Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.05.2009, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 14.05.2009, Qupperneq 35
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009 frístundir og námskeið ● fréttablaðið ● „Bestu brögðin eru dregin fram á einu kvöldi,“ segir Friðgeir Ingi Eiríksson, yfirmatreiðslumeistari veitingahússins Gallery á Hótel Holti, um matreiðslunámskeið þar á bæ. „Við förum yfir hvernig eigi að að útbúa þriggja rétta veislumáltíð á aðeins tveimur tímum,“ útskýr- ir hann og bætir við að þátttakend- ur verði margs vísari um hvernig eigi að bera sig að við veisluhöldin heima án þess að stressast. „Gest- gjafinn á að geta fengið sér for- drykk með gestunum í rólegheit- unum,“ bendir hann á og segir að með góðu skipulagi megi láta allt ganga vel fyrir sig. Þegar þátttak- endur hafa lokið við eldamennsk- una fá þeir að gæða sér á réttunum ásamt völdum vínum, um leið og helstu atriði námskeiðsins verða rifjuð upp. Friðgeir bendir á að einnig sé tekið á móti lokuðum hópum, eins og sauma- og veiðiklúbbum. „Það hefur komið skemmtilega út þegar strákahópar koma til að elda og bjóða svo konunum sínum í mat og heilla þær þannig upp úr skónum með glæsilegri framkomu.“ Næstu námskeið verða haldin 19. og 26. maí en þá er farið yfir hvernig eigi að elda hina fullkomnu grillsteik fyrir sumarið. - vg Rúmlega fjörutíu nemendur við Háskóla Íslands munu sitja nýstárlegt námskeið í útvarps- þáttagerð í sumar. Margt reyndasta útvarpsfólk landsins kennir og verða þættirnir flutt- ir á RÚV í vetur. „Það hefur verið draumur minn í nokkur ár að það verði hálf- tíma háskólaútvarp í viku hverri í Ríkisútvarpinu. Og nú sýnist mér sá draumur ætla að verða að veru- leika,“ segir Kristín Einarsdótt- ir, aðjúnkt í þjóðfræði, dagskrár- gerðarmaður og umsjónarmaður nýs námskeiðs sem Háskóli Ís- lands býður í sumar í samstarfi við RÚV. Nemendur munu vinna út- varpshandrit og gera útvarps- þætti, byggða á þekkingu sinni og hugmyndum sem sprottið hafa úr námi þeirra. Kennslan fer fram í höfuðstöðv- um Ríkisútvarpsins í Efstaleiti í þrjár vikur í sumar. Þaulvant fjöl- miðlafólk, sem er hlustendum Rík- isútvarpsins að góðu kunnt, kemur að kennslunni. Þeirra á meðal eru Hjálmar Sveinsson, Ævar Kjart- ansson, Elísabet Indra Ragnars- dóttir, Lísa Pálsdóttir, Lana Kol- brún Eddudóttir, KK og margir fleiri. Hugmyndina að námskeiðinu fékk Sigrún Stefánsdóttir, dag- skrárstjóri Rásar 1 og Rásar 2, þegar Háskólinn var að leita leiða til að bæta námsframboð á sumar- önn fyrir nemendur sína. Hún seg- ist stolt og ánægð með framtakið. „Þátttökulistinn og mikill áhugi starfsmanna RÚV á að taka þátt sýnir að það var þörf fyrir þetta nám,“ segir hún. „Við erum spennt að fá ungt fólk hérna inn og ég held að það eigi eftir að verða vítam- ínsprauta fyrir okkur. Hver veit nema við finnum líka þarna dag- skrárgerðarfólk framtíðarinnar.“ Námskeiðið byggir á grunni námskeiðs í þjóðfræði sem Krist- ín hefur kennt í mörg ár, þar sem nemendum bauðst að gera tíu mínútna útvarpsþátt í stað þess að skila ritgerð. Út úr því munu margir góðir útvarpsþættir hafa sprottið. Háskólanemar hafa tekið nám- skeiðinu vel og hafa 47 nú þegar skráð sig. Áhugasamir utan Há- skólans verða að bíða og vona að haldið verði áfram, því námskeið- ið býðst eingöngu þeim sem skráð- ir voru í Háskólann í vetur. Rúsínan í pylsuendanum er svo sú að nemendur uppskera ríkulega afrakstur erfiðis síns, þar sem þættirnir verða á dagskrá Ríkis- útvarpsins á komandi vetri. Há- skólaútvarpið hefst þó strax í júní, en þá hefst flutningur þátta þjóð- fræðinema sem teknir voru upp í vetur. - hhs Rjóminn af RÚV Kristín Einarsdóttir, þjóðfræðingur og dagskrárgerðarkona, er umsjónarmaður nám- skeiðs í þáttagerð sem haldið verður í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Kennir bestu brögðin Friðgeir Ingi stjórnaði eldhúsi Michelin- staðarins Clairfontaine í Lyon í Frakk- landi í fimm ár og lumar því á leyndar- málunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 62% 40% Fréttablaðið stendur upp úr Allt sem þú þarft... ... 44% 73% 12–80 ára 34% 74% 18–49 ára Lestur á höfuðborgarsvæðinu Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað landsins með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup ótvírætt sýnir. Við erum auðvitað rífandi stolt af þessum góða árangri og bendum auglýsendum á að notfæra sér forskot okkar þegar þeir velja auglýsingamiðil. Meðallestur á tölublað m.v. allt landið, 12–80 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 - apríl 2009.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.