Fréttablaðið - 14.05.2009, Síða 46
30 14. maí 2009 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Kl. 21.
Hljómsveitin Mingus Ah Um kemur
fram í Múlanum, Jasskjallaranum á
Café Cultura á Hverfisgötu 18. Til-
efnið er 50 ára afmæli samnefndrar
plötu Charles Mingus. Hún er ein af
merkustu plötum djasssögunnar og
efni hennar flutt þar í heild sinni af
einvalaliði spilara.
> Ekki missa af
Sinfóníutónleikum í kvöld
sem verða vafalaust stórvið-
burður, því þá leikur rússneski
píanistinn Olga Kern einn
vinsælasta einleikskonsert allra
tíma, Píanókonsert nr. 2 eftir
Sergei Rakmaninoff. Auk þess
leikur hljómsveitin sinfóníu
nr. 4, Ítölsku sinfóníuna, eftir
Felix Mendelssohn en hún er
með eindæmum fjörug og eitt
þekktasta verk hans.
Mikið er auglýst ný kvikmynd
sem frumsýnd var í gær sem
byggir á Englum og djöflum eftir
Dan Brown. Minna fer fyrir frétt-
um af nýrri skáldsögu hans sem
kemur út vestanhafs 15. septemb-
er, The Lost Symbol, bæði á bók og
í hljóðbókarútgáfu. Da Vinci-lyk-
illinn seldist í 81 milljón eintaka
um heim allan. Fyrsta prentun
vestanhafs verður 5 milljónir ein-
taka. Í nýju bókinni er enn fylgst
með Robert Langdon og gerist
sagan á tólf klukkustundum.
Útgefandi Brown á Íslandi,
Bjartur, fær ekki handrit til
vinnslu fyrr en 15. september
og er stefnt að útgáfu verksins í
síðari hluta október hér á landi.
Er hætt við að nýja sagan verði
fyrirferðarmikil í sölu skáld-
sagna hér á landi síðari hluta
ársins og fram á næsta ár.
Hr. Ferdinant, bókaútgáfa Snæ-
björns Arngrímssonar í Dan-
mörku, gefur bókina út þar og er
henni lofað á náttborð danskra
fyrir jól á vefsíðu fyrirtækisins.
Þar eru kynntir margir erlendir
höfundar afþreyingarskáldsagna
og vandaðri bókmennta en allur
sá listi ber þess merki að þar
ræður húsum fyrrum útgefandi
Bjarts. - pbb
Táknið týnda kemur í haust
DAN BROWN
Þegar Evrópa var að lokast snemma á
stríðsárunum opnaðist íslenskum náms-
mönnum ný veröld til menntunar: Banda-
ríkin.
Víst höfðu margir leitað þangað áður en hópur-
inn sem sótti vestur í og upp úr stríði átti eftir að
verða áhrifamikill í íslensku þjóðlífi: tónlistarmenn,
leikarar, rithöfundar og myndlistarmenn. Sumar-
sýningar Listasafns Reykjavíkur verða opnaðar á
föstudag um leið og Listahátíð hefst: önnur þeirra
er Frá Unuhúsi til Áttunda strætis og hefur verið í
undirbúningi í þrjú ár. Þar má sjá olíumálverk eftir
tvær vinsælar myndlistarkonur sem sóttu vestur
og ílentust þar, Louisu Matthíasdóttur og Nínu
Tryggvadóttur: Fæst verkanna hafa verið sýnd
áður hér á landi auk verka eftir lærimeistara þeirra
beggja, Hans Hofmann og aðra nemendur hans sem
getið hafa sér gott orðspor vestanhafs; Robert De
Niro eldri, Nell Blaine og Jane Freilicher.
Stór hluti sýningarinnar er helgaður verkum
sem Louisa og Nína máluðu af samferðamönnum
sínum í Unuhúsi en sú syrpa stendur ein og sér og
er vel þekkt þótt ekki hafi Unuhúss-verkunum áður
verið safnað saman. Sýningarstjóri er Hrafnhildur
Schram. Sýningin stendur til 30. ágúst.
Samtímis verður opnuð á Kjarvalsstöðum sýning
á íslenskri hönnun sem er unnin í samstarfi við
Hönnunarmiðstöð Íslands. Er henni ætlað að kynna
brot af því besta sem er að gerast í íslenskri hönnun
í dag með áherslu á húsgagna-, vöruhönnun og arki-
tektúr í víðum skilningi. Sýndir verða hlutir sem
eru í framleiðslu og valdar perlur íslensks samtíma
arkitektúrs frá um 20 hönnuðum. Markmið sýn-
ingarinnar er að kynna á skýran og upplýsandi
hátt íslenska hönnun eins og hún gerist best hvað
varðar fagurfræði, formskilning, framleiðslu og
heildarhönnun. Hönnunarmiðstöð Íslands hyggst
nota sýninguna áfram til að kynna íslenska hönnun
á erlendri grund.
Samhliða hönnunarsýningunni verður kynning á
„vaxtarbroddum“, þ.e. efnilegum hönnuðum sem eru
að taka sín fyrstu skref. Það verkefni er unnið fyrir
tilstuðlan Hönnunarsjóðs Auroru. Sýningarstjóri er
Elísabet V. Ingvarsdóttir og stendur sýningin til 9.
ágúst. pbb@frettabladid.is
ÁHRIFIN FRÁ NEW YORK
MYNDLIST Sjálfsmynd eftir Nínu Tryggvadóttur.
MYND/LISTASAFN REYKJAVÍKUR
Verandi friðelskandi þjóð, er við hæfi að
Universal Peace Federation haldi áhugaverðan
fund í Fríkirkjunni í Reykjavík undir þemanu “Ein fjölskylda
undir Guði” á föstudaginn 15. maí kl. 17.30 í samvinnu
við Fjölskyldudag Sameinuðu þjóðanna. Dagskráin mun
innihalda japanska tónlist, Ewa Tosik spilar á fi ðlu,
kirkjukór fríkirkjunnar syngur og Gunnar Kvaran spilar
á selló.
Ræðumenn eru frá mismunandi trúarbrögðum og munu
framkvæma “vatnsathöfn” þar sem mismunandi trúarhópar
koma saman fjölskylda sem er upptök friðarins og ljúka
fundinum. Fundurinn verður að mestu á ensku.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Hart í bak
Creature - gestasýning
Ó, þú aftur - afmælissýning leikhópsins Hugleiks
Í Óðamansgarði - ópera í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík
Kardemommubærinn
DEADHEAD´S
LAMENT
NEMENDALEIKHÚSIÐ
14. - 23. maí 2009
eftir Tony Vezich
HAFNARFJARÐARLEIKHÚSIÐ
MIÐASALA í s: 555 2222 og á midi.is