabolta,“ segir hann. Næsta námskeið verður haldið 8. júní, en félagið er með aðstöðu fyrir ofan Húsdýra- og fjölskyldu- garðinn og í Fossvoginum. Nán- ari upplýsingar á www.hafnabolti. com. - rve Keppt í hafnabolta í fyrsta sinn á Íslandi Raj segir þátttöku í hafnabolta hafa farið fram úr björtustu vonum á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Þetta er hin hliðin á þessu fyrir- brigði Facebook, sú sem snýr að markaðssetningu og viðskiptum,“ segir leikstjórinn og framleiðand- inn Maríanna Friðjónsdóttir, sem kennir námskeiðið Facebook sem markaðstæki hjá Endurmenntun Háskóla Íslands dagana 27. og 28. maí. Facebook hefur að hennar sögn fremur verið nýtt til persónulegra samskipta hingað til. Á námskeið- inu verður hins vegar lögð áhersla á markaðssetningu fyrirtækja og stofnana með hjálp Facebook en sú aðferð hefur verið að ryðja sér til rúms vestanhafs. „Fyrir- tæki ytra hafa smám saman áttað sig á því að nýta má samskiptin á fleiri vegu en til persónulegra tjá- skipta,“ bendir hún á og bætir við að aðferðin eigi fullt erindi við Íslendinga. „Við þurfum að gera okkur grein fyrir þeim möguleik- um sem þetta býður upp á enda eru notendur yfir tvö hundruð milljón- ir um allan heim.“ En er ekki hætt við því að Facebook glati aðdráttarafli sínu nái markaðssetning þar yfirhönd- inni? „Alls ekki. Sú persónulega nálgun sem Facebook býður upp á smitar viðskiptaleiðina, markaðs- setningin verður því sjálfkrafa persónulegri,“ segir Maríanna, sem kveðst vera mikill internet- nörd. „Mér finnst bara öll hug- myndavinna áhugaverð og hvern- ig hugmyndum er komið á fram- færi, hvort sem það er á netinu eða í öðrum miðlum.“ Facebook-námskeiðið er nú kennt í þriðja sinn vegna mikilla vinsælda og ætlar Maríanna að auki að vera með sérstakt fram- haldsnámskeið 3. og 4. júní. Nánar á www.endurmenntun.hi.is. - rve Facebook metið til fjár „Facebook byrjaði árið 2004 og var svo opnað almenningi 2006. Við það varð gríðarleg sprenging,“ segir Maríanna. Auglýsingasími – Mest lesið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.